Morgunblaðið - 12.05.2005, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Er mamma þín heima, strákstauli?
Mikil gróska hefurverið í lóðaúthlut-unum stærstu
sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu síðustu
misseri, framboð af ný-
byggingum er mikið og
hlutur sérbýla fer vaxandi.
Að sögn Ellýjar Er-
lingsdóttur, formanns
skipulags- og byggingar-
ráðs Hafnarfjarðar, er
áformað að úthluta a.m.k.
hátt í 800 íbúðum á þessu
ári en þær voru 830 í fyrra.
Á Norðurbakkanum,
bryggjuhverfi Hafnfirð-
inga, er gert ráð fyrir að rísi sam-
tals 440 íbúðir, 78 við Reykjavík-
urveg og Flatarhraun og 425 á
Völlum V og 220 á Völlum VI. Þá
er stefnt að því að ljúka skipulagi á
svæðunum Ásland 3 og 4, samtals
um 550 íbúðir, þannig að lóðirnar
verði tilbúnar til úthlutunar á
þessu ári eða því næsta. Ellý segir
þetta gert í ljósi gríðarlegrar
spurnar eftir sérbýlishúsalóðum,
en mikið er af þeim í Áslandi 3 og
4.
Þá gera fyrstu hugmyndir ráð
fyrir að um 320 íbúðir rísi á svo-
nefndu „Olíudreifingarsvæði“ á
Holtinu árið 2006. Svæðið er í eigu
einkaaðila sem eru með áform um
uppbyggingu næstu árin. Ellý seg-
ir að sú stefna hafi verið tekin að
flýta skipulagsvinnu á óbyggðum
svæðum vegna mikillar eftir-
spurnar eftir lóðum.
Samkvæmt tölum yfir lóðaút-
hlutanir í Reykjavík var samtals
úthlutað lóðum undir 428 íbúðir á
síðasta ári, þar af 264 fjölbýlis-
húsaíbúðir, 98 rað/parhús og 13
einbýli. Þar af var 375 íbúðum ráð-
stafað í Norðlingaholti. Ekki liggja
fyrir tölur um úthlutanir fyrir árið
í ár en Dagur B. Eggertsson, for-
maður skipulagsráðs, segir stefna
í metár hvað úthlutanir snertir.
Flestar úthlutanir eru sem fyrr í
Norðlingaholti, og við Úlfarsfell.
Þó ber að gæta þess að tölur yfir
úthlutanir lóða gefa ekki rétta
mynd af byggingaráformum. Ef
litið er til fullgerðra íbúða skv. töl-
um frá byggingarfulltrúa, þ.m.t.
nýbyggingar, smáíbúðir (náms-
manna-, hjúkrunaríbúðir) og íbúð-
ir sem áður voru atvinnuhúsnæði,
sést að þær voru í Reykjavík 454
árið 2002, 962 árið 2003 og 885 í
fyrra. Samkvæmt tölum yfir fok-
heldar íbúðir (hafin smíði á nýjum
íbúðum) voru þær 682 árið 2002,
735 árið 2003 og 885 í fyrra. Þá er
ótalin uppbygging 98 námsmanna-
íbúða á Lindargötu og 200 í Graf-
arholti. Samtals gerir Dagur ráð
fyrir að á bilinu 1.400–1.500 íbúðir
verði staðfestar á skipulagi fyrstu
sex mánuði þessa árs.
Á næstu árum eru m.a. áform
um uppbyggingu 500 íbúða á
Slippasvæði-Mýrargötu og síðar á
árinu er stefnt að því að ganga frá
samningum um uppbyggingu tón-
listar- og ráðstefnuhúss og skipu-
lagi við Austurhöfn þar sem rými
skapast fyrir hundruð nýrra íbúða.
Þá er ótalin uppbygging á Lauga-
vegi, Hverfisgötu og Skuggahverfi
og víðar auk þess sem verið er að
skoða nýtingu hafnarsvæða undir
íbúðabyggð frá Örfirisey í vestri
að Elliðavogi í austri.
Mikil uppbygging hefur verið í
Kópavogi undanfarin ár. Í Kóra-
hverfi er gert ráð fyrir 1.100 íbúð-
um og að hverfið verði fullbyggt
2008. Að sögn Birgis H. Sigurðs-
sonar, skipulagsstjóra Kópavogs,
hefur einbýlishúsabyggð farið vel
af stað og byggst hraðar upp en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Reiknað
er með að norðursvæði Vatns-
endahverfis verði svo til fullbyggt í
haust og að Hvörfin verði sömu-
leiðis fullbyggð í ár. Gert er ráð
fyrir að í svonefndu Þingahverfi
rísi 280 íbúðir og öldrunarþorp á
vegum Hrafnistu og að meginupp-
byggingin verði 2007 en fram-
kvæmdir hefjast á næsta ári. Þá er
áformað að hefja framkvæmdir í
Lundahverfi á næsta ári en þar
munu rísa 380 íbúðir. Einnig er
verið að leggja lokahönd á skipu-
lag Bryggjuhverfis Kópavogs í ut-
anverðum Fossvogi. Birgir segir
gróft á litið mega reikna með að
750 nýjar íbúðir verði fullbyggðar í
árslok 2005, þ.e. sem framkvæmd-
ir hafa staðið við sl. 2 ár.
1.900 íbúðir í Blikastaðalandi
Að sögn Haraldar Sverrissonar,
formanns skipulags- og bygging-
arnefndar Mosfellsbæjar, er gert
ráð fyrir að um 1.900 íbúðir rísi á
svonefndu Blikastaðalandi í eigu
Íslenskra aðalverktaka til ársins
2024, þar af verður helmingur (900
íbúðir) fullbyggður 2012. Rúmur
þriðjungur húsa þar verður sér-
býli og tæpir 2⁄3 hlutar fjölbýli. Þá
er gert ráð fyrir 800 nýjum íbúð-
um í Helgafellslandi, sem er einnig
í eigu einkaaðila, fyrir árið 2012.
Þá áformar bærinn að úthluta 200
íbúðum í Krikahverfi í haust, og
gert er ráð fyrir uppbyggingu 50
íbúða í Grænumýri 2006–8.
Í Garðabæ stendur yfir
uppbygging í Sjálandi en þar er
gert ráð fyrir að rísi alls um 750
íbúðir. Þá eru áform um upp-
byggingu 470 íbúða í Akrahverfi,
þar af 141 einbýlishúsalóð, sem
byggist upp á árunum 2006–9.
Landið er í einkaeigu. Þá er gert
ráð fyrir um 50–60 íbúðum í par-
og raðhúsum í Hraunsholti en
deiliskipulagið hefur enn ekki ver-
ið auglýst.
Fréttaskýring | Lóðaframboð og íbúða-
framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu
Mikil spurn
eftir sérbýli
Stefnir í 1.500 staðfestar íbúðir á skipu-
lagi borgarinnar fyrstu 6 mánuði ársins
Horft er til uppbyggingar kringum Hlemm.
1.000 nýjar íbúðir á
Hlemmi Plús
Vinna er að hefjast við
rammaskipulag fyrir „Hlemm
Plús“ svæðið við Snorrabraut og
Borgartún með allt að 1.000 nýj-
um íbúðum á komandi árum.
Nokkrir reitir eru nú í hags-
munaaðilakynningu, s.s. Baróns-,
Bílanaustsreitur, en ætlunin er
að skipuleggja svæðið í heild út
frá umferð, útivistarsvæðum,
verslun, þjónustu, o.fl. Dagur B.
Eggertsson segir svæðið næsta
„háhitasvæði“ Reykvíkinga.
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is