Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● NÝ stjórn var kjörin á hluthafafundi Norðurljósa hf. sem haldinn var í gær. Í nýrri stjórn eiga sæti þeir Baldur Bald- ursson, Ríkharð Ottó Ríkharðsson og Árni Hauksson. Stjórnarformaður er Baldur Baldursson og á fundi nýrrar stjórnar var Ríkharður ráðinn fram- kvæmdastjóri félagsins í stað Gunn- ars Smára Egilssonar. Á hluthafafund- inum voru gerðar breytingar á samþykktum félagsins sem staðfestu meðal annars aðskilnað á milli Norður- ljósa annars vegar og Íslenska út- varpsfélagsins og Fréttar hins vegar. Ný stjórn Norðurljósa                 ! "# $%&&$  @ !. ? )< !1 ? )< ) + . (# ". -' /    ()'"+ 6.-&.$- = $- =1')- >-&.$- 6.-&. A " A"&@ " (' B' # .<   " # )) (# ". -' $/ C..) '(#  )  (. +) 6.-&. ? -& 8<+#- 8 + 4. . / :, . - 7 D +$ - > *-.#,+) -- E " # 6(  ) F' )+) -&. 1)+. 1+ + 4.  / G 4''-'+. 1+- ;--.). 1+- : ,+) 7 *$" ' *(   + , ). ) $ (."& 24## + >-&.. 6.-&. G**  +-.   HI2J +.  !+./!" +              7 7 7 7 7  7 7 7 7 7 7 7 7 7  "4 -'   4  !+./!" + 7 7 7 7 7 7 7  7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 7 K 7 K 7K K 7 7 K  K 7 K  K 7 K  K 7K K 7 7 7 7 7 7 7 K 7  K 7 7 7 7 7 7 7 7 8"& !+.<  &'.-. G$+   &'.0 =)<   /  /  /  / / / /  /   /  / / /  / / / 7  7 7 7 7  / 7 / 7 7 7 7 7 7 7 7                   7     7               7        7 ;+.<   L%./  / G8/ M  )')- .  (#1& !+.<      7  7 7 7 7  7 7 7 7 7 7 7 7 7 G8/7 3!.. )   &-& .1) ) # / G8/7 4&  + "''#   4 1) $+ ") . -. / ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu samtals 7,3 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 3,1 milljarð. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,35% og er 3.465,37 stig. Mest viðskipti voru með bréf Ís- landsbanka, eða fyrir 1,3 milljarða en verð þeirra stóð í stað frá deg- inum áður. Þá voru einnig mest við- skipti með bréf Íslandsbanka. Af félögum í úrvalsvítiölunni hækk- uðu bréf Flugleiða mest, um 6,8%, en bréf Straums Fjárfestingarbanka lækkuðu hins vegar mest, um 0,5%. Flugleiðir hækka mest ● HAGNAÐUR Alcoa Inc. á síðasta fjórðungi síðasta árs var undir vænt- ingum sérfræðinga á Wall Street. Ástæðan er gengisfall dollars auk hækkunar á orkukostnaði fyrirtæk- isins samkvæmt tilkynningu frá félag- inu. Í heild sinni var árið 2004 hins vegar með þeim bestu í sögu Alcoa en heildartekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru 23,5 milljarðar Bandaríkja- dala, sem samsvara tæplega 1.485 milljörðum króna og hafa heildar- tekjur fyrirtækisins aldrei verið svo há- ar en þær jukust um 11% frá árinu 2003. Arðsemi rekstar Alcoa Inc. jókst um 33% frá fyrra ári og hefur hún einungis einu sinni áður verið svo há. Gott ár hjá Alcoa Inc. ● SKATTADAGUR Deloitte verður haldinn á morgun, fimmtudag, en í Morgunblaðinu í gær kom ranglega fram að hann væri haldinn á vegum Félags löggiltra endurskoðenda. Skattadagur Deloitte er haldinn í samvinnu við Viðskiptablað Morgun- blaðsins, Samtök atvinnulífsins og Verslunarráð Íslands. Hann hefst kl. 8.00 í Grand hóteli í Reykjavík. Skattadagur Félags löggiltra endur- skoðenda verður aftur á móti haldinn á föstudag. Morgunblaðið biðst vel- virðingar