Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 43

Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 43 MINNINGAR Elsku mamma mín, mig langaði að segja þér hve mikils virði þú ert mér og margar góð- ar minningar koma upp í hugann á svona stundu. Það var svo gott að koma heim eftir skóla því þú hafðir einstaklega gott lag á að breyta þreytu í gleði með því að gefa mér góða máltíð, það var þér ávallt mik- ilvægt að fólk borðaði kjarngóða og holla fæðu. Að læra var mikilvægt sem og það að gefast aldrei upp þótt á móti blási heldur horfa fram á veginn og standa sig. Það sem við gátum skemmt okkur við að taka létta dans- sveiflu í eldhúsinu þegar ég var barn er mér minnistætt enda hafðir þú gaman af að dansa sem og því að klæða þig upp og fara jafnvel í Glæsibæ til að dansa, þú vildir vera vel til fara og smekkleg. Þegar þú keyptir föt var það praktískur og fal- legur fatnaður sem varð fyrir valinu, fatnaður sem eldist vel því þú fórst vel með allt sem þú áttir hvort sem það voru föt eða hlutir til heimilisins, allt var vel varðveitt. Ófáar ferðir voru farnar í sumarbú- staðinn og þá var notað tækifærið og spilað golf, þú fórst með okkur pabba upp á völl og röltir með okkur hring- inn þó svo þú spilaðir ekki sjálf, þú MARÍA SIGUR- STEINSDÓTTIR ✝ María Sigur-steinsdóttir fæddist í Reykjavík 8. desember 1940. Hún lést á heimili sínu, Langholtsvegi 65, fimmtudaginn 24. febrúar síðastlið- inn og var jarðsung- in frá Áskirkju 4. mars. naust þess að vera úti í náttúrunni, í kyrrðinni. Snemma kenndirðu mér að ávallt skyldi klára verkefnin sem byrjað var á og ekki að skilja við hálfklárað verk, sem og það að stundísi er mikilvæg, þetta hef ég haft að leið- arljósi í lífinu. Ég hef alltaf getað treyst á það að þú hafir á mér óbilandi trú í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur sem barn sem og því sem ég vinn að í dag, á móti treystir þú á það að ég fari réttu leiðina að settu markmiði og það ætla ég mér. Elsku mamma, það er svo margt sem er ósagt, en þín hefur verið þörf á öðrum stað. Elsku mamma, ég þakka þér fyrir allt sem þú ert mér. Megi almáttugur guð yfir þér vaka, hvíl í friði elsku mamma mín. Þinn sonur Ási, Ásmundur Vilhjálmsson. Elsku Maja, ég ætla í nokkrum orðum að minnast þín og þakka fyrir samfylgdina í gegnum árin. Það var fyrir 13 árum, þegar við Ási kynnt- umst að ég hitti Maju fyrst. Mér var vel tekið og fannst ég strax verða ein af fjölskyldunni því fljótlega eftir að við Ási fórum að vera saman þróaðist það þannig að við vorum mikið hjá Maju í Ljósalandinu. Þegar þú svo flytur á Langholtsveginn flytjum við Ási með og útbúum okkur notalegt heimili hjá þér í kjallaranum, það var nú oft ansi skemmtilegt hjá okkur þar og kannski svolítið ítölsk stemmning, vil ég meina, því við Ási fengum að fikra okkur áfram við matseld í eld- húsinu hjá þér, en aftur á móti þegar alvöru matur var á borðum þá sást þú um alla eldamennsku og við hrærðum í pottunum. Svo fór Ási í matreiðslu- nám, eftir það fengum við Maja bara að hræra í pottunum. Barnabörnin þín voru þér kær, á síðastliðnum árum hefur hópurinn þinn stækkað jafnt og þétt, alls orðin sjö talsins og von á því áttunda með vorinu. Þegar þú tókst til við prjónana urðu til fallegar flíkur og handbragðið svo einstaklega fallegt, prjónarnir hreinlega dönsuðu í höndum þér, allar húfurnar, treflarnir og hosurnar sem þú prjónaðir á barnabörnin, að ég tali nú ekki um þegar þú prjónaðir vesti á alla strákana í fjölskyldunni á nokkr- um dögum og þeir notuðu þau við jólafötin sín. Það að