Morgunblaðið - 12.01.2005, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H
rin
gb
ro
t
Miðasala opnar kl. 15.30
PoppTíví
Jólaklúður Kranks
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6. ÍSLENSKT TAL
SMÁAR HETJUR
STÓRT
ÆVINTÝRI
BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
ÍSLANDSBANKI
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
.. l
t , rí fj r...
r
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA
FÁ 20% AFSLÁTT
AF MIÐAVERÐI
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
Sýnd kl. 4, 6, 8, 9 og 10.
kl. 4, 6, 8 og 10.
Yfir
23.000
gestir
Yfir
23.000
gestir
WWW.BORGARBIO.IS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10 ára
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 10 ára
QUEEN
LATIFAH
JIMMY
FALLON
GISELE
BÜNDCHEN
I
QUEEN
LATIFAH
JIMMY
FALLON
GISELE
BÜNDCHEN
I
Á FULLRI FERÐ
MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI
GAMANSPENNUMYND
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 3.30 og 5.45.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnarl fj ls l
Á FULLRI FERÐ
MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI
GAMANSPENNUMYND
Í takt við tímann er tekjuhæðsta jólamyndin, yfir 20.000.000. í tekjur frá öðrum degi jóla til dagsins í dag.
SAMTÖK ljósvakagagnrýnenda
völdu myndina Sideways bestu
mynd ársins 2004 við verðlaunaat-
höfnina Critics’ Choice Awards sem
haldin var í Los Angeles á mánu-
dag.
Þessi litla og ódýra mynd eftir
Alexander Payne, sem á að baki
myndirnar About Schmidt og
Election, hefur sópað að sér verð-
launum undanfarið, einkum frá
gagnrýnendum. Þannig hafa nú
þegar gagnrýnendur í New York,
Chicago og Los Angeles útnefnt
hana bestu mynd ársins 2004.
Sideways er þar að auki tilnefnd
til 7 Golden Globe-verðlauna, sem
afhent verða á sunnudaginn kemur
og er því spáð að myndin muni
einnig hljóta vænan skammt af
Óskarsverðlaunatilnefningum sem
kunngjörðar verða 25. janúar.
Sideways – eða Til hliðar –
fjallar um tvo rækilega „mannlega“
náunga sem farnir eru að nálgast
óþægilega mikið hinn „skelfilega“
miðja aldur – sem þeir telja sjálfir.
Þeir skella sér í vikulangan vín-
smökkunartúr til þess að njóta ein-
lífis og samverunnar áður en annar
þeirra gengur í hjónaband. Gaur-
arnir eru leiknir af Paul Giamatti
og Thomas Hayden Church en báð-
ir hafa fengið mikið lof fyrir
frammistöðu sína í myndinni.
Church fékk líka Critic’s Choice-
verðlaunin og báðir eru tilnefndir
til Golden Globe-verðlauna. Þótt
myndin hafi verið valin sú besta á
Critic’s Choice-verðlaunahátíðinni
og fengið verðlaun fyrir handrit og
frammistöðu leikhópsins þá varð
leikstjórinn Payne af verðlaunum
en Martin Scorsese var valinn besti
leikstjórinn fyrir vinnu sína við The
Aviator.
Jamie Foxx og Hillary Swank
fengu verðlaun á Critic’s Choice
sem bestu leikarar í aðalhlut-
verkum, Foxx fyrir Ray og Swank
fyrir mynd Clints Eastwoods, Milli-
on Dollar Baby. Bæði eru sterklega
orðuð við Óskarinn og hlaut sá orð-
rómur byr undir báða vængi er
gestir við verðlaunaathöfnina á
mánudag stóðu upp og hylltu sér-
staklega Foxx fyrir túlkun hans á
sálarsöngvaranum heitna Ray
Charles. Þá var tilkynnt í gær að
Foxx væri tilnefndur til þriggja
verðlauna Samtaka leikara í Banda-
ríkjunum, fyrir Ray og Collateral
og sjónvarpsmyndina Redemption.
