Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 8
                             !" #  $%  &'    Íslendingar greiðamest allra Norður-landaþjóðanna fyrir lyf samkvæmt nýjum sam- anburði norrænu stofnun- arinnar NOMESCO. Nið- urstöðurnar eru birtar í skýrslu um lyfjanotkun á Norðurlöndunum árin 1999 til 2003. Ef litið er á hinn bóginn á heildarneyslu lyfja, mælda í skilgreindum dagskömmtum (DDD) á hverja 1.000 íbúa, kemur í ljós að lyfjanotkun er tölu- vert minni hér á hvern íbúa en t.d. í Svíþjóð, þar sem hún er mest, í Finn- landi og í Noregi. Íslend- ingar nota þó mun meira af tauga- og geðlyfjum en hinar norrænu þjóðirnar. Lyf fyrir tæpar 50 þúsund krónur á hvern Íslending Samkvæmt skýrslunni var lyfjakostnaður á hvern Íslending árið 2003 um 588 evrur, sem sam- svarar tæpum 49.000 krónum á ári. Næstir Íslendingum komu Finnar með 403 evrur á mann, þá Norðmenn með 379 evrur, kostn- aður á hvern Dana var 350 evrur og 330 evrur í Svíþjóð. Kostnaðarhlutdeild sjúklings- ins er einnig meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum sem upp- lýsingar eru birtar um eða 212 evrur (tæplega 18.000 ísl. kr.) samanborið við t.d. 171 evrur í Finnlandi og 110 evrur í Dan- mörku. Lítill markaður og kostnaðarsöm lyfjadreifing Í skýrslunni er gerð grein fyrir mismunandi fyrirkomulagi lyfja- mála á Norðurlöndunum og helstu aðferðum sem beitt er til að stemma stigu við ört vaxandi lyfjakostnaði. Skýrsluhöfundar segja að meg- inástæður fyrir háum lyfjakostn- aði á Íslandi séu lítill markaður, kostnaðarsöm lyfjadreifing og vakin er athygli á áberandi til- hneigingu til að skipta eldri lyfj- um út fyrir ný lyf sem jafnan eru dýrari. Sé litið á einstaka lyfjaflokka kemur í ljós að Ísland sker sig sér- staklega úr hvað varðar kostnað á hvern íbúa vegna notkunar tauga- og geðlyfja sem var 165 evrur (um 16.500 ísl. kr.) á mann á árinu 2003, samanborið við t.d. 89 evrur í Danmörku, 62 evrur í Færeyj- um, 77 evrur í Noregi og 69 evrur í Svíþjóð. Samanburðurinn leiðir í ljós að lyfjanotkun hefur aukist á öllum Norðurlöndunum og kostnaður- inn aukist m.a. vegna hærra lyfja- verðs og þeirrar þróunar að eldri lyfjum er skipt út fyrir ný og dýr- ari lyf í síauknum mæli. Af einstökum lyfjaflokkum er mest notkun á hjarta- og æða- sjúkdómalyfjum. Halda Finnar og Færeyingar forystunni í neyslu þessara lyfja. Íslendingar nota mun minna af meltingarfæra- og efnaskiptalyfjum en flestar aðrar norrænar þjóðir samkvæmt sam- anburðinum. Íslendingar auka forskot sitt í notkun geðdeyfðarlyfja Íslendingar, Danir og Svíar nota tauga- og geðlyf í meira mæli en aðrar norrænar þjóðir sam- kvæmt samanburðinum. Ekkert lát virðist vera á vaxandi notkun geðdeyfðarlyfja á öllum Norður- löndunum á undanförnum árum. Þar hafa Íslendingar haldið for- ystu um langt árabil með mikilli notkun þunglyndislyfja, sem eykst jafnt og þétt miðað við hinar þjóðirnar. Hefur notkunin aukist úr 59,8 dagskömmtum á hverja 1.000 íbúa árið 1999 í rúmlega 90 á árinu 2003. Á sama tíma jókst neysla sams konar lyfja úr 31,5 í 52,2 dagskammta í Danmörku, 36,1 í 51,7 í Noregi og úr 41,8 í 62,5 í Sví- þjóð á þessu fjögurra ára tímabili. Skýrsluhöfundar segja í niður- stöðum sláandi hversu mismun- andi og breytileg lyfjaneysla og lyfjakostnaður