Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 18
Vorönn Kvennakórs Reykjavíkur Æfingar á vorönn hefjast miðvikudaginn 12. janúar kl. 20.00. Í september 2005 fer Kvennakór Reykjavíkur í viku söngferðalag til Finnlands, Eistlands og Svíþjóðar og hefst undirbúningur ferðarinnar nú á vorönn. Kórinn getur bætt við nokkrum röddum. Áhugasamar hafi samband í síma 896 6468 eftir kl. 16:00. Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur Kennsla hefst miðvikudaginn 19. janúar kl. 18:00. Í kórskólanum er farið yfir undirstöðuatriði söngs og þá sérstaklega söngs í kór, þar sem unnið er með sjálfstæði radda og samhljóm. Innritun í síma 896 6468 eftir kl. 16:00. Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur Æfingar hefjast mánudaginn 10. janúar kl. 16:00. Æfinga- og kennsluaðstaða er í húsnæði Sjómannaskóla Íslands við Háteigsveg. Kórstjóri og kennari er Sigrún Þorgeirsdóttir. Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Dagsbirtulampar | „Nú förum við úr eymdinni í ljósið!“ segir í frétt á vef Fjöl- brautaskólans við Ármúla, en nýlega festi Heilbrigðisskólinn sem er innan veggja skólans, kaup á nokkrum dagsbirtulömpum sem komið hefur verið fyrir á bókasafni skólans. „Tilgangurinn er að ráða bót á skammdegisþunglyndi því sem hrjáir svo marga á þessum árstíma. Skammdegis- þunglyndi er einnig nefnt vetraróyndi. Sjúkdómurinn er árstíðabundinn og byrja einkennin að koma fram þegar dagurinn styttist á haustin, en hverfa á vorin þegar dagurinn lengist,“ segir í fréttinni. Þar er einnig getið um helstu einkenni sem eru atorkuleysi og depurð, en önnur einkenni eru bráðlyndi, félagsfælni, kvíði og áhyggj- ur, skert framtakssemi, lengdur nætur- svefn, mikil löngun í sætindi og aukin lík- amsþyngd. Fram kemur að rannsóknir hafa sýnt að reglubundin ljósameðferð getur stundum ráðið bót á sjúkdómnum. Vestlendingur ársins | Frjálsíþrótta- maðurinn Jón Oddur Halldórsson frá Hell- issandi hefur verið útnefndur Vestlend- ingur ársins 2004. Vestur- landsblaðið Skessuhorn stendur fyrir valinu. Jón Oddur hlaut tvenn silf- urverðlaun á Ólympíumóti fatlaðra í Aþenu á síðasta hausti og hefur unnið til fjölda verð- launa í sprett- hlaupum á íþróttamótum fatlaðra víða um heim. Í öðru sæti í valinu varð Bárður Eyþórs- son, þjálfari körfuknattleiksliðs Snæfells í Stykkishólmi. Pétur Geirsson hótelhöldur í Borgarnesi og Stykkishólmi varð í þriðja sæti.    Það verður mikið umdýrðir í KA-heimilinu á Akur- eyri á morgun, laugardag- inn 8. janúar, á afmælis- degi félagsins. Þá leika gömlu kempurnar sem urðu fyrstu bikarmeist- arar KA 1995, en í þeim hópi er m.a. Alfreð Gísla- son, þáverandi þjálfari liðsins, gegn núverandi bikarmeisturum KA, en leikurinn hefst kl. 15. All- ur ágóði rennur óskiptur til góðgerðarmála. Við sama tækifæri verður lýst kjöri á íþróttamanni KA. Handbolta- veisla Vetrarlegt er um að litast á Hofsósi líkt og annarsstaðar norðan heiða, en þar sem og í öðru þétt-býli í Skagafirði er ekki svo mikill snjór á lág- lendi. Hann hangir að mestu í hlíðunum, því í suðaust- anáttinni sem ríkjandi var í vikunni fauk snjórinn að mestu á haf út. Morgunblaðið/Björn Björnsson Vetrarlegt á Hofsósi Ingi Steinar Gunn-laugsson á Akranesiorti í tilefni af vangaveltum um hvort selja mætti vín í mat- arbúðum: Eflaust myndi ólmur hlaupa út í búðir hvert eitt sinn ef ég mætti kátur kaupa koníak fyrir afganginn Hann orti um áramótin: Eftir talsvert braml og bauk brá upp eldi drukkinn glanni og kröftugt skeyti rakleitt rauk í rassgatið á næsta manni „Áááiiiii, þetta hefur ver- ið vont,“ hváði Einar Kol- beinsson og orti: Ef að svona illa fer, undan margur veinar. Bestu óskir ber ég þér, um bata Ingi Steinar! Um áramót pebl@mbl.is Reykjanesbær | Mikið var að gera í andlitsmáluninni í Reykjaneshöllinni í gær, þegar börnin voru að búa sig undir kvöldið. Biðraðir voru við leik- tækin og andlitsmálunina á meðan beðið var eftir að gengið yrði fylktu liði undir forystu álfakonungs og -drottningar að álfabrennunni á Iða- völlum þar sem jólin voru kvödd á viðeigandi hátt. Mikið var sungið og dagskránni lauk síðan með flug- eldasýningu. