Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 58
58 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Þeir eru ófáir, góðu tónlist-armennirnir sem hafa leikiðí sal Norræna hússins í
Reykjavík gegnum tíðina. Rúss-
neski píanóleikarinn Alexander
Vaulin bætist senn í hópinn, þar
sem hann held-
ur tónleika í
dag kl. 17. Á
efnisskrá tón-
leikanna eru
verkin Frá
tíma Holbergs (Svíta í gömlum stíl)
op. 40 eftir Edvard Grieg, Fantasía
op. 35 eftir Louis Glass, Kyllikki –
Þrjú lýrísk verk op. 41 eftir Jean
Sibelius og Sónata í g-moll eftir
Wilhelm Stenhammar.
Á efnisskrá Vaulins á tónleikumdagsins í dag eru því róm-
antísk verk frá fjórum Norð-
urlöndum; Svíþjóð, Finnlandi, Nor-
egi og Danmörku, en enn hefur
hann ekki glímt við íslensk verk.
Það er einmitt hluti af tilgangi
ferðar hans hingað til lands, að
safna að sér íslenskri píanótónlist,
og segist hann hafa orðið sér úti
um þó nokkuð af tónlist í ferðinni,
sem hann mun skoða á næstunni.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að
bæta íslenskum verkum á efnis-
skrá mína,“ segir Vaulin sem hefur
gefið út tvo geisladiska með nor-
rænni tónlist, en annar þeirra kom
út í október og inniheldur sömu
efnisskrá og heyrist á tónleikunum
í dag. „Ég mun áreiðanlega setja
saman fleiri efnisskrár með nor-
rænni tónlist eingöngu og vil þá
gjarnan hafa íslenska tónlist með.“
Alexander Vaulin býr og starfarí Danmörku, en er fæddur og
uppalinn í Moskvu. Hann hóf tón-
listarnám sjö ára að aldri við Tón-
listarskóla Gnesins og stundaði síð-
ar nám við
Tchaikovsky-tónlistarakademíuna
þar í borg, undir leiðsögn Ninu
Lelchuk, Kirill Vinogradov og
Piotr Romanovsky. Eftir að námi
lauk stundaði hann meistaranám
hjá Paul Badura-Skoda í Vín.
Þó að eingöngu norræn verk
verði á efnisskrá hans hér á landi
segist Vaulin leika jöfnum höndum
rússneska tónlist fyrir píanó, auk
franskrar tónlistar. „Yfirhöfuð hef
ég mest gaman af að spila tónlist
sem sjaldan heyrist, bæði nýrri og
eldri,“ segir hann.
Meðal yfirlýstra áhrifavalda í pí-
anóleik Vaulins er Vladimir
Ashkenazy, sem er Íslendingum
auðvitað að góðu kunnur. Vaulin
segir hann stórkostlegan tónlistar-
mann sem hafi haft mikil áhrif á
sig. „Hann var í raun óbeint kenn-
ari minn,“ segir Vaulin. „Ég
kynntist honum sjálfur aðeins lít-
illega vegna þess að hann flutti frá
Rússlandi þegar ég var fremur
ungur. En hann var náinn vinur
eins kennara míns, Ninu Lelchuk,
og hafði mikil áhrif á hana, sem
aftur hafði áhrif á mig. Hann er
stórkostlegur píanóleikari og per-
sónuleiki.“
Nafn Ashkenazys var útilokað
eftir að hann fór frá Sovétríkj-
unum á sínum tíma, og segist Vaul-
in því sjaldan hafa fengið tækifæri
til að heyra hann spila meðan hann
bjó þar sjálfur. „Eftir að ég flutti
til Danmerkur gat ég hins vegar
notið þess að heyra upptökur með
honum og oft og tíðum. Það var
mjög ánægjulegt að endurnýja
kynnin við þennan tónlistarmann,
sem ég ber svo mikla virðingu fyr-
ir,“ segir hann.
Til heiðurs Norðurlöndum
’Meðal yfirlýstraáhrifavalda í píanóleik
Vaulins er Vladimir
Ashkenazy, sem er Ís-
lendingum auðvitað að
góðu kunnur. ‘
AF LISTUM
Inga María
Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Alexander Vaulin heldur píanó-
tónleika í Norræna húsinu í dag.
Hjá Máli og menningu er komin út
Vísindabókin.
