Morgunblaðið - 07.01.2005, Page 52

Morgunblaðið - 07.01.2005, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing „ÉG er auðvitað stórkostlega glaður og ánægð- ur með þessar viðtökur og að vita það að bækur mínar, og núna Kleifarvatn, skuli vera lesnar í svo miklum mæli,“ segir Arnaldur Indriðason, rithöfundur. Bók hans, Kleifarvatn, var mest selda bókin á síðasta ári, og seldust öll 22 þúsund ein- tökin sem prentuð voru. Sálmar, plata Ellenar Kristjánsdóttur, er sölu- hæst á sl. ári, samkvæmt árslista Tónlistans. Í út- reikningum er tekið mið af skilum. „Allir rithöfundar vilja vera lesnir og ég er mjög þakklátur fyrir þessar miklu og góðu undirtektir sem ég hef fengið,“ segir Arnaldur. Að auki eru átta af tíu útlánahæstu íslensku skáldsögunum á bókasöfn- um landsins eftir Arnald. Landskerfi bókasafna hef- ur tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í bókasafnskerf- inu Gegni á síðasta ári. „Það er eins og maður hafi hitt á einhvern punkt eða einhverja taug hjá þjóðinni með þessum bókum. Ég hef vitað að bækurnar hafa verið mjög vinsælar í útláni, og ég er mjög ánægður með það. En það kemur mér á óvart að heyra þetta,“ segir Arnaldur. „Það er fínt“ „Það er fínt,“ voru fyrstu viðbrögð Ellenar er niðurstöðurnar voru kynntar henni. „Ég var rosalega ánægð þegar hún fór að seljast og þegar góðu dómarnir komu varð ég ennþá ánægðari.“ Ellen segist ekki hafa átt von á að platan fengi svona góðar viðtökur, hvað þá að hún yrði sú söluhæsta. Ellen segist hafa farið sínar eigin leiðir við gerð plötunnar: „Það er frábært að geta gert það, hafa þroskann til að geta og vilja fullmóta þær hugmyndir sem mað- ur hefur í kollinum.“Ellen segist nú þegar vera komin með hugmyndir að fleiri plötum. „En ég ætla ekki að gera Sálma 2,“ segir hún og hlær. Hún hefur ekki tekið neinar ákvarðanir hvað tekur við næst, hvenær næsta plata komi út, en hún segir hinar góðu viðtökur við Sálmum vissulega hvatningu til að gera fleiri plötur. Arnaldur og Ellen söluhæst á síðasta ári Arnaldur Indriðason Ellen Kristjánsdóttir  Sálmar/46 RAGNAR Bjarnason var meðal þeirra fjölmörgu sem komu fram á minningar- og styrktartónleikum um hinn landskunna söngvara Pétur W. Kristjáns- son á Broadway í gær. Pétur féll frá langt fyrir aldur fram á síðasta ári. Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóð sem kenndur er við Pétur. Morgunblaðið/Þorkell Péturs W. Kristjánssonar minnst FYRSTA loðnan sem kemur á land á þessari vertíð barst til Neskaupstaðar í fyrrakvöld þeg- ar Börkur NK kom þangað með um 1.200 tonn. Loðnuna veiddi skipið í flottroll um 70 mílur norðvestur af Langanesi. Loðnan fer öll í fryst- ingu hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað (SVN) en endurbætur voru gerðar á búnaði fisk- iðjuversins í haust og þar á nú að vera hægt að frysta um 400 tonn af loðnu á sólarhring. Þá barst fyrsti loðnufarmurinn til Eskifjarðar í gær þegar Hólmaborgin SU landaði fullfermi eða tæpum 2.400 tonnum. „Þetta er góð loðna, stór og falleg,“ sagði Valdimar Aðalsteinsson, skipstjóri á Hólma- borginni, við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Mér fannst ég sjá nokkuð mikið af loðnu á stóru svæði,“ sagði Valdimar en Hólmaborgin veiddi loðnuna í fimm hölum, um fimmtíu mílur norður af Melrakkasléttu. „Ég hef ekki séð svona stóra torfu í nokkur ár.