Morgunblaðið - 12.05.2005, Side 10

Morgunblaðið - 12.05.2005, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁÆTLAÐ er að kosta muni á bilinu sjö til níu milljarða króna að breyta þeim 954 fjölbýlum aldraðra á hjúkrunarheimilum í einbýli og byggja ný. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þing- manns Samfylkingarinnar, á Alþingi. Tæplega 1.000 aldraðir deila herbergi með öðrum Fram kom í vetur í svari við annarri fyrirspurn Björgvins að tæplega 1.000 aldraðir deila her- bergi með öðrum á öldrunarstofnunum og eru þá frátalin hjón og sambýlisfólk. Í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigð- isráðherra kemur fram að unnið hafi verið að endurbótum á nokkrum hjúkrunarheimilum á undanförnum árum, m.a. með fækkun fjölbýla. „Undanfarin ár hefur tiltækt árlegt fram- kvæmdafé til framangreindra endurbóta, og allra annarra endurbóta og nýbygginga á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, ann- arra en tveggja stærstu sjúkrahúsanna, verið tæpar 900 millj. kr. Því er ljóst að mjög langan tíma tekur að ljúka þessum verkefnum fáist ekki verulega auknar fjárveitingar,“ segir í svari ráðherra. Kostar 7 til 9 millj- arða að breyta fjölbýl- um aldraðra í einbýli ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra segir að samráð verði haft við sveitarfélög, aðra opinbera aðila og samtök sumarbústaðaeigenda um hvernig bregðast eigi við ef nýlegur dómur Hæstaréttar hafi þau áhrif að fólk muni í auknum mæli sækjast eftir að hafa fasta búsetu í frístundabyggð. Verði niðurstaðan sú að lagabreytinga sé þörf sé gert ráð fyrir að frum- varp verði lagt fram á haust- þingi. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Þuríðar Backman, þingmanns VG, á Alþingi. Segir í svarinu, að tíminn einn geti skorið úr um það hvort dómur Hæstaréttar hafi þau áhrif að fólk muni í auknum mæli sækj- ast eftir að hafa fasta búsetu í frístundabyggð, en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, að þeir sem hafa fasta búsetu í frí- stundabyggð geti skráð lögheimili sitt þar. Fram kemur að samkvæmt lögum um tilkynn- ingu aðsetursskipta hafi sveitarfélag umsagnarrétt um þá sem vilja skrá lögheimili sitt í sveitarfélagi og geti sveitarfélag mótmælt breytingu á lögheim- ilisskráningu. Það verði því ekki séð að það sé nauðsynlegt að koma með lagabreytingu á vor- þingi. Mikilvægt sé að íhuga málefni þetta frá öllum hliðum og í samráði við viðkomandi aðila, þ.e. Hag- stofu Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, umhverfisráðuneyti og Skipulagsstofnun ríkisins. Sú vinna standi nú yfir í félagsmálaráðuneyti. Lagasetning ekki útilokuð Árni Magnússon BREYTA á núverandi fyrirkomulagi á skoðun kvik- mynda í veigamiklum atriðum skv. drögum að frum- varpi um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum, sem unnið er að í menntamálaráðuneytinu. Meðal nýmæla sem frumvarpið byggist á er að lögfest verði skylda til að meta eða láta meta tölvu- leiki sem framleiddir eru eða dreift hér á landi með sambærilegum hætti og kvikmyndir. Þetta kemur fram í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Steinunnar K. Pétursdóttur, varaþings- manns Frjálslynda flokksins. Stefnt er að framlagn- ingu frumvarpsins þegar Alþingi kemur saman í haust. Lögfesta verði skylda til að meta tölvuleiki HALLDÓR Ásgrímsson for- sætisráðherra sagði á Alþingi í gær að reglur um fjármálastarf- semi stjórnmálaflokka mættu ekki verða til þess að flokkar ættu enn erfiðara með en nú að afla sér fjár til starfsemi sinnar. Hann sagði það reynslu sína af stjórn- málastarfsemi að flokkar berðust í bökkum; þar væru engar „pen- ingamaskínur“ á ferð. Kom þetta m.a. fram í um- ræðum um skýrslu ráðherra um fjárframlög til