Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes HÉÐAN Í FRÁ ÆTLA ÉG AÐ HÆTTA AÐ HUGSA UM ÞAÐ HVAÐ ÉG ER AÐ VERÐA GAMALL! ÉG SKAL... ÉG SKAL... ÁI! ÉG ÞEKKI ÞÍNA LÍKA MÍNA LÍKA? ÞIÐ HALDIÐ AÐ ÞIÐ SÉUÐ BETRI EN VIÐ HIN! ÉG? TOMMI ÞETTA ER ILLA GERT ÉG? HELD ÉG AÐ ÉG SÉ BETRI EN ÞAU? LÁTTU KALLA FÁ HANSKANN ANNARS REK ÉG ÞIG ÉG? BETRI EN ALLIR HINIR?!!? KALVIN, SEGÐU MÉR HVAÐ SNORRI STURLUSON GERÐI ÉG VEIT ÞAÐ EKKI EN ÉG GET SAGT ÞÉR HVAÐ ALLAR OFURHETJURNAR Í ATÓMLIÐINU HEITA OG HVAÐ OFURKRAFTARNIR ÞEIRRA ERU! KALVIN, ÉG VIL TALA VIÐ ÞIG EFTIR TÍMA MÁLIÐ ER EKKI AÐ ÉG SÉ HEIMSKUR. ÉG BÝ BARA YFIR OF MIKILLI GANGSLAUSRI VISKU Svínið mitt © DARGAUD HVERNIG VAR MYNDIN? ÓGEÐSLEG! MÉR LÍÐUR BARA ILLA NÚ SÉRSTAKLEGA ENDIRINN ÞEGAR MAÐUR KEMST AÐ ÞVÍ AÐ MORÐINGINN ER FAÐIR SÖGUHETJUNNAR OG HEFUR DREPIÐ KONUNA SÍNA OG HUNDINN TIL ÞESS AÐ KOMA PENINGUNUM UNDAN EN ÞEGAR HANN REYNDI AÐ KASTA SYNI SÍNUM ÞÁ FER HANN SJÁLFUR Í GEGNUM GLUGGANN OG KREMST, RÉTT ÁÐUR EN STRÆTÓ KEYRIR YFIR HANN SEM SYSTIR HANS STÝRIR. ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGT HÆ RÚNAR! VAR ÉG NOKKUÐ LENGI? FRÁBÆR MYND! SÉRSTAKLEGA ÞEGAR VONDI KALLI KREMST Á GANGSTÉTTINNI. SPLASS!! ? BLÓÐIÐ FÓR ÚT UM ALLT. ÞAÐ VAR EKKERT SMÁ FLOTT! GROIN! !? FANNST ÞÉR ENDIRINN GÓÐUR? JÁ! HANN VAR SVO FALLEGUR! SÁ SÆTI VERÐUR ÁSTFANGINN AF ELSKUNNI SINNI OG ÞAU FARA Í BRÚÐKAUPSFERÐ TIL FENEYJA ?! HÚN TILKYNNIR HONUM AÐ HANN VERÐI FAÐIR EFTIR NOKKRA MÁNUÐI EN ÉG HÉLT AÐ ÞIÐ HEFÐUÐ FARIÐ Á SJÁ SÖMU MYND ENGAR ÁHYGGJUR AMMA ER SVOLÍTIÐ KLIKKUÐ. HÚN SOFNAÐI EFTIR FYRSTU 10 MÍNÚTURNAR EINS OF ALLTAF TALLALA Dagbók Í dag er miðvikudagur 12. janúar, 12. dagur ársins 2005 Eitt er það sjón-varpsefni sem fer afskaplega mikið í taugarnar á Víkverja. Þegar þetta efni birt- ist á skjánum er hann við það að kasta upp, satt að segja. Er þá illa komið fyrir honum. Að þurfa að sjá fólk borða í sjónvarpi, jafnvel á meðan það er í viðtali og þarf að tjá sig um mál ótengd elda- mennskunni, er í versta falli móðgun og ögrun við áhorfendur og í besta falli gjör- samlega misheppnað sjónvarpsefni. Sjónvarpsþáttaátið er farið að tröllríða innlendri dag- skrárgerð á Stöð 2 en uppátækin sjást einnig á öðrum stöðvum hér á landi, þá helst Skjá einum. Víkverji opnar t.d. varla fyrir Stöð 2 á morgn- ana og í kringum fréttatímann í þættinum Íslandi í dag öðruvísi en að þar séu þáttastjórnendur og viðmæl- endur að smjatta á einhverjum mat. Hægt er að hafa skilning á átinu ef um matreiðsluþætti er að ræða en þegar tilgangurinn er ekki orðinn annar en að auglýsa upp ákveðna veitingastaði og tiltekna matvöru þá er Víkverja nóg boðið. Kannski geta þátta- stjórnendur litlu ráðið um þetta og eru of- urliði bornir af mætti auglýsingatekna en Víkverji á engu að síð- ur erfitt með að trúa því hvernig morgun- hanar og -hænur á Stöð 2 geta étið stór- steikur á þessum tíma dags, rennt þeim nið- ur með rauðvíni og haldið áfram að brosa eins og ekkert hafi í skorist. Þau hafa þá þurft að fasta vel og lengi fyrir hvern þátt. Bíður Víkverji líka eftir því að sá dagur renni upp að ein- hver viðmælenda stöðvarinnar segi „nei, takk, ég hef ekki lyst“, eða „nei, takk, ég er grænmetisæta“. Ef dagskrárgerðarfólk heldur að þetta sé skemmtilegt sjónvarpsefni þá er það hinn mesti misskilningur. Að minnsta kosti er Víkverji á þeirri skoðun og líklega nokkrir fleiri. Kannski að þetta sé hluti af sparnað- araðgerðum á Stöð 2, láta veitinga- húsin og kokkana borga fyrir að elda fyrir framan tökuvélarnar og metta starfsmennina í leiðinni. Spurning hvað kokkurinn í mötuneyti Stöðvar 2 segir um þessa óvæntu samkeppni. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is            Óperan | Íslenska óperan hefur hafið æfingar á Toscu eftir Puccini, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni 11. febrúar nk. Tosca er stærsta verk- efni Íslensku óperunnar á vormisseri 2005, en 15 ár eru liðin frá því að Ís- lenska óperan sýndi Toscu síðast, og nú er aftur komið að því að Íslendingar fái tækifæri til að sjá þessa vinsælu óperu á sviði Óperunnar. Þau Elín Ósk Óskarsdóttir, sem syngur titilhlutverkið Toscu, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, sem fer með hlutverk Cavaradossi, æfðu samsöng sinn undir leiðsögn Jamie Hayes leikstjóra þegar ljósmyndara bar að garði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tosca á fjalirnar MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur fað- irinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt. (Jóh. 6, 27.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.