Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 68
Morgunblaðið/Golli Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á landsþingi flokksins í gær. „SÆKJUM fram út frá miðjunni, bæði til hægri og vinstri,“ sagði Guðjón A. Krist- jánsson, formaður Frjálslynda flokksins, m.a. í setningarræðu sinni á landsþingi flokksins síðdegis í gær. Um hundrað landsþings- fulltrúar hlýddu á ræðu formannsins á Kaffi Reykjavík. Guðjón sagði m.a. að flokkurinn vildi standa fyrir einstaklingsframtaki og frelsi en varaði við of mikilli hægri eða vinstri sveiflu. „Látum ekki villa okkur sýn með of mikilli hægri sveiflu né vinstri villu.“ Guðjón kom víða við í ræðu sinni. Hann kynnti þar m.a. nýja tillögu í samgöngu- málum sem lögð hefur verið fram á lands- þinginu. Í henni er lagt til að átján til tuttugu jarðgöng verði gerð á tuttugu árum. Sagði hann að með slíkum samgöngubótum væri hægt að spara mikla fjármuni til lengri tíma litið. Þá kom fram í ræðu Guðjóns að flokk- urinn væri skuldlaus í fyrsta sinn. Allar ábyrgðir sem forystu- og miðstjórnarmenn hefðu tekið á sig persónulega, hefðu verið felldar niður. Kosið í embætti í dag Landsþingið heldur áfram í dag og fara þá m.a. fram umræður um sveitarstjórnarmál og stjórnmálaályktanir flokksins. Jørgen Nicla- sen, varaformaður Fólkaflokksins og fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra Færeyja, flytur einnig ávarp og svarar fyrirspurnum. Kosið verður í helstu embætti flokksins eftir hádegi. Tveir keppast um varafor- mannsembættið, því Gunnar Örlygsson þing- maður hefur boðið sig fram á móti sitjandi varaformanni, Magnúsi Þór Hafsteinssyni þingmanni. „Sækjum út frá miðjunni, bæði til hægri og vinstri“ MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Heilsukoddar Heilsunnar vegna Opi› í dag laugardag frá kl. 11-16 LYFJAVAL opnar í dag bílaapó- tek í Hæðarsmára í Kópavogi og er það fyrsta apótek sinnar teg- undar á Íslandi. Verða þar af- greidd lyf samkvæmt lyfseðlum, sem og lausasölulyf, í gegnum bílalúgur. Þorvaldur Árnason lyfsali í Lyfjavali segir þetta hafa í för með sér aukna þjónustu við þá sem eru hreyfihamlaðir, eru með börn í bílnum eða velja þessa leið þægindanna vegna. Hann segir að meira en 60% apóteka í Banda- ríkjunum séu nú með bílalúgur en þetta sé fyrsta slíka apótekið á Norðurlöndum./14 Fyrsta bílaapótek landsins verður opnað í dag við Hæðarsmára í Kópavogi Morgunblaðið/Þorkell Lyfin fást afgreidd í bílalúgu HJÖRLEIFUR Stefánsson arkitekt segir í viðtali við Lesbók í dag að umræða um verndun gamalla húsa sé komin í öngstræti hér á landi. „Hún snýst um átök þeirra sem vilja rífa og hinna sem vilja vernda og varð- veita. Mér þykir eðlilegt að gömul hús í bænum séu endurnýjuð, ef svo má kalla.“ Hjörleifur telur að í ljósi þess að gömlum timburhúsum hér á landi hafi iðulega verið margbreytt í gegnum tíðina sé eðlilegt að haldið sé áfram að byggja við þau og breyta þeim. Ástæðulaust sé að vernda þau í því ástandi sem þau séu nú, enda sé það sjaldn- ast upprunalegt, og það hafi jafnframt ótvírætt gildi að hlífa þessum húsum við niðurrifi. Umræðan komin í öngstræti FÉLAGSMENN í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur munu hver og einn eignast sinn eigin sér- eignasjóð hjá félaginu, svonefndan VR-varasjóð, verði tillaga stjórnar félagsins þar um samþykkt á aðal- fundi 14. mars. Lagt er til að hluti félags-, sjúkra- og orlofssjóðsiðgjalda félagsmanna renni í sérgreinda eign hvers fé- lagsmanns í varasjóði og er gert ráð fyrir að um 1.100 milljónir króna verði lagðar til sjóðsins í upphafi. Skilaði 660 milljónum í hagnað Sjóðinn getur svo hver og einn nýtt til ákveðinna verkefna að eigin vali svo sem símenntunar, ýmissa orlofsmála, forvarna og endurhæf- ingar eða til framfærslu t.d. við at- vinnumissi, heilsubrest eða við starfslok vegna aldurs, vegna fæð- ingarorlofs o.fl. Þessir fjármunir hafa hingað til runnið óskiptir í sameiginlega sjóði VR. Afkoma VR hefur verið mjög góð og skilaði félagið 660 milljóna kr. hagnaði á sein- asta ári. „Það er ekki hlutverk okkar að safna í digra sjóði,“ segir Gunnar Páll Pálsson, formaður VR. „Við veltum því fyrir okkur hvort við ættum að lækka gjöldin en nið- urstaðan varð sú að það væri kannski ekki svo mikið hjá hverjum og einum og réttara væri að beina þessum fjármunum inn á þessar brautir.