Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 17 MINNSTAÐUR Fjarnám allt árið Skráning stendur yfir á heimasíðu skólans www.fa.is Skólameistari AUSTURLAND Í mörg horn er að líta á Fljóts- dalshéraði og Soffía Lár- usdóttir forseti bæjar- stjórnar segir umbrotatíma framundan. Virkni og skipu- lag nýs sveitarfélags, uppbygging eftir að virkjunarframkvæmdum lýkur og frekari sameiningarmál eru meðal verkefna á borði bæjar- stjórnar, sem sér margvísleg tæki- færi í nútíð og framtíð. „Inn í það fléttast allar fram- kvæmdirnar vegna virkjunar- og stóriðjuuppbyggingar og það umrót sem er í kringum þær. Hliðaráhrifin eru meiri en ég hafði ímyndað mér, við finnum mikið fyrir þeim á Héraði. Hér er að byggjast mikið af íbúðum með tilheyrandi umsvifum og fjöldi fólks er að flytja hingað. Flutning- arnir byrjuðu í þetta sveitarfélag um leið og virkjunin fór af stað og eru nú að hefjast meira á fjörðunum vegna byggingar álversins á Reyðarfirði,“ segir Soffía. „Við þurfum samhliða þessu að undirbúa þann tíma þegar jafnvægi kemst á að nýju, þ.e. þegar fram- kvæmdunum er lokið. Þá má reikna með ákveðnu tómarúmi og um það þurfum við að hugsa. Einn liður í því er að stýra einhverjum fram- kvæmdum á vegum sveitarfélagsins inn á þann tíma. Einnig höfum við verið að vinna að uppbyggingu há- skólanáms og þekkingarseturs á Eg- ilsstöðum, það er dæmi um verkefni sem er liður í að undirbúa framtíð- ina. Markmiðið er að skapa hér ákveð- inn grunn fyrir menntun og rann- sóknir, sem m.a. byggist á sérstöðu svæðisins. Um leið erum við að skapa hér aukna atvinnumöguleika fyrir fólk sem er með menntun og þekk- ingu. Sem dæmi um sérstöðu svæð- isins má taka skógrækt og land- græðslu, hér eru ýmis umhverfis- og vöktunarverkefni framundan og fleira. Þegar skapaðar eru aðstæður fyr- ir þekkingarumhverfi er það mjög fljótt að vinda upp á sig. Því fleira fólk sem flyst á svæðið, þess meiri þjónustu þarf og það rennir styrkari stoðum undir það sem er þegar til staðar og skapar grundvöll fyrir fjöl- breyttara atvinnulíf. Við þurfum að horfa til framtíðar á fleiri sviðum. Ýmis tækifæri eru ónýtt á sviði ferðamála hér á Austur- landi, t.d. tengd hreindýrum og öðr- um veiðum, svo og náttúru og menn- ingu svæðisins. Menningarmálin hafa verið vaxandi þáttur í samfélag- inu hér eystra og hef ég trú á að þau eigi eftir að vaxa enn meira. Ekki má gleyma þeim möguleikum sem felast í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðsins og þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. Um leið og íbúum fjölgar þarf að auka ýmsa samfélagsþjónustu og þá er ég að horfa til leikskóla, grunn- skóla, framhaldsskóla, félagsþjón- usta, skipulagsmála og ýmissar þjón- ustu sem heyrir undir umhverfismál. Það er geysilega sterkt að það skuli vera búið að sameina flest sveitar- félögin á Héraði. Núna getum við hugsað um uppbyggingu svæðisins sem heildar í stað þess að vera alltaf að hugsa í bútum. Við stöndum frammi fyrir alveg nýjum möguleikum, við erum búin að fella múrana og getum tekið höndum saman um að byggja hér upp og þróa öflugt samfélag sem eftirsóknarvert er að búa í. Við getum nú einbeitt okkur að stóru málunum. Áður fannst mér við eyða of miklum tíma í smáu málin – eins og að karpa um hvaða forsendur ætti að nota til grundvallar kostnaðarskiptingu samstarfsverkefna. Við horfum nú á öll þessi mál út frá nýjum for- sendum; skólamál, félagsþjónusta, skipulagsmál, snjómokstur, sorp- hirða, menningar- og frístundamál. Mér hefur líka þótt ánægjulegt