Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 27
starfa má einnig nefna þátttöku
hans í Orkuspárnefnd, formanns-
starf í Rafmagnsverkfræðingadeild
Verkfræðingafélags Íslands og setu
í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps.
Fleira mætti telja, en þetta verður
látið nægja.
Ótalin eru fjölmörg áhugamál
Gísla. Má fyrst og fremst nefna
áhuga hans á rafbílum og þróun
rafgeyma í þá, en hann hafði óbil-
andi trú á því, að rafbílar ættu
mikla framtíð fyrir sér hér á landi,
enda benti hann iðulega á, að ára-
tugalöng reynsla væri af notkun
rafbíla erlendis og þróun í gerð raf-
geyma gæfi fyrirheit um að notk-
unarsvið þannig knúinna bíla
mundi aukast með árunum, einkum
til sendiferða hjá fyrirtækjum og
sem annar bíll fjölskyldna. Margar
greinar skrifaði Gísli í blöð um
þetta hugðarefni sitt, og hann
fylgdist vel með framvindu þessara
mála.
Varmadælur voru annað áhuga-
mál Gísla, sem skylt er að nefna.
Hann vildi, að þær yrðu notaðar á
lághitasvæðum landsins, þar sem
þær gerðu kleift að nota volgrur til
húshitunar og iðnaðar. Í því skyni
átti hann þátt í að settar voru upp
varmadælur hjá Hitaveitu Akur-
eyrar og að gerð var tilraun með
varmadælu á Þórgautsstöðum í
Hvítársíðu. Hann skrifaði einng
greinar um þessi mál í blöð og
tímarit, Sameiginleg áhugamál og
sjónarmið á ýmsum sviðum voru
umræðuefni í tíðum og reglubundn-
um heimsóknum og samskiptum
fjölskyldna okkar Gísla. Það voru
notalegar samverustundir. Þar
kynntumst við líka áhuga Gísla og
Helgu Kristófersdóttur, eiginkonu
hans, á velferð barna sinna, ann-
arra afkomenda og venzlafólks. Þau
létu sér afar annt um þau öll, fylgd-
ust náið með þeim, hverju fyrir sig,
mundu fæðingardaga allra í hópn-
um og höfðu ávallt tíma til að sinna
þeim, þegar fjölskyldan kom sam-
an, hvort sem var á afmælisdögum,
jólum, nýári eða öðrum samkomu-
dögum fjölskyldunnar.
Stundum er skammt stórra
högga á milli. Helga Kristófers-
dóttir, eiginkona Gísla, lézt 12. nóv-
ember sl. Hún hafði lengi átt við
veikindi að stríða, og Gísli hafði
annazt hana af mikilli nærgætni og
alúð. Þau voru mjög samrýmd og
samhent um alla hluti og andlát
hennar hafði djúp áhrif á Gísla, þó
að daglega sæjust þess ekki mörg
merki, þeim, sem þekktu hann lítið.
Fyrir okkur, félaga hans í Orða-
nefnd RVFÍ, er missir góðs sam-
starfsmanns sár eftir svo löng
kynni. Á tæpum sjö vikum höfum
við Inga, kona mín, misst tvo nána
og kæra vini okkar, hjónin Gísla og
Helgu, sem við höfum átt reglu-
bundin samskipti við í u.þ.b. 35 ár,
og söknum sárlega vina í stað.
Lífið er torráðin gáta. Við menn-
irnir fáum engu breytt um fram-
vindu þess og erum vanmáttugir
gagnvart því og náttúruöflunum,
þrátt fyrir þróun vísinda og fram-
fara á ýmsum sviðum. Mesta hugg-
un og styrkur okkar felst í að
treysta á guð, sem við biðjum um
að vera með öllum ættingjum Gísla
og Helgu á þessum makalausu tím-
um. Við hjónin sendum öllum þeim,
sem eiga um sárt að binda vegna
fráfalls þessara góðu vina okkar,
innilegar samúðarkveðjur.
Bergur Jónsson,
formaður Orðanefndar
rafmagnsverkfræðinga.
Við Gísli kynntumst í stjórn
Varðar og fulltrúaráði Sjálfstæð-
isflokksins árið 1987. Hann var
maður hugsjóna og rökhyggju –
vann sitt verk af alúð. Jafnframt
var hann í eðli sínu frumkvöðull,
má þar minnast forgöngu hans í að
stór svifnökkvi kom til landsins,
eftir að þeir höfðu verið í notkun á
Ermarsundi og víðar. Í haust skrif-
aði Gísli grein í Mbl., um tækni
vegna hleðslu á rafknúnum stræt-
isvögnum. Það sýnir að hann fylgd-
ist vel með nýjungum, sérstaklega í
sínu fagi.
Gísla minnist ég í sömu andrá og
Helgu konu hans, sem lézt fyrir
nokkrum vikum. Þau voru einstak-
lega samrýnd – saman í öllu – sam-
tvinnuð í tilfinningum og hjörtu
þeirra slógu saman – samhljómur.
