Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Útsala Útsala Útsala Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Opið laugardaga kl. 10-16 SPEKTRO PÓSTSENDUM www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi, Yggdrasil Kárastíg 1. Fjarðarkaupum Borgartúni 24 EIN MEÐ ÖLLU Multivitamín, steinefnablanda ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum. 30% hækkun | Fasteignamat í Fjarðabyggð hefur hækkað veru- lega á síðustu tveim árum og nemur hækkunin nú 30% sem er mesta hækkun á landinu. Þetta kemur fram á vefnum fjardabyggd.is. Áður hafði fasteignamat í Fjarðabyggð hækkað um 20%. Hækkun þessi kemur í kjölfarið á mikilli hækkun húsnæðisverðs í sveitarfélaginu og líflegri fasteignasölu á síðustu árum. Þá fylgir þessu að tekjur sveitarfé- lagsins aukast á komandi ári með hækkuninni. LOÐNUFRYSTING var í fullum gangi um borð í fjölveiðiskipum Samherja, Vilhelm Þor- steinssyni EA og Baldvini Þorsteinssyni EA í gær, þar sem skipin dóluðu úti á Eyjafirðinum. Frystigeta hvors skips er um 150 tonn á sólar- hring og er ráðgert að bæði skipin landi fryst- um loðnuafurðum á Akureyri í dag. Þeir koll- egar Birkir Hreinsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni og Hákon Guðmundsson skip- stjóri á Baldvini Þorsteinssyni, voru sammála um að loðnuveiðarnar hefðu farið vel af stað á nýju ári, loðnan væri mjög góð og færi öll í frystingu. Birkir sagði ráðgert að landa um 600 tonnum af frosinni loðnu nú í morgunsárið en um borð er 900-1000 tonna afli. „Við vorum norður af Sléttu og þar var fínasta veiði,“ sagði Birkir. Baldvin Þorsteinsson er með um 700 tonna afla en skipið var við veiðar norður af Rifs- banka. „Loðnan var komin þangað og gekk hratt austur á bóginn. Mér heyrist á mönnum sem hafa stundað þessar veiðar lengi, að það hafi verið þarna stór fleki á ferðinni en gengið hratt austur. Þá eru leitarskip á 9 leitar- svæðum. Það hefur lítið frést af þeim ennþá nema að Beitir, sem er með Kolbeins- eyjarsvæðið, hefur orðið var við loðnu,“ sagði Hákon. Loðnufryst- ing á Eyja- firðinum Morgunblaðið/Kristján Fjölveiðiskip Loðnufrysting stóð yfir í Baldvini Þorsteinssyni og Vilhelm Þorsteinssyni úti á Eyja- firði í gær. Baldvin lagðist að bryggju um stund í hádeginu en svo var haldið aftur út á fjörð. Dalvík | Slysum hefur fækkað ár frá ári í umdæmi lögreglunnar á Dalvík og einnig umferðaróhöppum þar sem tjón er mikið. Hins vegar hefur um- ferðarlagabrotum fjölgað á síðasta ári miðað við árið á undan, samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglunn- ar. Þar er bent á að það slæma við samanburðinn sé að lítið hafi dregið úr fjölda fíkniefnamála og hefur mál- um fjölgað þar sem neysla á sér stað. Heildarfjöldi verkefna lögreglunn- ar á Dalvík var 3.093 á síðasta ári, eða heldur fleiri verkefni en árið áður en mun færri en árin þrjú þar á undan. Alls komu upp 10 mál tengd fíkniefn- um í fyrra, eða helmingi fleiri en árið áður. Þá komu 308 umferðarlagabrot til kasta lögreglunnar á Dalvík í fyrra, 43 umferðaróhöpp og 16 slys en slys- um fækkaði um 5 á milli ára. Inn- brotsmál voru 5 í fyrra en 7 árið áður og þjófnaðarmál 19 í fyrra og fækkaði um þrjú á milli