Samtök ljósvakagagnrýnenda
telja 194 gagnrýnendur sem starfa
í sjónvarpi, útvarpi og á netmiðlum
í Bandaríkjunum og Kanada. Miðl-
arnir sem þessir gagnrýnendur
starfa fyrir eru eins misjafnir og
þeir eru margir og þykir val þeirra
jafnan vera öllu djarfara en hjá
Óskarsakademíunni. Samt sem áð-
ur hafa síðustu fimm sigurmyndir á
Critic’s Choice-hátíðinni einnig
unnið sömu verðlaun á Óskarnum.
Af þeim sökum er Sideways nú tal-
in sú líklegasta til að fara með sig-
ur á Óskarsverðlaunahátíðinni sem
fram fer 27. febrúar.
Kvikmyndir | Verðlaunavertíðin í fullum gangi
Reuters
Miðaldra vínsmakkarar. Paul Giamatti og Thomas Haden
Church í hinni margverðlaunuðu Sideways.
Sideways sópar enn að sér
Reuters
Jamie Foxx fékk verðlaun ljósvakagagnrýn-
enda og þykir nú líklegastur til að fá Óskarinn.
HLJÓMSVEITIN Franz Ferdinand
er tilnefnd til fimm Brit-verðlauna,
bresku tónlistarverðlaunanna.
Sveitin skoska er tilnefnd sem besta
breska sveitin, fyrir bestu bresku
plötuna, sem besta nýja hljóm-
sveitin, besta breska rokksveitin og
sem besta tónleikasveitin.
Rokksveitin Muse fékk fjórar til-
nefningar en Natasha Bedingfield,
Jamelia, Keane, The Streets, Snow
Patrol og Kasabian þrjár.
Verðlaunin verða veitt 9. febrúar
en þau hafa nú verið veitt árlega í
aldarfjórðung.
Þá má nefna, að Brian Wilson var
tilnefndur sem besti alþjóðlegi tón-
listarmaðurinn fyrir plötuna Smile,
sem gefin var út á síðasta ári, 37 ár-
um eftir að tónlistin á hana var
samin. Þá fær Sir Bob Geldof sér-
stök heiðursverðlaun fyrir framlag
sitt til tónlistar.
Tónlist | Tilnefningar til Brit-verðlauna
Franz
Ferdinand
með fimm
Reuters
Alex Kapranos, söngvari Franz
Ferdinand, hoppar væntanlega hæð
sína vegna Brit-tilnefninganna.
GRÍNDÁVALDURINN Sailesh
snýr aftur á nýju ári og stendur
fyrir tveimur skemmtunum á
Broadway í apríl, sunnudaginn 17.
og mánudaginn 18. apríl.
Miðasala á sýningarnar hefst
fimmtudaginn 27. janúar kl. 10 í
verslunum Skífunnnar, á www.-
event.is og í síma 575 1522.
Eins og kunnugt er sló Sailesh í
gegn þegar hann sótti landið heim
í september 2004. Seldist þá upp á
allar sýningarnar og myndaðist
gríðarleg umframeftirspurn eftir
miðum, að sögn skipuleggjendanna
hjá Event.
Um 800 miðar eru í boði á
hverja sýningu og miðaverð er
3.500 kr. Einungis er hægt að
kaupa 6 miða í einu, en það er til
að koma í veg fyrir „svartamark-
aðsbrask“ sem þeir hjá Event vilja
meina að hafi verið stundað í
kringum fyrri skemmtanirnar.
Sem fyrr verða sýningarnar
bannaðar inna 18 ára.
Ísleifur Þórhallsson hjá Event
segir að Sailesh hafi kolfallið fyrir
landi og þjóð og lofi enn þá betri
skemmtun í apríl. „Hann segist
hafa lært inn á Íslendinga og kem-
ur með fjölda nýrra atriða í far-
teskinu. Þar á meðal eru sérhönn-
uð atriði fyrir Íslendinga sem
honum dytti ekki í hug að nota
annars staðar í heiminum,“ segir
Ísleifur.
Sailesh dáleiddi þá grallara þrjá í 70 mínútum, þættinum sáluga. Hér er
hann með Pétri Jóhanni Sigfússyni í góðri leiðslu.
Sailesh snýr aftur
Miðasala hefst fimmtudaginn 27.
janúar kl. 10 í verslunum Skífunnar
og á www.event.is.