Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gestur Þórarins-son fæddist í Árbæ á Blönduósi 11. júlí 1947. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala háskóla- sjúkrahúss v/Hring- braut laugardaginn 19. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þórarinn Þor- leifsson, f. 10.1. 1918, og Helga Jós- efína Anna Krist- jánsdóttir, f. 25.12. 1916, d. 27.8. 1998. Systkini Gests eru Lára Borgey Finnbogadóttir, f. 1936, hálfsystir af móður, Guðný, f. 1943, Heiðrún, f. 1944, d. 1977, Sveinn, f. 1945, Hjördís, f. 1948, Finnbogi, f. 1949, og Ólafur, f. 1951. Gestur kvæntist Ragnhildi Helgadóttur 14. nóvember 1970. Kristófer Orri, f. 8.10. 1998. Gestur lauk námi frá unglingaskóla Blönduóss og fór einn vetur í Iðn- skóla Reykjavíkur, en lauk námi í vélvirkjun frá Iðnskóla Sauðárkróks 1972. Starfaði í Vélsmiðju Húnvetn- inga í 13 ár. Réðst til hitaveitu Blönduóss þegar hún var stofnuð 1977 og starfaði þar sem veitustjóri og einnig síðar sem verkstjóri Blönduósbæjar til 1997. Hann lauk meistaranámi í pípulögnum frá Fjöl- brautaskóla Sauðárkróks 1984. Hann varð framkvæmdastjóri Ár- virkni hf. árið 1977 til 2001. Hann stofnaði sitt eigið pípulagningafyr- irtæki Lagnaverk ehf. árið 2001 og starfaði við það þar til hann lést. Gestur vann að ýmsum félagsmál- um á sinni lífsleið, Björgunarsveit- inni Blöndu, Karlakórnum Vöku- mönnum, samkórnum Björk, og Bjarkarkvartettinum. Sat í bæjar- stjórn Blönduóss 1994–2002, var í stjórn Þroskahjálpar í Skagafjarð- ar- og Húnavatnssýslum og var einn af stofnendum FOS-HÚN og var fyrsti formaður þess. Útför Gests fer fram frá Blöndu- óskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hún er dóttir Helgu Sigríðar Lárusdóttur, f. 14.4. 1922, og Jóns Helga Sveinbjörns- sonar, f. 26.5. 1917, d. 11.10. 1995. Gestur og Ragnhildur eiga fjög- ur börn, þau eru 1) Helgi Sigurður, f. 11.8. 1970. 2) Krist- jana Björk, f. 5.11. 1971, sambýlismaður Steingrímur Kristins- son, f. 8.8. 1965. Börn hennar eru Friðrik Már Sigurðsson, f. 27.1. 1996 og Amelía Ósk Hjálmarsdóttir, f. 28.3. 1998. 3) Þórarinn Almar, f. 6.11. 1978. 4) Helga Kristín, f. 25.8. 1981, sam- býlismaður Hlynur Guðmundsson, f. 31.7. 1966. Sonur þeirra er Gest- ur Máni, f. 28.6. 2004. Börn Hlyns eru Brynleifur, f. 19.1. 1988, Lovísa Heiðrún, f. 22.3. 1996 og Elsku pabbi minn. Margt flýgur í gegnum hugann þegar ég hugsa til baka og rifja upp hvernig maður þú varst og allar þær minningar sem við eigum saman. Þessar minningar munu alltaf lifa innra með mér og hlýja mér um hjartarætur. Ég á erfitt með að sætta mig við að þú skulir hafa verið tekinn svona í skyndi frá okkur, þú varst alltaf þessi hrausti, sterki, dug- legi og vinnusami maður og erfitt er að trúa að þínu hlutverki sé lokið þar sem þú varst á fullu í að undirbúa að flytja með fyrirtækið í nýja húsnæð- ið. Þegar þú varst fluttur suður héld- um við að þetta væri smávægilegt en allt kom fyrir ekki því læknarnir sögðu að þú værir svo illa farinn í hjartanu og hann vissi ekki hvort hann gæti hjálpað þér. Okkur finnst ótrúlegt hvernig þú gast haft þessa endalausu orku fram á síðasta dag, það mætti halda að þú hafir ekki búið í líkamanum. Þetta lýsir þér í hnot- skurn því þú varst alltaf svo