Morgunblaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 49
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar ÁLFABAKKI
Fyrsta stórmynd sumarsins
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR
Geggjaðasta og frumlegasta
grínmynd ársinser komin í bíó.
Byggð á einni vinsælustu bók
alheimsins eftir Douglas Adams.
j l
í i i í í .
i i i l
l i i i l .
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
HITCHHIKER´S GUIDE... VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
THE JACKET kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
SAHARA kl. 5.30- 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8 - 10
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 8.15 - 10.30
MRS. CONGENIAL. 2 kl. 6
HITCHHIKER´S...
kl. 8 - 10.10
XXX2 KL. 8 - 10
HITCHHIKER´S GUIDE...
kl. 6 - 8 - 10
SVAMPUR SVEINSSON kl. 6
Jacket kl. 8 - 10
SLÓ RÆKILEGA Í GEGN
Á ÍSLANDI, USA OG Á BRETLANDI
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE WEDDING DATE létt 96,7 forsýning kl. 8
SAHARA kl. 8 - 10.10
THE ICE PRINCESS kl. 6
BOOGEY MAN kl. 10.30 B.i. 16. ára
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6
DV
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
pálmann, sjálfri aðalkeppninni og
þeirri mikilvægustu. Þar keppa í
ár tuttugu og ein mynd, sem eru
óvenju margar myndir. Sem fyrr
koma myndirnar úr öllum áttum,
eða reyndar ekki öllum, engin
mynd er t.d. frá Bretlandi, engin
frá Svíþjóð, engin frá Noregi,
engin frá Finnlandi, engin frá Ís-
landi. Ein er frá Danmörku; nýj-
asta mynd Lars Von Triers,
Manderlay, enda er hann aðal eft-
irlæti æðstuprestanna hér í
Mekka kvikmyndalistarinnar,
löngu kominn í tölu heilagra
manna. Hins vegar eru fimm
myndir frá Bandaríkjunum, þrjár
frá Frakklandi, þrjár frá Kína,
tvær frá Kanada, tvær þýskar og
ein frá eftirfarandi löndum; Jap-
an, Írak, Mexíkó, Ítalíu, Belgíu,
Ísrael og S-Kóreu.
Vonlaust er á þessu stigi aðsegja til um hvaða myndir
eru sigurstranglegri en aðrar. En
þegar litið er til sögunnar og
þeirra góðkunningja Cannes sem
eiga myndir á hátíðinni þá er erf-
itt að sjá það gerast að þeir fari
tómhentir heim, átorar á borð við
Von Trier, sem hefur komist með
allar myndir sínar í fullri lengd í
aðalkeppni og unnið fjórum sinn-
um til verðlauna, Jim Jarmuch,
sem hefur sex sinnum átt myndir í
keppni, unnið þrisvar sinnum og á
nú í aðalkeppni Broken Flowers
með Bill Murray, Wim Wenders,
sem átta sinnum hefur átt mynd í
keppni, unnið fjórum sinnum til
verðlauna og er nú með myndina
Don’t Come Knocking í aðal-
keppni. Þá eru ónefndir þunga-
vigtarmenn á borð við Gus Van
Sant, sem vann Gullpálmann fyrir
tveimur árum fyrir Elephant og
er nú með í aðalkeppni með Last
Days, David Cronenberg, Atom
Egoyan, Michael Haneke og Ro-
bert Rodriguez. Síðastnefndi á
e.t.v. umtöluðustu mynd hátíð-
arinnar það sem af er, Sin City,
en þessi kvikmyndagerð á sam-
nefndum margrómuðum mynda-
sögum hefur vakið talsverða at-
hygli eftir að hún var frumsýnd í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
Sker hún sig líka frá öðrum
myndum í keppni hvað það varðar
að hún er sú eina sem skartar
skærum Hollywood-stjörnum,
jafnvel þótt myndin sjálf hafi ekki
verið gerð í Hollywood heldur á
búgarði Rodriguez í Austin, Tex-
as, þar sem hún var öll tekin í
heimalöguðu myndveri hans með
aðstoð stafrænnar mynd- og
tölvutækni. Má því ætla að birti
verulega yfir Croisettunni þegar
stjörnur myndarinnar; Bruce
Willis, Jessica Alba, Mickey
Rourke, Benicio Del Toro, Elijah
Wood, Clive Owen, Brittany
Murphy og Rosario Dawson,
ganga eftir rauða dreglinum upp
tröppurnar að Lumiére kvik-
myndasalnum í Hátíðarhöllinni á
miðvikudaginn eftir viku.
