Morgunblaðið - 05.03.2005, Síða 35

Morgunblaðið - 05.03.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 35 Vatnsföll, sem eru stígvéla-væð á sumardegi, getabreyst í skaðræðisfljót áskömmum tíma í leysing- um. Fannfergi er víða mikið yfir vet- urinn þar sem fjórir hálendisvegir, sem stefnt er að að byggja upp sam- kvæmt Samgönguáætlun, liggja. Kom þetta m.a. fram í máli Sig- mundar Einarssonar, jarðfræðings hjá Almennu verkfræðistofunni hf. á Samgönguráðstefnu sem Verkfræð- ingafélag Íslands og Tæknifræð- ingafélag Íslands stóðu fyrir sl. fimmtudag. Hálendisvegirnir sem um ræðir eru Fjallabaksleið nyrðri, Sprengisandsleið, Kjalvegur og Kaldadalsleið. Greindi Sigmundur frá athugun um hálendisvegi fram- tíðarinnar sem hann gerði ásamt Pétri Stefánssyni og Snorra P. Snorrasyni í samvinnu við Vega- gerðina. Benti hann á að veðurfars- skilyrði skipta miklu við ákvarðanir um frekari uppbyggingu hálendis- veganna. Það hefur mikil áhrif hve hátt vegirnir liggja. Kaldadalsvegur, Kjalvegur og Fjallabaksleið nyrðri ná uppundir 700 metra yfir sjávar- máli, en Sprengisandsleið er á 60 km kafla í meira en 700 m.y.s. hæð. Í ljósi vetrarveðra og færðar sagði Sigmundur spurningu hve lengi árs- ins þessir vegir gætu verið opnir. Hann sýndi niðurstöður veðurmæl- inga í Sandbúðum (840 m.y.s.) 1973– 1978, sem Haraldur Ólafsson veður- fræðingur tók saman. Samkvæmt þeim er mjög vindasamt á Sprengi- sandsleið. Hlutfall daga sem vindur fór yfir 20 m/s var 39% yfir vetrar- tímann og 17% yfir sumartímann. Dagarnir sem vindur fór yfir 15 m/s voru 66% yfir veturinn og 45% yfir sumarið. Sigmundur sagði að í Sam- gönguáætlun væru engin tímamörk sett á framkvæmdir við hálendis- vegi, engar fjárhæðir nefndar og ekkert um hvernig vegir þetta eigi að vera. Vegagerðinni sé það í sjálfs- vald sett. Vegirnir liggja sumir hverjir á köflum um þjóðgarða, núverandi og fyrirhugaða, og nálægt eða með náttúruverndarsvæðum af ýmsum skilgreiningum. Þeir munu hafa áhrif á víðernistilfinningu og þetta tvennt mun óhjákvæmilega hafa áhrif á alla frekari uppbyggingu veg- anna, að mati Sigmundar. Þrenns konar notagildi Sigmundur velti upp spurningum um fyrir hverja hálendisvegir ættu að vera, hvar þeir eigi að liggja og hvernig vegi eigi að byggja? Flokka má notkunina í þrennt. Fyrir ferða- mennsku, almenningssamgöngur og vöruflutninga. Ferðamennskunni duga lágir sumarvegir eða óbreytt ástand. Almenningssamgöngur gætu nýtt lága sumarvegi með bundnu slitlagi og uppbyggða heils- ársvegi, en vöruflutningar þyrftu uppbyggða heilsársvegi. Síðan ræddi Sigmundur um hvern veg fyrir sig og byrjaði á Kaldadals- leið. Hún tengir Vesturland og Suð- urland. Hann taldi Kaldadalsleið fyrst og fremst koma ferðamönnum til góða, því lega hennar í gegnum Þingvallaþjóðgarð takmarkaði frek- ari uppbyggingu vegarins. Hann sá fyrir sér tiltölulega óbreytt vegstæði nema við Tröllháls og að þetta verði lágur sumarvegur. Kjalvegur tengir Norðurland og Suðurland. Sigmundur sér fyrir sér að vegurinn geti nýst fyrir allar gerðir notkunar. Lagði hann til að í framtíðinni muni Kjalvegur liggja austan Bláfellsháls að sunnanverðu og þegar norðar dregur sunnan Blöndulóns, um Gilhagadal og Mæli- fellsdal og niður í Skagafjörð. Þessi vegur myndi stytta leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 34 km, en milli Akureyrar og Selfoss um 140 km. Sigmundur og félagar vörpuðu fram hugmynd um breytta legu Sprengisandsleiðar frá Vatnsfells- virkjun vestan núverandi leiðar að sunnanverðu, en austan núverandi leiðar að norðanverðu og endi í Mý- vatnssveit í staðinn fyrir Bárðardal nú. Þessi Sprengisandsleið myndi stytta leiðina milli Egilsstaða og Reykjavíkur um 116 km. Einnig er mögulegt að leggja veg af Sprengi- sandsleið um