Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FYRSTA bílaapótek
landsins verður opnað í
dag við Hæðarsmára í
Kópavogi undir merkjum
Lyfjavals. Þorvaldur Árna-
son apótekari segir að slík-
um apótekum hafi fjölgað
mjög í Bandaríkjunum á
síðustu árum en hér sé um
að ræða fyrsta bílaapótekið
á Norðurlöndum.
Þorvaldur segir mark-
miðið með bílaapótekinu
vera aukna þjónustu við
viðskiptavini. „Þeir eru
margir sem komast ekki
sjálfir í apótek og hafa
fram til þessa þurft að fá
aðra til að fara fyrir sig,“
segir hann en kosti bíla-
apóteka segir hann m.a.
vera þjónustu fyrir þá sem
eru hreyfihamlaðir, eru
með börn í bílnum eða
velja þessa leið þægind-
anna vegna. „Öryrkjabandalagið
hvatti mig til að gera þetta, þegar ég
kom að máli við þá í haust, enda
mundi þetta henta stórum hluta
þeirra skjólstæðinga. Svo eru aðrir
sem finnst einfaldlega þægilegra að
koma við í bílalúgu, t.d. til að sækja
sér nikótínlyf eða verkjalyf. Ég hef
trú á því að það verði nokkuð stór
þáttur hjá okkur. Þegar fólk finnur
hvað þetta er þægilegt þá fer það að
nýta sér þetta,“ segir Þorvaldur.
Yfir 60% apóteka með bílalúgur
Þorvaldur hefur kynnt sér vel bíla-
apótek í Bandaríkjunum. „Þar í landi
eru yfir 60% apóteka með bílalúgur
og það hefur gerst á aðeins tíu ár-
um,“ segir hann og nefnir dæmi um
stóra lyfjabúð þar sem helmingur
sölunnar fór fram í gegnum lúguna.
Lyfjaval í Hæðarsmára er ekki
einungis bílaapótek heldur einnig
hefðbundið apótek og segir Þorvald-
ur að í raun séu þarna tvö apótek í
einu.
Bílalúgurnar eru þrjár talsins. Í
þeirri fyrstu er móttaka lyfseðla.
Lyfin eru í flestum tilvikum afgreidd
út um næstu lúgu en telji lyfjafræð-
ingur að veita þurfi upplýs-
ingaráðgjöf með lyfinu þá er lyfið af-
greitt um þriðju lúguna. Sé um að
ræða lengri afgreiðslutíma þá er við-
skiptavininum vísað á biðstæði og
honum afhent lyfin þangað þegar
þau eru tilbúin. Lausasölulyf eru
seld í öllum lúgunum.
Þorvaldur bendir á að hægt sé að
láta senda lyfseðil í apótekið yfir
daginn og þá megi sækja lyfin t.d. á
leið heim úr vinnu. Einnig megi
geyma lyfseðil í apótekinu og nægir
þá að hringja á undan sér, senda
tölvupóst eða sms-skilaboð en lyfin
verði þá tilbúin þegar viðkomandi
sækir þau.
Landsbyggðarapótekin í hættu
Þorvaldur Árnason átti fyrsta apó-
tekið, Apótek Suðurnesja, sem opn-
að var eftir að frelsi var aukið í lyf-
sölu árið 1996. Fyrir tveimur árum
opnaði hann Lyfjaval í Mjódd og í
sumar verður þriðja Lyfjavals-
apótekið opnað, með hefðbundnu
sniði, við Álftamýri í Reykjavík þar
sem gamla Borgarapótek var áður til
húsa. Þorvaldur segir að rekstur
Lyfjavals í Mjódd hafi gengið mjög
vel og viðskiptavinir hans hafi kunn-
að vel að meta persónulega þjónustu
á góðu verði.
Lyfjaval hefur frá upphafi boðið
upp á fría heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu. Þorvaldur seg-
ir hins vegar óheimilt samkvæmt
lögum að senda lyf með pósti út á
land. „Verði það gert heimilt þá tek
ég upp heimsendingarþjónustu um
allt land,“ segir Þorvaldur en telur
að varlega þurfi að fara í að heimila
slíkt því það geti haft í för með sér að
apótek á landsbyggðinni leggist af.
Lyfjaval við Hæðarsmára verður
opið kl. 10–19 virka daga en bílalúg-
urnar eru opnar frá kl. 10 til mið-
nættis alla daga vikunnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Beint í bílinn Þorvaldur Árnason selur lyf í bílalúgu í Lyfjavali við Hæðarsmára.
Opnar fyrsta bílaapótekið
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
!" #!$%&'' ()*& * &*
!
