Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 16
16 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
HÁTT SETTUR sýrlenskur emb-
ættismaður sagði í Moskvu í gær að
stjórnvöld í Sýrlandi myndu brátt
birta áætlun um brottflutning her-
afla síns frá Líbanon. Fréttinni
fylgdi að ráðamenn í Líbanon hefðu
lýst yfir ánægju sinni vegna áætl-
unarinnar.
Walid al-Muallim, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Sýrlands, skýrði frá
þessu eftir að hafa átt viðræður við
Sergeij Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands. „Ég hafði með mér til-
tekna áætlun sýrlenskra stjórn-
valda. Ég tel að þið [fulltrúar fjöl-
miðla] munuð brátt fá fregnir af
áætlun þessari, af samkomulagi milli
Sýrlands og Líbanon,“ sagði sýr-
lenski embættismaðurinn. Hann
bætti við að hann væri bjartsýnn um
að áætlunin hlyti blessun ríkja Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
liggur fyrir ályktun, númer 1559,
sem felur í sér kröfu þess efnis að
Sýrlendingar kalli heim liðsafla sinn
í Líbanon. Í máli Sergeijs Lavrovs
kom fram að Rússar væru ánægðir
vegna áforma stjórnvalda í Sýrlandi.
Verður heraflinn fluttur
í Bekaa-dalinn?
Sýrlendingar sendu herafla inn í
nágrannaríkið Líbanon árið 1975
þegar skálmöld upphófst í landinu
sem stóð í 15 ár og kallaði hörmung-
ar og eyðileggingu yfir landsmenn.
Fyrr um daginn hafði líbanskur
ráðamaður tjáð AFP-fréttastofunni
að búist væri við því að Bashar al-
Assad Sýrlandsforseti myndi í dag,
laugardag, greina frá því að ákveðið
hefði verið að flytja sýrlenska liðs-
aflann í landinu, um 15.000 menn,
inn í Bekaa-dalinn í austurhluta Líb-
anons. Heraflinn yrði því færður
nær landamærunum án þess þó að til
þess kæmi að hann yrði kallaður
heim. Sagði þessi heimildarmaður
að búist væri við því að sjálfir liðs-
flutningarnir færu fram fyrir 23.
þessa mánaðar þegar leiðtogar
Arabaríkja koma saman. Hvað al-
gjöran brottflutning frá Líbanon
varðaði lægi fyrir að slík ákvörðun
yrði einungis tekin eftir að sýrlensk
stjórnvöld hefðu ráðfært sig við
ráðamenn í þessum heimshluta.
Stjórnvöld í Damaskus vildu að fyrir
lægju ákveðnar tryggingar áður en
til heimkvaðningar gæti komið.
Sýrlendingar hafa sætt miklum og
vaxandi þrýstingi um að kalla herlið-
ið heim eftir að Rafiq Hariri, fyrrum
forsætisráðherra Líbanons, var
myrtur í höfuðborg landsins, Beirút,
14. fyrra mánaðar. Morðið kallaði
fram fjölmenn götumótmæli gegn
afskiptum Sýrlendinga af málefnum
Líbanons sem lyktaði með því að rík-
isstjórn landsins neyddist til að
segja af sér.
Áætlun um brottflutning her-
liðs Sýrlendinga frá Líbanon?
Sagt að Sýrlandsforseti boði e.t.v.
flutning á herliðinu í Bekaa-dalinn
Moskvu. AFP.
NÆSTUM 90 milljónir Afríkubúa
gætu smitast af HIV-veirunni næstu
20 árin verði ekkert gert til þess að
reyna að hefta útbreiðslu sjúkdóms-
ins, að því er fram kom í rannsókn
sem Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) birtu í
gær.
Nú eru um 25 milljónir manna í
Afríku smitaðar af HIV-veirunni,
sem veldur alnæmi. SÞ meta það svo
að á næstu tveimur áratugum gætu
komið upp um 89 milljónir nýrra til-
fella sjúkdómsins í Afríku – en sú tala
samsvarar um 10% íbúa álfunnar.
Eina lausnin, að mati SÞ, er ný, um-
fangsmikil herferð gegn HIV-smiti
og alnæminu sem af því hlýst.
Segja höfundar skýrslunnar að slík
herferð muni kosta um 200 milljarða
Bandaríkjadollara, sem jafngildir um
12.200 milljörðum íslenskra króna.
Mæla samtökin með því að nýtt átak
gegn alnæmi verði hafið í Afríku.
Verði gripið til aukinna aðgerða
gegn sjúkdómnum í Afríku væri
hægt að bjarga lífi um 16 milljóna
manna og koma í veg fyrir að um 43
milljónir manna smituðust af sjúk-
dómnum, að því er fram kemur í
skýrslunni.
Í niðurstöðum skýrslunnar segir
að fari svo að milljónir Afríkubúa
þurfi enn að búa við það hlutskipti ár-
ið 2025 að smitast af HIV-veirunni
verði ástæðan „ekki sú að það hafi
verið óumflýjanlegt“.
Tíundi hver Afríkubúi
gæti smitast af alnæmi
Genf. AFP.
Reuters
Afrísk börn við minningarathöfn um eitt fórnarlamb alnæmisins.
ÞYBBNIR lögregluþjónar í
Stokkhólmi hafa nú ærna
ástæðu til að megra sig því að
þeir komast ekki inn um nýjan
öryggisinngang höfuðstöðva
sænsku ríkislögreglunnar ef
þeir eru of þungir.
Í innganginum er innbyggð
vog, sem á að tryggja að að-
eins einn komist inn í einu, en
vegna handvammar verða lög-
regluþjónarnir fyrir þeirri
sneypu að komast ekki inn um
dyrnar ef þeir eru þyngri en
105 kíló. „Stans! Einn í einu!“
glymur þá í hátalara og dyrn-
ar opnast ekki.
Ætlunin var að miða við 160
kíló og talsmaður lögreglunn-
ar sagði að þetta yrði lagfært.
„Hér eru margir stórir og
sterkir karlar.“
Stans!
Einn í einu!
Stokkhólmi. AP.