Morgunblaðið - 12.05.2005, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Boltinn
rúllar
á morgun
ÚR VERINU
Náttúruverndarsamtökin World
Wildlife Fund hafa veitt Ástralan-
um Steve Beverly sérstaka við-
urkenningu fyrir hönnun á veið-
arfæri, sem dregur úr meðafla af
skjaldbökum og eykur afla af þeim
tegundum sem sótt er í. Veiðar-
færið er lína, sem byggist á nem-
um frá íslenzka fyrirtækinu
Stjörnu-Odda.
Um er að ræða línu sem notuð
er til veiða á túnfiski og sverðfiski.
Með því að setja nema, sem mæla
hitastig og dýpt á línuna er hægt
að stjórna því hve djúpt hún ligg-
ur. Skjaldbökur kafa yfirleitt ekki
niður fyrir hundrað metra dýpi og
því er línan látin liggja neðan við
það mark með aðstoð dýptarnem-
anna.
Skiptir miklu máli
Á þessu dýpi er hins vegar mik-
ið um túnfisk og sverðfisk og til-
raunir sýndu að afli þessara teg-
unda jókst en miklu minna af
skjaldbökum drapst við veiðarnar,
en þær drukkna þegar þær bíta á
önglana og geta ekki losað sig af
þeim.
„Fyrir Stjörnu-Odda og starfs-
menn félagsins skiptir svona við-
urkenning mjög miklu máli, þar
sem þær vörur sem við þróum og
framleiðum skuli koma að þetta
góðum notum,“ segir Sigmar Guð-
björnsson, framkvæmdastjóri
Stjörnu-Odda. „Hagsmunir sjó-
manna og umhverfisunnenda fara
fullkomlega saman, þar sem hægt
er að koma í veg fyrir veiði á
skjaldbökum í útrýmingarhættu og
um leið auka veiðina á þeirri teg-
und sem stefnt er að því að veiða.
Það er örugglega frekar sjaldgæft
að þessir tvennir hagsmunir skuli
fara svona algerlega saman, og á
Steve Beverly mikið hrós fyrir að
hafa þróað þessa veiðiaðferð með
hjálp Stjörnu-Odda búnaðar.
Stjörnu-Oddi er alþjóðlegt fyr-
irtæki og við erum að vinna að
verkefnum um allan heim, verk-
efnið sem um ræðir var fram-
kvæmt í Ástralíu. Það er svolítið
sérstakt en um leið spennandi, að
Íslendingar skuli eiga svona mik-
inn þátt í að hjálpa skjaldbökum í
útrýmingarhættu, skjaldbökum
sem ekki þrífast hér á norður-
slóðum, dýrum sem allir bera
mikla virðingu fyrir.
Fyrir markaðssetningu á
Stjörnu-Odda vörum skiptir það
miklu máli að geta sýnt fram á af-
gerandi niðurstöður eins og í
þessu tilfelli, sem gefur sóknarfæri
fyrir vörur okkar til nýs hóps vís-
indamanna sem eru að vinna að
öðruvísi verkefnum en hingað til.
Þetta sýnir einnig að Stjörnu-
Oddi er á réttri braut og er okkur
mikill hvati að heyra af þessari
rannsókn, viðurkenningunni og vit-
andi af hinum ýmsu spennandi
verkefnum sem eru unnin um allan
heim. Það er okkur líka mikill
hvati að fylgjast með þeim verk-
efnum sem eru unnin á Íslandi um
nytjastofna í sjónum og laxfiska,
þetta er bara byrjunin,“ segir Sig-
mar.
Hægt er að sjá meira á heima-
síðu Stjörnu-Odda (star-oddi.com).
Ástrali hlýtur viðurkenn-
ingu fyrir veiðarfæri
Stjörnu-Oddi á þátt í að vernda skjaldbökur í útrýmingarhættu
HANN Stefán Hjörleifs-
son á Sunnufelli HF 58
setti í væna stórlúðu er
hann var að hand-
færaveiðum út af Deild
síðastliðinn þriðjudag.
Lúðan sem hafði húkk-
ast á færið var ekkert á
því að láta Stefán yf-
irbuga sig en það tók á
annan tíma að ná henni
inn fyrir, en þá hafði
skepnan í þrígang beitt
afli sínu og synt niður á
botn.
Þegar aðeins var af
henni dregið gat Stefán
náð að blóðga hana við
borðstokkinn og komið
bandi í gegnum tálkn og
kjaft og eftir það var eft-
irleikurinn auðveldari, en
það þarf svo sannarlega
að taka á honum stóra
sínum til að ná 70 kílóa
stórlúðu inn á dekk. Auk
lúðunnar var Stefán með
um eitt tonn af þorski í
þessari veiðiferð.Ljósmynd/Gunnar Hallsson
Á annan
tíma að
berjast við
stórlúðuna
BARNAHÚS að íslenskri fyrirmynd
verður opnað í Lynkoping í Svíþjóð
26. september og er það fyrsta barna-
húsið sem opnað er í Evrópu utan Ís-
lands. Þetta var upplýst á ráðherra-
fundi á vettvangi Eystrasaltsráðsins í
Ósló nú í vikunni.