er á Norðurlönd- unum, í ljósi þess hversu líkar norrænu þjóðirnar eru og lífsskil- yrði eru áþekk. Fréttaskýring | Verulegur munur á lyfja- notkun og -kostnaði Norðurlandabúa Borgum meira fyrir lyfin Vaxandi tilhneiging til að skipta út eldri lyfjum fyrir ný og dýrari lyf Lyfjanotkun og lyfjaútgjöld fara vaxandi. Íslensk börn skera sig úr í notkun þunglyndislyfja  Notkun þunglyndislyfja er mun meiri meðal barna hér á landi, bæði drengja og stúlkna, sem eru 14 ára og yngri, en á öðrum Norðurlöndum. Mælist notkunin 12,6 dagskammtar á hverja 1.000 drengi hér á landi og 7,2 skammtar meðal stúlkna í þessum aldurshópi. Í ljós kemur í samanburði norrænu skýrsl- unnar að notkunin mælist hins vegar um eða innan við einn dag- skammt á hver 1.000 börn á öðr- um Norðurlöndum. omfr@mbl.is 8 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gleðilegar nýjar R-lista-skattahækkanir, elskurnar mínar. Útsendingar Radíós Reykja- víkur stöðvaðar ÚTSENDINGAR útvarpsstöðvar- innar Radíó Reykjavík FM 104,5 hafa legið niðri undanfarna daga, og hyggst nýr eigandi rifta kaupsamn- ingi sem gerður var í desember sl. vegna þess að stöðin hafi ekki til- skilin leyfi til útvarpsreksturs. Ekki er vitað hvort eða hvenær stöðin fer aftur í loftið. Jón Hlíðar Runólfsson keypti stöðina 5. desember sl., og segir að sér hafi verið sagt að stöðin hefði til- skilin leyfi; útvarpsleyfi og leyfi frá Sambandi tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF). Jón segir STEF hafa sett lögbann á stöðina vegna þess að leyfi sé ekki til staðar, auk þess sem stöðin skuldi útvarps- leyfi, og því ekki annað að gera en að rifta samningum um kaup. Guð- mundur Týr Þórarinsson, stofnandi stöðvarinnar, segir að hún muni fara í loftið aftur, um tímabundna erfið- leika sé að ræða, en hann vildi ekki fara nánar út í hvenær eða undir hvers stjórn það mundi verða. ALLS var þinglýst 726 kaupsamn- ingum um fasteignir á Akureyri á ný- liðnu ári og var heildarupphæð veltu 9,1 milljarður króna, en meðalupp- hæð samnings var 12,5 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Fast- eignamats ríkisins. Um er að ræða umtalsverða aukningu frá árinu á undan, 2003, þegar þinglýst var 555 kaupsamningum og nemur aukning- in 30,8%. Veltan jókst um 41,7%, fór úr 6,4 milljörðum í 9,1 sem fyrr segir. Meðalupphæð hvers samning árið 2003 var 11,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli á ný- liðnu ári námu 4,3 milljörðum, við- skipti með eignir í sérbýli námu 4,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 496 milljónum króna. „Það hefur greinilega mikið verið um að vera á fasteignamarkaðnum í fyrra,“ segir Björn Magnússon hjá Fasteignamati ríkisins á Akureyri. Þónokkuð væri um að fólk ætti fleiri en eina fasteign, ætti það bæði við um fólk á höfuðborgarsvæðinu sem ætti einnig íbúð á Akureyri og eins fólk í nágrannasveitarfélögum sem ætti börn í skóla í bæjarfélaginu og sæi sér hag í að fjárfesta í íbúð á með- an fremur en að leigja. Þó svo að íbúafjöldi í bænum hefði ef til vill ekki aukist í sama mæli væri greini- legt að margir hefðu búsetu í bænum þó að lögheimili væri skráð annars staðar. Mikil gróska á fasteignamarkaði Veltan jókst um nær 42% milli ára Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.