Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FLUGFÉLÖG sem fljúga um flug- velli í Evrópusambandslöndunum munu þurfa að greiða farþegum sín- um hærri skaðabætur en til þessa ef langar tafir verða á brottför, flugi er aflýst eða ef farþeginn verður af ferð sinni vegna ofbók- unar flugfélagsins á sætum í vél- inni. Nýjar reglur í þessa veru, sem samþykktar hafa verið af fram- kvæmdastjórn ESB, gengu í gildi í gær. Forráðamenn IATA, Alþjóðasam- bands áætlunarflugfélaga, hafa mótmælt reglugerðinni og hyggjast fara með málið fyrir dómstóla. Segja talsmenn flugfélaga að nýju reglurnar muni aðeins hafa í för með sér hækkun fargjalda. Reglugerðin er liður í víðtækari breytingum sem framkvæmda- stjórn ESB hefur beitt sér fyrir í því skyni að auka réttindi farþega í flugi. M.a. fela þær í sér að farþeg- ar eigi heimtingu á því að vita hvaða flugfélag eigi og reki flugvél- ina sem þeir ferðast með. Er þessi regla tilkomin í kjölfar þess að flug- vél egypska flugfélagsins Flash Airlines hrapaði í sjóinn undan Sharm-el-Sheikh í Egyptalandi 3. janúar 2004 með þeim afleiðingum að 148 biðu bana. Sökum þess að nokkur flugfélög höfðu sameinast um að safna far- þegum sínum saman í eina vél var flestum farþeganna í þessu örlaga- ríka flugi ekki kunnugt um að þeir voru um borð í vél flugfélags, Flash, sem skömmu áður hafði ver- ið bannað að fljúga á svissneska flugvelli vegna „verulegra ágalla“ í öryggismálum. Allt að 600 evrur í skaðabætur Þá fela breytingarnar, sem taka til alls Evrópska efnahagssvæðisins, þ.m.t. Íslands, í sér aukin réttindi til handa fatlaðra og aldraðra en einhver dæmi eru um að þeir sem hafa fengið aðstoð á flugvöllum hafi þurft að borga fyrir veitta þjónustu, s.s. notkun á hjólastól o.s.frv. „Við erum með þessu að tryggja öllum sem eiga erfitt með hreyfingu þann rétt að viðkomandi njóti umönnunar frá fyrstu stundu er hann kemur í flughöfnina, fyrst af rektraraðilum flugvallarins og síðan af flugfélag- inu sem hann flýgur með,“ sagði Jacques Barrot, framkvæmdastjóri samgöngumála hjá ESB. Hinar nýju reglur ESB kveða á um að flugfélög þurfi að borga far- þegum allt að 600 evrum, um 50.000 ísl. kr., í skaðabætur ef þeim er neitað um réttinn til að ganga um borð í flugvél vegna ofbókana. Ræðst upphæðin af vegalengdinni sem flogin er. Áður áttu menn að- eins kröfu á skaðabótum sem sam- svöruðu á bilinu 150 og 300 evrum, þ.e. 12.000–25.000 ísl. kr. Þá þarf flugfélag að sjá farþegum fyrir mat og gistingu, ef nauðsyn krefur, vegna mikillar seinkunar á flugi eða ef fluginu er aflýst. Ekki hefur verið um það að ræða fram til þessa, skv. frétt BBC, að flugfélög hafi þurft að greiða farþegum sér- stakar sárabætur vegna flugs sem aflýst hefur verið. Þurfa að greiða hærri skaðabætur en áður Nýjar reglur ESB kveða á um bætt réttindi flugfarþega AP Jacques Barrot (t.v. bak við skiltið), sem fer með samgöngumál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, les nýju reglurnar á Charles de Gaulle-flugvellinum fyrir norðan París. Í þeim er kveðið á um ýmsan bótarétt farþega. Brussel. AFP. STÖRFUM í heiminum fjölgaði ekki í samræmi við hagvöxtinn í fyrra, en atvinnuleysið minnkaði þó í fyrsta skipti frá árinu 2000, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar (ILO). Atvinnulausum í heiminum fækk- aði úr 185,2 milljónum í 184,7 millj- ónir, eða úr 6,3% í 6,1%. Alþjóðavinnumálastofnunin segir að meðalhagvöxturinn í heiminum hafi verið um 5% í fyrra og því hafi það valdið vonbrigðum að störfunum hafi aðeins fjölgað um 47,7 milljónir. Atvinnuleysið minnkaði mest í Rómönsku Ameríku og Karíbahafs- löndum, úr 9,3% í 8,6%. Í aðild- arlöndum Evrópusambandsins minnkaði atvinnuleysið aðeins úr 9,1% í 9%. ()(*   + % %  )     !    "#$%& -) ,)(* )-* -),* --) -),* .)(* -) ,)  -).* -) -) .)-* - )-*  P4."  .!7 # )7(/ %"'1! . "" 7 """ -/ 34 /#!  .$ >4 .("'  + 5  %"' # 95 7  !  !  + 5 #  5 >4  5 7 - 5 7 # )25 / %"' -5 7       0 *)0   *  +- -  2 3-  * *  4  3)5 - *+     - 6 . * **    6  Atvinnuleysið minnkaði lítillega Genf. AFP.  