Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga BJÖRK Guðmundsdóttir og útgáfu- fyrirtækið One Little Indian ætla að gefa út tvöfaldan safndisk til góð- gerðarmála. Á honum verða endurhljóðbland- anir og útgáfur ýmissa lista- manna af lagi Bjarkar „Army of Me“ en ágóði af sölunni rennur til Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF. Áætlað er að platan komi út í febrúarlok og geta tónlistarmenn enn sent inn nýjar útgáfur af laginu til Bjarkar. /40 Björk Guðmundsdóttir Plata til góðgerð- armála Björk Guðmundsdóttir ÞEGAR hreyfillinn á eins hreyfils vélinni, sem varð vélarvana vestur af Reykjanesi á mánudagskvöld, hrökk aftur í gang var vélin í tæplega 5.000 feta hæð og aðeins örfáar mínútur þar til hún hefði skollið á haffletinum. Flugmaðurinn ákvað þá að gera loka- tilraun til að ræsa hreyfilinn en hefði hún ekki heppnast ætlaði hann að undirbúa nauðlendingu. Ástæðan fyrir því að vélin missti afl virðist vera ísing í eldsneyti því við rannsókn fundust óhreinindi og vatn í eldsneytiskerfinu, að sögn Þorkels Ágústssonar, aðstoðarrannsókn- arstjóra Rannsóknarnefndar flug- slysa. Skömmu áður en afl hreyfilsins þvarr hafði flugmaðurinn hækkað flugið í 21.000 fet en frostið í þeirri hæð var um 28 gráður. Virðist sem vatnið hafi þá frosið og valdið því að fjórir af sex strokkum hreyfilsins urðu óvirkir og um leið fór vélin að missa hæð. Flugmaðurinn sendi út neyðarkall og við því var brugðist skjótt, þrjár þyrlur voru sendar á móti honum sem og flugvél Flugmálastjórnar. Bátar og skip á svæðinu voru látin vita og fjögur björgunarskip Slysavarna- félagsins Landsbjargar kölluð út. Maðurinn var í flotgalla og með björgunarbát í farþegasætinu og seg- ir Þorkell að maðurinn hafi því haft möguleika á björgun. Oft takist flug- mönnum lítilla véla að lenda nægilega mjúklega á hafinu þannig að þeir hafi ráðrúm til að komast út úr vélunum. Einnig séu mörg dæmi um hið gagn- stæða. Til þess kom þó ekki þar sem hreyfillinn hrökk í gang á elleftu stundu og gat flugmaðurinn því flogið henni til lendingar á Keflavíkur- flugvelli. Vélinni var síðan flogið til Reykjavíkur í gær. Flugmaðurinn, sem er þýskur, hafði keypt flugvélina í Bandaríkj- unum og ætlar að fljúga henni til Þýskalands. Hann hyggst fljúga af stað til heimalands síns í dag en ætlar áður að setja ísvara í eldsneytið, að sögn Þorkels. Þýskur flugmaður var hætt kominn út af Reykjanesi þegar hreyfill stoppaði Vélin fór í gang við síðustu tilraun                        !"#$%    &&   ! !  '   !   (  ) *   ! +    (  *   , - . '  +  /  +  0 . %   !  .1 ! !         .        1   !        2 . !     3      *1      +   !    ).   + '   * 3/    ,       .   /  +   *   .+*    & +/ +   , ) * /  .+ 3 ÁKVEÐIÐ var á fundi ríkisstjórnar- innar í gærmorgun að skipa ráðu- neytisstjóra allra ráðuneytanna, tólf að tölu, í starfshóp til að fjalla um stöðu útlendinga á íslenskum vinnu- markaði og koma með tillögur til úr- bóta ef ástæða þykir til. Tilefni svo víðtækra aðgerða eru álitamál sem upp hafa komið í tengslum við fram- kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun. Bolli Þór Bollason verður í forsvari fyrir hópnum. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra lagði fram minnisblað á fundi ríkisstjórnarinnar þar sem hann rakti þær ávirðingar og ábendingar sem fram hafa komið frá verkalýðs- forystunni vegna starfsemi Impreg- ilo við Kárahnjúkavirkjun. Kynnti ráðherra m.a. greinargerð sem ASÍ sendi honum og hann hefur verið að kynna sér síðustu tvo daga. Fyrst gerði Árni tillögu um að skipa ráðuneytisstjóra þeirra tíu ráðuneyta sem með einhverjum hætti hafa komið að málum vegna Kára- hnjúkavirkjunar en Árni segir að í kjölfarið hafi verið ákveðið að fá ráðu- neytisstjórana tólf að málinu þar sem það snerti í raun alla stjórnsýsluna. „Með þessum hætti erum við að bregðast við og er endilega engin vís- bending um að eitthvað mikið sé að. Þetta er fyrst og fremst vísbending um að við viljum taka ábendingarnar alvarlega. Ég er sannfærður um að eitthvað sem undan hefur verið kvartað á við rök að styðjast, annað ekki. Mikilvægt er að einangra það sem virkilega þarf að taka