Morgunblaðið - 12.01.2005, Side 35

Morgunblaðið - 12.01.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 35 DAGBÓK Alþjóðaskrifstofa HÍ stendur fyrir nám-skeiði 20. janúar nk. fyrir þá sem viljataka þátt í mannaskiptaverkefnumLeonardo-áætlunarinnar. Í manna- skiptaverkefnum gefst nemendum á framhalds- og háskólastigi tækifæri á styrkjum til að fara í starfsþjálfun til einhvers Evrópulands í tengslum við nám sitt. Einnig er tækifæri fyrir ungt fólk á atvinnumarkaði að sækja um styrki til tungu- málanáms og starfsþjálfunar í Evrópu og leið- beinendur, stjórnendur og kennarar geta líka sótt um styrki til að viðhalda og auka þekkingu í fagi sínu. Dvalarlengd starfsþjálfunar er frá 1 viku upp í 1 ár eftir flokkum og hæsta upphæð sem einstaklingur getur fengið er 5000 evrur, eða rúmlega 400 þúsund krónur. Þórdís Eiríksdóttir, verkefnisstjóri manna- skiptaverkefna Leonardó, segir fyrirtæki og stofnanir hafa margvíslegan ávinning af þátttöku í Leonardó. „Regluleg þjálfun og símenntun starfsmanna er fjárfesting í framtíð,“ segir Þór- dís og bætir við að þátttaka í verkefnum sem stuðli að bættri þjálfun og aukinni hæfni starfs- manna geti þannig verið lykill að velgengni til framtíðar. „Samvinna við fyrirtæki og stofnanir í öðrum Evrópulöndum getur einnig hjálpað til við innleiðingu nýjunga og aðlögun að íslenskum að- stæðum. Skólar og fræðslustofnanir hagnast ekki síður af þátttöku í Leonardó. Áætlunin er vett- vangur fyrir þróun á kennsluefni sem tekur mið af þörfum nemenda og framtíðarþörfum atvinnu- lífsins og kennarar sem fara utan til að kynna sér nýjungar koma yfirleitt til baka með nýjar hug- myndir og ferskan andblæ inn í kennslustofuna. Tækifæri nemenda að fá tækifæri til að reyna kunnáttu sína úr kennslustofunni á vinnustað í Evrópu er líka ómetanlegt. Bæði er það þrosk- andi fyrir einstaklinginn að búa og starfa í öðru landi og eins njóta íslensk fyrirtæki reynslunnar og sambanda sem oft myndast á þennan hátt. Að síðustu má ekki gleyma að fjölmörg íslensk fyr- irtæki hafa tekið á móti erlendum Leonardó- nemum í starfsþjálfun og líkað vel, ný sýn á við- fangsefni sem og viðskipti og sambönd við heimaland viðkomandi hafa oft myndast í kjölfar- ið.“ Hvernig hefur þróunin verið á þessu sviði? „Tæplega 2000 Íslendingar hafa notið styrkja úr Leonardó-áætluninni síðan hún hóf göngu sína árið 1995. Á fyrsta ári fór 61 Íslendingur utan með Leonardó-styrk en árið 2004 var fjöldinn orðin 240 eða fjórfalt hærri. Aukin áhersla er á mannaskiptaverkefni innan Leonardó-áætlunar- innar og fáum við nú Íslendingar rúmlega þrjátíu milljónir í okkar hlut árlega til úthlutunar og fer eftirspurn og áhugi sívaxandi.“ Næsti umsóknarfrestur er 11. febrúar og nám- skeið fyrir umsækjendur verður haldið í Tækni- garði, Dunhaga 5, fimmtudaginn 20. janúar kl. 15–17. Nánari upplýsingar er að finna á heima- síðu Landsskrifstofu Leonardó, www.leonardo.is. Símenntun | Mannaskiptaverkefni Leonardó-áætlunarinnar að hefjast á ný Ómetanleg þjálfun og samvinna  Þórdís Eiríksdóttir er fædd í Reykjavík árið 1956. Hún lauk stúd- entsprófi frá ný- málasviði Mennta- skólans við Hamrahlíð 1977 og BA prófi í ensku frá HÍ. Þórdís starfaði hjá Ferðaþjón- ustu bænda 1987–1997 og hóf störf hjá HÍ árið 1997, sem forstöðu- maður Sumarskóla HÍ og umsjónarmaður með Ólympíuleikum í eðlisfræði 1998. Þórdís hóf störf hjá Rannsóknaþjónustu HÍ sem verk- efnastjóri á Landsskrifstofu Leonardó árið 1998 og er nú verkefnastjóri mannaskipta- verkefna Leonardó. Létt & laggott er viðbit með litlu fituinnihaldi og bragðast líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun. N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 1 1 2 7 / sia .is Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Viðskiptafranska og lagafranska. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Frönskunámskeið hefjast 17. janúar innritun frá 3.-14. janúar Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: alliance@simnet.is Innritun í síma 552 3870✆ Rótarýhreyfingin, sem var stofnuð í Chicago árið 1905 heldur í ár upp á 100 ára afmæli sitt og hófust há- tíðahöldin með stórtónleikum í salnum á föstu- daginn 7. jan. Þá var í fyrsta sinn veitt viðurkenning úr Tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi. Viðurkenninguna hlaut Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, sem nú stundar fram- haldsnám við Juilliard í New York. Víkingur var „leynigestur“ tónleikanna og lék fyr- ir tónleikagesti eftir að hafa veitt viðurkenningunni viðtöku. Auk hans komu fram Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona og Skólakór