Vegskarð og austur á hringveginn á Hólsfjöllum, sem myndi stytta leiðina milli Reykjavík- ur og Egilsstaða um 157 km. Helsti ókostur Sprengisandsleiðar er veð- urfarið. Telur Sigmundur mjög ólík- legt að Sprengisandsleið verði lík- legur valkostur sem heilsársvegur fyrir vöruflutninga, af þeim sökum. Fjallabaksleið nyrðri liggur að miklu leyti um Friðland að fjallabaki og um náttúruverndarsvæði. Sig- mundur telur ólíklegt að leyfi fáist til að gera neinar verulegar breytingar á veginum frá virkjunum að norð- anverðu og suður í Eldgjá. Sigmundur taldi ólíklegt að lagt verði í mikla uppbyggingu vega á Kaldadalsleið og Fjallabaksleið nyrðri, vegna náttúruverndarsjón- armiða. Þörf er á mun meiri rann- sóknum á veður- og vatnafari á Sprengisandsleið og Kjalvegi, að mati Sigmundar og félaga, hyggist menn á annað borð leggja í viða- mikla uppbyggingu vega á leiðunum. Spurning hve lengi ársins vegirnir gætu verið opnir Þeir fjórir hálendisvegir sem byggja á upp sam- kvæmt Samgönguáætlun liggja sumir um þjóð- garða og náttúruverndarsvæði. Hugmyndir um gerð jarðganga á höfuðborgarsvæðinu ætti að skoða, m.a. með umhverfissjónarmið í huga. Kom þetta m.a. fram á ráðstefnu um samgöngumál. 0*  * 0&* 2 6   (**,!*                   &'( Vegagerðin á langan listayfir óskir og kröfur umjarðgöng víða um land.Ýmsar hugmyndir hafa t.d. verið settar fram um jarðgöng og vegstokka á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta kom fram í máli Hreins Haraldssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, á Samgönguráðstefnunni sem fram fór sl. fimmtudag. Telur hann að skoða þurfi jarðgöng sem mann- virkjakost á höfuðborgarsvæðinu. Sem dæmi um hugmyndir um slík mannvirki nefndi hann Ásfjall sunnan við Hafnarfjörð, Digranes- háls í Kópavogi þar sem hætt var við hraðbraut um Fossvogsdal, en í staðinn settir á skipulag jarð- gangamunnar vegna ganga sem reiknað var með að gætu legið frá Lundi að Reykjanesbraut við Staldrið eða sunnar. Einna alvar- legust hefur umræðan að sögn Hreins verið um jarðgöng undir Hlíðarfót, undir sunnanverðri Öskjuhlíð. Eins hefur verið velt upp hugmynd um jarðgöng undir Þingholtin. Þá hefur verið rætt um að setja Miklubraut í stokk hjá Miklatúni og vegstokk á Hring- brautinni. Rætt hefur verið um að færa Geirsgötu undir yfirborðið við Reykjavíkurhöfn til að slíta ekki nýja hafnarsvæðið frá mið- borginni. Varðandi Sundabraut og þverun Kleppsvíkur hefur verið rætt um botngöng sem valkost við brúarmannvirki. Á tímabili veltu menn einnig fyrir sér mögulegri jarðgangaleið frá Gufunesi og nið- ur að Borgartúni. Hreinn sagði að þótt þessar hugmyndalínur á kort- inu séu margar sé fróðlegt að bera þær saman við Vestfjarðagöngin. Þau séu 9 km löng og jafnist að lengd á við helstu hugmyndir um jarðgöng sem menn hafi varpað fram á höfuðborgarsvæðinu. Lengstum hugsuð sem lausn á þröskuldum Hann sagði að jarðgöng hafi lengstum verið hugsuð hérlendis sem lausn á þröskuldum í vega- kerfinu úti á landi. Vestfjarða- göngin, sem tekin voru í notkun 1996, komu í staðinn fyrir þrösk- uldinn Breiðadalsheiði, svo dæmi séu tekin og gjörbreyttu mannlífi í fjórðungnum. Jarðgöng hafa einn- ig verið gerð til að stytta vega- lengdir og eru Hvalfjarðargöngin þeirra þekktust. Jarðgöng eru notuð í þéttbýli, bæði til að létta á umferðarþunga og vegna umhverfissjónarmiða. Þá geta þau verið tæknileg lausn við vegarlagningar, eins og komið hef- ur í ljós í umræðunni um valkosti vegna Sundabrautar. Jarðgöng í þéttbýli eru vel þekkt víða um heim. Þau eru á margan hátt frábrugðin þeim sem gerð hafa verið hér, að sögn Hreins. Venjulega eru þéttbýlisgöng tvö- föld ekki einföld, eins og jarðgöng eru á landsbyggðinni. Rökin fyrir hugmyndum um jarðgöng í þéttbýli eru þau sömu og