Meira á mbl.is/ítarefni „ÞETTA á ekki að hafa nein sérstök áhrif hvað okkur varðar,“ sagði Guð- jón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, um nýjar reglur Evrópusam- bandsins varðandi réttindi flugfarþega en þær taka til alls Evrópska efnahags- svæðisins, þ.m.t. Íslands. „Þetta er alveg í sam- ræmi við þær vinnureglur sem við höfum notað á und- anförnum árum. Helsti munurinn er sá að þessar upphæðir vegna skaðabóta hækka,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum jafnan haft þann háttinn á að bjóða fólki upp á tvo valkosti vegna yfirbókana; við uppfyllum okkar skyldur og komum því á áfangastað en síðan höfum við boðið því annaðhvort að taka annan farseðil sem sára- bót eða þær upphæðir sem um er að ræða. Og það hefur nú verið þannig að langflestir taka farseð- ilinn. Málið er hins vegar að við höf- um mjög lítið yfirbókað, yfirbók- anir eru tiltölulega lítið mál og einfalt fyrir Icelandair. Okkar farþegar eru að langmestu leyti ferðamenn, það er mjög lítið um að slíkir farþegar séu að hætta við á síðustu stundu. Þegar kom- ið er inn á þessa stóru markaði, milli stórborganna, þá er hlutfall farþega í viðskiptaferðum miklu hærra; það er mun algengara að þeir hætti við, láti ekki sjá sig. Á slíkum markaði er það mun meira stundað af flugfélögum að yfirbóka í vélar.“ Guðjón sagði annað mál að sem aðili að Alþjóðasambandi áætlunarfélaga (IATA) væri Ice- landair þátttakandi í þeirri ákvörðun IATA að fara með reglugerðina fyrir dómstóla. Að- spurður um það hvaða sjónarmið réðu ákvörðun IATA sagði Guð- jón: „Þessar reglur eru mjög um- deilanlegar og spurning hvort þær eru neytendum til hagsbóta þegar upp er staðið. Kostnaðurinn sem af hlýst hjá flugfélögunum getur ekki komið annars staðar frá en frá viðskipta- vinum sömu flugfélaga.“ Icelandexpress yfirbókar ekki Ólafur Hauksson, tals- maður Icelandexpress, tók í sama streng og Guðjón. Þessar nýju reglur hefðu ekki mikil áhrif á starfsemi fyrirtækisins. „Það er vegna þess að þetta snertir mest yfirbókanir og við höfum einfaldlega ekkert yfirbókað hjá Icelandexpress,“ sagði hann. Sagði Ólafur að þó að Ice- landexpress væri lággjaldaflug- félag þá veitti það meiri þjónustu en t.d. flugfélagið Ryanair sem einna þekktast er af evrópsku lággjaldaflugfélögunum. „Við höfum t.d. alltaf séð farþegum fyrir mat þegar seinkun á sér stað og húsnæði ef menn hafa orðið strandaglópar í útlöndum yfir nótt.“ Ólafur sagði að breytingarnar þýddu að greiða þyrfti hærri bætur fyrir glataðan farangur og það væri kannski helst sá þáttur sem snerti Icelandexpress. Breytir ekki miklu fyr- ir íslensku flugfélögin Ólafur Hauksson Guðjón Arngrímsson BANDARÍKIN, Bretland og ýmis önnur aðildarríki Evrópusam- bandsins hafa kallað sendiherra sína frá Nepal en með því vilja þau koma þeim skilaboðum skýrt á framfæri að þeim mislíki sú ákvörðun Gyanendra, konungs Nepals, að taka sjálfur öll völd í landinu nýverið. Haft er eftir Richard Boucher, talsmanni bandaríska utanrík- isráðuneytisins, í frétt BBC að bandarísk stjórnvöld „hafi miklar áhyggjur af þróun mála í Nepal“ en Gyanendra vék ríkisstjórn sinni úr embætti fyrir tveimur vikum á þeirri forsendu að henni hefði mistekist að ráða nið- urlögum byltingarsamtaka maó- ista. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, tók í sama streng og Boucher en hann sagðist álíta ákvarðanir Gyanendras skref í ranga átt, hann hefði grafið und- an lýðræðislegum stofnunum Nepals og stuðlað að frekara um- róti í landinu. Mannréttindasamtökin Amn- esty International skoruðu í gær á Bretaog Bandaríkjamenn að hætta hernaðarlegum stuðningi við Nepal. Kalla sendiherra sína frá Nepal AÐ minnsta kosti fimm manns týndu lífi og allt að 40 slösuðust þegar bílsprengja sprakk við hótel í Suður-Taílandi í gær. Nokkru áður hafði Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra landsins, verið á ferð í héraðinu. Hryðjuverkið í gær er það mannskæðasta í 13 mánaða löngum átökum í Sungai Kolok- héraði, sem er að mestu byggt múslímum. Hafa alls um 600 manns fallið í óöldinni þar. Talið er, að í bílnum, sem sprakk, hafi verið allt að 100 kíló af sprengiefni en á þriðju hæð hótelsins stóð yfir brúðkaups- veisla, sem margir lögreglumenn sóttu. Hryðjuverk í Taílandi Yala. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.