Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 29 UMRÆÐAN Í DESEMBER síðastliðnum tók norska ríkisstjórnin þá ákvörðun að ekki verði sett laga- ákvæði um refsingu fyrir kaup á kynlífi í Noregi. Svíar eru eina þjóðin í heiminum sem refsar aðeins kaup- endum kynlífs og nú er ljóst, að sænska leiðin nær ekki fram að ganga í Noregi. Nor- rænu dóminóáhrifin láta á sér standa. Því verður áhugavert að fylgjast með fram- vindu mála á Íslandi. Ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar byggist á skýrslu nefndar sem kannaði lagareglur um kaup á kynlífsþjónustu í Svíþjóð og Hollandi. („Sexkjøp i Sverige og Nederland“, JD Rapport 2004 – www.jd.dep.no. Skýrslan er einnig til á ensku, „Purchasing Sexual Services in Sweden and the Nether- lands“.) Hlutverk nefndarinnar var að kanna reynsluna af sænsku lög- unum um kaup á kynlífsþjónustu og benda á kosti og galla þeirra reglna sem gilda um vændi í Svíþjóð. Við vitum ýmislegt um nauð- arvændi á götunum, en eiginlega ekkert um hið dulda innanhúss- vændi eða eins og sænsk félags- málayfirvöld segja: „Því fínna sem vændið er, því minna er um það vit- að.“ Það hefur því ekki verið auðvelt að sýna fram á áhrif laganna um kaup á kynlífi á allan vændismark- aðinn. Hvorki félagsmálayfirvöld í Svíþjóð né starfshópur um vændi á vegum sænsku lögreglunnar hefur beint sjónum að innanhússmark- aðinum. Því er ekki vitað hve margir starfa á þeim markaði. Það kemur skýrt fram í þeim upp- lýsingum sem við höfum að óttinn við ofbeldi á götum úti hefur aukist. Það er raunar mjög rökrétt að lögin um kaup á kynlífi hafi almenn varn- aðaráhrif á venjulega, „fínni“ við- skiptavini. Þeir vilja ekki láta standa sig að verki. Þeir sem verða eftir á götunum eru því „ófínni“ við- skiptavinir. Rannsókn okkar sýnir einnig að kröfur um óvarið kynlíf hafa aukist, meiri hætta er á kyn- sjúkdómum, melludólgum sem ekki kemst upp um hefur fjölgað og eft- irlit félagsmála- og heilbrigðisyfir- valda er vandkvæðum bundið. Sænska leiðin er því ekki rétta leið- in til þess að bæta aðstæður þeirra sem stunda götuvændi. Hvað með mansal? Eftir að lögin um kaup á kynlífi voru sett fær lögregla ekki kærur eða vitnisburði um nauðung og mansal frá kaupendum kynlífs. Haft er eftir sænska ríkislögreglustjór- anum, að eftir áramót- in 1998/1999 hafi verið erfitt að fá við- skiptavini vænd- iskvenna til að bera vitni um hugsanlega melludólga eða aðra skipuleggjendur. Ástæða þess getur verið hræðsla við að vera kærður fyrir brot gegn lögunum um kaup á kynlífi. Í þessu samhengi verka sænsku lögin gegn því markmiði að berjast gegn mansali. Eitt atriði sem flækir opin skoðanaskipti við fylgjendur sænsku leiðarinnar er breytt mál- notkun þeirra í umræðu um kaup á kynlífi. Í fyrsta lagi er farið að nota hugtakið „verslun með kynlíf“ í staðinn fyrir „kaup á kynlífi“. Versl- un með kynlíf þýðir venjulega versl- un með konur og börn til að stunda vændi eða í öðrum kynferðislegum tilgangi, þ.e. mansal. Þegar Svíar tala um verslun með kynlíf eiga þeir við götuvændi. Í öðru lagi er farið að nota hug- takið „ofbeldi“ í annarri merkingu en þeirri sem telst til almennrar málvenju og hefðbundinnar lög- fræðilegrar merkingar. Þegar full- orðnir menn og konur stunda kynlíf af fúsum og frjálsum vilja gegn greiðslu eða án hennar er mjög und- arlegt að tala um að það sé ofbeldi af hálfu karlmanna. Í þriðja lagi er litið á vændi sem nauðung en líklega eru margar ástæður fyrir því að fólk stundar vændi. Bandarískur prófessor í lög- um og siðfræði, Martha Nussbaum, færir rök fyrir því að konur sem selja kynlíf vegna fjárskorts upplifi án efa brot á sjálfsákvörðunarrétti sínum, en að fátækt sem slík tak- marki mjög möguleika kvenna til að stjórna eigin lífi. Þess vegna telur Nussbaum að við verðum að virða og viðurkenna val þeirra. Nið- urstaða Nussbaum er sú að það sé hin félagslega og menningarlega stimplun af vændinu sem veldur al- varlegustum skaða fyrir einstak- lingana á vændismarkaðinum. Í sænskri rannsókn hefur verið sýnt fram á að 81% almennings er jákvætt gagnvart lögunum. Sem táknræn löggjöf hafa lögin um kaup á kynlífi ásamt viðhorfsherferðum líklega haft einhver áhrif. En þessi táknræna pólitík og mikill skortur á framtíðarsýn hefur því miður sínar neikvæðu hliðar og fyrir það gjalda vændiskonurnar. Norska ríkisstjórnin ákvað í des- ember 2004 að kaup á kynlífsþjón- ustu skuli ekki vera refsiverð um- fram það sem þegar leiðir af gildandi lögum. Í Noregi er nú refsi- vert að kaupa kynlífsþjónustu af unglingum undir 18 ára aldri. Það er einnig ólöglegt að stuðla að því að aðrir stundi vændi og mansal er refsivert. Þá er í gildi aðgerðaáætl- un gegn mansali með konur og börn. Nokkuð sem ekki er til í Svíþjóð. Niðurstaða norska dómsmálaráð- herrans, Dørum, var eftirfarandi: Það verður að koma í veg fyrir að konur séu til sölu, en við leysum ekki félagsleg vandamál með refs- ingum heldur félagslegum úrræð- um. Hvaða áhrif munu norska skýrsl- an og ákvörðun norsku ríkisstjórn- arinnar hafa á afstöðu Íslendinga til þessa máls? Nei, takk, ekki sænsku reglurnar um refsingu fyrir kaup á kynlífi Dr. Ulf Stridbeck prófessor fjallar um reglurnar um kaup á kynlífi ’Hlutverk nefndarinnarvar að kanna reynsluna af sænsku lögunum um kaup á kynlífsþjónustu og benda á kosti og galla þeirra reglna sem gilda um vændi í Svíþjóð.‘ Dr. Ulf Stridbeck Höfundur er dr. jur., prófessor við lagadeild Oslóarháskóla og formaður nefndarinnar sem kannaði hvort lög- festa ætti í Noregi ákvæði um refs- ingu fyrir kaup á kynlífi. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.