Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR af glæsilegum herraskóm frá Ný sending Smáralind • Kringlunni Mikið úrval VERJANDI Hákons Eydal, sem hef- ur játað að hafa orðið barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu – Sri Rhamawati – að bana á heimili sínu að morgni dags 4. júlí 2004, krafðist sýknu fyrir hönd skjólstæðings síns við aðalmeðferð málsins fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Sækj- andi krafðist hins vegar 16 ára fang- elsisdóms fyrir manndráp. Hákon bar um stormasamt sam- band þeirra Sri, og að hann hafi ekki fengið að sjá barn þeirra þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Verjandi hans sagði Hákon hafa verið í miklu and- legu ójafnvægi vegna sambands síns við Sri, og hann hafi ekki verið í sak- hæfu ástandi þegar hann framdi verknaðinn. Því ætti að sýkna Hákon af ákæru um manndráp. Til vara krafðist hann minnstu mögulegrar refsingar, og vísaði í aðra dóma þar sem refsing var á bilinu 51⁄2–10 ár. Benti verjandi á að Hákon hafi átt í langvinnri baráttu fyrir því að fá aðgengi að barni þeirra Sri, án árangurs, og hafi hann sjálfur leitað til sálfræðings þegar hann fann fyrir vaxandi reiði í garð Sri, og það verði að hafa í huga þegar refsing er ákveð- in. Á sér engar málsbætur Sækjandi krafðist refsingar í sam- ræmi við lög, en refsing fyrir mann- dráp er að lágmarki 5 ára fangelsi, en að hámarki lífstíðarfangelsi. Miðað við fordæmi má Hákon búast við um 16 ára fangelsi verði hann fundinn sekur. Sækjandi sagði ásakanir Há- kons um að Sri ætti einhverja sök á því hvernig fór særandi og meiðandi fyrir aðstandendur hennar, og að það hafi ekkert komið fram við rannsókn málsins sem styðji þessar ásakanir. Sækjandi sagði að Hákon eigi sér engar málsbætur, og við ákvörðun refsingar verði að hafa í huga með- ferð Hákons á líki Sri, en hann kom því fyrir í hraunsprungu í nágrenni Hafnarfjarðar. Einnig þurfi að hafa í huga að Hákon hafi reynt að afvega- leiða lögreglu með því að halda því fram að hann hafi hent líki Sri í sjóinn á Kjalarnesi. Hann hafi því unnið sér inn fyrir 16 ára fangelsisvist, og beri honum jafnframt að greiða sakar- kostnað. Krafist var miskabóta upp á 23,5 milljónir króna fyrir börn Sri, og mótmælti Hákon þeim kröfum ekki. Hákon hefur játað að hafa barið Sri ítrekað í höfuðið með kúbeini, og bar hann fyrir dómi að morguninn sem hann varð henni að bana hafi þau talað það að hann fengi ekki að hitta barn þeirra, sem hún hafði forræði yfir. Við það hafi hann orðið mjög reiður, „misst vitið“, og hann viti að hann hafi barið Sri með kúbeininu þótt hann muni ekki eftir því. Hákon sagðist hafa geymt tvö kúbein í svefnherberginu vegna þess að fjöl- skylda Sri hafi hótað honum, þrátt fyrir að á þeim tíma hafi þau búið saman. Reyndi að verjast atlögunni Niðurstaða réttarmeinafræðings, sem bar vitni fyrir dóminum í gær, var að Sri hafi verið með meðvitund þegar atlagan var gerð, og hafi reynt að verjast. Til vitnis um það eru mar- blettir á vinstri framhandlegg sem útilokað er að hafi orðið til öðruvísi en eftir högg með kúbeini. Auk þess var Hákon með rispur á handlegg, sem hann sagði að hafi hugsanlega komið þegar hann kom líkinu fyrir í gjótu. Hákon greiddi Sri a.m.k. fjögur högg í höfuðið með klaufenda kúbeinsins, og herti að því loknu belti af nátt- sloppi sínum að hálsi hennar svo hún hlaut bana af. Hákon neitar því að Sri hafi reynt að verjast atlögunni. Greinileg ummerki voru um það að reynt hafi verið að þrífa mikið magn af blóði úr íbúð Hákons. Þrátt fyrir það fundust blóðdropar í svefnher- berginu, m.a. undir húsgögnum, sem sýndu fram á að hann hafi greitt henni a.m.k. þrjú högg eftir að hún féll í