“ Gert er ráð fyrir að 350 til 400 milljónir króna renni árlega í VR- varasjóði félagsmanna, sem eru um 22.000 talsins. Munu félagsmenn þannig eignast sjóð með um 45.000 kr. inneign að meðaltali – sumir meira, aðrir minna. Upphafsstaða hvers og eins er reiknuð út frá greiðslum til félagsins og því hve mikið viðkomandi hefur nýtt sér styrki og niðurgreiðslur úr sjóðum þess undanfarin ár. „Það má líkja þessu við útvíkkun á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóð- unum, en menn geta opnað þá fyrr,“ segir Gunnar Páll. Er þetta í fyrsta skipti sem stétt- arfélag hér á landi gefur fé- lagsmönnum sínum kost á endur- greiðslu iðgjalda inn á sérgreindan sparnaðarreikning með þessum hætti, skv. upplýsingum hans. Verði tillagan samþykkt tekur varasjóðurinn til starfa um næstu áramót. Stjórn VR leggur til að hluti iðgjalda renni inn á sérgreindan sparnað Félagsmenn fá tugi þúsunda inn á reikning Gunnar Páll Pálsson Stjórn VR áformar að setja 1.100 milljónir í varasjóð FÉLAGSMAÐUR í VR sem er með 280 þúsund kr. á mánuði safnar árlega rúmum 17.000 kr. í varasjóðinn eftir skatt. Eftir tíu ár og miðað við sambærileg laun og 5% ávöxtun er eign hans í varasjóðnum komin í 240.000 kr. og eftir 20 ár í rúmlega 600.000 kr. Félagsmaður með 140.000 kr. mánaðarlaun safnar árlega 8.500 kr. í varasjóðinn. Eftir tíu ár yrði inneign hans 120.000 kr. og eftir 20 ár 300.000 kr. Lagt er til á aðalfundi VR að sá hluti iðgjalda sem renni í varasjóðinn verði 20% af fé- lagsgjaldi, 30% af sjúkrasjóðs- gjaldi og 80% af orlofssjóðs- gjaldi. Safnað í varasjóð KURT Kopecky tónlistarstjóri Íslensku óperunnar andmælir því í grein í Lesbók í dag að Óperan hafi eytt almannafé „í vit- leysu“, eins og Jónas Sen hafi haldið fram í gagnrýni sinni á Óper- una. Raunin sé sú að Ís- lenska óperan hafi upp- fyllt öll skilyrði samn- ings síns við ríkið á fimm ára gildistímabili hans sem nú sé að renna sitt skeið á enda. „Íslenskir söngvarar og tónlistarmenn hafa sýnt fram á það ár- um saman að hægt er að setja upp vand- aðar óperusýningar á Íslandi,“ segir Kurt Kopecky. Almannafé ekki eytt í vitleysu Kurt Kopecky ♦♦♦ ♦♦♦ LYFJA hf. hefur keypt fyrirtækið Heilsu ehf. sem rekur þrjá verslanir undir nafn- inu Heilsuhúsið af stofnandanum, Erni Svavarssyni. Ingi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lyfju, segir Heilsu vera góða viðbót fyrir Lyfju. „Það er spennandi að fara inn á þennan geira, því heilsufæði og lífrænt ræktaður matur skiptir sífellt meira máli í daglegri neyslu fólks. Þá samræmist það mjög vel hlutverki Lyfju að selja vörur sem stuðla að betri heilsu og vellíðan.“/14 Lyfja kaupir versl- anirnar Heilsuhúsið „ÉG tel mikilvægt hversu málinu var vel tekið í ríkisstjórninni sem sýnir skilning á nauðsyn þess að ráðast í þá nauðsynlegu endurnýjun á tækjakosti Landhelgisgæslunnar sem svarar kröfum tím- ans,“ sagði Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, en ríkisstjórnin ákvað í gær að hefja undirbúning að því að endurnýja skipa- og flugvélakost Land- helgisgæslu Íslands. Ríkisstjórnin ákvað að tillögu ráðherrans að fela fulltrúum dóms- og kirkjumála- ráðherra og fjármálaráðherra, að kanna hvort leigja ætti eða kaupa varðskip og eft- irlitsflugvél, semja útboðsgögn og undirbúa málið að öðru leyti fyrir lokaákvörðun rík- isstjórnarinnar. Björn Bjarnason segir að fallið hafi verið frá þeirri hugmynd að ráð- ast í sérsmíði varðskips fyrir Íslendinga og í því felist ekki síst tímasparnaður. Mikið hafi verið unnið í málinu að undanförnu í ráðuneytinu og hjá Landhelgisgæslunni og nú liggi fyrir að kanna nánar hvaða form henti fyrirkomulagi á þessari endurnýjun, t.d. kaup eða leiga og annað í þessu sam- bandi./8 Undirbúa endurnýjun skipa- og flugkosts Björn Bjarnason ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.