Morgunblaðið - 07.01.2005, Side 21

Morgunblaðið - 07.01.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 21 MINNSTAÐUR „SJÓÐFÉLAGAR eiga ekki að verða varir við neinar breytingar. Hins vegar verða innri breytingar sem leiða til hagkvæmni,“ segir Friðjón Einarsson, framkvæmdastjóri Líf- eyrissjóðs Suðurnesja. Stjórnir Lífeyrissjóða Suðurnesja og Suður- lands eru að hefja und- irbúning að sameiningu sjóðanna í einn og er stefnt að því að samein- ingin taki gildi 1. júlí. „Umhverfi lífeyris- sjóðanna hefur breyst mikið á undanförnum árum,“ segir Friðjón þegar hann er spurður um ástæður þess að gengið er til samein- ingar. Hann segir að þessir tveir líf- eyrissjóðir séu svipaðir að aldri, gerð og stöðu og hafi framkvæmdastjórar þeirra haft töluverða samvinnu. Nú liggi fyrir að framkvæmdastjóri Líf- eyrissjóðs Suðurlands til margra ára, Þorfinnur Valdimarsson, láti af störfum á næstunni og hafi Lífeyr- issjóður Suðurnesja haft frumkvæð- ið að því að ræða kosti sameiningar sjóðanna og báðar stjórnirnar sam- þykkt fyrir jól að stefna að samein- ingu. Lífeyrissjóður Suðurnesja er tvö- falt stærri en Lífeyrissjóður Suður- lands, með liðlega 15 milljarða kr. eignir á móti liðlega 7 milljörðum á Suðurlandi. Sameiningin fer fram með þeim hætti að Lífeyrissjóður Suðurlands sameinast Lífeyrissjóði Suðurnesja en sameinaður sjóður fær nafnið Lífeyris- sjóður Suðurlands. Höfuðstöðvar verða í Keflavík og Friðjón Einarsson fram- kvæmdastjóri en áfram verður rekin skrifstofa á Selfossi. Búist er við að sex manna stjórn verði yfir sjóðnum og fækkar því um fjóra stjórnar- menn. Friðjón segir að rekstur lífeyrissjóða sé smám saman að færast til Reykjavíkur. Með sameiningu lífeyris- sjóða verkafólks á Suðurlandi og Suðurnesjum sé hægt að styrkja starfsemi á landsbyggðinni. Telur hann að sjóðurinn verði það öflugur að hann geti staðið sjálfstæður. Reksturinn verði að vera hagkvæm- ur því annars verði sjóðurinn lagður inn í stærri einingu. Blikur á lofti Þegar staða sjóðanna um áramót liggur fyrir verður gerð trygginga- fræðileg úttekt á báðum sjóðunum og stigaeign jöfnuð fyrir sameiningu, ef á þarf að halda. Friðjón segir að blikur séu á lofti hjá lífeyrissjóðun- um á nýju ári, vegna lengri lífaldurs fólks og aukinnar örorku. Lífeyris- sjóðir séu byrjaðir að taka tillit til þess með því að leiðrétta réttindi sjóðfélaga og segir hann að farið verði yfir þau mál við úttekt á lífeyr- issjóðunum tveimur fyrir eða sam- hliða sameiningu þeirra. Unnið að sameiningu lífeyrissjóða Friðjón Einarsson Engar breytingar á þjónustu við sjóðfélaga SUÐURNES Stykkishólmur | St. Franciskusspít- alinn í Stykkishólmi hefur gert samning við Landspítala – háskóla- sjúkrahús um vistun og umönnun sjúklinga. Samningurinn felur í sér betri nýtingu sjúkrarúma á báðum stofnununum með því að sjúklingum sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum verði boðin dvöl í Stykkishólmi í umsaminn tíma. Með samstarfinu munu möguleikar Landspítala – háskólasjúkrahúss aukast til að veita sérhæfa þjónustu um leið og betri nýting verður á sjúkrarúmum á St. Franciskusspít- alanum. Róbert Jörgensen, forstöðumaður St. Franciskusspítalans, var spurður um tilurð þessa samnings. „Heil- brigðisráðuneytið hefur lagt áherslu á aukna heimahjúkrun. Við höfum lagt okkar af mörkum til þess. Af- leiðingin er auðvitað sú að legudög- um á spítalanum líkt og sambæri- legum spítölum hefur fækkað. Fólk dvelur lengur heima hjá sér, eðli- lega, kemur veikara inn á hjúkr- unarheimilið og dvelur mun skemmri tíma á sjúkrahúsi. Val sjúklingsins Með tilliti til gerðs þjónustusamn- ings við heilbrigðisráðuneytið höfum við litið eftir frekari verkefnum til hagsbóta fyrir sjúklinga og heil- brigðiskerfið. Hér er góð stofnun með gott starfsfólk og þetta er ár- angurinn,“ segir Róbert Jörgensen Gert er ráð fyrir að Landspítalinn fái aðgang að 2 rúmum fyrir lang- tímalegu og 4–5 rúmum fyrir skammtímalegu. Róbert var spurður hvort réttlæt- anlegt væri að flytja sjúklinga á milli landshluta til dvalar. „Þetta verður val sjúklingsins og aðstandenda hans. Vill hann njóta góðrar þjón- ustu hér meðan hann er ef til vill að bíða eftir varanlegu hjúkrunarrými á Reykjavíkursvæðinu? Það verður enginn fluttur hingað gegn hans vilja og í flestum tilfellum verður um skammtímadvöl að ræða,“ segir framkvæmdastjórinn. „Að lokum vil ég segja,“ segir Ró- bert, „að með þessum samningi á Landspítali – háskólasjúkrahús meiri möguleika á að mæta vaxandi þörf á sérhæfðri þjónustu og við fáum betri nýtingu á okkar spítala.“ Á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi starfa um 70 manns, þar af 3 læknar. Samvinna á milli St. Franciskusspítalans og Landspítala Sjúklingum boðin dvöl í Stykkishólmi Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Allra hagur Róbert Jörgensen er ánægður með að taka á móti sjúklingum frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Dreitill er venjuleg léttmjólk sem hefur verið D-vítamínbætt. Úr tveimur glösum af Dreitli fæst allt að helmingur af ráðlögðum dagskammti D-vítamíns. D-vítamín er nauðsynlegt til að kalkið úr fæðunni nýtist sem skyldi. Samkvæmt rannsóknum á mataræði er meðalneysla D-vítamíns undir ráðlögðum dagskammti í nær öllum aldurshópum. Kannanir hafa t.d. sýnt að íslensk ungmenni fá ekki nægilegt D-vítamín. D-vítamínbætta léttmjólkin Dreitill var markaðssett fyrir fjórum árum eftir að Manneldisráð Íslands óskaði eftir því að léttmjólk væri D-vítamínbætt. Dreitill er til í eins lítra og ¼ lítra umbúðum. Dreitill lækkar í verði! – fyrir alla fjölskylduna Nú hefur heildsöluverð á Dreitli lækkað – Dreitill kostar það sama og Léttmjólk og Nýmjólk H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.