Kársness, undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, að ógleymdum Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Tónlistarsjóði Rótarý er ætlað að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjár- styrks til frekara náms. Víkingur Heiðar Ólafsson tekur við viðurkenning- unni frá umdæmisstjóra Rótarýhreyfingarinnar á Ís- landi, Agli Jónssyni. Hundrað ára afmælis- fagnaður Rótarý hefst Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson álíka stuðning við kaup á gler- augum og við tannviðgerðir, þótt ekki væri nema glerin í spang- irnar? Það ræður ekki fjárhags- lega við að kaupa sér bráðnauð- synleg og rétt sjóngler og gengur því með ópassandi „Hagkaupsgler- augu“, sem fást á spottprís víða í verslunum. En þau hæfa vitanlega ekki fólki sem hefur t.d. sjón- skekkju eða misjafna sjón á aug- um. Að lokum um týndu gleraugun mín: Er svo bar við að ég týndi bæði gleraugunum mínum og bíl- lyklunum í einu, var ég illa haldin. Alls staðar var leitað, í bönkum, búðum, bíllinn fínkembdur ásamt öllum fatavösum heimilisins. Einn- ig var hvolft úr tveimur hand- töskum sem ég nota til skiptis, brúnni og svartri, og allt dótaríið tínt aftur ofan í, í vitna viðurvist. Nokkrum dögum síðar sem ég er stödd í húsi úti í bæ, verður mér stungið hendi ofan í töskuna og viti menn, upp koma þá gleraugun og bíllyklarnir. En barnabörnin kunnu alveg skýringuna, lítill galdrakarl hafði galdrað hlutina ósýnilega eða eins og sagt er á Hugleiðing um gleraugu – aðallega týnd NÝLEGA varð maðurinn minn að fá sér ný gleraugu og kostuðu þau rúmlega 80 þúsund. Um sama leyti týndi ég mínum. Fjárútlát fyrir tvennum nýjum gleraugum leika heimilispeningasjóðinn grátt. Þar af leiðandi fór fram mikil en ár- angurslaus leit. Datt loks í hug að fá að leita í óskilamunum hjá lög- reglunni í Borgartúni 7. Líka án árangurs. En þar er sem sé stór, fullur kassi af óskilagleraugum, með og án hulstra. Þess vegna segi ég við gler- augnatapendur: Leitið til lögregl- unnar í Borgartúni 7, þar er afar elskulegt og kurteist afgreiðslu- fólk. Líka segi ég við verslunareig- endur, banka og alla sem hafa undir höndum óskilagleraugu: Skil- ið þeim til lögreglunnar í Borg- artúni 7. Ennfremur spyr ég þá ráða- menn sem málið varðar: Er sjónin síður mikilvæg en tennurnar? Hvers vegna fær t.d. láglaunafólk, ellilífeyrisþegar og örorkufólk ekki fullorðinsmáli – búálfurinn hafði brugðið huliðshjálmi yfir þá til að stríða mér. Og því trúi ég bara al- veg! Þuríður Guðjónsdóttir. Þakklæti ÉG vil koma á framfæri þakklæti til ríkisútvarpsins fyrir að spila jólasálma með söng Þuríðar Páls- dóttur á aðfangadagskvöld við undirleik Páls Ísólfssonar en þess- ir sálmar hafa ekki heyrst mjög lengi. Gömul kona. Gleraugu í óskilum RAY Ban sjóngleraugu með lituðu gleri fundust á bílastæði hjá Spron á Grettisgötu milli jóla og nýárs. Upplýsingar í síma 898 1463. Göngustafur týndist LEKI göngustafur týndist við Esso-stöðina við Skógarsel eða við Seljakirkju. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 0907 eða 899 5350. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is AÐSTANDENDUR söngleikjarins Hársins stóðu sl. laugardagskvöld fyrir sérstakri aukasýningu til styrktar söfnun vegna hörmung- anna í Suðaustur-Asíu. Allir sem að sýningunni komu, listamenn, tæknimenn og aðrir aðstand- endur, gáfu vinnu sína þetta kvöld, auk þess sem bæði tækja- og húsaleiga var felld niður og tekjur af sölu á bar rann einnig í söfnunarsjóðinn. Þá tvöfaldaði KB banki framlag leikhússins. Alls söfnuðust um 3,5 milljónir króna. Aðstandendur Hársins hafa nú gefið allt söfnunarféð í þjóðar- átakið „Neyðarhjálp úr norðri“ en hafa jafnframt skorað á að- standendur sýningarinnar Héri Hérason í Borgarleikhúsinu til þess að leggja söfnuninni lið. Morgunblaðið/ÞÖK Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Guðjón Davíð Karlsson í hlutverk- um sínum í Hárinu. Hárið skorar á Héra Hérason HIN árlega minningardagskrá á afmælisdegi Guðmundar Inga Kristjánssonar, skálds frá Kirkju- bóli í Önundarfirði, verður í Holti – friðarsetri næstkomandi laug- ardag kl. 17. Kjartan Ólafsson fræðimaður flytur nokkur brot úr hinu um- fangsmikla efni sem hann hefur safnað úr Önundarfirði eins og víðar á Vestfjörðum, en hluti af því hefur birst í ritinu Firðir og fólk sem út kom á vegum Bún- aðarsambands Vestfjarða árið 1999. Mun hann m.a. segja frá því hvernig hann safnaði efni þessu. Kjartan situr fyrir svörum að er- indinu loknu. Einnig verða lesin nokkur ljóð Guðmundar Inga og veitingar fram bornar. Aðgangseyrir á dagskrána er 1.000 kr. Guðmundar Inga minnst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.