ára. Starfssvæði lög- reglunnar á Dalvík nær einnig yfir Svarfðardal, Hrísey, Árskógsstrand- ar og hluta Gálmastrandar. Slysum og umferðaróhöppum hefur fækkað ár frá ári Fíkniefnamálum fjölgaði Gönguskíðadagur | Skíðafélag Akureyrar og Skógræktarfélag Eyfirðinga standa fyrir göngu- skíðadegi í Kjarnaskógi laugardaginn 8. janúar frá kl. 13.00. Boðið verður upp á gönguskíðakennslu fyrir unga sem aldna, leiðbeint í umhirðu skíða- búnaðar og notkun skíðaáburðar og þá verður leikjabraut fyrir krakka. Allir eru velkomnir. AUSTURLAND AKUREYRI Neskaupstaður | Þessir krúttlegu hvolpar með himinblá augu eru af svokölluðu Whippet-mjóhundakyni. Þeir fæddust fyrir fjórum vikum og eru úr fyrsta goti þessarar teg- undar á Íslandi. Hvolparnir eru fimm, þrír rakk- ar sem heita Læðingur, Drómi og Gleypnir og tvær tíkur sem heita Snör og Snerpa, en allir bera hvolp- arnir ræktunarnafnið Leifturs. Móðir hvolpanna heitir Maja og er hún íslenskur og norskur meistari, en pabbinn heitir Snabbi og er ís- lenskur meistari. Það er Gunnur Sif Sigurgeirs- dóttir í Neskaupstað sem ræktar þessa hunda og hún segir þá ein- staklega skemmtilega heim- ilishunda sem eru blíðir og rólegir inni fyrir en um leið mjög kraft- miklir og sportlegir hlaupahundar úti fyrir, en þessir hundar geta náð allt að 68 km hraða á hlaupum. Mikill áhugi er á gotinu hérlendis meðal erlendra Whippet-ræktenda og eru menn spenntir að sjá hverju fram vindur. Að sögn Gunnar Sifjar var teg- undin ræktuð í Bretlandi, m.a. út frá hinum frægu veðhlaupahundum Greyhound en slíka hunda mátti einungis aðallinn í Bretlandi eiga á sínum tíma. Whippet-hundarnir voru ræktaðir fyrir verkamenn og komu sér vel við að færa björg í bú, enda mjög góðir veiðihundar auk þess sem þeir héldu hita á börnum í rekkju. Nánar má fræðast um þessa tegund á www.whippet.is. Fyrsta got Whippet-hunda á Íslandi Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Nýliðar í hundaflórunni Læðingur, Drómi, Gleypnir, Snör og Snerpa. Hlaupahundur fátæka mannsins Fljótsdalshérað | Óeining ríkir í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs vegna fyrirhugaðra ráðninga fólks til stjórnunarstarfa í sveitarfélaginu. Meirihluti bæjarstjórnar er skipað- ur fulltrúum Héraðslista og Sjálf- stæðisflokks, en í minnihluta sitja Framsóknarflokkur og Áhugafólk um sveitarstjórnarmál á Fljótsdals- héraði. Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdals- héraðs á miðvikudag voru teknar fyrir tillögur bæjarstjóra og for- manna undirnefnda varðandi um- sækjendur um sex ný störf. Minni- hlutinn sat að mestu leyti hjá í atkvæðagreiðslum og lét bóka við nærfellt allar tillögurnar að ekki hefði fengist aðgangur að gögnum um umsækjendur sem byggja mætti á skoðun um hæfi umsækjenda. Síðustu vikurnar fyrir bæjar- stjórnarfundinn höfðu minnihluta- fulltrúar látið bóka sömu gagnrýni á fundum undirnefnda sem fjölluðu um einstakar ráðningar. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjar- stjóri Fljótsdalshéraðs, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að fulltrúar minnihlutans teldu sig hafa haft styttri tíma til aðgangs að gögnum um umsækjendur en þurft hefði að vera. „Ákveðið var að vinna þetta þannig að ég og formenn við- komandi nefnda forynnum tillögur að ráðningum, eins og gert er í öll- um fyrirtækjum og stofnunum al- mennt. Minnihlutinn hafði ekki að- gang að gögnunum í jafnlangan tíma og við sem sömdum tillögurnar. Og auðvitað var ekki hugmyndin að allir nefndarmenn kæmu að viðtölum eða öðru slíku. Menn eru bara að gagn- rýna að hafa ekki nægar upplýsing- ar til að greiða atkvæði með ráðn- ingu.“ Eiríkur, sem er fyrrverandi bæj- arstjóri Austur-Héraðs, var á liðnu ári ráðinn bæjarstjóri hins nýja sveitarfélags, en f.v. sveitarstjórar Norður-Héraðs og Fellahrepps, sem eru nú sameinuð Austur-Héraði í sveitarfélagið Fljótsdalshérað, sóttu báðir um stjórnunarstöður hjá sveit- arfélaginu en fengu ekki. Vildu fá fyrrverandi sveitarstjóra Fellahrepps Á fundi bæjarstjórnar gagnrýndi minnihlutinn m.a. harðlega að f.v. sveitarstjóri Fellahrepps til síðustu ára væri ekki ráðinn fjármálastjóri, þar sem hann hefði stjórnað fjár- málum Fellahrepps vel og unnið sameiningu sveitarfélaganna mikið gagn. Þannig væri verið að varpa fyrir róða fjármunum, reynslu og þekkingu á sveitarstjórnarmálum, auk dýrmæts tíma í þjálfun óreynds fólks, þar sem stutt væri í næstu sveitarstjórnarkosningar. Með sömu rökum var gagnrýnt að f.v. sveit- arstjóri Norður-Héraðs væri ekki ráðinn í stöðu héraðsfulltrúa. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum að rætt verði um starfslok við fyrrverandi sveitarstjóra Fella- hrepps og Norður-Héraðs. Þessar viðræður hófust í gær og sagðist bæjarstjóri ekkert geta sagt til um hvort þar væri verið að ræða biðlaun eða sérstakar greiðslur til viðkom- andi aðila. Bæjarstjórn samþykkti að ganga til samninga við Guðlaug Sæbjörns- son í starf fjármálastjóra, Helgu Guðmundsdóttur í starf fræðslufull- trúa, Karenu Erlu Erlingsdóttur í starf menningar- og frístundafull- trúa, Óðin Gunnar Óðinsson í starf verkefnis- og þróunarstjóra, Skarp- héðin Smára Þórhallsson í starf hér- aðsfulltrúa og Önnu Björk Hjalta- dóttur í starf umhverfisfulltrúa. Bæjarstjóra var falið að ganga til samninga við viðkomandi umsækj- endur. Tekist á um ráðningu í stjórnunarstöður á Fljótsdalshéraði Minnihlutinn gagnrýnir fyrirhugaðar ráðningar Venjubundin vinnubrögð segir Ei- ríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, og vísar gagnrýni minnihlutans á bug. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Íþróttahús | Nýtt íþróttahús hef- ur verið tekið í notkun í Fellabæ og er það sambyggt Félagsmiðstöð- inni í Fellum og safnaðarheimili Áskirkju. Smíði hússins er ekki að fullu lokið, en íþróttakennsla hófst þar í vikunni. Íþróttahúsið hefur verið í bygg- ingu undanfarna mánuði og á að vera tilbúið á næstu vikum. Í hús- inu er 300 fermetra íþróttasalur með búningsaðstöðu og sturtum. Lítið svið er við salinn og því má nýta hann sem samkomusal. Auk þess er í húsinu fundarsalur og að- staða til félagsstarfsemi. Öll íþróttakennsla við Fellaskóla flyst í húsið, en hún hefur verið í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Einnig er gert ráð fyrir því að hluti íþróttaæfinga á vegum íþrótta- félagsins Hattar verði í húsinu. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.