Lífsneisti Gísla slokknaði þegar
Helga fór.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Gísla og Helgu og hafa
fengið að búa í húsinu þeirra í tæp
átta ár – ég er ríkari eftir þær
samvistir.
Haraldur E. Ingimarsson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 27
MINNINGAR
✝ Ólafur Krist-jánsson frá
Hraungerði í
Hrafnagilshreppi
fæddist á Möðru-
völlum í Eyjafirði
14. maí 1908. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Hlíð á Akur-
eyri að kvöldi ný-
ársdags, 1. janúar
síðastliðins. For-
eldrar Ólafs voru
Halldóra Sigríður
Benediktsdóttir, f.
27. maí 1867 d. 16.
nóvember 1952, og
Kristján Ágúst Friðbjörnsson, f.
18. ágúst 1866, d. 1913. Tvíbura-
bróðir Ólafs var Axel Kristjáns-
son, f. 14. maí 1908, d. 4. janúar
1994. Dóttir Axels er Elsa Hlín, f.
Foreldrar Ólafs voru vinnuhjú
á Möðruvöllum þegar tvíburarnir
Ólafur og Axel fæddust og næstu
árin voru þau í vistum á ýmsum
bæjum í sveitinni. Axel varð eftir
á Guðrúnarstöðum og var þar til
26 ára aldurs. Faðir þeirra lést
þegar þeir bræður voru fimm
ára. Ólafur og móðir hans komu
að Hraungerði í Hrafnagils-
hreppi 1916 og voru þar saman
þar til hún lést 1952 en þá voru
þau tekin við búinu. Ólafur bjó
einn í Hraungerði til 1968 en þá
flutti hann til Akureyrar. Fyrstu
árin á Akureyri var hann verka-
maður hjá bænum en síðustu
starfsárin var hann starfsmaður
dagblaðsins Dags og var orðinn
áttræður þegar hann hætti þar.
Árið 1991 flutti Ólafur að sambýli
aldraðra í Bakkahlíð 39 og dvaldi
þar til 29. desember 2004.
Ólafur var ókvæntur og barn-
laus.
Ólafur verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
16. júlí 1951, eigin-
maður hennar er Jó-
hann Heiðar Guð-
jónsson, f. 7. apríl
1947. Börn þeirra
eru: 1) Guðjón Páll, f.
18. júlí 1968, eigin-
kona hans er Valborg
Inga Guðjónsdóttir, f.
31. janúar 1969. Börn
þeirra eru: Jóhann
Heiðar, f. 24. nóvem-
ber 1990, Axel Björn,
f. 27. júlí 1992, og
Lilja Margrét, f. 4.
desember 2003. 2)
Björk, f. 4. maí 1977,
maður hennar er Steinþór Guð-
mundsson, f. 12. maí 1970. Börn
þeirra eru: Ída Hlín, f. 9. ágúst
1999, og óskírður Steinþórsson, f.
20. desember 2004.
Kynni okkar Óla í Hraungerði hóf-
ust fyrir 27 árum. Við unnum báðir
við blaðið Dag sem seinna varð að
dagblaði, Óli við ýmis störf í prent-
smiðju og dreifingu og ég við undir-
búning blaðsins til prentunar. Óli var
um sjötugt og mikill aldursmunur á
okkur og við fyrstu kynni var hann
bara gamall maður sem ég tók lítið
eftir en smátt og smátt urðum við
góðir kunningjar og seinna góðir vin-
ir.
Það var ekki asinn á Óla þegar
hann vann en afköstin voru ekki
minni en annarra. Ég lærði mikið af
honum því hann var verklaginn og
áhugasamur um allar vélar.
Óli hafði frá mörgu að segja ef hann
var spurður en hann var ekki málgef-
inn að fyrra bragði, var hógvær og lít-
illátur en greiðvikinn við alla. Hann
hafði þessa góðu nærveru sem er svo
fátíð og hann átti stað í hjarta þeirra
sem kynntust honum.
Óli var orðinn áttræður þegar hann
hætti störfum á Degi en var vel hress
og kom oft í heimsókn þangað að hitta
vinnufélaga sína sem öllum þótti vænt
um hann og alltaf var honum vel tek-
ið.
Í byrjun árs 1991 flutti Óli inn á
sambýli aldraðra í Bakkahlíð 39 og
þangað heimsótti ég hann nokkuð
reglulega og gladdist yfir að sjá hve
vel fór um hann þar. Það var eins og
annars staðar að starfsfólkinu í
Bakkahlíðinni leið vel í návist Óla og
vildi allt fyrir hann gera og annaðist
hann af alúð og af stakri umhyggju
undir það síðasta eftir að hann varð
ellimóður og veikur.
Líkami Óla verður lagður við hlið
tvíburabróður hans, Axels, en sálin er
farin til fundar við almættið og þar
hittir hann foreldra, bróður og vini.