að finna að sá hópur, sem er nú að byrja að vinna saman í bæjarstjórn og kemur víða úr sveitarfélaginu, sam- anstendur af aðilum með mismun- andi þekkingu og styrkleika. Við fáum fleiri að málum, sjónarmiðin eru fjölbreyttari en áður sem von- andi skilar sér í öflugri uppbyggingu samfélagsins,“ segir Soffía. Ný vinnubrögð Aðeins eru tveir mánuðir síðan sveit- arfélagið tók til starfa og nýtt skipu- rit var samþykkt á fyrsta fundi bæj- arstjórnar. „Við auglýstum nýlega sjö nýjar stjórnunarstöður og hefur því ekki reynt á nýtt stjórnkerfi nema hvað varðar nefndastarf. Sú litla reynsla sem komin er leggst þó vel í mig. Gert er ráð fyrir að fleiri komi að málum, það kallar á meiri samhæfingu og öðruvísi vinnubrögð. Á móti kemur að hver nefnd er meira sérhæfð. Áður voru þetta fáar nefnd- ir með mörg mál undir og þá vildu ákveðnir málaflokkar lenda til hliðar við skylduverkefni. Ég get tekið sem dæmi mennta-, menningar- og frístundamál. Menntamálin, sem eru mjög stór og mikilvægur þáttur, lentu óneitanlega ofan á og hitt varð meira afgangs. Nú koma sem sagt fleiri að hverjum málaflokki, það getur þó þýtt að vandasamara verði að fá niðurstöðu í einstök mál. Mér þykir spennandi að vinna eftir nýju stjórnkerfi, en það kallar á meiri samhæfingu hjá bæjarstjórn og stjórnunarþáttur bæjarstjóra eykst frá því sem áður var. Til að tryggja skilvirkni þarf breytt samskipti embættismanna og stjórnmálamanna og verkaskipting þarf að vera skýr. Við þurfum því að skilgreina vel og virða hlutverk hvors hóps fyrir sig, Þegar við tókum ákvörðun um að auglýsa hin nýju störf var það vegna þess að við vildum gefa sem flestum kost á að sækja um stöðurnar. Það var ánægjulegt hversu margir sýndu störfunum áhuga. Að meðaltali voru tíu manns um hverja stöðu og mikið af hæfu fólki sem sótti um. Í sex af sjö auglýstum stöðum hafa verið ráðnar þrjár konur og þrír karlar og að mínu mati tekist vel til þegar horft er til kynjaskiptingar, aldurs, menntunar og reynslu. Við erum þarna með breiðan hóp fólks sem gegna mun störfum umhverfisfull- trúa, menningar- og frístundafull- trúa, fjármálastjóra, héraðsstjóra og fræðslufulltrúa auk verkefnastjóra.“ Fram hefur komið að minnihluti nýrrar bæjarstjórnar Fljótsdalshér- aðs gagnrýndi bæði ráðningarferli starfsmannanna og val á umsækj- endum í störf fjármála- og héraðs- stjóra. „Ég skil þau sjónarmið sem uppi eru hjá minnihlutanum varð- andi aðkomu að ráðningum,“ segir Soffía. „Hins vegar voru ekki gerðar at- hugasemdir í nefndum þegar vinnu- lag við umfjöllun umsókna var lagt til. Mér þykir gagnrýnin því heldur seint fram komin. Mér finnst hún heldur ekki alveg sanngjörn, svo við tökum sem dæmi ráðningu fjár- málastjóra. Við erum að ráða þar inn mann sem var sveitarstjóri Fella- hrepps í mörg ár, vann síðan hjá KPMG í nokkur ár og nú í desember vann hann m.a. fjárhagsáætlun fyrir hið nýja sveitarfélag. Bókunin er því ósanngjörn og hreinlega röng sú full- yrðing að við séum að ráða óreyndan mann í starfið. Starfsfólkið sem ráðið er hefur allt reynslu og menntun, mismunandi mikla, úr atvinnulífinu eins og gerist. Ég er því ekki sammála bókunum minnihlutans um að verið sé að ráða óreynt fólk og kasta peningum á glæ. Aðferðafræðina má hins vegar ræða en ég hefði viljað fá gagnrýnina fram í upphafi ráðningarferilsins, ekki í lokin.