Morgunblaðið - 12.01.2005, Page 11

Morgunblaðið - 12.01.2005, Page 11
RÍFANDI gangur er í loðnufryst- ingu hjá HB Granda á Vopnafirði og er unnið á vöktum allan sólar- hringinn. Búið er að frysta 500–600 tonn af loðnu í landi og þá hafa um 150 tonn verið fryst um borð í Svani RE 45. Afkastagetan í landi er allt að 180-190 tonnum á sólar- hring og þá getur Svanur fryst allt að 70 tonnum á sólarhring. Til stóð að skipa út fyrstu loðnunni í gær og fer hún beint á Rússlandsmarkað. Fimm skip á vegum HB Granda hafa verið að loðnuveiðunum. Vík- ingur AK 100 kom í fyrrdag með 1.400 tonn og af þeim fóru um 1.200 tonn í bræðslu, Faxi RE 9 var að landa í gærmorgun og Sunnuberg- ið, sem varð fyrst til að landa loðnu, var þá aftur á landleið með afla. Auk þeirra hafa svo Ingunn AK 100 og Svanur verið að veiðum. „Það er rífandi gangur hjá okk- ur,“ segir Einar Víglundsson verk- stjóri í uppsjávarvinnslu hjá HB Granda á Vopnafirði. Hann segir um 45 manns vinna á föstum vökt- um við loðnufrystinguna allan sól- arhringinn. „Við erum að frysta þetta í tvo flokka, mínus 40 stykki í kílói og 40-50 stykki í kílói. Þetta er mjög góð loðna, ca. 12% feit. Áta er innan þeirra marka sem má vera.“ Einar segir að svo virðist sem nóg sé af loðnu norðaustur af landinu. „Það er nóg af loðnu og það er nótaveiði líka og menn eru bara brattir. Núna bíða menn bara spenntir eftir því að sjá hvað Hafró gerir, þ.e. hvað aukningin á kvót- anum verður mikil. Það þýðir tals- vert fyrir svona fyrirtæki eins og HB Granda, ef kvótinn er um 600 þúsund tonn, þá fáum við 120 þús- und tonn sem þýðir um það bil 24– 25 þúsund tonn á skip.“ Einar segir menn bíða spennta eftir hvað verði gert svona í fyrstu lotu því það skipti auðvitað máli að fara ekki í sama farið og í fyrra og lenda í sömu vitleysu og þá. Menn hafi þá ekki fengið niðurstöðu um útgefnan loðnukvóta fyrr en of seint og hafi því brunnið inni með fleiri tugi þúsunda tonna. Aðalatriðið að halda starfseminni Tangi hf. sameinaðist síðasta haust HB Granda hf. og Svani RE-45 og segir Einar að auðvitað sé alltaf ákveðin eftirsjá í 40 ára gömlu nafni [Tanga-nafninu]. „En svona er þetta bara, það er númer eitt tvö og þrjú að hafa starfsemina og vinnuna hér. Ég held að það séu fáir Vopnfirðingar sem líta á þetta sem neikvæðan hlut. Menn gera grín að því að við erum með hótel hér sem heitir Hótel Tangi og nú segja gárungarnir að það eigi að skíra það Grand hótel.“ Fyrsta loðnan til Rússlands Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Mikil vinna Unnið er allan sólarhringinn í loðnuvinnslu HB Granda á Vopnafirði. Þórhildur Haraldsdóttir er hér við vigtirnar. Rífandi gangur í loðnufrystingu hjá HB Granda á Vopnafirði MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 11 FRÉTTIR ÚR VERINU SAMKOMULAG hefur orðið um það milli Íslands og Færeyja, að fiskveiðisamning- urinn milli landanna verði óbreyttur á þessu ári. Samkvæmt því fá Færeyingar ákveðnar heimildir til botnfiskveiða hér við land og síðan skiptast þjóðirnar á gagnkvæmum veiðiheimildum í uppsjávarfiski. Landstjórnarmaðurinn Björn Kalsö, sem fer með sjávarútvegsmál í Færeyjum, og Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, hittust í Reykjavík á mánudag og var þá gengið frá samkomulaginu. Urðu aðilar sammála um að botnfisk- veiðiheimildir Færeyinga við Ísland yrðu óbreyttar á árinu 2005 og hafa því færeysk skip heimild til að veiða 5.600 lestir af botn- fiski á árinu en heildarafli af þorski verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 80 lestir. Varðandi veiðar á uppsjávarfiski þá verða í gildi á næsta ári sömu ákvæði og giltu á því síðasta. Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Fær- eyjar og 1.300 lestir af makríl en færeysk skip fá heimildir til veiða á 30 þús. lestum af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2005/2006 auk þess sem þau geta veitt þar 10 þús. lest- ir af loðnu, sem þau hafa heimild til að veiða í lögsögu Grænlands. Þá ákváðu aðilar að gagnkvæmar heim- ildir íslenskra og færeyskra skipa til veiða á norsk-íslenskri síld og kolmunna innan lög- sagna landanna yrðu óbreyttar. Óbreyttar heimildir EITT hundrað milljónum króna verð- ur varið í bættar hálkuvarnir og aukna vetrarþjónustu Vegagerðar- innar á þessum vetri, samkvæmt minnisblaði samgönguráðherra sem lagt var fram á ríkisstjórnarfundi fyr- ir helgi. Fram kemur að umferð á þjóðvegum landsins hefur aukist verulega á undanförnum árum, eknir kílómetrar voru 1,67 milljarðar árið 1999 en voru í fyrra rétt um 2 millj- arðar og er aukningin 20% á fimm ár- um. Þá segir að bætt vegakerfi og meira bundið slitlag á vegum en áður kalli á aukna vetrarþjónustu enda hafi eðli þjónustunnar breyst vegna aukinna hálkuvandamála. Að sögn Björns Ólafssonar, for- stöðumanns þjónustudeildar Vega- gerðarinnar, eru breytingar á vetrar- þjónustureglum Vegagerðarinnar einkum fólgnar í auknum hálkuvörn- um og lengri þjónustutíma á stærst- um hluta vegakerfisins. Þjónustuflokkar úr 5 í 4 Hálkuvarnir eru af ýmsum toga, auk þess að ryðja burtu snjó og rífa upp klaka og ís er sandur og salt borið á varasama vegarkafla. Þjónustu- flokkum Vegagerðarinnar er fækkað úr fimm í fjóra en hver flokkur segir til um hversu mikið er hálkuvarið á hverjum stað. Í 1. flokki er nánast allt hálkuvarið, í 2. flokki er alltaf hálku- varið í flughálku og allir varasamir staðir í hálku. Í 3. flokki eru allir vara- samir staðir hálkuvarðir í flughálku og mjög varasamir staðir í hálku og í 4. flokki eru einungis mjög varasamir staðir hálkuvarðir. Að sögn Björns fjölgar þeim stöð- um sem eru hálkuvarðir auk þess sem vegir í tveim síðustu þjónustuflokk- unum eru færðir á milli flokka. Leiðin milli Akureyrar og Reykja- víkur er dæmi um vegarkafla sem tekur breytingum og verður leiðin eftirleiðis öll hálkuvarin ef flughált er á vegum. Fram kemur í minnisblaði ráð- herra að á sama tíma og umferð hafi aukist verulega hafi samsetning hennar breyst verulega. Auk vaxandi vöruflutninga og afnámi strandsigl- inga, hafi ferðatími styst með bættu vegakerfi sem lýsi sér í auknum ferðalögum almennings, umferðin dreifist á lengri tíma sólarhrings, um- ferðarhraði hafi aukist og kröfur um aukið umferðaröryggi séu stöðugt vaxandi. Að sögn Björns Ólafssonar er hálk- an einnig mun meira vandamál á veg- um landsins en hún var áður. Snjór festist síður á bundnu slitlagi en hálk- an eigi greiðari leið. Þá hafi veðráttan breyst á síðustu árum, umhleypingar séu mun meiri og ísing sömuleiðis. Verstu kaflarnir milli Akureyrar og Egilsstaða Að sögn Óskars Óskarssonar, framkvæmdastjóra innanlandssviðs Landflutninga-Samskipa, eru verstu vegarkaflarnir í dag með tilliti til ís- ingar og hálkuvarna, milli Akureyrar og Egilsstaða og á leiðinni milli Reykjavíkur og Vestfjarða. Á fyrrnefndu leiðinni eru það eink- um Fljótsheiði, Mývatnsheiði, Náma- skarð, Biskupsháls, kaflinn inn Möðrudalsöræfi,, kaflinn frá Gilsá upp að Ármótaseli og kafli upp frá Jökulsá í Jökuldal sem hálkuverja þarf betur en gert hefur verið, sam- tals um 20 kílómetrar. Þá þarf að mati Óskars að fjölga mokstursdögum úr 6 í 7 á leiðinni milli Reykjavíkur og Vestfjarða. Þeir kaflar sem eru slæmir á þeirri leið eru: Ennisháls, brekkurnar í kring um Hólmavík „Fellabök“, Smá- hamraháls, Kambsnes, Eiðið, Gils- eyrarbrekka og Hjallabrekka í Skötufirði, Norðdalur á Steingríms- fjarðarheiði, Fossabrekka á Stein- grímsfjarðarheiði og önnur sem er neðar eða samtals um 12 kílómetrar. Þá