á mistökunum. Leiðrétting ● JENSÍNA Krist- ín Böðvarsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Globus og hefur hún þegar hafið störf. Í störfum markaðsstjóra felst einnig stjórn- un heildsölusviðs. Jensína lauk B.S. prófi í auglýs- ingafræði frá San Jose State Univers- ity árið 1994 og M.B.A. prófi frá Uni- versity of San Diego árið 1996. Að námi loknu hóf hún störf hjá Gallup og starfaði sem ráðningarstjóri þar frá upphafi og þar til í ágúst 1999. Hún var starfsmannastjóri Norðurljósa frá 1999 til 2001 og var framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar IMG og síðar framkvæmdastjóri mannauðssviðs IMG frá 2001 til 2004 Nýr markaðsstjóri Globus BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson er einn 237 ungra stjórnenda sem hafa verið valdir til þess að taka þátt í verkefninu Forum of Young Global Leaders. Í þessu verkefni vinna ungir stjórnendur, undir 40 ára aldri, saman næstu fimm árin, með það að markmiði að skapa bjart- ari framtíð. Einn þeirra sem valdir hafa verið á þessu ári er eins og áður sagði Björgólfur Thor Björg- ólfsson. Í fréttatilkynningu frá Forum of Young Global Leaders er haft eftir Björgólfi Thor að honum þyki það mikill heiður að taka þátt í starfinu. „Ég tel það mikilvægt að yngri kyn- slóðir takist á við þær alþjóðlegu áskoranir sem við höfum erft frá 20. öldinni og tengjast örum breytingum síðustu 150 ára,“ segir Björgólfur Thor Björgólfsson. Björgólfur Thor í hópi 237 ungra stjórnenda 60% stjórnenda í íslensku viðskipta- lífi telja að siðferði í viðskiptum hafi farið batnandi undanfarin ár. Meiri- hluti þeirra telur að viðskiptasiðferði eldri stjórnenda sé betra en þeirra sem yngri eru og siðferði kvenna betra en karla. Þetta kemur fram í könnun um traust í viðskiptalífinu sem kynnt var á fundi um málefnið í gær. Könnunin var gerð af Þresti Olaf Sigurjónssyni, aðjúnkt við Háskól- ann í Reykjavík. Af þeim sem tóku þátt í henni voru 9% konur. Engu að síður taldi mikill meirihluti þátttak- enda, bæði karla og kvenna, að við- skiptasiðferði kvenna væri almennt betra en karla. Þá telja 67% við- skiptasiðferði eldri stjórnenda betra en þeirra yngri, samkvæmt könnun- inni. Af þeim sem tóku þátt í könnun- inni töldu 65% að siðferði í viðskipt- um væri betra en í stjórnmálum og 72% töldu siðferði í einkageiranum betra en í opinbera geiranum. Þá töldu 93% að slæmt viðskiptasiðferði kæmi í bakið á þeim síðar. Athygli vekur að 94% þátttakenda telur hagsmunaárektra algenga í íslensku viðskiptalífi. Siðferði mælt í krónum og aurum Halldór Reynisson, verkefnis- stjóri á biskupsstofu, rakti í erindi sínu á fundinum þær breytingar sem orðið hafa á íslensku atvinnu- og við- skiptalífi á undanförnum áratugum. Ekki hafi örlað á umræðu um sið- ferði í viðskiptum fyrr en á allra síð- ustu árum, þegar íslenskt viðskipta- umhverfi hafi margfaldast að vöxtum. Halldór sagði siðferði ná til alls mannlegs atferlis og væri ein- faldlega ákveðinn mælikvarði á það hvernig mannlegum samskiptum er háttað, hvort þau eru góð eða vond, réttlát eða ranglát. Siðferði væri þannig ein af forsendum árangurs í viðskiptum, enda væru viðskipti