á og ná samstöðu um það, í stað þess að hræra endalaust í einum stórum grautarpotti. Málið er sérstakt, enda er þetta stærsta framkvæmd Ís- landssögunnar og með þeim stærri í Evrópu í dag,“ segir Árni. Rætt í miðstjórn ASÍ í dag Halldór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ, segir greinar- gerðina verða rædda á miðstjórnar- fundi sambandsins í dag. Hann segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar í gær gefa til kynna að hún taki alvarlega þær ábendingar og þá gagnrýni sem ASÍ hafi sett fram á starfsemi Impregilo. „Við hljótum að fagna því að ábendingar okkar séu teknar til skoðunar og væntum þess að þá komi í kjölfarið aðgerðir sem taka á þeim ágreiningsefnum sem uppi hafa ver- ið,“ segir Halldór. Deila Alþýðusambandsins og Impregilo rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í gær Allir ráðuneytisstjórarnir voru skipaðir í starfshóp EITT hundrað milljónum króna verður varið í bættar hálkuvarnir og aukna vetrarþjónustu Vega- gerðarinnar á þessum vetri. Í minnisblaði samgönguráðherra um þetta mál, sem lagt var fyrir rík- isstjórnarfund nýverið, segir að umferð á þjóðvegum hafi aukist verulega undanfarin ár. Þá segir að bætt vegakerfi og meira bundið slitlag á vegum kalli á aukna vetr- arþjónustu enda hafi eðli þjónust- unnar breyst vegna aukinna hálku- vandamála. Að sögn Björns Ólafssonar, for- stöðumanns þjónustudeildar Vega- gerðarinnar, er hálkan mun meira vandamál nú en áður. Snjór festist síður á bundnu slitlagi en hálkan eigi greiðari leið. Þá hafi veðráttan breyst á síðustu árum, umhleyp- ingar eru meiri og ísing sömuleið- is. Hundrað milljónir í hálkuvarnir  100 milljónir/11 VIÐSKIPTASIÐFERÐI kvenna í íslensku viðskiptalífi er betra en karla og siðferði þeirra sem eldri eru er betra en þeirra yngri. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun með- al stjórnenda um traust í íslensku viðskiptalífi sem kynnt var í gær. Af þeim sem tóku þátt í könn- uninni voru 9% konur. Af þeim telja 75% að viðskiptasiðferði kvenna sé betra en karla. Meirihluti þeirra karla sem tóku þátt í könnuninni, eða 60%, er þessu sammála. Um 60% stjórnenda í íslensku viðskiptalífi telja að siðferði í við- skiptum hafi farið batnandi undan- farin ár. Mikill meirihluti þeirra tel- ur þó að hagsmunaárekstrar séu algengir í íslensku viðskiptalífi. Af þeim sem tóku þátt í könn- uninni töldu 65% að siðferði í við- skiptum væri betra en í stjórnmál- um og 72% töldu siðferði í einkageiranum betra en í opinbera geiranum. Þá töldu 93% að slæmt viðskiptasiðferði kæmi í bakið á þeim síðar. Konum betur treystandi  Siðferði/12 ÓMAR H. Kristmundsson stjórnsýslufræðingur og Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, sem komið hafa að ritun á sögu Stjórnarráðs Íslands, telja aðspurðir það afar fátítt ef ekki einsdæmi í seinni tíð að ráðuneytisstjórar allra ráðuneyta hafi verið skipaðir í einn og sama starfshópinn um tiltekið mál, líkt og ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í gær varðandi deilurnar um framkvæmdirnar við Kárahnjúka. Þeir segja mörg dæmi þess að nokkrir ráðuneytisstjórar hafi verið skip- aðir í sömu nefndina og vitað sé að þeir komi reglulega allir saman til að ræða málefni og skipulag Stjórnarráðsins, þó ekki fagleg mál. Fannst þeim aðkoma sjávarútvegsráðuneytisins í þessu tiltekna máli óvænt og sérstök. Fátítt og einsdæmi í seinni tíð ÞÚSUNDIR jólatrjáa hafa nú gegnt hlutverki sínu og fellt barrið. Gera má ráð fyrir því að íbúar fleiri þús- und heimila Reykjavíkurborgar, en ríflega 40 þúsund íbúðir eru í borg- inni, hafi tekið niður skrautið af trjánum og sett þau út á gangstétt, þaðan sem starfsmenn Gatna- málastofu sjá um að fjarlægja þau. Frá 7.–14. janúar aka borgarstarfs- mennirnir um hverfi borgarinnar og hirða jólatrén. Má búast við því að þeir fari um hvert hverfi tvisvar sinnum. Örlög jólatrjáa Reykvíkinga eru því ráðin. Þau eru kurluð niður af Gámaþjónustunni sem tekur við þeim af borginni. Trén, líkt og mjólkurfernur og dagblöð, eiga sér því framhaldslíf. Morgunblaðið/Þorkell Tugþúsund jólatré kurluð niður ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.