Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE CLOONEY BRAD PITT ANDY GARCIA andJULIA ROBERTS BERNIE MAC DON CHEADLE MATT DAMON CATHERINE ZETA-JONES Sýnd kl. 10.40. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. ✯  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið Sýnd kl. 5.30 ísl tal / 8 og 10.20 enskt tal Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8.30. OG 11.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.40. Ísl.tal. / kl. 8.30 og 11. Enskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30 og 6. Ísl.tal. Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. Enskt tal. TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ BRJÓTA ALLAR REGLUR. Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu! TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ BRJÓTA ALLAR REGLUR. Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu! illingurin Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumy d ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!  H.L. Mbl.  Kvikmyndir.comi ir. FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ YFIR 22.000 ÁHORFENDUR YFIR 22.000 ÁHORFENDUR INCREDIBLES ER VINSÆLASTA JÓLAMYNDIN, YFIR 22.000 ÁHORFENDUR FRÁ ÖÐRUM DEGI JÓLA TIL DAGSINS Í DAG I J I , I I J I I Í Hvað er málið með Alfie? Pottþétt rómantísk gamanmynd með JudeLaw sem nýlega var kosinn kynþokkafyllsti karlmaðurinn. Frábær tónlist.  H.L. Mbl..L. bl. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Kvikmyndir.isH.J. Mbl.  M.M.J. Kvikmyndir.com  KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. Ísl. tal. OCEAN´S TWELVE JUDE Law fetar í fótspor Michaels Caine í myndinni Alfie, sem er end- urgerð samnefndrar myndar frá árinu 1966. Myndin segir frá kvenna- bósanum Alfie (Law), sem starfar sem glæsibifreiðabílstjóri en í þetta skiptið gerist sagan í New York. Konurnar eru jafn hrifnar af Alfie og hann er af þeim og honum tekst að efna til ástarkynna um alla borg. Konurnar í lífi hans eru einstæða móðirin Julie (Marisa Tomei), Chan- el-klædda og kynþokkafulla frama- konan Liz (Susan Sarandon), Lon- ette (Nia Long), sem Alfie finnst vera of góð fyrir sig, taugatrekkta hús- móðirin Dorie (Jane Krakowski) og síðast en ekki síst partístúlkan Nikki (Sienna Miller). Alfie er heillandi en jafnframt haldinn sjálfseyðingarhvöt og verður fyrr en síðar að horfast í augu við sjálfan sig og konurnar í lífi sínu. Mikill stíll er yfir myndinni og er Alfie alltaf smekklega klæddur. Stíll- inn er í anda sjöunda áratugarins, þegar fyrri myndin var gerð, en hann er líka nútímalegur. Búningahönn- uður myndarinnar Beatrix Aruna Pasztor (Good Will Hunting, Drug- store Cowboy) segir að Jude Law þekki föt og föt fari honum vel. Ekki var hægt að láta Alfie vera í glænýj- um jakkafötum frá þekktustu hönn- uðum því hann á ekki mikið af pen- ingum. „Að lokum fundum við frábæran belgískan hönnuð, Martin Margiela, en föt hans eru einföld en yndisleg og með smá tilvísun í fortíð- ina,“ segir Pasztor. Minnisstæðustu föt Alfie í mynd- inni eru svört sérsniðin jakkaföt gerð í höndunum, sem hann klæðist á gamlárskvöld. Við fötin notar hann bleika skyrtu frá enska hönnuðinum Oswald Boateng með skyrtuhnöpp- um frá Yves Saint Laurent. Fyrir þá sem ekki vita eru Sienna Miller og Jude Law par en þau trú- lofuðu sig á jóladag. Ljósmynd/David Appleby Ein af stúlkunum sem verður á vegi Alfie (Law) er Nikki (Miller). Frumsýning | Alfie Stællegur kvennabósi ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 49/100 Roger Ebert Hollywood Reporter 60/100 New York Times 70/100 Variety 70/100 (metacritic) ÞAÐ gerist ekki oft að hér á landi sé tekin til almennra sýn- inga kvikmynd frá S-Kóreu. Þannig að þeg- ar það gerist þá hlýtur tilefnið að vera ansi sérstakt. Sem það er svo sannarlega í þessu tilfelli því s-kóreska kvik- myndin Oldboy sem tekin verð- ur til sýninga í Laugarásbíói í dag er einhver sú umtalaðasta og um leið róm- aðasta sem varpað var á tjaldið hvíta árið 2004. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes og vakti þá þegar mikla athygli. Gagnrýnendur lofuðu hana og blaðamenn veittu henni meiri eftirtekt en flestum öðrum myndum sem þar voru sýndar, að hluta vegna of- beldisins sem hún hefur að geyma en þó einkum vegna þess hversu kraftmikil og góð hún væri. Það kom því fáum á óvart að hún skyldi hljóta verð- laun, nánar tiltekið Grand Prix verðlaunin, þau næstmik- ilvægustu á eftir sjálfum Gullpálmanum. Formaður dóm- nefndar var líka helsti aðdáandi Parks, sjálfur Quentin Tarantino, sem segist hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá s-kóreska kollega sínum, ekki hvað síst er hann gerði Kill Bill. Blasir það líka við þegar horft er á myndir Parks því hefndin er hans ær og kýr. Í Oldboy er það maður sem haldið er föngnum í 15 ár án dóms og útskýringa, sem leitar hefndar. Hann er rang- lega sakaður um að hafa myrt eiginkonu sína og börn en hefur ekki hugmynd um hver stendur að baki þessum hrottafengna verknaði. Allt í einu, eftir að hafa verið í fangelsi í 15 ár, er honum sleppt á víðavangi, íklæddum jakkafötum, með fulla vasa fjár og farsíma. Síminn hring- ir og á línunni er óvildarmaður hans sem tilkynnir honum að hann hafi 5 daga til að hafa uppi á honum eða ann- ars … Nú þegar hefur verið ákveðið að endurgera myndina í Hollywood og hefur Nicolas Cage verið sterklega orðaður við aðalhlutverkið. Frumsýning | Oldboy Hefndin er ljót Choi Min-sik, venjulegur maður, fórn- arlamb hrottalegs ofbeldis í hamslausum hefndarhug. ERLENDIR DÓMAR Guardian  BBC  IMDB.com 8.6/10 GRÍNMYNDIN Taxi er með Queen Lati- fah (Chicago) og Jimmy Fallon úr Sat- urday Night Live í aðalhlutverkum en þetta er fyrsta burð- arhlutverk Fallons í kvikmynd. Myndin er byggð á franska smellinum Taxi eftir Luc Besson, frá árinu 1998, en Besson er jafnframt framleið- andi myndarinnar. Til viðbótar þreytir brasilíska ofurfyr- irsætan Gisele Bündchen frumraun sína á hvíta tjaldinu í myndinni. Hún er í hlutverki Vanessu, leiðtoga bankaræn- ingjahóps, sem lög- reglumaðurinn Andy Washburn (Fallon) er að eltast við. Queen Latifah hefur ýmis góð ráð handa lögg- unni en hún leikur leigubílstjórann Belle Williams. Belle hefur það orðspor að hún sé fljótasti leigubíl- stjórinn í New York-borg og hana dreymir um að gerast kappakstursbílstjóri. Andy hefur hins vegar afskaplega litla hæfileika bak við stýrið og fær Belle til liðs við sig. Leigubílstjórinn hjálpar Andy í eltingaleiknum við Vanessu og gengi hennar og fær leyfi til að keyra eins hratt og hún vill og brjóta eins mörg lög og hún vill. Til viðbótar leikur Jennifer Esposito (Don’t Say a Word) yfirmann Andys og fyrrverandi kærustu en Ann-Margret (Carnal Know- ledge) leikur sér- vitra móður Andys. Leikstjóri myndarinnar er Tim Story (Barb- ershop). Frumsýning | Taxi Hin leggjalanga Gisele Bündchen leikur banka- ræningja í Taxi. Eltingarleik- ur í leigubíl ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 27/100 Roger Ebert Hollywood Reporter 30/100 New York Times 30/100 Variety 30/100 (metacritic)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.