Stjörnufansinn verður þó hvaðmestur á sunnudag þegar
lokakafli, eða þriðja myndin, eftir
því hvernig á það er litið, í
Stjörnustríðsbálknum verður Evr-
ópufrumsýnd. Hafa nær allar
stjörnur myndarinnar boðað
komu sína til Cannes og mun hitta
þar fyrir æsta aðdáendur sína og
jafnvel enn æstari blaðamenn sem
eygja þar feitasta bita hátíð-
arinnar í ár, enda gerast þær vart
stærri fréttirnar í kvikmynda-
heiminum þegar ný Stjörnustríðs-
mynd er frumsýnd. Og ólíkt
tveimur síðustu myndum stendur
myndin sjálf, útkoman, undir allri
athyglinni, öllu fjölmiðlafárinu,
eða því sem næst. Þótt yfirdrifin
sé, samtölin stirð og æði misjafn-
lega vel leikin þá er styrkur
myndarinnar samt svo mikill að
hún nær svo gott sem að bæta fyr-
ir skaðann sem fyrsti og annar
hluti hafa valdið og kemst næst
gömlu þremur að gæðum og
skemmtanagildi. Um þetta virðast
flestir þeir miðlar sem birt hafa
gagnrýni sammála, sem mun vafa-
lítið gefa enn þá sterkari vind í
seglin og gera myndina farsælli
en hún hefði fyrir orðið.
Í dag verður svo heims-
frumsýnd utan keppni, nýjasta
mynd Woodys Allens, Match
Point, en það mun vera fyrsta
myndin sem hann tekur upp í
Lundúnum, drama með Scarlett
Johansson í aðalhlutverki.
En hvað svo sem öllum þessum
erlendu stórmyndum líður þá
beinast sjónir Íslendinga sem hér
í Cannes eru staddir og vænt-
anlega þeirra sem heima eru að-
allega að íslensku myndunum
tveimur sem hlotnast hefur sá
heiður að fá að vera með í aðal-
dagskrá hátíðarinnar. Íslenskar já
– þær eru reyndar ekki skrifaðar
íslenskar hér á hátíðinni, hvorug
þeirra, því Voksne mennesker eft-
ir Dag Kára er strangt til tekið
dönsk mynd, gerð að mestu fyrir
danskt fjármagn (Zik Zak eru ís-
lenskir meðframleiðendur) með
dönsku tökuliði, dönskum leik-
urum og gerist í dönskum veru-
leika á dönsku; og Slavek The
Shit, stuttmynd Gríms Há-
konarsonar er samkvæmt ströng-
ustu reglum tékknesk því hún er
útskriftarverkefni hans frá FAMU
kvikmyndaskólanum í Prag. Einn-
ig verða svokallaðar markaðs-
sýningar á tveimur nýjum íslensk-
um myndum, Í takt við tímann og
Gargandi snilld. Íslendingarnir á
staðnum þurfa því að hafa sig alla
við að koma þeim skilaboðum
áleiðis að hér sé í raun um ís-
lenskar myndir að ræða, þegar
betur er að gáð – eða þannig. Það
er nefnilega þannig að þótt sú
göfuga hugsun eigi að vera við
lýði að þjóðernið eigi ekki að
skipta máli þegar kvikmyndalistin
er annars vegar þá virkar kvik-
myndahátíð stundum eins og
íþróttakappmót – og getur hátíðin
í Cannes þá vart verið minna en
Ólympíuleikarnir.
skarpi@mbl.is
Hluti dómefndarinnar. Agnes Vardav, leikstjóri frá Frakklandi, leikkonan Nandita Das frá Indlandi, Emir Kustu-
rica, formaður nefndarinnar, Salma Hayek og rithöfundurinn Toni Morrison.