Blessuð sé minning Ólafs Krist-
jánssonar.
Vinur, far þú í friði.
Ríkarður B. Jónasson.
Í dag komum við saman til þess að
kveðja elskulegan afabróður minn,
Ólaf Kristjánsson, eða Óla eins og
hann var ávallt kallaður. Á svona
stundu fer hugurinn á flakk og minn-
ingarnar hlaðast upp.
Ég man eftir göngulaginu þínu, þú
fórst hægt yfir og stoppaðir reglulega
til þess að skoða þig um þrátt fyrir að
þú hafir margsinnis gengið þessa
götu áður.
Ég man eftir því hvað þú varst
stoltur af bænum þínum, Hraungerði,
og öllu sem honum tilheyrði. Myndin
af bænum sem þú varst með uppi á
vegg og eftirlíkingin af bænum úr leir
voru hlutir sem þú hélst mikið upp á.
Ég man eftir bíltúrum sem voru
farnir fram í sveit til þess að skoða
heimaslóðir þínar og iðulega var
keyrt á eftir fram í Steinhólaskála til
þess að fá sér kaffi og heimagert
brauð.
Ég man hvað þú varst einstaklega
skapgóður og ljúfur maður.
Ég man eftir herberginu þínu í húsi
foreldra minna. Það var staðsett upp
á þriðju hæð, undir súð. Þar inni
komst þú öllum þínum eigum fyrir.
Þar var beddinn þinn, stóllinn, skatt-
holið og kistillinn.
Ég man hvað kunningjar þínir
fussuðu og sveiuðu yfir öllum þessum
tröppum sem þurfti að ganga til þess
að komast upp í herbergið þitt. Þér
fannst þetta ekki neitt tiltökumál og
horfðir á stigana sem ágætis heilsu-
þjálfun.
Ég man hvað þú varst nægjusamur
og þakklátur fyrir allt sem þú hafðir.
Ég man þegar ég og krakkarnir í
götunni horfðum á þig út í garði þar
sem þú sast við hverfisteininn og
brýndir ljáinn.
Ég man hvað mér þótti óskaplega
vænt um þig.
Ég man hvað mér fannst skrítið
þegar þú fluttir á sambýli fyrir aldr-
aða í Bakkahlíð. Heimilið okkar var
eitthvað svo öðruvísi þegar þú bjóst
ekki lengur þar.
Ég man hvað þú varst orðin lúinn
undir lokin.
Ég man viðbrögðin sem þú sýndir
þegar þér var sagt að Óli litli væri
fæddur.
Ég man svo margt sem tengdist
þér, elsku Óli minn, og sú minning
mun lifa með mér um ókomna tíð.
Elsku Óli, ég kveð þig núna með
trega í hjarta og bið Guð að blessa
minningu þína.
Takk fyrir allt sem þú hefur gefið
mér.
Þín
Björk.
ÓLAFUR
KRISTJÁNSSON
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÓLAFAR SVAVARSDÓTTUR
sjúkraliða,
Hrauntungu 12,
Hafnarfirði.
Garðar Flygenring,
Hilmar Darri Flygenring, Hólmfríður Kristjánsdóttir,
Margrét Ýr Flygenring,
Jack Wallace.
Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu,
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
AÐALBJARGAR GUÐRÚNAR
ÁRNADÓTTUR,
Goðabraut 19,
Dalvík.
Júlíus Snorrason,
Anna Jóna Júlíusdóttir,
Kristín Júlíusdóttir,
Árni Anton Júlíusson,
Jónína Amalía Júlíusdóttir,
Ingigerður Sigr. Júlíusdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES ÓLAFSSON,
Ásum 4, Hveragerði,
áður Ásum í Stafholtstungum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 14. janúar kl. 13.00.
Margrét Larsen,
Þórhildur Erla Jóhannesdóttir, Larry Sutherland,
Kristján Jóhannesson, Vigdís Hallfríður Guðjónsdóttir,
Björn Jóhannesson,
Jóhannes Jóhannesson, Kristín Elísabet Möller,
Sigríður Guðný Jóhannesdóttir, Skúli Guðmundsson,
Ólafur Ingi Jóhannesson, Kolbrún Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og
útfarar elskulegrar systur, mágkonu og frænku,
MARÍU ÞURÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Reyðarfirði,
Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík.
Vigfús Ólafsson, Sigrún Guðnadóttir,
Ólafur Vigfússon, María Anna Clausen,
Vigfús Már Vigfússon, Ingunn J. Sigurðardóttir,
Þórhallur Vigfússon, Þuríður Guðjónsdóttir,
Valgerður Vigfúsardóttir
og börnin hennar Maju ömmu.
Útför frænda okkar,
GUNNARS PÁLS BJÖRNSSONAR
frá Grjótnesi,
fer fram frá Snartastaðakirkju laugardaginn
15. janúar kl. 14.00.
Aðstandendur.