kraft- mikill og lést ekkert hindra þig í að gera það sem þú taldir skipta máli. Þú vildir allt fyrir alla gera og varst fljótur að bregðast við þegar ein- hvern vantaði aðstoð, þar af leiðandi varstu mikið í vinnunni. Eldmóður og vilji dreif þig áfram í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur og ekki skipti máli hvort það snerti heimilið, vinn- una eða starf í félagssamtökum. Þú vannst allt vel, varst virkur og dríf- andi og barðist jafnt fyrir hagsmun- um annarra og þinna eigin. Þú skap- aðir þér mikið persónulegt traust og þegar ég er spurð hverra manna ég er og ég nefni nafnið þitt fæ ég alltaf jákvæð viðbrögð og heyri falleg orð um þig. Þetta sýnir hversu mikið þú gafst af þér til allra. Sú minning er svo sterk í huga mér þegar þú söngst okkur í svefn þegar við vorum lítil, þú söngst til dæmis Dansi, dansi dúkkan mín og Krummi krunkar úti, einnig fannst þér oft gott þegar ég greiddi þér og setti í þig spennur og allt tilheyrandi. Svo komu gestir og þá var nú mikið hlegið. Elsku pabbi minn, þú varst svo góðhjartaður maður og alltaf var hægt að treysta á þig. Hvernig fer ég að án þín? Þú studdir mig áfram í því sem ég var að gera, koma mér upp heimili á Akureyri og klára námið í iðjuþjálfun í Háskólanum. Þú varst mikill afi og laðaðir börn að þér. Takk fyrir að vera svona duglegur að halda á Gesti Mána þegar þið hittust og fyrir að taka börnunum hans Hlyns eins og þínum eigin barna- börnum. Ég trúi og veit að þú ert kominn á annan stað þar sem þú heldur áfram að lifa, gangi þér vel og þú veist að þú lifir ávallt í hjarta mínu. Þín dóttir Helga Kristín. Elsku pabbi. Ég varð mjög sorgmæddur yfir að þú skyldir þurfa að fara svona snögglega frá okkur, þú sem varst alltaf svo hraustur, sterkur og okkar bakhjarl. Gaman var að fá að vinna stundum með þér í pípulögnum þeg- ar þú þurftir á að halda. Takk fyrir allt, Guð geymi og styrki okkur öll. Þinn sonur Þóri. Elsku pabbi. Ekki gat mig grunað eftir Akur- eyraferð okkar að þú myndir veikj- ast svona heiftarlega. Þú fórst í að- gerð vegna kransæðastíflu og þá kom í ljós að hjartað var svo veikt en við vonuðum öll að það yrði í lagi með það. Við báðum fyrir þér en hjartað tók ekki við sér. Ég vil þakka þér öll þessi yndislegu ár sem ég fékk að eiga með þér, líka þennan tíma á sjúkrahúsinu, hann var dýrmætur. Mikil var sorgin þegar læknarnir sögðu okkur að þeir gætu ekki gert meira fyrir þig og við þyrftum að kveðja. Hafðu þakkir fyrir allt, elsku pabbi minn, ég veit að þú lifir með okkur og þú vakir yfir okkur. Þín dóttir Kristjana Björk. Elsku pabbi minn. Ég skil ekki af hverju þú varst tekinn svona snögglega frá okkur. Þú varst stoð mín og styrkur í svo mörgu og ég mun sakna þín um alla tíð. Nálægð þína nú ég finn, nær hún oss að styðja. Eflaust blessar andi þinn, alla þína niðja. (Andrés Valberg.) Vonin styrkir veikan þrótt, vonin kvíða hrindir. Vonin hverja vöku-nótt, vonarljósin kyndir. (Páll Ólafsson.) Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Guð veri með þér. Þinn einlægur sonur Helgi Sigurður. Í dag kveð ég Gest mág minn, skólabróður, vinnufélaga og tryggan vin í rúm 30 ár. Við kynntumst fyrst 1967 er ég fór að læra bifvélavirkjun en hann við vélvirkjun hjá Vélsmiðju Húnvetninga á Blönduósi. Við leigð- um saman herbergi hjá Ragnari frænda mínum og Ellu konu hans í Kópavogi, þegar við vorum í Iðnskól- anum í Reykjavík. Þær voru margar langar og erfiðar ferðirnar á milli Reykjavíkur og Blönduós á þessum árum. Þá var ekki búið að byggja upp þessa vegi sem eru í dag, og vega- gerðin opnaði aðeins tvisvar í viku. Ekki voru komnir gemsar til að tala sig í gegnum skaflana, en stundum voru margar skóflur á lofti þegar færð var erfið og margir þurftu að komast á milli landshluta og þá var gott að hafa Gest. Það var sama hvað Gestur tók sér fyrir hendur, hann vann alltaf á við tvo. Gestur var mikill söngmaður og söng í mörg ár í kór. Ég heyrði einu sinni að það þyrfti ekki nema þrjá í kvartett ef þeir hefðu Gest með sér. Svo mikill var krafturinn í Gesti. Við hættum báðir störfum hjá Vél- smiðju Húnvetninga árið 1977, það ár tók Hitaveita Blönduóss til starfa og Gestur var ráðinn Hitaveitustjóri en ég stofnaði Bílaþjónustuna Bön- duósi. Saman sátum við í stjórn Hita- veitunnar í 20 ár. Einnig voru við í Björgunarsveit- inni Blöndu og í slökkviliðinu á Blönduósi til fjölda ára. Árið 1989 tóku fjölskyldur okkar saman land á leigu undir sumarbú- stað hjá Jóni og Ingu að Ási í Vatns- dal. Við byrjuðum á að girða landið, búa til veg og brú, rækta tún og planta trjám. Síðan byggðum við okkur sumarhús. Fjölskyldur okkar eru búnar að eiga margar ánægjustundir saman í leik og starfi við þessa uppbyggingu. Að lokum vil ég þakka Gesti mági mínum fyrir ánægjulega samfylgd í gegnum árin. Ragnhildi systir minni og afkomendum votta ég samúð mína. Sól mun rísa á ný og lífið heldur áfram. Lárus Helgason. Í afmælidagabókinni minni er eft- irfarandi vísa skráð fyrir 11. júlí. Af langri reynslu lært ég þetta hef, að láta drottinn ráða, meðan ég sef, en þegar ég vaki, þá vil ég sjálfur ráða, og þykist geta ráðið fyrir báða. (Káinn.) Þennan dag árið 1947 var Gestur fæddur og um ýmsa hluti átti vísan vel við hann. Því miður varð ævin ekki löng í árum talið en það starf sem hann var búinn að skila hér í héraði og víðar var á við langa starfs- ævi sumra annarra. Kynni okkar Gests hófust þegar faðir okkar systkina hélt upp á 50 ára afmæli sitt í maí 1967. Í veisluna kom margt manna. Einn þeirra var ungur piltur sem var ráðinn bílstjóri nokkurra annarra. Við þekktum hann ekki þá, en fáum vikum seinna kom bíll í Þórormstunguhlað á laug- ardegi. Boð voru gerð fyrir Ragn- hildi, hún fór til dyra og henni boðið á ball á Laugarbakka. Var það auð- fengið ef ég færi með. Smátt og smátt þróuðust kynni Gests og Ragnhildar. Þann 11. ágúst 1970 fæddist þeim sonur og 14. nóvember sama ár giftumst við systurnar í Blönduóskirkju og Helgi skírður um leið. Þau Gestur og Ragnhildur sett- ust að á Blönduósi og byggðu sér hús að Urðarbraut 4 þar sem þau bjuggu síðan og áttu gott heimili. Gestur gekk í iðnskóla þar sem hann valdi sér pípulagnir að við- fangsefni og gerðist meistari í þeirri iðn. Urðu pípulagnir og skyld störf starfsvettvangur hans upp frá því. Hann stofnaði fyrir nokkrum árum fyrirtækið Lagnaverk og var á loka- stigi við að innrétta vandað húsnæði fyrir starfsemina þegar hann lést. Gestur var um skeið hitaveitu- stjóri á Blönduósi og sá