Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 13
ERLENT
STÖÐUGAR rigningar í sunnan-
verðri Kaliforníu hafa valdið þar
miklum aurskriðum og er vitað um
minnst 12 manns sem hafa farist.
Meira hefur rignt í miðborg Los Ang-
eles á 15 dögum en nokkru sinni fyrr
samkvæmt gögnum veðurfræðinga
þar. Óvenju mikill snjór er einnig í
fjöllum Norður-Kaliforníu.
Geysimikil aurskriða féll á mánu-
dag á lítinn bæ, La Conchita, milli
hæðanna sunnan við Santa Barbara
og Kyrrahafsins. Þrír fórust, átta
slösuðust og ekki er vitað hvað varð
um alls 21 íbúa. Sumir þeirra hafa
vafalaust ekki verið heima en slökkvi-
liðsmenn eru vissir um að einhverjir
þeirra hafi grafist undir leðjunni sem
var upp undir tíu metra að þykkt og
urðu 15 hús undir henni. Enn var leit-
að af kappi aðfaranótt þriðjudags er
tveir slökkviliðsmenn þóttust verða
varir við hreyfingu undir aurnum.
Meðal þeirra sem tóku þátt í leit-
inni var Jimmie Wallet, 37 ára gamall
maður sem býr í La Conchita. Hann
hafði farið út í búð á mánudag til að
kaupa ís en heima voru eiginkona
hans og þrjú börn. Er hann kom út úr
búðinni sá hann leðjuna falla eins og
fljót yfir svæðið í átt að húsinu. Hann
hljóp af stað en húsið var horfið í aur-
inn þegar hann kom á vettvang. „Ég
veit að þau eru þarna. Ég ætla ekki
að hætta,“ sagði Willet. En hann
sagðist ekki lengur heyra nein óp
undir aurnum eins og heyra mátti á
mánudag.
Íbúar í stórri blokk í Alhambra, út-
hverfi í Los Angeles, voru fluttir á
brott vegna þess að yfirvöld óttuðust
að vatnsósa hæð myndi bresta.
AP
Bílar sem hafa verið yfirgefnir í aurnum á þjóðvegi við bæinn La Conchita.
Manntjón í mikl-
um aurskriðum
Los Angeles. AP.
Metúrhelli í Los Angeles síðustu daga
INDVERSKIR sjómenn reyna að
losa bát úr aur á hamfarasvæðinu
í suðurhluta Indlands. Að minnsta
kosti 10.150 manns fórust á Ind-
landi í hamförunum annan dag
jóla og um 5.600 er enn saknað.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna óskuðu eftir því í gær að ríki
heims legðu fram reiðufé til hjálp-
arstarfsins sem fyrst. Aðeins tí-
undi hluti þess fjár, sem ríkin lof-
uðu, hefur skilað sér til hjálpar-
stofnana.
Reuters
SÞ óska
eftir
reiðufé
VÍKTOR Janúkovítsj, fyrrum for-
sætisráðherra Úkraínu, kvaðst í
gær ætla að áfrýja úrslitum for-
setakosninganna, sem fóru fram
26. desember en yfirkjörstjórn
landsins lýsti því yfir formlega á
mánudagskvöld að Víktor Jústsj-
enko, fulltrúi stjórnarandstöðunn-
ar, hefði sigrað í kosningunum.
Sagði Janúkóvítsj að hann og
stuðningsmenn hans myndu aldr-
ei viðurkenna lögmæti kosning-
anna og úrslitin, sem kjörstjórnin
hefði birt á mánudag, væru sann-
færandi grundvöllur til að byggja
á kæru til hæstaréttar landsins.
Jústsjenko hlaut 51,99% greiddra
atkvæða en Janúkovítsj 44,20%.
Þing Úkraínu mun nú ákveða
hvenær Jústsjenko tekur form-
lega við forsetaembættinu. Búist
er við að það geti tafist nokkuð
vegna áfrýjunar Janúkovítsj.
Fréttaskýrendur eru margir
þeirrar skoðunar að áfrýjun Jan-
úkovítsj sé fyrst og fremst hugsuð
til að tryggja honum sess sem
leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Á
næsta ári fara fram þingkosning-
ar sem verða sérlega mikilvægar í
ljósi umskiptanna sem orðið hafa
með kjöri Jústsjenkos.
Janúkovítsj áfrýjar
Kíev. AFP.