"#$#%
& #'( )'
*+ '$ ,' )'
*$'
-'( )' & #'(
.%#
.%(% "#$
/$ 0
12%0
12 "0!% '$)
3
+ ,)%-.**
" 2 & #'(
'(
42 0'
4 56 7
8 )'
-9:' 06 ''
;<%0
1&"
1#!=#$ 1 #'(
1#2 >
?>$$ '$2 '
@ '' # '
526 22 71:)%$
/*,
!0'1'
)
" %#( A>00
-'( 92 & #'(
?: :
023**"
BCAD
19
%
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
%> '$ !
> %
7
7
7
7 7 7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
E
F
7
7
7
E F
E F
E 7F
E F
E 7 F
7
7
E
F
7
E F
E F
7
7
7
7
E F
7
7
E 7F
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
4% #(
($ '
? #) 9 # ($ G
* 1#
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
@ 9 +,
?4 H
$'# "0#(
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
?47 I 2 !2#('( # #0!
?47 1>#( # #%$$0 2 > #) % '
● Heildarviðskipti í Kauphöll Íslands
í gær námu tæplega 4,9 milljörðum
króna, þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir rúmlega 2,3 milljarða.
Mest viðskipti voru með KB banka.
Mest hækkun varð á bréfum Kög-
unar (2,6%) en mest lækkun varð á
bréfum Landsbanka (-0,7%). Úrvals-
vísitala aðallista hækkaði um 0,14%
og er nú 3.747 stig.
Gengisvísitala krónunnar lækkaði
um 0,05% í dag og styrktist krónan
sem því nemur. Lokagildi geng-
isvísitölunnar var 109,35. Viðskipti
með gjaldeyri á millibankamarkaði
voru 4,2 milljarðar.
Dræm viðskipti
í Kauphöll
● Seðlabanki Evrópu breytti ekki
stýrivöxtum sínum í þessum mánuði
og hafa þeir nú verið óbreyttir í 21
mánuð í röð en stýrivextir á evru-
svæðinu eru 2%.
Þessi ákvörðun seðlabankastjórn-
arinnar kom engum á óvart, meðal
annars höfðu allir hagfræðingar
sem Reuters spurði álits spáð að
vextir yrðu óbreyttir. Verðbólga á
evrusvæðinu var 1,9% í janúar og bú-
ist er við að hún hafi verið um 2% í
febrúar en verðbólgumarkmið seðla-
banka Evrópu er „nálægt, en undir
2%.“
Óbreyttir stýrivextir
á evrusvæði
● Greining Íslandsbanka spáir því
að Bandaríkjadalur fari undir 60
krónur í þessum mánuði en það
hefur ekki gerst síðan árið 1992.
Lokagengi dals í gær var 60,36 og
hefur hann ekki verið svo ódýr í ára-
tug. Slæm staða hans skýrist af
stöðu bandaríska hagkerfisins en
mikill viðskipta- og fjárlagahalli hef-
ur grafið undan styrk myntarinnar,
samkvæmt Morgunkorni Íslands-
banka. Þar segir jafnframt að óvenju
sterk staða íslensku krónunnar
gagnvart dollar sé vegna stöðu ís-
lenska hagkerfisins sem nú siglir
inn í þensluskeið með háum stýri-
vöxtum. Þar sem búist er við hækk-
andi stýrivöxtum hérlendis er líklegt
að gengi krónunnar styrkist enn
frekar og þar með að dalurinn fari
niður fyrir 60 krónur.
Fer dollar undir
60 krónur?
UNNIÐ er að því að efla rekstur
Eimskipafélags Íslands með það að
markmiði að skrá félagið í Kauphöll
Íslands. Þetta kom fram í ræðu
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
stjórnarformanns Burðaráss, á aðal-
fundi félagsins sem fram fór í gær.
Enn fremur sagði Björgólfur Thor
að þegar fram liðu stundir kæmi til
greina að greiða hluthöfum Burðar-
áss arð í formi hlutabréfa í Eimskip
sem er eitt elsta fyrirtæki landsins
og hefur ávallt haft mikinn fjölda
hluthafa. Að greiða hluthöfum arð í
formi hlutabréfa „myndi stuðla að
meiri dreifingu hlutafjár og betri
verðmyndun með hlutabréfin,“ sagði
Björgólfur Thor. Þetta fyrirkomulag
þekkist víða erlendis en að sögn
Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Kauphallar Íslands, minnist hann
þess ekki að þetta hafi verið gert
hérlendis, að minnsta kosti ekki ný-
lega.
