Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDSSÖFNUN HEFST
Landssöfnunin Neyðarhjálp úr
norðri hófst í gær, og á að safna fé til
að aðstoða þá sem lifðu af hamfar-
irnar í Asíu, og til að byggja upp á
hamfarasvæðunum. Söfnunin nær
hámarki með sameiginlegri beinni
útsendingu Sjónvarpsins, Stöðvar 2
og Skjás eins á laugardag.
Miklir skógarskaðar
Fárviðrið í Norður-Evrópu um
síðustu helgi olli gífurlegum sköðum
á skóglendi í Svíþjóð og í Eystra-
saltslöndunum. Samtök sænskra
skógareigenda áætla, að á nokkrum
klukkustundum hafi veðrið upprætt
tré, sem svara til fjögurra ára skóg-
arhöggs eða 60 milljónir rúmmetra.
Mikið skógartjón varð einnig í Eist-
landi og Lettlandi. Talið er fyrir-
sjáanlegt, að vegna þessa muni
verða tímabundið offramboð á
timbri og verðlækkun af þeim sök-
um. Óttast er, að hundruð sænskra
skógarbænda verði gjaldþrota en
um 40% þeirra eru ekki tryggð fyrir
öðrum hamförum en skógareldum.
Í gang í lokatilraun
Eins hreyfils flugvél var hætt
komin þegar drapst á hreyflinum
vestur af Reykjanesi á mánudags-
kvöld, og var vélin komin niður í um
5.000 feta hæð, og aðeins nokkrar
mínútur í brotlendingu á sjónum,
þegar hreyfillinn hrökk í gang. Ísing
í eldsneyti virðist hafa valdið því að
vélin missti afl.
Starfshópur skipaður
Ráðuneytisstjórar allra ráðuneyt-
anna voru í gær skipaðir í starfshóp
til að fjalla um stöðu útlendinga á ís-
lenskum vinnumarkaði og koma með
tillögur til úrbóta ef ástæða þykir til.
Tilefni þessa eru álitamál sem upp
hafa komið í tengslum við fram-
kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 22
Úr verinu 14/16 Viðhorf 24
Viðskipti 12 Minningar 24/28
Erlent 13/14 Dagbók 32/35
Heima 15 Myndasögur 32
Höfuðborgin 16 Víkverji 32
Akureyri 16 Menning 36/41
Austurland 17 Leikhús 36
Daglegt líf 18 Bíó 38/41
Listir 19 Ljósvakar 42
Umræðan 20/21 Veður 43
Bréf 21 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
NOKKUÐ hefur snjóað í Flatey á Breiðafirði frá
því fyrir jól en það þykir frekar óvenjulegt. Að
sögn Svanhildar Jónsdóttur, bónda í Krákuvör,
hefur snjó ekki almennilega fest í um tíu ár í eynni,
að hún telur. Síðustu þrír vetur hafa verið óvenju
snjóléttir. Nú hefur hins vegar orðið breyting á og
hefur meira að segja þurft að ryðja götuna niður að
bryggju, en þangað kemur ferjan Baldur reglulega
með vörur fyrir þá fimm íbúa sem eru í eynni allan
veturinn, á tveimur heimilum.
„Það hefur ekki verið neinn vetur hér að ráði
undanfarin ár, bara haust- og vorblíða allan vet-
urinn, eins og víða annars staðar,“ rifjar Svanhild-
ur upp.
Hún segir vetrarveðrið engin áhrif hafa haft á
búskapinn, en hún og Magnús Arnar Jónsson, eig-
inmaður hennar, eru með fjárbúskap og hlunn-
indabúskap. „Það er varla hægt að kalla þetta snjó
miðað við það sem gerist inni í landi, en það getur
alveg gert ófært. En við bara mokum út á bryggju.
Það hefur þurft að fara með traktorinn og ryðja,
annars hefði allt orðið kafófært.“
Svanhildur segir að bylur hafi verið yfir áramót-
in og einhverjir sem ætluðu að koma í eyjuna til að
fagna nýju ári hafi hætt við. Svanhildur segir að
stundum hafi fjölmargir dvalið í Flatey yfir ára-
mót, en í góðu skyggni sjást flugeldasýningarnar
allan hringinn, eins og Svanhildur orðar það, „allt
til Hellissands. En það var ekki mögulegt þessi ára-
mótin, það sást nú varla á milli húsa.“
Ljósmynd/Heimir
Ekki meiri snjór í Flatey í tíu ár
MIKIÐ magn af fíkniefnum, um
3½ kíló af kókaíni og svipað magn
af hassi, fannst í klefum tveggja
íslenskra sjómanna á skuttogar-
anum Hauki ÍS-847 þegar lög-
reglan í Bremerhaven í Þýska-
landi leitaði í togaranum á
fimmtudag. Skipverjarnir tveir
hafa verið úrskurðaðir í sex mán-
aða gæsluvarðhald, samkvæmt
staðfestum upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Haukur ÍS er gerður út frá Ísa-
firði og var hann í sölutúr til
Þýskalands þegar málið kom upp.
Það var síðdegis á fimmtudag
sem flokkur þýskra lögreglu-
manna gerði leit í skipinu með
fíkniefnahunda sér til fulltingis.