stórfjölskyldan skyldi hitt- ast í hádeginu á jóladag var hefð sem þú hélst í heiðri, þá komum við öll og borðuðum saman og áttum notalega stund hjá þér á Langholtsveginum. Hugljúfar minningarnar streyma fram ásamt tárunum sem fylgja sár- um söknuði. Mér hefur alltaf fundist þú eiga svolítið í mér Maja mín, það er góð tilfinning. Elsku Maja, megi góður Guð þér fylgja, minningin um þig mun ávallt lifa. Þín tengdadóttir Svana. Svanhildur F. Jónasdóttir. Síðast þegar ég sá ömmu Maju bökuðum við saman Cappuccino köku sem heppnaðist bara mjög vel. Þegar við vorum búnar að baka buðum við mömmu og pabba í kaffi og köku. Ég ætlaði að fara til ömmu Maju síðast- liðinn föstudag. Ég vona að henni líði vel á himnum. Þitt næst elsta barnabarn. Valgerður Anna Einarsdóttir. ✝ Ingveldur Gísla-dóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði 4. apríl 1904. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 21. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Gísli Bergsveinsson, f. 13.7. 1877, d. 15.5. 1939, og Jóna Sigríð- ur Guðmundsdóttir, f. 30.6. 1867, d. 16.1. 1909. Ingveldur átti tvö alsystkini, þau Lárus Ágúst og Jónu Sigríði, ein systir, Sigríður, dó ný- fædd. Móðir hennar dó þegar hún var fjögurra ára gömul og síðar giftist faðir hennar Magðalenu Kristjánsdóttur, f. 13.11. 1897, d. 2001, og var hún fóstra Ingveldar. Gísli og Magðalena áttu saman fimm börn. Ingveldur ólst upp í Rauðseyjum á Breiðafirði. Ingveldur giftist hinn 15. nóv- ember 1925 Guðmundi Kristni Kristjánssyni úr Bjarneyjum í Breiðafirði, f. 20.7. 1900, d. 22.8. 1959, og var hann albróðir Magðalenu. Ingveldur og Guð- mundur settust að á Patreksfirði. Hún var húsmóðir og hann verslunar- maður. Saman eign- uðust þau tíu börn, þau Gísla, f. 1925, Kristján, f. 1927, d. 1974, Gyðu, f. 1928, d. 2002, Höskuld, f. 1929, Erling, f. 1931, Kristínu, f. 1932, Ólínu, f. 1936, Rögnu, f. 1938, Jón, f. 1940, og Hrafn- hildi, f. 1946. Áður átti Guðmundur son- inn Magnús, f. 1920. Barnabörn Ingveld- ar eru 35 og samtals eru niðjar hennar 120. Á Patreksfirði bjó hún til ársins 1968 en þá fluttist hún í Kópavog og settist að á Álfhólfsvegi hjá Rögnu, dóttur sinni. Eftir að hún kom í Kópavoginn starfaði hún nokkurn tíma hjá Útgerðarfélag- inu Barðanum. Síðustu fjögur ár ævi sinnar dvaldi hún á hjúkrun- arheimilinu Sunnuhlíð. Útför Ingveldar fór fram frá Kópavogskirkju hinn 3. mars. Jarðsett verður í Patreksfjarðar- kirkjugarði í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. Nú er komið að kveðjustund. Ingv- eldur amma er fallin frá 100 ára göm- ul. Hún flutti til okkar á Álfhólsveg- inn þegar við vorum barnung og saman gengum við veginn þar til við fluttum úr foreldrahúsum. Áður höfðum við farið í sumarleyf- um vestur á Patró og dvalið í fína húsinu hennar á Klifinu. Hjá ömmu var alltaf glerfínt og kattþrifið. Húsið hennar fyrir vestan var ævintýraheimur. Allir hlutir á sínum stað og allt svo fallegt. Hjá henni var regla á öllum hlutum og hún skammaði okkur umbúða- laust þegar ekki var gengið frá eða skónum raðað. Hún var dugnaðarforkur. Eld- snögg hljóp hún upp og niður stig- ana, skrapp í búðina, og eins og hendi væri veifað voru veitingar fram reiddar. Á Álfhólsveginum var ekki slórað. Hún vann í fiskvinnslunni Barðanum og oftar en ekki fór hún gangandi til vinnu yfir móann og hoppaði yfir lækinn. Þar unnum við systurnar tvö sum- ur og fylgdumst með henni að störf- um. Hún var iðin og snyrti fiskinn hratt og örugglega. Þegar heim var komið var hún snögg að skipta um föt og hengja vinnugallann