Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 23
MINNSTAÐUR
800 7000 - siminn.is
Stundum er betra að senda SMS!
úr heimasíma
Ekki þarf að greiða fyrir SMS
sendingar úr heimasíma
til 1. apríl 2005
Þingeyjarsveit | Áhugamannafélag sem af-
markar viðfangsefni sín við Goðafoss, Þingey
og Þorgeirskirkju hefur verið stofnað í Þing-
eyjarsveit. Tilgangurinn er einkum sá að afla
nýrrar þekkingar, safna saman og miðla sögu-
þekkingu á svæðinu. Stofnfundurinn var hald-
inn í Þorgeirskirkju og eru félagar orðnir nær
þrjátíu talsins og fer fjölgandi.
Félagið heitir Þingeyskur sagnagarður og
samkvæmt drögum að samþykktum er m.a.
gert ráð fyrir að meginmarkmiðið verði að
stuðla að varðveislu forn- og menningarminja,
efla rannsóknir og skapa styrkari forsendur
fyrir menningartengdri ferðamennsku á svæð-
inu með markvissri upplýsingamiðlun og við-
burðum.
Tekið á móti ferðafólki í Þorgeirskirkju
Á fundinum gerðu Jóhann Guðni Reynisson,
Jón Aðalsteinn Baldvinsson og Þórhallur
Bragason grein fyrir tilurð félagsins, en þeir
unnu að undirbúningi stofnunar þess ásamt
Unnsteini Ingasyni. Þá færði Dögg Matthías-
dóttir hinu nýja félagi ritgerð sína um Þingey
sem hún gerði við Framhaldsskólann á Laug-
um og Indriði Ketilsson flutti ljóð föður síns,
Ketils Indriðasonar, um eyjuna. Í stjórn fé-
lagsins voru kosin þau Jóhann Guðni, Jón Að-
alsteinn og Margrét Snorradóttir.
En hvað skyldi hafa orðið til þess að þetta
félag var stofnað? Að sögn Jóhanns Guðna,
áhugamanns og sveitarstjóra í Þingeyjarsveit,
kom þessi hugmynd fram í fyrra þegar hann
og sr. Jón Aðalsteinn, vígslubiskup á Hólum,
hittust á Laugum og fóru að ræða framtíð
Þorgeirskirkju og Ljósavatnsprestakalls.
Ræddu þeir þá um mikilvægi þess að vinna
veg og vanda kirkjunnar sem varð til þess að
sveitarfélagið og þjóðkirkjan gerðu með sér
samkomulag. Það leiddi m.a. af sér að á kom-
andi sumri verður í kirkjunni fastur starfs-
maður á vegum þjóðkirkjunnar sem tekur á
móti ferðamönnum, sýnir þeim kirkjuna og
segir sögu staðarins auk þess að standa fyrir
ýmsum viðburðum.
Jóhann Guðni segir að þessar hugmyndir
sem menn höfðu hafi smám saman spunnið
upp á sig og farið var að tengja saman Goða-
foss, Þingey og Þorgeirskirkju sem nokkurs
konar þríhyrning. Þetta sé sannkallaður
„sagnagarður“, staður þar sem heiðni og
kristni mættust á sínum tíma og ef til vill megi
þróa hugmyndina betur með tímanum, eftir
því sem tilefni gefist til.
Hið þingeyska fornleifafélag, sem stofnað
var á sl. ári, hefur sýnt þessu svæði mikinn
áhuga og vill auka rannsóknir í samvinnu við
Þingeyskan sagnagarð með aðstoð t.d. Forn-
leifastofnunar. Jóhann Guðni segir að nú sé
lag og mikilvægt sé að komast að því hvar
þingstaðurinn hafi verið í Þingey og nauðsyn-
legt að merkja þá staði sem eitthvað hefur
gerst á, í framhaldi af rannsóknum. Þannig
séu hugsanlega tóftir af hofi Þorgeirs Ljós-
vetningagoða í túnfætinum á bænum Ljósa-
vatni sem þyrfti að merkja. Þá sé það fagn-
aðarefni að í vor eigi að koma veglegt upplýs-
ingaskilti við veginn að Þorgeirskirkju.
Draumurinn um héraðsgarð að rætast
Bætt aðgengi að helstu stöðum í sagnagarð-
inum segir Jóhann Guðni mjög mikilvægt og
eitt fyrsta í því er gerð gönguleiðar frá Goða-
fossi að kirkjunni. Þá hefur nokkuð verið rætt
um aðgengi að Þingey og hafa menn hug-
myndir um göngubrú eða kláf en telja óvar-
legt að hleypa þangað bílaumferð. Mjög gam-
an sé fyrir fólk að geta komist út í eyjuna til
þess að komast í nánd við það umhverfi sem
verið er að ræða um.
Jóhann Guðni hefur og mikinn áhuga á að
stuðlað verði að hinum ýmsu viðburðum
tengdum sagnagarðinum, þ.m.t. tónlistar-
viðburðum og leikritum. Hann nefnir einnig
skólabúðirnar í Bárðardal þaðan sem nem-
endur gætu komið og notið góðs af tilvist
sagnagarðsins. Til greina komi jafnframt að
ferðafólk fái teknar myndir af sér undir „feldi
Þorgeirs“ og að jafnvel megi lýsa upp Goða-
foss, t.d. í tengslum við tónlistarflutning.
Á Fosshóli er nú rekin öflug ferðaþjónusta
og verslun sem vaxið hefur upp á síðakastið
með nýrri viðbyggingu. Þar er einnig upplýs-
ingastofa ferðamanna og það sem best er, seg-
ir Jóhann Guðni, er að landeigendur á svæðinu
virðast mjög jákvæðir.
Hann segir að hér sé líklega gamli draum-
urinn um héraðsgarð að rætast og væntir þess
að eiga gott samstarf við fyrirtæki, mennta-
stofnanir, sveitarstjórn og þjóðkirkjuna og
það takist að skapa spennandi fólkvang þar
sem íslenskur menningararfur, hagsmunir
ferðaþjónustunnar og almennur áhugi fari
saman.
Þingeyskur sagnagarður tengir saman Goðafoss og Þingey í Skjálfandafljóti og Þorgeirskirkju
Vill bjóða ferðafólki undir feld Þorgeirs
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Frumkvæði Jóhann Guðni Reynisson er mikill áhugamaður um þingeyskan sagnagarð. Hér er
hann við einn hluta væntanlegs héraðsgarðs, Þorgeirskirkju við Ljósavatn.
LANDIÐ