Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR T íminn líður hratt á gervihnattaöld,“ sungu Gleði- bankamenn einhvern tíma á síðari hluta 20. aldar. Árið 2005 er nú geng- ið í garð, ótrúlegt en satt, og við farin að fóta okkur á nýrri öld. Hvað sú öld verður kölluð mun tíminn einn leiða í ljós. En varla þó „gervihnattaöld“. Kannski verður þetta öld „út- rásar“ svo vitnað sé í eitt helsta tískuorðið í spjallþáttum ára- mótanna. Kannski verður þetta öld „rótleysis“, öld „hraðans“ eða öld „tímaleysis“. Kannski verður þetta öld „einstaklings- ins“ og „einstaklingshyggj- unnar“. Ef til vill verður þetta öld „fjölskyldunnar“ eða jafnvel öld „samsettu fjölskyldunnar.“ Hver veit? Eitt er þó víst: Tíminn heldur áfram að líða hratt – á nýrri öld. Hraðar en nokkru sinni fyrr. Kröfurnar um hraða verða æ ágengari. Tækniþróunin á sinn þátt í því. Viðhorfið er þetta: Allt, bók- staflega allt, á að gerast á stundinni; núna; strax – já, eig- inlega helst í gær. Og best færi á því, ef við gætum gert „þetta allt“ í einu. Tækin sem við eignumst ganga flest út á að ná þessum markmiðum. Gemsarnir, tölv- urnar og bílarnir, svo dæmi séu nefnd. Við viljum ná sambandi strax, fá upplýsingarnar strax og komast á áfangastaðinn strax. Ekkert vesen eða múður, takk fyrir. Tækin verða líka æ tækni- legri, ef svo má segja, not- endavænni og fjölhæfari. Gems- ar eru ekki lengur bara gemsar, heldur líka myndavélar og út- varp – allt í senn. Bílar eru ekki bara samgöngutæki, heldur líka þægilegar „vistarverur“, með æ mýkri og upphituðum sætum, útvarpi, geislaspilara og jafnvel sjónvarpi. Og flugvélar – æ þær eru reyndar alltaf jafnóþægilegar og þröngar – svo virðist sem flug- rekendur séu að reyna að troða fleirum og fleirum í vélarnar, til að reyna að græða meira. Kröfurnar um meiri hraða verða til þess að við flest, ef ekki öll, erum alltaf að flýta okkur. Við höfum þar af leiðandi lítinn sem engan tíma, til að gera nokkurn skapaðan hlut, þegar upp er staðið. Eigendur líkamsræktarstöðv- anna hafa áttað sig á þessari þróun, eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær. Hjá lík- amsræktarstöðinni Hreyfingu er til dæmis boðið upp á svokallaða hraðleið. „Um er að ræða sjö stöðva þjálfunaráætlun í tækja- salnum sem á ekki að taka meira en þrjátíu mínútur að fara í gegnum,“ segir í fréttinni. „Fólk hefur ekki alltof mikinn tíma til að æfa og því er gott að geta gripið í hraðleiðina,“ er haft eftir Ágústu Johnson, fram- kvæmdastjóra Hreyfingar. Sævar Pétursson, fram- kvæmdastjóri líkamsrækt- arstöðvarinnar ISF, segir enn- fremur, í sömu frétt, að nú snúist líkamsræktin um skemmtanagildið. Sjónvarps- skjár verða því settir, á næstu dögum, upp við hvert einasta upphitunartæki. Það þýðir að hver og einn iðkandi getur valið á milli fjölda sjónvarpsstöðva meðan á líkamsræktinni stend- ur. Á sömu líkamsræktarstöð hef- ur einnig verið boðið upp á lif- andi tónlist, að minnsta kosti einu sinni í mánuði. „Við erum ekki endilega í samkeppni við stöðina við hliðina á okkur held- ur við bíóin og annað slíkt,“ er haft eftir Sævari. Hraðinn og tímaleysið gegn- umsýrir þannig allt þjóðfélagið nú á tímum. Við viljum, eins og áður sagði, gera allt, á sem skemmstum tíma. Horfa á sjón- varpið, fylgjast með fréttum, hlusta á tónlist og hlaupa af okkur aukakílóin, allt á einu (hlaupa)bretti. En kröfurnar eru fleiri. Við eigum nefnilega, mitt í öllum flýtinum og hraðanum, að vera allt í senn: fullkomnir foreldrar, ástríkir makar og farsælir starfsmenn. Við eigum sömuleið- is að líta vel út og vera í góðu líkamlegu og andlegu formi. Síð- ast en ekki síst eigum við að vera hamingjusöm; ánægð og sátt við lífið og tilveruna. Ég held að við hljótum flest að viðurkenna að það geti verið erfitt að uppfylla allar þessar væntingar. Þrátt fyrir það ger- um við