út á snúru. Hún var alltaf fín, átti peysuföt og upphlut og keypti sér vandaðan fatn- að. Hún sinnti félagslífinu í Kópavogi af fullum krafti og eftir að við fengum bílpróf fórum við ófáar ferðir með ömmu í Félagsheimilið á mannfagn- aði. Amma naut þess að hafa nóg fyrir stafni og hafa fólk í kringum sig. Hún var gestrisin og þær voru margar pönnukökurnar sem hún bakaði fyrir gesti og heimilismenn. Hún var reglumanneskja á vín og tóbak, en bauð upp á slíkan munað við hátíðleg tækifæri. Á aðfangadag, rétt fyrir aftansöng, púaði hún vindil til þess að fá jólalykt í húsið, eins og hún orðaði það. Aðra daga notaði hún ekki tób- ak. Hún ferðaðist bæði heima og er- lendis og hætti því ekki fyrr en hún var orðin 95 ára en þá mjaðmabrotn- aði hún og eftir það hrakaði heilsu hennar. Amma fagnaði 100 ára afmæli í fyrra í hópi ættingja og vina. Margir heiðruðu hana á afmælisdaginn og sjálf var hún drottning dagsins og bar aldurinn með reisn og prýði. Amma kvartaði aldrei og var alltaf sami skörungurinn. Hennar er saknað en fari hún í friði og í þökk fyrir allt og allt. Jóhann, Rannveig, Íris og Bergsveinn. INGVELDUR GÍSLADÓTTIR Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON, Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis í Álftamýri 49, er lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 24. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 7. mars kl. 15.00. Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Úlfhildur Ebeneserdóttir, Hörður Guðmundsson, Anna Margrét Tryggvadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurgeirsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur R. Vilbertsson, Guðveig Nanna Guðmundsdóttir, Sigurður Grétar Geirsson, Guðlaugur Björn Guðmundsson, Anna María Valdimarsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Dagbjört Erla Ásgeirsdóttir og afabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SVAFARS HELGASONAR, Sauðármýri 3, Sauðárkróki. Guð blessi ykkur öll. Gunnhildur Magnúsdóttir, Hildur Svafarsdóttir, Jón Þór Ólafsson, Ólöf Svafarsdóttir Wessman, Wilhelm Wessman, Svavar Ásbjörnsson, Edda Björk Jónsdóttir, Linda Wessman, Knútur Rúnarsson, Róbert Wessman, Ýr Jensdóttir, Gunnhildur Wessman, Arnar Haraldsson, Arnþór Jónsson, Inga Lára Gylfadóttir, Ómar Andri Jónsson og langafabörn. Ástkær faðir okkar, afi og langafi, SVEINN VALDIMAR LÝÐSSON, Snorrabraut 30, sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt mánudagsins 28. febrúar, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 7. mars kl. 13. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Guðrún Sveinsdóttir, Jón Kristinn Sveinsson, Róbert Smári Guðjónsson, Halldór Örn Guðjónsson, Oktavía Hrund Jónsdóttir og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN JÚLÍA ELÍASDÓTTIR, Aðalsteini, Stokkseyri, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni föstudagsins 4. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Sævar Gunnarsson, Kristbjörg Eðvaldsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Geir Valgeirsson, Andrea Gunnarsdóttir, Borgar Benediktsson, Gunnar Elías Gunnarsson, Valgerður Gísladóttir og ömmubörn. Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRHALLUR BJÖRGVINSSON, frá Þorgerðarstöðum í Fljótsdal, til heimilis að Útgarði 6, Egilsstöðum, lést miðvikudaginn 2. mars síðastliðinn. Útförin mun fara fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 12. mars næstko- mandi kl. 14.00. Börn, barnabörn, tengdabörn, systkini og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.