“ Sameiningarferlið áfram „Það hefur sýnt sig, og er Fjarða- byggð gott dæmi um það, að samein- ing gerir sveitarfélögin öflugri út á við og þá ekki síður inn á við. Ég vona því að við höldum áfram með sameiningar á Austurlandi. Það þurfa vissulega að vera ákveðnar for- sendur til staðar s.s. öruggir tekju- stofnar. Fljótsdalshérað hefur tekið vel í ósk Breiðdalshrepps um sam- einingu. Þessi sveitarfélög liggja saman en á milli þeirra er nokkuð erfiður fjallvegur. Breiðdalsvík sem er þéttbýlis- og þjónustukjarni Breiðdalshrepps, er í töluverðri fjar- lægð frá þjónustukjarnanum á Hér- aði og því erfitt að samþætta og hag- ræða þjónustu. Ég held að sameining á milli þessara sveitarfé- laga myndi fyrst og fremst gefa af sér stjórnsýslulegan ávinning. Stjórnsýslan þarf að vera sérhæfð og formleg og það er erfitt fyrir lítið sveitarfélag að koma sér upp öllum þeim tæknibúnaði og þekkingu sem vera þarf til staðar ef stjórnsýslan á að geta verið þannig. Á hinn bóginn verða allir staðirnir, stórir sem smá- ir, að halda úti grunn- og leikskólum, félagsþjónustu og annarri grunn- samfélagsþjónustu, s.s. þjónustu varðandi slökkvilið, hreinsun gatna og umhirðu svæða og þar fram eftir götunum. Því er takmörkuð hagræð- ing af sameiningu í þeim efnum, en aftur á móti verulegur stjórnsýslu- legur ávinningur. Yfirstjórn Fljótsdalshéraðs er já- kvæð gagnvart frekari sameiningu, en ég held samt að grunnurinn sé sá að sveitarstjórnarmenn sjálfir verði að byrja á að vera jákvæðir. Það smitar út til íbúanna. Sveitarstjórn- armenn hafa mesta og besta þekk- ingu á málefnum sveitarfélaganna og ef þeir eru í vafa um réttmæti þess að sameinast getum við ekki ætlast til þess að íbúarnir séu jákvæðir fyr- ir sameiningu. Því held ég að miklu máli skipti að sveitarstjórnarmenn vinni af ákveðinni einingu sín á milli og nái góðu samkomulagi og sátt.“ Samráð og samstarf Soffía er formaður Sambands sveit- arfélaga á Austurlandi. Sú spurning vaknar hvort sveitarfélögin eystra séu samhent í vinnu að sameigin- legum hagsmunum fjórðungsins. „Austurland er sérstakt fyrir það hversu samhent við höfum verið,“ svarar Soffía. „Við höfum unnið sam- eiginlega að þessu stóra verkefni sem er virkjunin og álverið, menn- ingarmálum, fræðslumálum og ferða- og markaðsmálum, svo eitt- hvað sé nefnt og náð góðum árangri. Hins vegar má segja að eftir að mál- efni virkjunar og stóriðju hófu fyrir alvöru innreið sína í fjórðunginn höf- um við svolítið farið sitt í hverja átt- ina. Við þurfum því að skerpa okkur á þessu sviði. Það er ekki óeðlilegt, það eru allir á kafi og ekki hægt að líkja því við venjulegt ástand sem sveit- arstjórnarmenn og aðrir íbúar eru að takast á við á Austurlandi um þessar mundir. Mér finnst ekkert skrítið þó ekki hafi gefist mikill tími í samráð eða samstarf, en við þurfum þó að gefa okkur meiri tíma í þeim efnum.“ Umbrotatímabil fram- undan á Fljótsdalshéraði Rætt við Soffíu Lárusdóttur, forseta bæjarstjórnar á Fljótsdals- héraði og formann Sambands sveitarfélaga á Austurlandi Tveir mánuðir eru síðan sveitarfélagið Fljótsdalshérað tók til starfa samkvæmt nýju skipuriti eftir samein- ingu Austur-Héraðs, Norður-Héraðs og Fellahrepps. Steinunn Ásmundsdóttir ræddi við Soffíu Lárusdóttur, forseta bæjarstjórnar. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Börn á Egilsstöðum Um leið og íbúum fjölgar þarf að auka ýmsa samfélagsþjónustu. ’Ekki venjulegt ástandsem sveitarstjórnar- menn og aðrir íbúar eru að takast á við á Austurlandi.‘ Soffía Lárusdóttir Markmiðið er að skapa hér ákveðinn grunn fyrir menntun og rannsóknir, sem m.a. byggist á sérstöðu svæðisins. steinunn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.