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Búa sig und- ir gönguna Þrettándinn Skagafjörður| Fulltrúar Framsóknar- flokks í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar lögðu fram breytingartillögu við gerð fjárhagsáætlunar þess fyrir þetta ár, en þeir vildu að fjárveiting til atvinnu- mála yrði aukin um 50 milljónir króna til að byggja upp atvinnulíf sem fyrsta skref í þeirri viðleitni að snúa við rekstri sveitar- félagins og íbúaþróun héraðsins. Eigið fé rýrnar árlega um 100 milljónir „Íbúum sveitarfélagsins fækkaði veru- lega á yfirstandandi ári. Því er ljóst að end- urvekja þarf traust almennings á Skaga- firði sem búsetukosti. Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar sveitarstjóra og meirihlutafulltrúa um góðan rekstur, hag- ræðingu og árangur í fjármálastjórn er ljóst, skv. ársreikningum sveitarfélagins fyrir árið 2003 og fjárhagsáætlun 2004 og framlagðri áætlun fyrir árið 2005, að eigið fé samstæðu sveitarfélagins rýrnar árlega að meðaltali þessara ára um rúmlega 100 milljónir, sem þýðir að sveitarsjóður verð- ur kominn í þrot innan örfárra ára með óbreyttri stefnu,“ segir í bókun þeirra. Bregðast verður við með róttækum aðgerðum Þá segir einnig að ljóst sé að nú þegar verði að bregðast við með róttækum að- gerðum og að fulltrúar Framsóknarflokks- ins bendi enn og aftur á að eina raunhæfa leið sveitarfélagsins til að snúa óheillaþró- uninni við sé að auka tekjur sveitarsjóðs og það verði ekki gert nema með uppbygg- ingu atvinnulífs í héraðinu. „Fulltrúar flokksins geta ekki samþykkt framlagða fjárhagsáætlun sem leiðir til þrots sveit- arsjóðs innan örfárra ára,“ segir í bókun framsóknarmannanna þriggja en þeir greiddu atkvæði gegn fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Hærri tekjur og lækkun skulda Áætlunin var samþykkt og segir á vef sveitarfélagsins að meðal þess sem hún boði sé verulega bætt rekstrarafkoma, lækkun skulda, minni lántaka og hærri tekjur. Fram kemur að niðurstaða rekstrar allr- ar samstæðunnar lagist milli ára um 38%, halli fari úr 136 milljónum í 99 milljónir og rekstrarniðurstaða aðalsjóðs lagast um 50%, halli fari úr 58 milljónum í 29. Ný lán- taka er áætluð 154 milljónir og afborganir lána muni nema um 238 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri hækkar um 30% og veltufé frá rekstri um 88%. Þá er gert ráð fyrir að fjárfest verði fyrir 114 milljónir á árinu, en það er 36 milljónum minna en á nýliðnu ári. Loks má nefna að heildar- skuldir lækka um 10 milljónir króna. Vildu 50 milljónir til atvinnuupp- byggingar Sveitarfélagið Skagafjörður Óskiljanlegar kröfur | Sveitarstjórn Öx- arfjarðarhrepps fjallaði á dögunum um kröfulýsingu fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á Norðausturlandi og lýsti þar furðu sinni á óskiljanlegum kröfum og vinnubrögðum ríkisins, í land innan sveitarfélagsins, og telur ljóst vera að nái þessar kröfur fram að ganga muni um þriðjungur sveitarfélagsins verða kominn undir miðstýrt vald ríkisins. Hvatti hún landeigendur í hreppnum til að taka hönd- um saman með landeigendum í öðrum sveitarfélögum á svæðinu og móta sameig- inlegar kröfur til þess að leggja fyrir Óbyggðanefnd.   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.