Bragi Guðbrandsson forstjóri
Barnaverndarstofu segir að heim-
sókn Sylvíu Svíadrottningar til Ís-
lands í september 2004 hafi ekki síst
orðið til þess að hleypa lífi í ákvörðun
Svía í þessu sambandi. Eins og kunn-
ugt er óskaði Svíadrottning sérstak-
lega eftir því að heimsækja Barnahús
þegar hún var hér á ferð í haust.
Sylvía drottning er stofnandi sjóðsins
World Childhood Foundation sem
hefur að markmiði að fjármagna vel-
ferðarþjónustu fyrir börn um víða
veröld.
„Þetta verður fyrsta barnahúsið
sem verður sett á laggirnar í Evrópu
utan Íslands,“ segir Bragi. „Ekki nóg
með það heldur hefur sænski dóms-
málaráðherrann beint þeim tilmæl-
um til sveitarfélaga í Svíþjóð að leita
leiða til að koma slíku módeli upp sem
víðast. Mér er kunnugt um að í
Stokkhólmi sé nú byrjað að undirbúa
málið.“
Á vef norska blaðsins dagsavis-
en.no 10. maí er sagt frá því að Stór-
þingið hafi fjallað um og sent frum-
varp þingmanna Vinstri sósíalista um
að koma á fót barnahúsi til norska
dómsmálaráðuneytisins. Má þess
geta að norski dómsmálaráðherrann
hefur heimsótt Barnahús. Í grein
blaðsins er litið til Barnahúss og þá
þjónustu sem börnum sem þolendum
í kynferðisafbrotamálum er veitt þar.
Íslendingar ekki
lengur þiggjendur
Bragi Guðbrandsson segir að
barnaverndarsamtökin Redd Barnet
í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hafi
farið þess á leit við stjórnvöld að kom-
ið yrði á fót barnahúsum og ekki
skyldi neinn undra þótt þau færu að
líta dagsins ljós í Noregi og Dan-
mörku. „Mér finnst þetta sérstaklega
ánægjulegt, því í íslenskri velferðar-
sögu hafa Íslendingar alltaf verið
þiggjendur og sótt fyrirmyndir í nor-
ræna velferðarmódelið. Í þessu tilviki
hafa hlutirnir hins vegar snúist við. Á
undanförnum árum hefur verið
straumur af fagfólki, embættismönn-
um og ráðherrum til Barnahúss.
Bæði mér og forstjóra Barnahúss
hefur oft verið boðið til Svíþjóðar,
Noregs og Danmerkur til að kynna
starfsemi Barnahúss. Á vettvangi
Eystrasaltsráðsins í barnasamstarfi
undir heitinu Children at Risk hefur
starfsemin ennfremur vakið gríðar-
lega athygli.“
Svíar opna barnahús í september í Lynkoping
Sænskt barnahús fyrsta sinnar
tegundar í Evrópu utan Íslands
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, stóð sig best í
eldhúsdagsumræðum á Alþingi á
þriðjudagskvöld, að mati félaga í
JCI sem fylgdust með umræðum á
þingpöllunum. Ræðumenn voru
dæmdir eftir formúlu, byggðri á
dómgæslureglum sem notaðar eru
við keppni hjá JC.
Dregnir voru saman kostir og
gallar hvers ræðumanns fyrir sig og
að lokum var fundið út frá þessum
punktum hver teldist besti ræðu-
maður kvöldsins. Ekki var byggt á
því hvaða stjórnmálaskoðanir ræðu-
menn höfðu, enda er JC hreyfing
sem gefur sig út fyrir að vera hlut-
laus, þegar kemur að pólitík.
„Sigurvegari kvöldsins var Össur
Skarphéðinsson. Hann sýndi fram á
það að á alþingi finnast góðir ræðu-
menn og sýndi hann ýmsa góða
takta í ræðupúltinu. Hann hlaut í
verðlaun bikar.
Í öðru sæti kom maðurinn sem var
neðstur í fyrra, Sigurjón Þórðarson,
en hann sat námskeið í ræðu-
mennsku fyrr á þessu ári og hefur
sýnt miklar framfarir síðan. Hann
sýndi líflega ræðumennsku og hafði
góða kímni að leiðarljósi.
Í þriðja sætinu varð svo Ögmund-
ur Jónasson. Hann þótti best undir-
búinn af þeim ræðumönnum sem
stigu í pontu og greinilegt að um
vanan ræðumann var að ræða.
Í fjórða sæti kom fyrsti stjórn-
arliðinn, Dagný Jónsdóttir. Hún
sýndi yfirlætislausan ræðustíl en
kom þó máli sínu vel til skila,“ segir í
tilkynningu frá JCI.
Össur stóð sig best, að mati JCI
Ljósmynd/Bernharð Bernharðsson
Ingimundur K. Guðmundsson, heimsmeistari í mælsku árið 2001, afhenti
Össuri Skarphéðinssyni, formanni Samfylkingarinnar, verðlaunin.
sérblað um
Landsbankadeildina