1,1 milljarður
í arðgreiðslur
Í ræðu sinni sagði Björgólfur Thor
jafnframt að árið 2004 hefði verið
„það árangursríkasta og arðsamasta
um langa hríð í sögu Burðaráss og
Eimskipafélagsins.“
Eins og komið hefur fram í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins er
Kristín Jóhannesdóttir ný í stjórn
Burðaráss en hún tekur sæti Þórs
Kristjánssonar.
Aðalfundur samþykkti að greiða
20% af nafnvirði hlutafjár, ríflega 1,1
milljarði króna, í arð.
Besta ár
um langa
hríð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tíðindalítið Aðalfundur Burðaráss fór fram í gær. Á myndinni má m.a. sjá
þá Björgólf Guðmundsson og Jóhannes Jónsson í Bónus.
LYFJA hf. hefur keypt fyrirtækið Heilsu ehf. af Erni
Svavarssyni, stofnanda fyrirtækisins. Heilsa rekur
þrjár verslanir í Reykjavík og Kópavogi undir nafninu
Heilsuhúsið en fyrirtækið var stofnað á árinu 1973.
Ingi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lyfju, segir
Heilsu vera góða viðbót fyrir Lyfju. „Það er spennandi
að fara inn á þennan geira, því heilsufæði og lífrænt
ræktaður matur skiptir sífellt meira máli í daglegri
neyslu fólks. Þá samræmist það mjög vel hlutverki
Lyfju að selja vörur sem stuðla að betri heilsu og vel-
líðan.“
Hann segir að vörumerkinu Heilsuhúsið verði hald-
ið óbreyttu og að verslanirnar verði reknar áfram í
þeirri mynd sem nú er. Þá muni núverandi starfsfólk
Heilsu einnig starfa áfram hjá fyrirtækinu og Hafdís
Þorsteinsdóttir verða áfram framkvæmdastjóri þess.
Heilsa hefur flutt inn vítamín, heilsufæði og lífrænt
ræktaðan mat og fæðubótarefni til sölu í eigin búðum
og fyrir aðra. „Með kaupum á Heilsu opnast leið fyrir
Lyfju til að hefja eigin innflutning á ákveðnum vörum
til sölu í verslunum Lyfju og Apóteksins. Það býður
upp á ýmis tækifæri sem mun styrkja rekstur Lyfju,“
segir Ingi.
Hjá Heilsu starfa 25 manns og er áætlað að velta
fyrirtækisins á þessu ári verði um 400 milljónir króna.
Kaupverðið fæst ekki gefið upp.
Lyfja hf. kaupir Heilsu ehf.
AFKOMA Kögunar ber þess sterk-
lega merki að fleiri fyrirtæki mynda
samstæðuna nú en áður. Sl. haust
keypti Kögun meirihluta hlutafjár í
Opnum kerfum og í árslok 2003
keypti félagið Hug og Landsteina
Streng. Er því um gjörbreytt félag að
ræða frá því sem var á árinu 2003.
Hagnaður Kögunar var 453 millj-
ónir króna á árinu 2004 og er það 35%
meiri hagnaður en var árið áður. Sala
samstæðunnar fjórfaldaðist á milli
ára og nam röskum 4,9 milljörðum
króna. Kostnaðarverð seldra vara og
þjónustu jókst hins vegar umtalsvert
meira sem skilar sér í 158 milljóna
króna, eða 170%, aukningu á rekstr-
arhagnaði.
Sama aukning er á hagnaði fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, EBITDA,
sem nam 646 milljónum króna eða
13% af tekjum. Árið áður var hlut-
fallið 19%. EBITDA-hlutfall Kögunar
án hlutdeildar Opinna kerfa var rúm
15% og er það umfram það sem áætl-
anir félagsins gerðu ráð fyrir.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um
39 milljónir á árinu en árið áður var
204 milljónum króna betri afkoma af
þeim. Skýringuna er fyrst og fremst
að finna í vaxtagjöldum og gengismun
skulda á árinu, en þar vega þyngst
skuldabréfalán sem boðin voru út í
tengslum við kaupin á Hug og Opnum
kerfum, sem og minni hagnaði af sölu
hlutabréfa.
Efnahagsreikningur Kögunar er
mikið breyttur vegna kaupanna á
Opnum kerfum. Hafði hann nær
fimmfaldast á einu ári um sl. áramót.
Gjörbreytt
félag
Uppgjör
Kögun
soffia@mbl.is
+!
+!
,
!
-!(
./.0
10/.
%/22
)0/
)&3
#
4
5%%&
11.&%
6 4 (
4 (
#
!( ' 7
!(
.50
%5&
0%8
%98
1%.5
1%/
/32
195
)0&
1295
1209
1/.
1.0
538
558
!"#$
%
$
; (J
1KL
"?1A
M
N
C
C /.N
*"N
; %
BCAN MO 8'%