“ „Við byrjuðum að frysta úr Berki um mið- nætti og höfum verið að í alla nótt og erum enn að frysta,“ segir Jóhannes Pálsson, fram- kvæmdastjóri í fiskiðjuveri SVN, á heimasíðu fé- lagsins. „Það er mjög gott að komin sé loðna og við vonumst eftir góðri vertíð,“ segir Jóhannes. Fyrsta loðnan á land á Austfjörðum Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Sturla Þórðarson (t.h.), skipstjóri á Berki, tekur við dýr- indis tertu úr höndum Gísla Gíslasonar hafnarstjóra seint í gærkvöldi þegar fyrsta loðna vertíðarinnar barst á land. Þórhallur Hjaltason og Haraldur Harðarson af Hólmaborginni með fullar hend- ur af loðnu en Hólmaborgin kom með fullfermi til hafnar á Eskifirði í gær. Skip- stjórinn var afskaplega ánægður með túrinn og sagði loðnuna stóra og fallega. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson BOÐIÐ verður upp á beint flug til Feneyja á Ítalíu í sumar. Flogið verður alla miðvikudaga frá maílok- um til ágúst- loka. Flugið er á vegum Úr- vals-Útsýnar og Plúsferðir munu sam- nýta flugið með Úrvali- Útsýn. Flogið verður með Boeing 757-200-flug- vélum Flug- leiða, sem taka 189 manns í sæti. Ekki hefur verið boðið upp á beint flug til Ítalíu á vegum Úrvals- Útsýnar í nokkur ár. Samhliða beinu flugi til Feneyja hyggst Úrval-Útsýn endurvekja ferðir til Portoroz í Slóveníu, en ferðir þangað voru vinsælar meðal Íslendinga fyrir rúmum tveimur áratugum. Plúsferðir bjóða upp á beint flug til Billund á Jótlandi í sumar, líkt og í fyrrasumar./23 Beint flug til Feneyja HEIMILDARMYNDIN Gargandi snilld hefur verið valin til þátttöku á Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, stærstu og virtustu kvikmyndahátíð á Norðurlöndum. Leikstjóri mynd- arinnar er Ari Alexander Ergis Magnússon en að- alframleiðandi er Sigurjón Sig- hvatsson. Myndin fjallar um íslenska tónlist, allt frá rímum til nýjasta rafpopps. Gargandi snilld er eina íslenska myndin í aðalkeppninni og jafnframt eina heimildarmyndin en óvenjulegt er að heimildarmyndir rati þangað inn./44 Gargandi snilld til Gautaborgar Ari Alexander ♦♦♦ TILKYNNINGAR og skráning á málum til Rannsóknarnefndar sjóslysa (RNS) hafa aldrei verið jafn margar og í fyrra, eða 152 talsins. Meðaltal síðustu tíu ára hefur verið 117 mál á ári. Mun al- gengara var á síðasta ári en árið 2003 að skip sukku, strönduðu eða leki kom að þeim. Hefur rannsóknarnefndin sérstakar áhyggjur af tíðum lekavandamál- um í skipum, eins og það er orðað á vefsíðu nefndarinnar. Árið 2004 var tilkynnt um 11 skip sem sukku og 17 sem strönd- uðu. Þrír árekstrar urðu á hafi úti bátar sukku, var um að ræða óvæntan leka í vélarrúmi. Nefndin segir slíkan leka hafa í sumum tilvikum ekki gert vart við sig fyrr en um seinan. Er það sem fyrr segir talið vera sérstakt áhyggjuefni og hefur rannsóknarnefndin því gert tillögu í ör- yggisátt um lekaað- vörun í öll skip. Hefur Siglingamálastofnun þegar tekið það málefni til úrvinnslu. og eldur kom fimm sinnum upp. Slys urðu á sjómönnum í 93 til- vikum og banaslys voru þrjú. Á vefsíðu RNS segir að metfjöldi mála á ný- liðnu ári sé ekki merki um fleiri slys heldur sé um betri og skilvirkari tilkynningar að ræða frá ýmsum aðilum til nefndarinnar. Kynn- ingarátak síðustu ár sé farið að skila árangri. Í sex tilfellum af ellefu, þegar Hafa áhyggjur af tíðum leka í skipum $  % "     & +,,- +,,+ +,,M +,,N+,,, ' ( ) * ''

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.