Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 14
14 lifun
minni álmur. Þegar inn er komið blasir við borðstofa og stofa, eldhús
þar inn af. Á hægri hönd er gengið upp á aðra hæð og í svefn-
herbergin sem eru inn af rúmgóðum gangi. Á vinstri hönd er sjón-
varpsrými og þar áfram í gegn rúmgott herbergi, í sér álmu ásamt
baðherbergi. Gluggarnir eru stórir og dagsbirtan áhrifamesta ljósið.
Ragnhildur og Sverrir réðust í töluverðar lagfæringar á íbúðinni. Þau
létu smíða nýja eldhúsinnréttingu, sem er með sprautulökkuðum
hurðum í beinhvítum lit, sömuleiðis skápur í forstofu. Þau settu upp
hvítar hurðir, eru að klára að gera upp baðherbergin, þau settu ný
gólfefni, gegnheila eik, sem og létu skipta um og samræma efni í
loftum.
Út frá hvaða áherslum gekkst þú við innréttingu íbúðarinnar?
„Ég vildi hafa yfirbragðið ljós og létt, milli þess að vera rómantískt og
nútímalegt. Ég held samt að ég hafi rosalega þröngan smekk og hjá
mér verða hlutirnir að vera á ákveðinn hátt – beinar línur og allt horn-
rétt, ég þoli ekki hlutina á ská. Það endurspeglast t.d. í versluninni
Noa Noa þar sem allar flíkur eru brotnar saman mjög beint og það
líkar mér!“
Hvernig lýsir þú eigin stíl?
„Hér áður var ég með miklu rómantískari stíl, vildi gamaldags
furuhúsgögn í antíkstíl, en fann síðan með tímanum þörf fyrir að
breyta til og skipti furunni út fyrir dekkri húsgögn í bland við ljósu
tónana sem ég hef alltaf haft í kringum mig. Í raun er ég hrifin af
tveimur litum eins og endurspeglast á heimilinu – þungum
dökkbrúnum lit sem og ljósum ásamt leðri. Mér finnst samt erfitt að
lýsa mínum stíl. Hann er þröngur og ákveðinn, hreinar og beinar línur.
Ég er rosalega mikil kertakona og í litlu íbúðinni sem við bjuggum í
áður töldu vinkonur dóttur minnar eitt sinn um 30 kerti og stjaka í
stofunni. Ég á alls staðar litla hluti sem er haganlega fyrirkomið, þar
sem það þurfti í litlu íbúðinni, og sem mér finnst síður passa inn hjá
mér í dag í þetta opnu rými og stóru. Hér þarf eitthvað annað og
innlit