Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 16
Akureyri | Strákarnir úr KA gerðu það gott á Goðamóti Þórs í knattspyrnu sem fram fór í Boganum um helgina. KA- menn hlutu þrenn gullverðlaun, í keppni A-, C- og D-liða en Breiðablik varð Goðameistari í keppni B-liðanna og hafnaði í 2. sæti í keppni A- og C-liða. KA- menn mættust innbyrðis í úr- slitaleik D-liða. Alls mættu 18 félög víðs vegar af landinu til leiks með samtals 44 lið. Mótið hófst um miðjan dag á föstudag og var leikið á fjórum völlum fram á sunnudag en mótinu lauk með verðlaunaafhendingu um miðjan dag á sunnudag og grillveislu í kjölfarið, þar sem þátttakendum var boðið upp á Goðapyslur og Coke. Á mynd- inni eru nokkrir KA-menn að skoða bikarinn sem þeir unnu á mótinu. Morgunblaðið/Kristján KA-menn sigursælir Sigurvegarar Akureyri | Höfuðborgin | Austurland | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Hestamenn benda fólki á að gefa hest í fermingargjöf. Þetta er ekkert nýtt af nálinni meðal þeirra sem stunda hestamennsku, en þar hefur þessi siður tíðkast í gegnum tíðina. Hestamennska er eins og aðrar íþróttir af hinu góða, hvort sem hún er stunduð í at- vinnumennsku eða af einskærum áhuga fyrir því að umgangast skepnur og vera í góðu sambandi við náttúruna og umhverfið. Í Rangárþingi ytra hefur tíðkast um langt ára- bil að einstakir menn hafi atvinnu af ræktun hesta, tamningu og sölu. Þeir hafa þá gjarn- an verið með það sem hliðargrein við annan búskap eða aðra atvinnu. Á síðustu árum hef- ur þessu til viðbótar orðið sú þróun að fjöl- mörgum hestabúgörðum og tamningastöðv- um, bæði í eigu útlendinga og Íslendinga, hefur verið komið á laggirnar í héraðinu, þar sem hópur fólks hefur atvinnu allt árið. Á þessum hestabúgörðum fer fram öflug starf- semi við ræktun íslenska hestsins, uppeldi, tamningar, sýningar- og keppnisstarfsemi ásamt sölu- og markaðsstarfi. Á nokkrum þessarra búgarða hefur verið komið upp byggingum, oft nefndar reiðhallir, þar sem hægt er að temja og sýna hesta allt árið. Með tilliti til þessa vekur nokkra furðu að verkefni við að koma upp reiðhöll á Gaddstaðaflötum við Hellu skuli taka allan þann tíma sem raunin hefur orðið. Gaddstaðaflatir hafa ver- ið taldar framtíðar landsmótssvæði og ekki dregur úr þeim væntingum eftir glæsilegt landsmót hestamanna sem þar fór fram síð- asta sumar.    Síðasta sumar þótti afburðagott í öðru vin- sælu sporti á landinu, stangveiði. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá í haust var laxveiði á landinu u.þ.b. 35% meiri en árið áður og var þetta fjórða besta veiðiárið frá 1974. Jafn- framt var veiðin um 33% betri í fyrra en með- altal síðustu 30 ára. Að auki kemur fram að slegin voru fyrri veiðimet á laxi í 9 ám á land- inu, þar á meðal bæði í Ytri Rangá og Eystri Rangá sem voru hvor fyrir sig með fjölda veiddra laxa langt yfir öðrum ám. Lætur nærri að laxveiðin í Rangárvallasýslu hafi verið um 15% af allri laxveiði á landinu í fyrra ef allt er talið. Skv. upplýsingum frá Lax-á sem er söluaðili veiðileyfa í Rangárnar er verð veiðileyfa í sumar að hækka um 4–5% og stöngum verður fjölgað lítillega. Veiði- sumarið framundan lofar góðu þar sem fjöldi seiða í sleppingum jókst talsvert frá árinu áð- ur. Í Rangárþingi ytra er líka umtalsverð sil- ungsveiði ekki síst í Veiðivötnum og vötn- unum sunnan Tungnár. Það er bjart fram- undan ef að líkum lætur í veiði og tengdri ferðaþjónustu Rangæinga á þessu ári. Úr bæjarlífinu HELLA EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON FRÉTTARITARA Samgönguráðu-neytið, Ferðamála-samtök Íslands, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Fjórð- ungssamband Vestfjarða efna til ráðstefnu í vik- unni þar sem rædd verð- ur framtíð ferjusiglinga á Breiðafirði. Ferjusigl- ingar hafa verið á þessu svæði allt frá árinu 1932. Á ráðstefnunni verður leitað svara við því hvort ferjusiglingar séu nauð- synlegar vegna ferða- þjónustu og vetrar- samgangna. Leitað verður eftir vilja hags- munaaðila svo sem