okkar besta. Atvinnu- þátttaka hefur sjaldan eða aldrei verið meiri, fjöldi fólks stundar reglulega líkamsrækt og vel á minnst við Íslendingar erum skv. nýjustu rannsóknum í hópi hamingjusömustu þjóða. (Við myndum reyndar aldrei við- urkenna neitt annað.) Á sama tíma verða sjálfshjálp- arbækur, af ýmsum toga, sífellt vinsælli og sáluhjálparar, hvaða nöfnum sem þeir nú nefnast, hafa væntanlega nóg að gera. Margir velta því sennilega fyrir sér hvort eitthvað hljóti ekki að undan að láta þegar all- ar þessar kröfur eru annars vegar. En hvað getur það verið? Og hvernig getum við unnið úr því? Biskup Íslands var einn þeirra sem gerði fjölskylduna að umtalsefni um nýliðin áramót. „Æ fleiri foreldrar finna sig van- máttuga í foreldrahlutverkinu og finnst sem þeir ráði ekki við verkefnið,“ sagði hann m.a. og í kjölfarið urðu miklar umræður um stöðu fjölskyldunnar. Í könnun sem Gallup gerði á síðasta ári kom m.a. fram að meira en helmingur Íslendinga á vinnumarkaði kannaðist við það að koma of þreyttur heim úr vinnunni til að geta sinnt þeim verkefnum sem vinna þyrfti heima fyrir. Þær ályktanir voru dregnar af könnuninni að stór hluti Íslendinga ætti í erf- iðleikum með að samræma vinnu og einkalíf. Vinnan bitnaði frek- ar á einkalífinu en öfugt. Sennilega er það þó okkar sjálfra að staldra við og líta í eigin barm. Það hlýtur m.ö.o. að vera okkar sjálfra að forgangs- raða og finna okkar eigið gullna jafnvægi milli einkalífs og vinnu og alls hins sem af okkur er krafist. Tíminn líð- ur hratt … „Viðhorfið er þetta: Allt, bókstaflega allt, á að gerast á stundinni; núna; strax – já, eiginlega helst í gær.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ✝ Þórður Jónssonfæddist að Gerði á Barðaströnd 28. ágúst 1916. Hann lést á Landakoti 5. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Jón Kristinn Ingimundur Jóhannesson og Guð- björg Bjarnveig Jó- hannesdóttir, ábú- endur í Ystu-Tungu í Tálknafirði þar sem Þórður ólst upp. Eft- irlifandi systkini Þórðar eru Kristín, Jóhanna, Kjartan, Ólafur, Hjálmar og Sigrún en látin eru Magnús og Lilja. Eiginkona Þórðar var Guðný Einarsdóttir, f. 15. mars 1916, d. 3. mars 2002. Dætur þeirra eru: a) Erna Hallbera, f. 1. jan. 1938, gift Jóni Magnúsi Jóhannssyni, f. 2. des. 1935. Börn þeirra eru Einar, f. 1955, Gunnar Jó- hann, f. 1957, Guð- rún, f. 1959, Guðný, f. 1961, María, f. 1964 og Bjarki Páll, f. 1969. b) Björg, f. 5. júní 1941, var gift Einari Einarssyni, f. 18. okt. 1935, d. 4. jan. 1997. Börn þeirra eru Þórður Guðni, f. 1958, Guð- rún, f. 1960, og Ólafía Sólveig, f. 1978. Langafabörn Þórðar eru 24 tals- ins. Árið 1943 fluttust Þórður og Guðný til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu til æviloka. Þórður vann við sjómennsku, sveitastörf, bygg- ingavinnu og verkamannastörf. Útför Þórðar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég hélt alltaf að afi yrði örugg- lega 100 ára. Hann var svo þraut- seigur og ákveðinn í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Í seinni tíð þegar heilsan fór að gefa sig meira þá náði hann samt að yfirstíga hin- ar ýmsu hindranir. Já, hugurinn bar hann yfirleitt miklu lengra en hálfa leið. Þrautseigjunni fylgdi líka þrjóska og ákafi. Það gat stundum reynt á þolrifin þegar það þurfti að klára einhver verk helst í fyrradag! Það þýddi heldur ekkert að vera óstundvís þegar afi átti í hlut. Það var ósjaldan sem ég fór í sendiferð- ir með afa, og í seinni tíð fyrir hann, og þá brást það ekki að hann var ferðbúinn þegar ég kom að sækja hann. Stundum beið hann jafnvel úti, studdi sig sperrtur við stafinn sinn. Þær eru ófáar stundirnar sem ég átti með afa og ömmu. Ég var yngsta barnabarnið þeirra. Þau pössuðu mig sem barn og var ég mikið hjá þeim bæði fyrir og eftir skóla. Meðan afi keyrði ennþá þá man ég bara eftir honum