gólfið. Blóðdroparnir gáfu enn- fremur til kynna að talsverðu afli hafi verið beitt við atlöguna, að mati rann- sóknarlögreglumanns sem bar vitni fyrir dómnum. Ummerki um blóð fundust að segja má um alla íbúð, í svefnherbergi, baðherbergi, í stof- unni, eldhúsi, svefnherbergi föður Hákons og á gangi sem tengir her- bergin. Sálfræðingur segir Hákon einskis iðrast „Ég vissi að þetta myndi koma upp,“ sagði Hákon, aðspurður hvers vegna hann hafi ekki farið til lögregl- unnar þegar „sturlunarástandi“ því sem hann lýsti að hefði gripið sig lauk. Hann segist hafa vitað að lög- reglan myndi koma til hans og hafi einfaldlega beðið þess. „Ég iðrast þess að hafa gert þetta, ég sé mikið eftir því,“ sagði Hákon. Hann segir að á þessum tíma hafi hann verið Sri mjög reiður, og þrátt fyrir að segjast iðrast verknaðarins sagðist Hákon enn vera reiður, en reiðin beinist nú að kerfinu – sýslu- manni og barnaverndarstofu – vegna þess að Sri hafi komist upp með að leyfa honum ekki að sjá barn þeirra. Sálfræðingur sem rannsakaði sak- hæfi Hákons bar vitni fyrir dóminum, og sagði hann það sitt álit að Hákon iðrist ekki verknaðarins. Hann sagði það samdóma álit sitt og annars sál- fræðings sem einnig hafi rannsakað Hákon að hann sé sakhæfur, og að hann hafi einnig verið sakhæfur á þeim tíma sem verknaðurinn var framinn. Framburður Hákons bendi til þess að hann hafi reiðst gífurlega og framið verknaðinn í reiðikasti, en enginn sjúkdómur hafi stuðlað að því að hann hafi ekki haft stjórn á eigin gerðum á þeim tíma. Ennfremur bendi niðurstöður sálfræðirannsókn- arinnar til þess að Hákon hafi ekki axlað ábyrgð á eigin gerðum, hann kenni öðrum – þar með talið Sri – um hvernig fór. Sækjandi í málinu er Ragnheiður Harðardóttir frá ríkissaksóknara, en skipaður verjandi ákærða er Brynjar Níelsson hrl. Réttargæslumaður barna Sri Rhamawati er Helga Leifs- dóttir hdl. Sækjandi segir eðlilegt að Hákon Eydal verði dæmdur í 16 ára fangelsi Játar að hafa orðið Sri að bana en krefst sýknu Morgunblaðið/Árni Sæberg Hákon Eydal (t.v.) á leið í dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. HOLLENSKA flutningafyrirtækið Geest North Sea Line, sem sagt var frá í gær að Samskip hefði keypt, hefur gefið út tilkynningu vegna ummæla Baldurs Guðnasonar, for- stjóra Eimskips, í Morgunblaðinu í gær, um að hugmyndir seljanda um verð hafi verið 3,5 milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins frá í gær var upphæð sú sem Samskip greiddi umtalsvert lægri. Í tilkynningunni frá Geest segist Jacob van Geest, stjórnarformaður Geest, harma það að Eimskip hafi kosið að virða að vettugi trúnaðar- samkomulag sem undirritað hafi verið áður en til viðræðna kom á milli Eimskipa og Geest fyrir nokkr- um mánuðum. „Við teljum að Baldur Guðnason hafi hagað sér ófagmann- lega með því að ljóstra upp trún- aðarupplýsingum þegar hann ræddi við íslenska fjölmiðla um yfirtöku Samskipa á Geest North Sea Line. „Gaf hann til kynna að Eimskip hefði átt í ítarlegum viðræðum við Geest þrátt fyrir að þeir hafi eytt harla litlum tíma í greiningu á starf- semi fyrirtækisins. Við áttum ekki í neinum alvarlegum samningavið- ræðum varðandi mat á virði fyrir- tækisins og þær tölur sem hafðar eru eftir Baldri Guðnasyni skal taka með nokkurri varúð,“ segir í til- kynningunni. Fram kemur að verið sé að athuga lagalega stöðu Geest vegna þessa trúnaðarbrots og gripið verði til viðeigandi aðgerða. Jacob van Geest tekur jafnframt fram að Samskipum og Geest hafi báðum þótt verðið sanngjarnt sem greitt var fyrir fyrirtækið. Geest sé í örum vexti og Samskip hafi séð tækifæri í því auk hagræðingar- möguleika með samruna. „Viðbrögð Eimskips teljum við að sýni af sér að þeir eru