stjórnmálastarf- semi. Í skýrslunni kemur m.a. fram að framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokkanna hafi aukist um rúmlega 60% á árunum 2000 til 2005, eða úr 182,7 milljónum króna í 295 milljónir króna. Eng- ar nákvæmar upplýsingar liggja fyrir um framlög einstaklinga eða fyrirtækja til stjórnmálaflokka. Halldór fór yfir efni skýrslunn- ar og rifjaði upp að nefnd frá árinu 1995, skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka, hefði komist að þeirri niðurstöðu á sínum tíma, að ekki ætti að setja sérstök lög um starfsemi eða fjárreiður stjórn- málaflokka. veg fyrir að það sjáist hvaða fyr- irtæki eru að styðja menn, að það sé gert með þeim hætti, að þessar viðskiptablokkir dreifi fjárfram- lögum sínum á einstök fyrirtæki, sem á bakvið þessar viðskipta- blokkir standa?“ Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ítrekaði að það þyrfti að setja rammalöggjöf um fjármál og stjórnmál á Íslandi. Slík löggjöf þyrfti m.a. að kveða á um mikilvægi þess að stutt sé við stjórnmálastarfsemi með fjár- framlögum. „Það þurfa að vera skýrar reglur um það með hvaða hætti opinberir aðilar styðja við lýðræðið og styðja við stjórnmála- starfsemi. Það þarf líka að taka tillit til aðstöðumunar flokka sem eru í stjórn og hinna sem eru í stjórnarandstöðu.“ Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði að opinberar upplýsingar um það m.a. hverjir styrktu stjórnmálaflokkana fjárhagslega hlytu að gagnast flokkunum, til lengri tíma litið. Með því að gera slíkar upplýsingar opinberar væru stjórnmálaflokkar að auka á trúverðugleika sinn og sýna fram á að þeir hefðu ekkert að fela. gegnsæi nái til fjárreiðna stjórn- málaflokkanna,“ sagði hún. Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, sagði m.a. að umræðan um að stjórn- málaflokkarnir opnuðu bókhald sitt væri athyglisverð. Hann sagði að þeir stjórnmálaflokkar, sem hefðu hæst galað í þessum efnum, hefðu opnað bókhald sitt, þannig að það sýndi hverjir hefðu styrkt flokkana um fimmhundruð þús- und kr. eða meira. Það væri hins vegar hreinn kattarþvottur. „Þetta er hrein sýndarmennska. Við vitum að ef menn hafa áhuga á því að komast framhjá þessu þá gera menn það með auðveldum hætti. Tökum stóru viðskipta- blokkirnar. Á bakvið þær eru starfandi tugir lögaðila, tugir fyr- irtækja. Halda menn að það sé einhver vandi, vilji menn koma í Síðan þá hefði orðið mikil þró- un í þessum efnum; þróun í átt til meira gegnsæis. Hann ítrekaði í lok ræðu sinnar að það væri tíma- bært að setja aftur á fót nefnd, með fulltrúum stjórnmálaflokka, til að fjalla um fjármálalega um- gjörð stjórnmálastarfseminnar í heild. Hann hefur þegar óskað eftir því við stjórnmálaflokkana á þingi að þeir tilnefni fulltrúa í slíka nefnd. Hafa honum þegar borist tilnefningar frá Sjálfstæðisflokki og Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Kvaðst hann vænta þess að nefndin gæti hafið störf hið fyrsta. Hreinn kattarþvottur? Þingmenn allra flokka tóku þátt í umræðunum um skýrsluna. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að hún vissi ekki betur en að allir stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu lagasetningu um fjárreiður flokkanna á stefnuskrá sinni. Krafa þjóðfélagsins væri gegnsæi og opin stjórnsýsla. „Mikilvæg lög hafa verið sett á umliðnum ár- um í því efni. Stjórnarflokkarnir hafa hins vegar beitt valdi sínu til að koma í veg fyrir að þetta Möguleikar flokka til að afla fjár verði ekki þrengdir Eftir Örnu Schram arna@mbl.is innar hafi sýnt málinu skilning með breyting- artillögum sínum við frumvarpið. „Við ræddum það hins vegar í nefndinni að það væri ákveðin hætta á því að málið dagaði uppi ef ekki næðist samstaða um það innan nefndarinnar. Því sýndu fulltrúar Samfylkingarinnar, hins vegar, engan skilning.