um rekstur hitaveitunnar og viðhald. Algengt var þá að hann stæði með skófluna niðri í skurði og mokaði ef honum þótti ekki ganga nógu vel með verk- ið. Einnig hringdi margur sem ekki kunni að stilla termóstatið eða vatns- streymið í hann og leitaði ráða. Þá hlustaði hann um stund en sagði svo: „Ég kem“, og lagði á. Var hann síðan rokinn út og var hvorki spurt um klukkuna eða daginn. Þannig var hann alltaf boðinn og búinn til að hjálpa öðrum enda hjálpsemi í blóð borin. Þá voru veðrin ekki alltaf blíð þegar eitthvað sló út í hitaveitunni og hann þurfti að fara fram í Reyki en á leiðinni þangað getur orðið afar hvasst. Gestur var meðalmaður á hæð, lið- lega vaxinn og samsvaraði sér vel. Hann var kvikur í hreyfingum og lið- tækur íþróttamaður, fremur örlynd- ur og fljótur að taka ákvarðanir. Hann var gleðimaður og söngvinn, hann hafði háa tenórrödd, kunni mikið af söngtextum og söng um skeið í kórnum. Í eðli sínu var hann mikill fjölskyldumaður og óþreyt- andi að sinna sínu fólki þegar lausar stundir gáfust frá vinnu en þær voru stundum stopular. Ég og fjölskylda mín þökkum Gesti fyrir allar skemmtilegu stund- irnar á þessum árum og óskum hon- um góðrar heimkomu. Og þegar ég labba til fuglanna er dimmir lít ég til stjarnanna og minnist söngsins sem hann söng svo oft „Upp á himins bláum boga…“ Við vottum Ragnhildi, Helga, Kristjönu, Þórarni, Helgu, tengda- sonum og barnabörnum einnig föðurnum Þórarni og tengdamömmunni Helgu sem og systkinum og öllum öðrum vinum og ættingjum okkar samúð. Björg. Á viðkvæmri stundu nú kveðjum við klökk hér kallið barst óvænt að garði, með kveðjunni hljóma skal hjartanleg þökk til hans er fór fyrr en varði. (Höf. ók.) Mágur minn og kær vinur okkar fjölskyldunnar Gestur Þórarinsson hefur kvatt okkur í bili. Ekki fór hann baráttulaust, það var ekki hans karakter. Kraftmeiri mann er vart hægt að hugsa sér, orka hans og út- hald virtist vera endalaust. Gestur hafði sérstaklega góða nærveru og var mjög greiðvikinn. Það má vel vera að heimilið hans hafi oft þurft að sitja á hakanum svo hægt væri að gera öðrum greiða. Efa ég ekki að Ragnhildur systir mín hafi oft þurft að liðka til svo það væri hægt að hjálpa sem flestum, enda hjónin samstiga í því. Mínar fyrstu minningar um Gest eru úr 50 ára afmæli pabba. Kom hann frá Blönduósi ásamt öðrum og þegar fjörið fór að dafna fór Gestur ásamt fleirum að syngja, enda söng- maður góður. En Gestur gerði fleira, hann fór að líta í kringum sig og virða heimasæt- urnar fyrir sér. Ein vakti forvitni hans og eftir það varð ekki aftur snú- ið. Ragnhildur var sú heppna og bauð hann henni á ball nokkrum dögum seinna. Kom Gestur ásamt öðrum á sínum eðalvagni Woffa og sótti Ragnhildi, fór Björg elsta syst- irin með sem velsæmisvörður. Ekki vildi betur til en svo að bíllinn vildi ekki fara í gang. Ekki dóu þau ráða- laus og kölluðu á okkur hinar syst- urnar og ýttum við bílnum úr hlaði svo hann rauk í gang. En ekki þóttu þessar aðferðir dömulegar og vekja ennþá kátínu. Margar ánægjulegar minningar rifjast upp. Nokkur ferðalög höfum við farið saman fjölskyldurnar, síðasta ferðin var farin síðastliðið sumar austur í Mývatnssveit, Ásbyrgi, Dettifoss o.fl. Að lokum sendum við, Ragnhildur mín, þér og fjöldyldu þinni innileg- ustu samúðarkveðjur. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Blessuð sé minning Gests Þórar- inssonar. Fjölskyldan Þórustöðum 7 Eyjafjarðarsveit. Það sló þögn á mig er móðir mín hringdi og sagði mér að þú hefðir verið fluttur fárveikur suður og það væri tvísýnt um líf þitt. Sú varð raunin að þér voru ekki ætlaðir fleiri dagar á meðal vor. Eftir nokkra daga varstu látinn, engin stund til að kveðja eða þakka fyrir sig. Fyrst þegar við sáumst. Það var í fimmtugsafmæli föður míns. Þar var mikið sungið og þú lést þitt ekki eftir liggja þar frekar en annarsstaðar þar sem söngur var, en maður frænku minnar tók eftir þessum unga manni, sem söng svo vel og sagði við systur mína, þá tæplega sautján ára, að hún ætti að ná í þenn- an mann og það varð raunin, að þau náðu saman síðar. Vorum við í fjöl- skyldunni ekki svikin af þessum tengslum því það var svo gott að leita til þín ef maður þurfti einhverja hjálp, því þú varst fljótur til og áreið- anlegur. Hafðu þakkir fyrir það. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Þessi lokaorð vil ég gera að þínum, því mér finnst eins og þú hafir viljað segja okkur þau. Grátið mig ekki, því ég er frjáls, ég fylgi veginum sem Guð lagði fyrir mig. Ég tók Hans hönd, þegar kallið kom, snéri við og yfirgaf allt. Ég gat ekki dvalið lengur, til að hlæja, elska, vinna eða gleðjast. Ókláruð verk mín verða eftir hér, ég fann þennan stað minn síðasta dag. Hafi brottför mín skilið eftir tómarúm, fyllið það með góðum minningum vináttu og gleðistunda, ó, já, ég á eftir að sakna líka. Berið ekki þungar byrðar sorgarinnar. Ég óska ykkur bjartra daga. Líf mitt var fyllt gleðistundum, í samför ástvina og annarra. Kannski virtist dvöl mín hér allt of stutt. En lengið hana ekki með djúpri sorg. Léttið á hjarta ykkar og samgleðjist mér, Guð vildi mig núna og tók móti mér. (Irvin R. Karon.) Þín mágkona Erna I. Helgadóttir. Elsku Gestur. Nú ertu horfinn sjónum mínum en þú lifir nú alltaf í hjarta mínu. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa tilfinningunni þegar ég frétti að þú værir farinn. Ég hafði eiginlega ekki gert mér grein fyrir því hvað þú varst mér mikilvægur, bara að vita af því að þú værir á þínum stað. Ég veit að við höfum ekki átt margar samverustundir nú síðustu árin, ég hélt alltaf að ég gæti bara gert meira af því á næsta ári, en þetta fær mann til þess að hugsa um að fresta því ekki endalaust að hitta þá sem standa manni nær. Þú varst kletturinn sem maður gat alltaf leit- að til ef eitthvað kom upp á. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa og ég hef aldrei heyrt þig segja nei við nokk- urn mann. Ég á margar góðar minningar um þig Gestur minn, en sú sem stendur hæst er þegar við fórum saman í ferðalag með fjölskyldum okkar í Hljóðakletta. Þar sem þetta er verndað svæði þá má ekkert keyra inn á tjaldstæðið og því þurfti að flytja allt útilegudótið á hjólbörum. Í minni minningu þá fannst þér það nú ekki mikið mál og settir allt dótið á hjólbörurnar og komst upp tjaldbúð- unum. Í reyndinni hefur þetta nú kannski ekki verið svona, hinir hljóta að hafa gert eitthvað en mér fannst GESTUR ÞÓRARINSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.