er brekkan við Reykjanesafleggj- ara í Hafnarfirði, um 30 metrar, yf- irleitt mjög hættuleg þegar hálka er, að sögn Óskars, og einnig þarf að lag- færa einbreitt slitlag í Hrútafirði og Bitrufirði í Strandasýslu og vegar- kaflann í Norðurárdal í Borgarfirði sem er „landsfrægur“ fyrir hversu mjór hann er, að hans sögn. Að sögn Óskars geta allt að 10 slæmir kaflar verið á hverri aksturs- leið sem bílstjóri þarf að fara um. Eina ráðið sé að setja keðjur á bílinn og síðan keyra yfir alla vegarkafla á lágmarkshraða, einnig þá auðu, eða taka keðjurnar undan bílunum eftir hvern hálkukafla og ferlið allt að tíu sinnum, sem fyrr segir. „Okkar bíl- stjórar velja þá leið að taka keðjurnar undan eftir hvern hálkukafla því það er mjög slítandi að aka á keðjum, bæði fyrir dekk, keðjur svo og sjálf- sögðu fyrir vegaryfirborðið,“ segir Óskar. Allir bílstjórar séu háðir ströngum reglum um aksturs- og hvíldartíma sem gerir það að verkum að þeir megi ekki eyða of miklum tíma í hverja ferð og hann fullyrðir að sum- ir bílstjórar gefi sér ekki alltaf tíma til að setja á keðjurnar sökum þess að þeir eru að falla á aksturstíma. Varðandi snjómokstur segir Óskar að verktakar sem sjá um moksturinn fyrir Vegagagerðina notist mikið við bíla með „tönn“ sem reynist góður kostur þegar snjórinn er laus og auð- velt er að moka. Um leið og snjórinn þjappast eigi bílarnir erfitt með að hreinsa almennilega snjóinn frá og skilja eftir sig þunnt lag sem síðar verður að klaka. „Þetta hefur það í för með sér að við erum að upplifa hálku oftar en nauðsynlegt er. Það þarf því að hugsa meira fyrir því að vera með stærri og þyngri tæki.“ Óskar vill árétta að Samskip-Land- flutningar fagna átaki Vegagerðar- innar í að efla hálkuvarnir.          () " *+ %   #,  "- !" ) ."'  ) !" .) + " )! +  !" #) . + / ) 0 -.  )! + / ) 0   )! +  )' ) '  ! . . +  ) / ) 0  ! . . + )! +  )' ) ' #1' ! . . +  ) / ) 0 2-)-'. #1' ! . . + )! + 3.! 4. ,) 5 ".#1 +) 6.#1 +) 1-&),. )+ 7  ,) ')#1 +) ) "4  8%.! 9) 1- :, . 1- ;<-#1 +) 2'.. + ".)<7 . +) #%<!') 81- = #)$*# 7 ). ) ; 8" ".. >)'! - ? -&! -&'" +  ' -". 100 milljónir króna í auknar hálkuvarnir Meiri umhleypingar og betri vegir auka talsvert líkur á hálku SIGURÐUR Arnbjörnsson, flutningabílstjóri hjá Norður- frakt á Siglufirði, sagði það hið besta mál ef auka ætti hálku- varnir á þjóðvegum landsins. Sigurður sem ekur frá Siglu- firði til Reykjavíkur og Ak- ureyrar sagði ástandið hafa verið slæmt að undanförnu, hálka mikil og þá sérstaklega í Húnavatnssýslunum. „Ástandið hefur verið áberandi verst þar á suðurleiðinni en lítið verið að gert.“ Sigurður sagði að snjór- inn á vegum landsins væri orð- inn að klaka og því glerhált í hláku. Gunnlaugur Höskuldsson, flutningabílstjóri hjá Landflutn- ingum Samskipum, sagði löngu kominn tíma á að bæta ástand- ið, enda væri klaki á vegum um allt land. Gunnlaugur er m.a. að keyra bæði suður til Reykjavík- ur og austur á Egilsstaði frá Akureyri. „Maður hefur ekki mikið lent í því að stoppa vegna þess hversu mikill snjór er, fyrr en nú um daginn en það er aft- ur mikil hálka og hún er miklu verri. Það er mjög mismunandi eftir stöðum hversu mikið ein- staka leiðir séu sandbornar, enda hefur einn og einn bíll eða vagn rúllað yfir.“ Gunnlaugur sagði alveg til í því að menn væru að fara of langt án þess að setja keðjur undir bíla sína. „En það hefur vantað pening í hálkuvarnir og það hlýtur eitt- hvað að koma í kassann með aukinni umferð, þ.e. ef þeir peningar skila sér á réttan stað. Hins vegar ber þjóðvegakerfið ekki alla þessa umferð.“ Flutningabílstjórar fyrir norðan Morgunblaðið/Kristján Flutningabílstjórar eru ánægðir með auknar hálkuvarnir. Hið besta mál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.