í öðrum löndum. Það er þétting byggðar og aukin umferð, skortur á byggingarlandi miðsvæðis og ekki síst umhverfissjónarmið, þ.e. að draga úr neikvæðum áhrifum umferðarinnar. Niður með umferðina! Hreinn sagði að jarðgöng hefðu bæði kosti og galla, en líklega yrði helst hægt að réttlæta slíkar fram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu vegna umhverfisáhrifa. Í sumum tilvikum gæti breytt umferð- arflæði réttlætt slíka framkvæmd. Þá myndu jarðgöng auka dýrmætt landrými. Ókostir jarðganga í þétt- býli væru líklega helstir hve dýr þessi lausn væri. Niðurstaða Hreins var sú að þessi valkostur væri etv. ekki sá brýnasti við úrlausn umferðarmála en ætti að vera með í umræðunni þegar umferðarskipulag höfuð- borgarsvæðisins væri skoðað til framtíðar. Hreinn lauk fyrirlestri sínum með því að sýna mynd af munna umferðarganga og yfirskriftin var: Niður með um- ferðina! Skoða þarf jarðgöng sem mann- virkjakost á höfuðborgarsvæðinu ! "#        %           % 6 %& 7, 8*%  *   0"2                   ()&'"($&( !$ *(+& andræða- a farið að ærið til að ar á árið nsks sjáv- útvegs sson, for- óstöðug- greininni verið að og hóta ann sem verið lagt p um að- en Norð- ti að efla sjávarút- n að þessi ldandi að uga á ís- rtækjum. árfestar á u síðustu sjávarút- hvort það t væri að gera langtímaáætlanir í rekstri fyr- irtækjanna. Þorsteinn sagði að þeir sem í greininni störfuðu þyrftu í raun að berjast á tveimur vígstöðvum. Ann- arsvegar við kaupendur og neyt- endur sjávarfangs úti í heimi en hinsvegar við kjósendur og stjórn- málamenn á Íslandi. Sagðist hann telja að vel hefði tekist til á mörk- uðunum erlendis en aftur á móti hörmulega að byggja upp ímynd sjávarútvegsins hér á landi. Gagn- rýndi Þorsteinn harðlega hvernig stjórnmálaflokkar hefðu notað stjórnendur í sjávarútvegi til að mála skrattann á vegginn rétt fyrir kosningar. Sömuleiðis gagnrýndi hann umfjöllun fjölmiðla, einkum ríkismiðlanna, um sjávarútveg. Þorsteinn Már sagði að greinin þyrfti að fá frið og umræðan þyrfti að komast í annan farveg. „Við þurfum frið til að taka ákvarðanir svo að greinin fái að stækka og dafna,“ sagði Þorsteinn. gerðar á Íslandi í 100 ár Morgunblaðið/Árni Torfason esen og Sjöfn Sigurgísladóttir. hema@mbl.is arfsfrið eiri meðal n- kalandi, eytenda ði að éði hvað arins í ri hag- kum í ðstæður i sér- ðlag á gert væri ti á n legðu verð du engu r um gæði i að jafn- an væri litið á fisk sem mikilvægan hluta af hollu mataræði, jafnvel svo að margir neyti fisks án þess að þykja hann neitt sérstaklega góður. Fiskur væri auk þess talinn örugg og náttúruleg vara, einkum í ljósi kjötfáranna sem riðið hafa yfir Evr- ópu á undanförnum árum. Sagði Lindenberg að neysla á fiski gæti því verið mun meiri í Evrópu ef hann væri auðveldari í matreiðslu. „Meira, hraðar, betra og fjölbreyttara“ Magnús Gústafsson, forstjóri Ice- landic USA, ræddi á ráðstefnunni horfur í sölu á sjávarafurðum í Bandaríkjunum. Þar er gert ráð fyrir að sala á sjávarafurðum muni aukast um 10% á næstu 5 árum, sem þýðir að sögn Magnúsar um 220 þúsund tonn af fiskmeti eða um 650 þúsund tonn af afla. Sagði hann að þessari aukningu yrði fyrst og fremst mætt með fiskeldi. Íslend- ingar þyrftu samt sem áður ekki að hafa áhyggjur af lækkandi fisk- verði, því villtur fiskur verði í fram- tíðinni alltaf dýrari en eldisfisk- urinn. Þannig spáði Magnús því að villtur þorskur yrði allt að tvöfalt dýrari en eldisþorskur. Magnús ræddi einnig bandaríska neytendur á ráðstefnunni, sem hann sagði vera nokkuð frábrugðna þeim evrópsku. Þeir gerðu þannig ekki jafn mikla kröfu um ferskleika, heldur væri krafan um þægindi þeim mun harðari, um „meira, hraðar, betra og fjölbreyttara“. þægindi nberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.