Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 15
Skráning er hafin á námskeiðið
Leiðbeinandi er sr. Þórhallur Heimisson.
Tími: Mánudagana 17/1, 24/1 og 31/1 kl. 20.00.
Upplýsingar og skráning:
thorhallur.heimisson@kirkjan.is og í síma 891 7562.
LYKILLINN AÐ
DA VINCI LYKLINUM
Á námskeiðinu er fjallað um hugmyndir
metsölubókarinnar Da Vinci lykilsins um
kirkjuna, frímúrara, musterisriddara, konur í kirkjunni,
Maríu Magdalenu, kaþólsk leynifélög og Graal.
Allir þátttakendur fá í hendur
leiðbeiningabók um helstu
þætti námskeiðsins.
Er saga kirkjunnar blekking leynireglna karlaveldisins?
Hver er hinn sögulegi sannleikur bak við myndun
Nýja testamentisins?
Hverjir voru musterisriddarar,
Jóhannesarriddarar og
teutónsku riddararnir?
Var Jesús giftur?
Leitað verður svara m.a. við spurningunum:
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Spöruðu 700 þúsund | Félagsmenn í
stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslu keyptu á
liðnu ári alls 2.400 miða í Hvalfjarðargöngin
á skrifstofu stéttarfélaganna Hefðu fé-
lagsmennirnir keypt miðana fyrir sunnan
þegar þeir fóru í gegnum göngin hefðu þeir
þurft að greiða 2,4 milljónir eða kr. 1000
fyrir ferðina. Hins vegar greiddu þeir tæp-
lega 1,7 milljónir fyrir miðana á Skrifstofu
stéttarfélaganna eða kr. 700 fyrir ferðina.
Þannig spöruðu þeir sér 700 þúsund á árinu
2004 með því að vera félagsmenn. Þetta
kemur fram á vef stéttarfélaganna, vh.is.
Þess er jafnframt getið að þau eru fyrst
félaga til að bjóða upp á þessa þjónustu við
félagsmenn. Ástæðan fyrir því að fé-
lagsmenn fá ferðina á 700 krónur er að
stéttarfélögin kaupa fjölda korta í Hval-
fjarðargöngin sem er mun ódýrara heldur
en að kaupa einstakar ferðir þegar farið er í
gegnum göngin.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Alkinn blindfullur | Bátur sökk við Sauð-
árkrókshöfn um síðustu helgi og mátti litlu
muna að hann tæki annan með sér. Um var
að ræða litla trillu sem lá við smábáta-
bryggjuna á Króknum og í snjókomum síð-
ustu daga fylltist báturinn af snjó og sökk á
endanum undan farginu. Trillan bar nafnið
Alkinn og segir á Heimaslóð Skagfirðings-
ins, skagafjordur.com, að menn gantist með
að Alkinn sé blindfullur þar sem hann mar-
ar að mestu í kafi við bryggjuna.
Fundað um skel | Nýlegar rannsóknir á
hörpudiski og ástand stofnsins í Breiðafirði
verða umræðuefni opins fundar sem Haf-
rannsóknastofnunin boðar til á Ráðhúsloft-
inu, Hafnargötu 3, Stykkishólmi í dag klukk-
an 17. Tilefnið er hrun hörpudiskstofnsins í
kjölfar hlýnunar sjávar og aukinnar sýk-
ingar í kjölfarið.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, flytur inn-
gangserindi. Síðan fjalla Hrafnkell Eiríksson
og Jónas Páll Jónasson um þróun hörpu-
disksstofnsins í Breiðafirði – stofnstærð,
dánartíðni og nýliðunarhorfur, Hlynur Pét-
ursson kynnir vöktun á tveimur tilteknum
svæðum í Breiðafirði – þyngd vöðva og kyn-
kirtla og mælingar á botnhita eftir árstímum
og Sigurður Helgason og Árni Kristmunds-
son segja frá rannsóknum á frumdýrasýk-
ingum í hörpudiski – greiningu og tíðni sjúk-
dóma. Umræður verða í fundarlok.
Ánýliðnu ári, 2004,auglýsti ríkið um990 störf á vef sín-
um Starfatorg.is. Af þeim
voru 687 á höfuðborgar-
svæðinu eða 69,4% en 57
voru í Eyjafirði eða 5,7%.
Á höfuðborgarsvæðinu
búa 62,7% landsmanna en
7,4% í Eyjafirði. Hlutfall
starfa umfram hlutfall
íbúa á höfuðborgarsvæð-
inu var því tæplega 7% en
fjöldi starfa í Eyjafirði var
tæplega 2% minni en hlut-
fall íbúa árið 2004.
Frá þessu er grein á vef
Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar og þess getið
að tölurnar séu fengnar
hjá Starfatorg.is, vefsíðu á
vegum Fjármálaráðuneyt-
isins um laus störf á veg-
um ríkisins. Sá fyrirvari er
að ríkisstofnanir eru ekki
skyldugar til að auglýsa á
þessum vef og því er list-
inn ekki tæmandi.
Fleiri
ríkisstörf
Verslunin Klakkur íVík í Mýrdal hef-ur haft það fyrir
venju að þeir sem versla
fyrir meira en 3000 kr. í
desember skrifa nafnið
sitt á miða sem fer í
happdrættispott og eru
síðan dregin út nokkur
nöfn sem hljóta vinning.