á litlum appelsínugulum sendibíl – Bed- fordinum. Í honum voru bara tvö framsæti en prinsessan ég fékk að sitja á dekki aftur í og þótti mér mikið til koma. Þá voru umferð- aröryggismál víst ekki alveg jafn- mikið í hávegum höfð og nú og skrölti ég með þeim á Bedfordinum um hvippinn og hvappinn, jafnvel alla leið upp í Kjós. Litli sumarbústaðurinn í Kjós- inni var þar sem afa og ömmu þótti best að vera. Þar var aldrei setið auðum höndum og afi hafði alltaf nóg fyrir stafni þar. Þegar ellin fór að færast yfir þurfti stundum að stoppa hann af, því þá kom ákafinn upp og hann ætlaði sér stundum meira en hann gat. Í síðustu ferð- unum hans í Kjósina í sumar varð hann að láta sér nægja að sitja á stól úti í góða veðrinu og fylgjast með yngri kynslóðinni smíða nýjan pall við bústaðinn. Þegar líða tók á síðasta sumar var afi orðinn ansi máttfarinn í fót- unum og varð fyrir því óláni að detta og mjaðmarbrotna. Þetta var aðeins örfáum vikum fyrir brúð- kaup okkar Bjössa sem ég vissi að hann hlakkaði mikið til. Aftur kom þrautseigjan honum til góða og mætti hann í brúðkaupsveisluna í hjólastól, í sínu fínasta pússi; í jakkafötum, með slaufu og rós í hnappagatinu. Hann fékk leyfi hjá sjúkrahúsinu til að koma og áður en hann fór til baka fékk hann með sér eina freyðivínsflösku svo hann gæti skálað við herbergisfélagana. Já, allt sem afi tók sér fyrir hendur gerði hann „með stæl“. Ég er svo ánægð að ég var búin að segja afa að ég væri ófrísk. Hann varð svo glaður, var víst bú- inn að bíða spenntur eftir þessum fréttum! Í síðasta skiptið sem ég hitti hann sýndi ég honum sónar- myndina sem við fengum fyrir jólin og fannst honum mikið til koma. Það eru skrítnar tilfinningarnar sem togast á í mér, gleðin og til- hlökkunin yfir því að vera ófrísk og svo hins vegar sorgin og söknuður- inn yfir því að líf ástvinar hafi tekið enda. En svona er víst hringrás lífsins. „Ef ykkar sambúð endist eins og okkar afa og ömmu í 62 ár þá verð- ur afi ánægður. Þórður Jónsson.“ Þetta lét afi skrifa fyrir sig á lítinn hjartalaga miða í brúðkaupinu í sumar. Hann skrifaði sjálfur undir. Daginn eftir að hann dó fann ég bunkann af þessum miðum því mig langaði til að finna miðann frá afa og lesa. Ég þurfti ekki að leita að honum því miðinn hans var efstur. Afi og amma voru einstök og þakka ég þeim fyrir allar góðu samverustundirnar. Ég vildi að þær hefðu orðið aðeins fleiri en afi var líklega orðinn þreyttari en ég gerði mér grein fyrir. Hann bar sig alltaf svo vel og hefur það blekkt mann. Afi hefur nú fengið hvíldina og er henni sjálfsagt feginn því það er erfitt þegar líkaminn getur ekki borið mann þangað sem hugurinn vill fara. Hvíl í friði. Ólafía Sólveig Einarsdóttir. Elsku afi minn. Það búa ekki allir svo vel að eiga langafa og langömmu þegar þeir fæðast. En ég var svo gæfusöm að eiga langafa og langömmur þar til ég varð rúmlega tvítug. Bestu minningar mínar um þig og Guð- nýju ömmu eru frá því þegar ég var í pössun hjá ykkur. þá kom ég, sex ára títla snemma á morgnana til ykkar og fékk að kúra í sófanum ykkar í smá tíma eða þangað til amma vakti mig í pönnslur og soda-stream, það var alveg ynd- islegt. Þegar ég var búin að kýla vömbina tóku við göngutúrarnir okkar sem eru mér svo minnis- stæðir. Þú ert sennilega eina manneskjan sem ég hef verið viljug að fara í göngutúr með og virkilega þótt það gaman. Mér fannst það einhvern veginn svo mikið sport að fara út með þér að labba. Þú með göngustafinn þinn og ég trítlandi þér við hlið. Það var svo gott að halda í sterku hlýju höndina þína og fylgjast með þér ganga svona virðulegan með göngustafinn þinn. Elsku Doddi afi, nú ert þú kom- inn til Guðnýjar ömmu og ég veit hún hefur beðið eftir þér. Nú eruð þið saman, laus við veikindi og van- líðan og umkringd allri þeirri hlýju sem einkenndi ykkur. Ég