Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 7
SÓLEYJARIMI 1-7 Í GRAFARVOGI
www.soleyjarimi.is
Glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4-6 hæða lyftuhúsi á mjög eftirsóttum stað. Fallegt útsýni er úr
íbúðunum og stutt í útiveru, golf, verslanir og alla þjónustu. Íbúðirnar, sem eru mjög aðgengilegar, eru fyrir 50
ára og eldri, hannaðar af Kristni Ragnarssyni arkitekt. Íbúðunum er skilað fullbúnum án gólfefna, með vönduð-
um eikar- og mahóníinnréttingum ásamt glæsilegum stáltækjum.
Íbúðirnar eru frá 60 til 106 fm og kosta 12,9-22,8 millj. kr. Húsinu verður skilað fullfrágengnu að utan með
steinaðri áferð, en klætt álklæðningu að hluta á stigahús og útbyggingar. Einnig verður hluti svalaganga
klæddur með hertu gleri. Lóð verður skilað frágenginni með malbikuðum bílastæðum, steyptum gangstéttum
og grassvæðum þar sem við á á lóð. Þak er steinsteypt og einangrað að ofan og þétt með þakdúk. Öllum
íbúðum á efri hæðum fylgja góðar svalir en hellulögð verönd með jarðhæðum.
533 4800
Björn Þorri, hdl., lögg. fast.sali. – Karl Georg, hrl.,lögg. fast.sali.