“ Í ljósi þess, segir Bjarni, að málið sé í raun þríklofið, sé ekki að undra að það hafi ekki kom- ist á dagskrá. Það hafi í raun og veru brunnið inni. Halldór Blöndal, forseti þingsins, tekur undir þetta. Hann segir að ekki hafi náðst samkomu- lag um frumvarpið í nefndinni. Því hafi verið óhjákvæmilegt af nefndinni að skoða málið bet- ur. Það hefði verið gert hefði tími unnist til þess. til þess að halda málinu áfram. Þar verður það, að nýju, að fara í fyrstu umræðu og í nefnd. Ágúst Ólafur segist í samtali við Morgunblað- ið afar ósáttur við að frumvarpið skyldi ekki hafa komist á dagskrá þingsins, eftir afgreiðslu þess úr nefnd. Hann segist sannfærður um að sú málsmeð- ferð sé merki þess að stjórnarmeirihlutinn hafi aldrei meint neitt með því að afgreiða frum- varpið úr nefnd. Hann segir að þingmenn, þjóð- in öll og þeir fimmtán þúsund manns, sem skrif- uðu undir áskorun til alþingismanna, um að samþykkja frumvarpið, hafi verið dregin á asnaeyrum. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjar- nefndar þingsins, segir að meirihuti nefndar- Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins, lögðu hins vegar til að viðmiðunaraldur, þ.e. það aldursmark sem fyrning hefst í kynferðisbrot- um gegn börnum, verði færður úr 14 árum í 18. Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknar- flokks, í nefndinni, skrifaði undir nefndarálit meirihlutans með fyrirvara og í fyrradag lagði hún fram sína eigin breytingartillögu. Í henni er lagt til að alvarlegustu kynferðisbrotin gegn börnum fyrnist ekki. Jafnframt vill Jónína miða við 18 ára aldur, eins og meirihluti nefndarinn- ar. Eftir að mál kemur úr nefnd bíður það ann- arrar og síðan þriðju og síðustu umræðu. Náist ekki að afgreiða það á viðkomandi þingi, verður að leggja það fram að nýju á næsta þingi, sé vilji ÁGÚST Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, er ósáttur við að frumvarp hans um afnám fyrningarfrests vegna kynferðis- brota gegn börnum, skyldi ekki hafa verið tekið til umræðu á síðasta starfsdegi Alþingis í vor. Mótmælti hann þeirri málsmeðferð harðlega við upphaf þingfundar í gær. Hann sagði að málið hefði „sofnað“ í nefnd í fyrra og kvaðst óttast að nú ætti að „svæfa það inni á kóntór hjá forseta“. Frumvarpið var afgreitt frá allsherjarnefnd þingsins í síðustu viku. Þingmenn Samfylking- arinnar í nefndinni lögðu til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Vildi að frumvarpið kæmist á dagskrá Eftir Örnu Schram arna@mbl.is UNGT fólk úr ungliðahreyfingum flestra stjórnmálaflokka efndi til mótmælaað- gerða við Alþingishúsið síðdegis í gær. Ástæða mótmælanna var sú ákvörðun for- seta Alþingis að taka ekki á dagskrá frum- varp um afnám fyrningarfrests í kynferð- isafbrotum gegn börnum. Fóru forsvarsmenn hópsins inn í and- dyri Alþingishússins. Áttu þau fund með sem hefur að markmiði að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis á börnum. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam- fylkingar, lagði frumvarp fram á sínum tíma og var það afgreitt úr allsherj- arnefnd Alþingis í síðustu viku. Ljóst varð í gærdag að það yrði ekki tekið til af- greiðslu fyrir frestun þingfunda á þessu þingi. Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, þar sem þau lýstu andstöðu sinni við afdrif frumvarpsins, skv. upplýsingum Guðrúnar Birnu Ingimundardóttur, stjórnarmanns í Ungum jafnaðarmönnum, sem skipulögðu mótmælin ásamt forystumönnum í Heim- dalli. Að því búnu fjölmenntu ungliðarnir á þingpalla. Héldu þeir á bláum treflum til að vekja athygli á verkefninu Blátt áfram, Morgunblaðið/Þorkell Mótmæltu við þinghúsið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.