Björgvin Jóhannesson á
Höfðabrekku hreppti að
þessu sinni besta vinn-
inginn og afhenti Kol-
brún Matthíasdóttir hon-
um hljómflutningstæki.
Björgvin taldi að vinn-
ingurinn kæmi sér vel
þar sem hann er nýflutt-
ur inn í nýtt hús.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Heppinn viðskiptavinur
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndorti er hann las að
Einar Kolbeinsson hefði
mokað að kirkjudyrum í
Bólstaðarhlíð:
Hiklaust þegar hríða fer
hjálpin fram er boðin.
Bólstaðarhlíðarbóndinn er
besta kirkjustoðin!
Og Rúnar yrkir enn:
Einar fylgir fornum sið,
fús í öllu að veita lið.
Mokar sig í metorð stór,
má því sitja innst í kór!
Hans er fremdin heil og sönn,
helguð fórn í dagsins önn.
Aðrir merktir Mammons ys
moka sig til h…!
Um áramótin brá Hjálm-
ar Jónsson Dóm-
kirkjuprestur á leik í
fyrriparti:
Sperringur með sprengidót
spillir friði um áramót
Og Halldór Blöndal for-
seti Alþingis botnaði:
og erringur með önughót
ef þú hittir prestaþrjót.
Mokað,
en hvert?
pebl@mbl.is
Vestur-Eyjafjöll | Seljalandsfoss
í vestanverðum Eyjafjöllum er
einn af hæstu fossum landsins og
blasir hann við vegfarendum sem
eiga leið um Hringveginn austur
um land. Seljalandsfoss er vin-
sæll viðkomustaður ferðafólks,
allan ársins hring. Sveitarfélagið
kostar flóðlýsingu hans yfir vet-
urinn og fær fólk nýja sýn á
þetta náttúrufyrirbrigði á vetr-
arkvöldum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Flóðlýstur Seljalandsfoss
Náttúran
Skagafjörður | Sveitarstjórn Skagafjarðar
mun væntanlega taka afstöðu til þess á ný á
fimmtudaginn í næstu viku hvort Villinga-
nesvirkjun verður höfð í kynningartexta
með tillögu að aðalskipulagi. Félagsmála-
ráðuneytið úrskurðaði að ákvörðun sveitar-
stjórnar um þetta væri ógild vegna vanhæf-
is Bjarna Maronssonar. Hann tekur því ekki
frekari þátt í umfjöllun málsins sem gæti
leitt til þess að Villinganesvirkjun færi út úr
textanum.
Bjarni er einn af sveitarstjórnarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins sem myndar meiri-
hluta með Vinstrihreyfingunni – grænu
framboði. Hann er jafnframt varaformaður
Kaupfélags Skagfirðinga sem á aðild að fé-
lagi sem hyggst virkja Jökulsá og byggja
virkjun við Villinganes.
Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri og
fulltrúi VG, á von á því að niðurstaða sveit-
arstjórnar verði önnur en við fyrri atkvæða-
greiðslu þegar Bjarni Maronsson greiddi at-
kvæði með minnihlutanum. „Það er í
meirihlutasamningi að horfið verði frá virkj-
un við Villinganes. Við stöndum við okkar
samninga og ætlumst til þess að aðrir geri
það,“ segir Ársæll. Gísli Gunnarsson, odd-
viti sjálfstæðismanna, sagði í gær að sjálf-
stæðismenn ættu eftir að fara yfir málið.
Niðurstaðan gæti þó orðið önnur þegar
varamaður tæki sæti Bjarna í málinu. Sam-
staða hefði verið í röðum sjálfstæðismanna
um að gera ráð fyrir Skatastaðavirkjun en
ágreiningur væri um Villinganes.
Veikari eða sterkari meirihluti?
Ágreiningur um virkjanamálin hefur
mjög reynt á meirihlutann í sveitarstjórn
Skagafjarðar. Gísli Gunnarsson segist ekki
sjá að úrskurðurinn hafi áhrif á meirihlut-
ann og Ársæll segir að úrskurðurinn ætti
fremur að styrkja meirihlutann en veikja
þar sem niðurstaðan hafi verið mjög skýr.
Ráðuneytið hafi snuprað Bjarna Maronsson
og fulltrúa minnihlutans og verði þeir nú að
endurskoða viðhorf sín til stjórnsýslu.
Bjarni Maronsson er annarrar skoðunar.
Hann segir ljóst að kæra Vinstri grænna
hafi veikt meirihlutann og skapað trúnaðar-
brest. Bjarni sagðist ekkert geta gefið upp
um viðhorf sín á þessari stundu þegar hann
var spurður að því hvort hann væri á leið út
úr meirihlutanum en sagðist vera að hugsa
sitt ráð. Hann ætti eftir að fara yfir málið
með félögum sínum og baklandi. Tók Bjarni
fram að framhaldið væri ekki undir sér ein-
um komið, það færi líka eftir því hvernig
þeir sem kærðu sig myndu spila úr þessu.
Niðurstaðan
gæti orðið
önnur