Fíkniefnin fundust fljótlega í
klefum mannanna. Skipið kom til
hafnar í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Þetta er umfangsmesta smygl-
tilraun á kókaíni til landsins sem
upp hefur komist. Kókaín hefur
verið afar áberandi á skemmti-
stöðum í Reykjavík undanfarin
misseri og í fyrra lagði lögregla
og tollgæsla hald á metmagn af
þessu hættulega fíkniefni, sam-
tals 6,2 kíló.
Fremur sjaldgæft er að lagt sé
hald á stórar fíkniefnasendingar í
fiskiskipum. Algengast er að lagt
sé hald á fíkniefni á Keflavík-
urflugvelli en stærstu sending-
arnar sem náðust í fyrra voru
með vörusendingum í flutninga-
skipum.
Tveir íslenskir sjómenn í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi
Um 31⁄2 kíló af kókaíni
fannst við leit í skipinu
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur skipað
Steinar Berg Björnsson sérstakan að-
stoðarfulltrúa sinn hjá friðargæsluliði
Sameinuðu þjóðanna í Líberíu. Felur
það m.a. í sér að Steinar verður
staðgengill yfirmanns friðargæsluliðs-
ins.
Steinar, sem starfað hefur hjá frið-
argæslunni allt frá árinu 1990, var síð-
ast framkvæmdastjóri friðargæsluliðs
SÞ í Sierra Leone. Til stóð að hann
færi að „hægja á sér“, eins og hann
orðar það, en þegar kallið kom gat
hann ekki hafnað verkefninu í Líb-
eríu. „Mig langaði til að fara einu sinni
enn. Mér þótti áhugavert að taka þátt
í þessu og menn lögðu að mér með
þetta, sögðu að það væri rétt að ég
færi eina ferðina ennþá. Vonandi get
ég komið til skila einhverju af þeirri
reynslu sem ég
hef safnað upp.“
Steinar er nú í
New York að und-
irbúa starfið fram-
undan en um
miðja næstu viku
verður hann kom-
inn til Líberíu.
Mun hann starfa
þar a.m.k. fram á
næsta haust.
Friðargæsludeild hefur verið starf-
rækt í Líberíu á vegum SÞ frá því
haustið 1993. Steinar kom að upp-
byggingu verkefnisins í upphafi og
kom þá nokkrum sinnum til Líberíu,
svo landið er honum ekki ókunnugt.
„Verkefnið hefur farið í gegnum það
ferli að stilla til friðar og nú er næsta
skref undirbúningur kosninga sem
verða næsta haust. Jafnframt að
styrkja innviði þjóðfélagsins þarna og
reyna að byggja það upp.“
Nú um stundir er fimmtán þúsund
manna herlið á vegum SÞ að störfum í
Líberíu og um 1.200 lögreglumenn
auk um 2.000 annarra starfsmanna.
Þar með er verkefnið stærsta verkefni
friðargæslu SÞ í dag.
„Veður eru þarna öll válynd,
ástandið er viðkvæmt,“ segir Steinar
spurður um aðstæður í Líberíu. „Það
er ekki verið að drepa fólk þarna
núna, þó að friðurinn sé ekki byggður
á mjög góðum grunni þá er þetta
spurningin um að styrkja hann og
víkka. Sameinuðu þjóðirnar eru þarna
núna í samstarfi við bráðabirgða-
stjórn um að halda uppi lögum og
reglu og taka þátt í almennri upp-
byggingu.“
Steinar Berg Björnsson
til starfa í Líberíu fyrir SÞ
Steinar Berg
Björnsson
ÖKUMAÐUR sem stöðvaður var af
lögreglu í Reykjavík á Seljavegi í
vesturborginni síðdegis í gær
reyndist hafa um 100 grömm af
kannabisefnum í bíl sínum. Lög-
regla segir að stærstur hluti efnis-
ins hafi verið í pakkningum sem
virtust tilbúnar til sölu.
Maðurinn var fluttur á lög-
reglustöð og tekin af honum
skýrsla þar. Honum var sleppt að
yfirheyrslum loknum og telst málið
upplýst.
Með 100 grömm
af kannabis
UM fimmtungur löggjafar Evrópu-
sambandsins frá árinu 1997 hefur
verið innleiddur í norsk lög, að því
er fram kemur í norska dagblaðinu
Nationen. Á árunum 1997–2004 setti
ESB 11.511 tilskipanir, reglugerðir,
ákvarðanir eða tilmæli og tóku 2.129
gildi í Noregi eða um 18,5%.
Þetta kom fram í svari Jans Pet-
ersens utanríkisráðherra við spurn-
ingu Bjørns Jacobsens þingmanns
Sósíalíska vinstriflokksins (SV).
Jacobsen vildi með þessu benda á að
það væri ekki rétt að líta svo á að
Noregur innleiddi mestallt reglu-
verk ESB. Í svari utanríkisráðherr-
ans kom fram að tölfræði gæfi ekki
rétta mynd af þeim skuldbindingum
sem Noregur hefði gengist undir
vegna EES-samningsins.
Ástæða þess að Noregur, eins og
Ísland og Liechtenstein, tekur ekki
upp meira af löggjöf ESB er sú að
meirihlutinn af löggjöf sambandsins
fellur utan við EES-samninginn.
Með aðildinni að EES gerðust Nor-
egur, Ísland og Liectenstein aðilar
að innri markaði ESB og þurfa að
innleiða meirihlutann af allri löggjöf
sem snertir hann.
Norðmenn inn-
leiða um fimmtung
löggjafar ESB