sveit- arstjórnarmanna, ferða- þjónustuaðila og íbúa svæðisins og á hvaða for- sendum veita ætti þessa þjónustu áfram. Á ráð- stefnunni verða flutt er- indi um málið og er hún öllum opin. Ráðstefnan verður haldin í Félags- heimilinu á Patreksfirði 16. mars og hefst kl. 14. Ferjusiglingar Dregið hefur verið í svonefndri Dewalt-getraunhjá fyrirtækinu Sindra, en dregið verður í get-rauninni þrisvar, í mars, apríl og maí. Verð- launin eru útvarp og Dewalt-hleðsluborvél. Framkvæmdastjóri félagsins, Bergþór Konráðsson, hefur dregið út nafn vinningshafa marsmánaðar og var það Valur Benediktsson hjá fyrirtækinu Rafval á Ak- ureyri. Valur segist hafa átt gamla vél sem fallið hafi í sjóinn og verið þar í sólarhring. Hann hafi þá náð henni upp aftur og hreinsað hana og hún hafi eftir það verið í góðu lagi. Engu að síður komi sér afskaplega vel að fá nýju hleðsluborvélina. Starfsmenn Sindra á Akureyri ásamt vinningshafa og syni hans, Sævar, Valur, Jóhann og Kjartan. Datt í lukkupottinn Konráð Erlendssonkvartar yfir hafísog harðindum, þó að hann viðurkenni að næturfrost sé ekki óvenjulegt í mars. Hann yrkir braghendur: Norðanáttin næðir köld um nef og vanga. Af heiðabrúnum fönnin fýkur, frostið hart um hörund strýkur. Niðdimm hríðin nístir hold og nagar sálir. Frostreykur úr fjörðum stígur, frerinn djúpt í jörðu smýgur. Sigrúnu Haraldsdóttur þykir gott að geta ort um veðrið eins og vanalega: Okkur hrellir kulda kast, kletta flengir bára. Vorið unga frosið fast í fangi gamla Kára. Sagt er að Jón biskup Þorkelsson Vídalín hafi ort er hann lagði á Kalda- dal í síðustu ferð sinni, en hann komst með naum- indum í sæluhús á leiðinni og lést þar: Herra guð í himnasal, haltu mér við trúna. Kvíði eg fyrir Kaldadal; kvelda tekur núna. Í kuldagreipum pebl@mbl.is Suðurland | Verkefnastjórn til að annast stefnumörkun í byggðamálum Suðurlands og Vestmannaeyja í því skyni að treysta samkeppnishæfni og vöxt svæðisins verður skipuð að því er Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ákveð- ið. Óskað er eftir því að verkefnisstjórnin taki mið af skýrslum sem nýlega voru unnar fyrir ráðuneytið og varða Eyjafjörð og Vest- firði. Gert er ráð fyrir að skilað verði skýrslu til ráðherra innan árs og í henni kom m.a. fram hvaða kostir koma helst til greina við að treysta vöxt og samkeppnishæfni svæð- isins. Með tillögunum á að fylgja áætlun um aðgerðir, markmið, forsendur, ábyrgð á framkvæmd og fleira. Markmið starfsins er fyrst og fremst að stuðla að auknum hag- vexti svæðisins, fjölga atvinnutækifærum og treysta byggðakjarna svo þeir geti enn frekar sinnt því lykilhlutverki að vera mið- stöð atvinnu, menningar og þjónustu. „Áherslur í starfinu eiga sér ekki langa sögu á sviði byggðamála hér á landi. Einkum er horft til uppbyggingar í formi svokallaðs vaxtarsamnings þar sem lögð er áhersla á klasa. Höfð verði hliðsjón að sambærilegum áherslum víða erlendis þar sem lögð er áhersla á að efla byggðakjarna með mark- aðstengdum aðgerðum þar sem atvinnulíf ber uppi hagvöxt svæða,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Formaður nefndarinnar er Baldur Pétursson, deildarstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Stefnumörk- un í byggða- málum Hrunamannahreppur | Íslenskar orku- rannsóknir og Hrunamannahreppur hafa samið um gerð auðlindakorts fyrir Hruna- mannahrepp. Er þetta í fyrsta skipti sem hreppur hér á landi ræðst í slíkt verkefni. Fram kemur í Pésa Hrunamannahrepps að verkið felst í gerð stafræns korta- grunns, kortlagningu jarðhitastaða og jarðfræði og yfirlits um borholur. Kristján Sæmundsson jarðfræðingur stjórnar rann- sókninni og verður hafist handa í vor. Orkusjóður hefur samþykkt að leggja þrjár milljónir til verkefnisins. Í Pésanum er þeim möguleika velt upp að rannsóknin kunni að leiða í ljós að unnt verði að framleiða rafmagn með jarðhita í framtíðinni og ylræktarbændur verði þannig sjálfum sér nægir í þessu efni. Gera auð- lindakort fyr- ir hreppinn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.