tapsárir og veldur það okk- ur miklum vonbrigðum,“ segir í fréttatilkynningu Geest. „Eimskip braut trúnað við Geest“ NÝJA skíðalyftan í Kóngsgili í Blá- fjöllum verður opnuð við hátíðlega athöfn á morgun, sunnudag, og hefst dagskrá klukkan 11. Forseti Íslands opnar lyftuna og síðan fer hann fyrstu ferðina ásamt bæjar- stjórum og stjórn skíðasvæð- isins. Lyftan er stóla- og kláfalyfta og tekur hver ferð um tvær og hálfa mínútu í stað um 5 mínútna í eldri lyftum. Frítt verður í lyftur í Bláfjöllum á morgun og boðið verður uppá skíðakennslu, leiktæki verða fyrir börn við alla skíðaskála og fjalladiskó verður við Ármannsskála milli kl. 13 og 16. Lyftan getur flutt um 2.200 manns á klukkustund, sem er tvö- falt meiri afkastageta en hjá stærstu lyftunni í Bláfjöllum til þessa en alls er lyftan um 762 metr- ar á lengd og fallhæðin 223 metrar. Spáð er suðlægri vindátt sunnan- lands á morgun en björtu veðri og nokkurra stiga hita. Forseti Íslands opnar nýja skíðalyftu „ÞETTA er í vinnslu hjá m.a. nám- skrárdeild,“ segir Steingrímur Sig- urgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, um vöntun á fræðslu um samkynhneigð í aðal- námskrá grunnskóla. Á ráðstefnu um drengjamenningu í skólum fyr- ir skömmu var gagnrýnt að hvergi í aðalnámskránni sé reynt að nálgast samkynhneigð og þann veruleika að hommar og lesbíur séu eðlilegur hluti samfélagsins, hvort sem er í skólum eða annars staðar. „Það er að fara í gang vinna vegna endurskoðunar aðalnám- skrár í heild sinni og þetta er auð- vitað eitt af þeim atriðum sem verða tekin þar inn í,“ sagði Stein- grímur. „Sú vinna er rétt að fara af stað vegna breyttrar námsskipun- ar. Nákvæmlega hver útkoman verður er ekki hægt að segja um núna.“ Samkynhneigð til skoðunar í aðalnámskrá BYGGINGARFÉLAG Gylfa og Gunnars ehf., Saxhóll ehf. og Baugur Group hf. hafa eignast rúmlega 34% hlut í Fasteignafélagi Íslands hf. sem á verslunarmiðstöðina Smára- lind. Seljendur eru Norvik hf., Vest- urgarður ehf. og Sveinn Valfells. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá kaupaðilum. Eftir kaupin eiga þessir þrír aðilar um 98% hlutafjár í Fasteignafélagi Íslands sem auk Smáralindar á stór- ar byggingalóðir í Kópavogsdal. Kaupverðið fékkst ekki uppgefið. Eiga 98% hlutafjár í Fasteignafélagi Íslands BRESKUR ferðamaður meiddist á handlegg þegar hann ók vélsleða sínum í grjóturð vestan við Detti- foss í gær. Um tíma var hann talinn mikið slasaður og var TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar lögð af stað eftir honum þegar í ljós kom að meiðsli hans voru ekki alvarleg. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Húsavík var maðurinn ásamt tveimur öðrum ferðamönn- um og leiðsögumanni í ferð á veg- um Hótels Reynihlíðar þegar óhappið varð. Virðist sem maður- inn hafi fipast þegar hann ók yfir lágan en allbrattan ás og þegar sleðinn kom niður ásinn hafi hann gripið fast um bensíngjöfina með þeim afleiðingum að hann ók sleð- anum út í grjóturð. Að sögn lögreglu ók einn vél- sleðamanna í símasamband eftir slysið og hafði samband við hótelið. Þaðan var síðan hringt í Neyðarlín- una sem tilkynnti lögreglunni á Húsavík að vélsleðamaður hefði slasast alvarlega. Þar sem staðsetn- ing mannanna var ekki fyllilega ljós og maðurinn talinn alvarlega slasaður, óskaði lögregla eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Einnig voru björgunarsveitir kallaðar út. Um klukkan þrjú fundu liðsmenn Björgunarsveitarinnar Stefáns vél- sleðamennina og töldu þeir að meiðsli þess sem slasaðist væru ekki þess eðlis að það þyrfti þyrlu til að flytja hann. Þyrlan var því afturkölluð. Ók vélsleðanum út í grjóturð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.