á ennþá fallegu klukkuna og skartgripa- skrínið sem þú skarst út handa mér. Þvílík listasmíð. Ég er þér svo þakklát fyrir stundirnar sem við áttum saman og ég vona að þú haf- ir fundið fyrir nærveru minni þeg- ar ég heimsótti þig rétt áður en þú fórst. Ég fann allavega fyrir þér þegar þú kvaddir því ég vaknaði upp með þvílíkum látum um nótt- ina. Tíu mínútum seinna hringdi Guðný frænka og sagði okkur að þú værir allur. Ég ætla að ljúka þessari kveðju minni með því að vitna í ljóðið sem þú samdir til Guðnýjar ömmu, þeg- ar hún dó. Látum laufin falla því nú er komið haust. Jesú Kristur kallar með sinni skæru raust. Lín er lagt á veginn að mýkja sporin þín nú hallar að ævidegi samt eilíf birtan skín. (Þ.J.) Þitt afabarn Erna Björk. „Og svo á ég einn afa.“ Þetta var endirinn á fjölskyldulýsingunni sem ég fékk þegar ég hitti konuna mína, hana Ólafíu, á internetinu í fyrsta sinn. Nokkrum vikum síðar heilsaði mér eldri maður, nokkuð rogginn og greinilega mjög ákveð- inn. „Þórður Jónsson heiti ég,“ sagði hann þegar hann tók þétt- ingsfast í höndina á mér, drengn- um sem var að gera hosur sínar grænar fyrir afastelpunni hans. Hann var þarna að leggja af stað í sína fyrstu utanlandsferð með flug- vél til Noregs að heimsækja nafna sinn. Þetta var um verslunar- mannahelgina 2002. Það var mikið umstang og tilhlökkunin greinilega mikil hjá honum. Hann hafði merkt töskuna sína með grænu snæri svo hann myndi nú örugglega þekkja hana aftur. Þetta var greinilega stórviðburður hjá honum að fara í þetta ferðalag. Tveimur vikum síð- ar kom hann svo heim alveg himin- lifandi og ánægður. Það var gaman að sjá framan í gamla manninn við þetta tækifæri. Næstu daga og vikur á eftir kynntist ég honum svo ágætlega. Til að byrja með áttum við ekki mikið skap saman, þar sem við vor- um báðir álíka ákveðnir. En eftir því sem mánuðirnir liðu þá lærði ég að svona væri þetta bara og það væri mitt verk að láta undan í ákveðninni. Hann hugsaði sér a.m.k. gott til glóðarinnar í nokkur skipti í kappsemi sinni þegar hún Ólafía var komin með mig upp á arminn. Það var alveg tilvalið að nýta þennan dreng í hin ýmsustu verk hugsaði hann sjálfsagt. Er mér sérstaklega minnisstætt þegar hann þurfti að koma klósetti upp í Kjós á bæ sem heitir Norðurkot. Bjössi var fenginn í þetta með hon- um. Þórður hafði mjög gaman af því að fá okkur í smá innlit til sín öðru hverju og bauð hann manni þá iðu- lega uppá heimabakaðar skonsur sem hann hafði þá bakað klukkan hálfsex um morguninn. Hann var fljótur að læra að mér þættu skonsurnar hans góðar og fékk ég nokkrum sinnum skonsur sendar heim. Hlýhuginn vantaði ekki til manns. Þórður var mjög áhugasamur um fagið mitt og spurði mig oft og títt hvort ég hefði verið að fljúga í dag eða gær. Það gladdi hann svo mjög líka þegar ég fékk mína fyrstu vinnu hjá Flugfélagi Íslands sl. vor á Fokker. Eftir að ég byrj- aði að fljúga spurði hann mig reglulega hvernig veðrið og að- stæður hefðu nú verið fyrir vestan og svo þegar hann frétti að ég væri að fara í flug til Grænlands sagði hann alltaf með bros á vör: „Ég bið að heilsa Grænlendingunum.“ Það var svo á aðfangadag að við hjónin fórum og kíktum á afa á Landakoti rétt til að óska honum gleðilegra jóla. Við þetta tækifæri sýndum við honum svo sónarmynd af væntanlegum erfingja okkar. Hann varð óskaplega glaður og greinilega mjög spenntur. Þegar við svo kvöddum hann var hann al- veg stálsleginn og tók svo í hönd- ina á mér rétt eins og hann gerði fyrst, alveg þéttingsfast. „Hafðu það gott, Bjössi minn,“ sagði hann um leið. Í handtakinu fann ég mik- ið traust og að hans mati var það sko örugglega ekki á hvers manns færi að vera maðurinn í lífi dótt- urdóttur hans. Blessuð sé minning Þórðar Jóns- sonar. Björn Ásbjörnsson. ÞÓRÐUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.