í grunninn ákveðin tegund mannlegra samskipta. En Halldór sagði fyrirtæki einnig hafa siðferðilegum skyldum að gegna, þau beri samfélagslega ábyrgð. Svo virtist hinsvegar sem opinberar eftirlitsstofnanir hafi áhyggjur af óljósum eignatengslum og að hlutafé í fyrirtækjum safnist á of fáar hendur. Sagðist Halldór telja að hér á landi væri almennt kallað eftir því að fyrirtæki taki samfélags- lega ábyrgð og þjóni almennum hagsmunum en ekki bara hagsmun- um fámenns hóps fjárfesta. Halldór sagði að ef menn ætluðu sér að ná skammtímagróða í við- skiptum væri óvíst að siðferði borg- aði sig. En til lengdar væri klárlega hægt að mæla siðferði í krónum og aurum. Það skapaði fyrirtækjum betri orðstír, meira traust og minni starfsmannaveltu. Eins mætti ekki gleyma mannlega þættinum, sem þó verði seint mældur í krónum og aur- um. Gott siðferði leiði til betri líðan og betri samvisku sem telja megi til auðæfa og hlunninda. Vaxandi félagsauður Gylfi Magnússon, dósent við við- skipta- og hagfræðideild HÍ, rakti á fundinum kenningar hagfræðinnar um trúverðugleika og mikilvægi hans fyrir efnahagslífið. Sagði hann m.a. athyglivert að skoða áhrif stofn- ana á hvata manna til að vera trú- verðugir. Því væri t.d. haldið fram að stofnanir þurfi að ráða við að koma á viðskiptum aðila sem ekki þekkjast og búa fjarri hver öðrum. Eins þurfi þær að leyfa viðskipti yfir bæði tíma og rúm. Rannsóknir á stofnunum hafi síðan getið af sér hugtakið fé- lagsauður, sem í raun mæli hve vel stofnanir þjóðfélagsins styðja við efnahagslífið. Það birtist t.a.m. í því hve trúverðugar yfirlýsingar þeirra sem standa í viðskiptum verða vegna félagsauðsins. Stofnanir sem ýti undir trúverðugleika greiði þannig fyrir viðskiptum. Þannig komist á viðskipti milli aðila sem tengist á ein- hvern hátt, t.d. stjórnunar- eða eign- artengslum, og beina viðskiptum til hver annars. Gylfi sagði trúverðugleika ná- skyldan orðspori, enda spretti hvat- inn til að standa við gefin fyrirheit af vilja til að vernda orðspor. Gylfi sagði Ísland í hópi ríkja sem hefðu hvað skilvirkast efnahagslíf og það benti til þess að stofnanir hér- lendis flæktust ekki um of fyrir efna- haglífinu. Trúverðugleiki væri yfir- leitt ekki mældur einn og sér en ýmis tengd fyrirbrigði sé reynt að mæla. Þannig sé jafnan talið að spilling sé með minnsta móti á Íslandi. Eins hafi verið reynt að mæla félagsauð hérlendis. Sú staðreynd að lengst af á síðustu öld hafi íslensku efnahags- lífi verið skipt að nokkru leyti eftir flokkslínum beri ekki vott um mikinn félagsauð. Það sé þvert á móti talið nokkuð frumstæð skipan. Sagði Gylfi þó líklegt að félagsauður hafi vaxið á undanförnum árum og um leið annar auður með honum. Það megi m.a. sjá í því að íslenskur fjár- málamarkaður hafi í æ ríkari mæli runnið saman við fjármagnsmarkaði nágrannalandanna. Siðferði eldri stjórnenda í viðskiptalífinu betra Morgunblaðið/ÞÖK Traust Siðferði íslensks viðskiptalífs var til umræðu á morgunfundi í gær. .&N O5    ! !" K K (G 2 P #$ #% !% ! K K II BAP "#$ &# !& ! K K =(P " $ %# !& '!$ K K HI2P Q D-". #"% %%& '! ! K K

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.