Vísindabókin er aðgengilegt og
ríkulega myndskreytt rit um sögu
vísindanna. Hér er greint frá 250
merkum vísindaafrekum frá upphafi
vega til dagsins í dag í máli og
myndum. Þannig fæst einstæð og
yfirgripsmikil sýn á það hvernig
skilningur mannsins á umhverfi
sínu hefur þróast
í tímans rás.
Bókin varpar ljósi
á það að vís-
indaleg hugsun
hefur ekki aðeins
gjörbreytt hvers-
dagslífi okkar,
heldur líka skyn-
bragði okkar á
það hver við erum og hvernig heim-
urinn er.
Fjallað er um merkileg framfara-
spor í líffræði, eðlisfræði, stjörnu-
fræði, heimsfræði, jarðfræði, lækn-
isfræði og stærðfræði og er gerð
grein fyrir hverjum atburði, uppgötv-
un eða uppfinningu á einni opnu
með ljósum og liprum texta og lýs-
andi myndverki.
Vísindabókin er bók sem á erindi
til allra sem vilja fræðast um vísindi
og sögu mannsandans.
Bókin er 528. bls. Útgefandi: Mál
og menning. Þýðandi: Ari Trausti
Guðmundsson.
Fullt verð: 4990 kr. Tilboðsverð í
mars: 3490 kr.
Nýjar bækur
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 6/3 kl 14 - UPPSELT
Lau 2/4 kl 14 – AUKASÝNING
Su 3/4 kl 14 – AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Su 6/3 kl 20 - Umræður á eftir
Su 13/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20,
Lau 12/3 kl 20 - UPPSELT
Lokasýningar
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Fö 11/3 kl 20,
Fö 18/3 kl 20.
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Fi 10/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Lau 12/3 kl 20,
Lau 19/3 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15,
Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20,
Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Su 6/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 11/3 kl 20,
Su 12/3 kl 20, Fö 18/3 kl 20 - UPPSELT,
Lau 19/3 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Su 13/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20, Fi 7/4 kl 20,
Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Aðalæfing Fi 10/3 kl 20 - kr. 1.000,
Frumsýning Fö 11/3 kl 20,
Lau 12/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR:
OPEN SOURCE eftir Helenu Jónsdóttur
Su 6/3 kl 20
SÍÐASTA SÝNING
AUSA OG GUÐFRÆÐIN - umræður
Pétur Pétursson prófessor
Sr. Guðný Hallgrímsdóttir prestur fatlaðra
Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur
Guðrún Ásmundsdóttir stjórnar umræðum
Su 6/3 kl 20:50 - á eftir sýningu
15:15 TÓNLEIKAR - CAMMERARCTICA
Í dag kl 15:15
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“HREINLEGA BRILLJANT”
• Föstudag 18/3 kl 20 LAUS SÆTI
Takmarkaður sýningafjöldi
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
EB DV
Lau 05.3
Sun 06.3
Fim 10.3
Fös 11.3
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
Brotið
sýnir
eftir þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann
Það sem getur komið fyrir ástina
Sýningar hefjast kl. 20.00
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
8. sýn. 6. mars kl. 19 – Uppselt
9. sýn.12. mars kl. 19 – Uppselt – Síðasta sýning
AUKASÝNING: Fim. 10. mars kl. 20 – Styrkt af Vinafélagi Íslensku óperunnar
Örfá sæti laus
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst
Miðasala á netinu: www. opera.is
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Síðustu
sýningar
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 05.3 kl 20 UPPSELT
Sun. 06.3 kl 14 UPPSELT
Fös. 11.3 kl 20 Laus sæti
Lau. 12.3 kl 20 Laus sæti
Lau. 26.3 kl 14 Laus sæti
Lau. 26.3 kl 20 Laus sæti
Allra síðustu sýningar
Ath: Ósóttar pantanir
seldar daglega!
22öngskólans í ReykjavíkS SalurinnKópavogisunnudaginn6. marskl. 16sími 5 700 400Eingöngu miðasala á netinuþar til 1 klst. fyrir sýninguwww.salurinn.isaglR skar– ucciniP
sýnir
PATATAZ
fjölmenningarlegan
fjölskylduleik
Höfundur: Björn Margeir
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Sýnt í Stúdíó 4,
Vatnagörðum 4
Sun. 6. mars frumsýning
Fös. 11. mars
Fös. 18. mars
Lau. 19. mars
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir í s. 551 2525
midasala@hugleikur.is