Morgunblaðið - 08.06.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 153. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Harðkjarni
og rokk
Fjögurra daga tónlistarhátíð
hefst ı́ Reykjavík Menning
Úr verinu og íþróttir
Úr verinu | Stefnir í metafla Óhætt að veiða 400 hrefnur
Soðningin Íþróttir | Detroit mætir San Antonio Pakkar
Malta í vörn? Agi hjá Notts County Verkfall hjá NBA?
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra segir
að það að stjórnarskrá Evrópusambandsins
(ESB) var felld í þjóðaratkvæði í Hollandi og
Frakklandi og þjóðaratkvæði frestað í Bretlandi
geri sambandið aðgengilegra fyrir Ísland. Davíð
Oddsson utanríkisráðherra segir að þessi staða
hafi engin sérstök áhrif fyrir Ísland nema að á
meðan ESB taki ekki á sínum innri málum sé öll
umræða um vaxandi samband annarra þjóða við
sambandið í bið.
„Ég tel að það að þessi stjórnarskrá var felld
geri Evrópusambandið aðgengilegra fyrir Ísland í
framtíðinni,“ segir forsætisráðherra. „Stóru tíð-
indin í þessu að mínu mati eru að þeir sem vildu
ganga lengst í samrunaferlinu hafa orðið undir.
Það hefur aldrei verið nokkur áhugi fyrir því á Ís-
landi að eiga aðild að einhverju sem heitir sam-
bandsríki í Evrópu. En við eins og Norðmenn
þurfum að fylgjast vel með þróuninni á næstunni
og meta stöðuna. Að mínu mati dregur þessi staða
úr því að menn haldi áfram að vinna að því – að
mínu mati óraunhæfa verkefni – að Evrópa verði
einhvers konar sambandsríki. Ég tel að þessi nið-
urstaða sýni að það er ekki stuðningur við það
meðal þessara þjóða. Þess vegna tel ég að það
Evrópusamband sem verður til í framhaldi af
þessu sé aðgengilegra fyrir lönd eins og Norð-
urlöndin með sínar lýðræðishefðir og sína áherslu
á að þjóðríkin starfi áfram með eðlilegum hætti en
deili fullveldi sínu á ákveðnum sviðum.“
Utanríkisráðherra segir að staða stjórnarskrár
ESB hafi engin sérstök áhrif fyrir Íslendinga.
„Ekki önnur en þau að á meðan að ESB tekur
ekki á sínum innri málum þá er öll umræða um
vaxandi samband annarra þjóða við sambandið í
bið. Það hlýtur að vera, við sjáum það m.a. á afstöð-
unni í Noregi. Það hægist á öllu slíku. Meginatriðið
er að ESB taki sér tak, það er tækifæri til þess á
leiðtogafundinum sem verður innan viku, það verð-
ur fróðlegt að sjá hvernig þeir bregðast við.“
Stjórnarskráin var í raun fallin um leið og fyrsta
ríkið hafnaði henni, segir Davíð. „Ég tel mikilvægt
að ESB nýti sér þessa niðurstöðu með skynsam-
legum hætti, segi að þarna hafi fólkið fengið að
ráða einhverju og tekið verði fullkomið mið af því, í
stað þess að berja höfðinu í steininn og segja að
þrátt fyrir þetta eigi að fara fram einhvers konar
staðfestingarstarfsemi sem er ekki hægt að fram-
kvæma.“
Áhrif slæmrar stöðu nýs stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins
Vandi ESB hefur óveru-
legar afleiðingar á Íslandi
Takmörkuð áhrif | 8
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Shanghæ. AP. | Kínversk stjórnvöld vilja nú
skrásetja allar vefsíður og blogg (vefdag-
bækur) sem vistuð eru á kínverskum net-
þjónum. Bloggarar og aðrir sem reka eig-
in vefsíður eiga samkvæmt tilskipuninni
að skrá allar sínar persónuupplýsingar
hjá ráðuneyti upplýsingaiðnaðar í Kína.
Ráðuneytið segir á vefsíðu að Netið
hafi „fært okkur margt gott en einnig
fjölmörg vandamál. Kynlíf, ofbeldi, efa-
semdir um stjórnskipulagið og fleiri skað-
vænlegar upplýsingar hafa eitrað huga
fólks“.
Vilja stjórna
netheimum
♦♦♦
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði eftir fund með Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í Hvíta
húsinu í gær að þeir væru að vinna
að tillögu um að erlendar skuldir fá-
tækra þróunarríkja í Afríku, sem
væru sannanlega að koma á umbót-
um, yrðu þurrkaðar út. Er ætlunin
að leggja umræddar tillögur fyrir
fund átta helstu iðnvelda heims, G-8-
fundinn svonefnda, í Skotlandi í júlí.
Bush forseti sagði á blaðamanna-
fundi, með breska gestinn sér við
hlið, að umrædd þróunarríki ættu
ekki að þurfa að „kljást við fjallháar
skuldir“. Bush skýrði einnig frá því
að Bandaríkin myndu leggja fram
674 milljónir dollara, um 44 milljarða
ísl. kr., til að liðsinna fórnarlömbum
hungursneyðar í Afríku, einkum í
Eþíópíu og Erítreu. Yrði fjárhæðin
að sögn talsmanns Bush, Scott
McClellans, til viðbótar 1,4 milljörð-
um dollara sem áður hefði verið heit-
ið til slíkra verkefna í Afríku. Minnti
Bush á að í stjórnartíð sinni hefðu
Bandaríkjamenn þrefaldað framlög
til aðstoðar við þurfandi Afríkumenn
og sagði að um væri að ræða verk-
efni sem hefði forgang. „Við erum
staðráðin í að gera enn betur í fram-
tíðinni,“ sagði Bush.
Blair vill að gengið verði lengra og
skuldum allra fátækra þróunarríkja
verði aflétt. Sagðist hann fyrir fund-
inn með Bush álíta að samkomulag
þess efnis væri nú komið „á góðan
rekspöl“.
Gert er ráð fyrir að Blair muni
leggja fram hugmyndir um algera
niðurfellingu skulda Afríkulanda á
G-8-fundinum í næsta mánuði og
stóraukna alþjóðlega aðstoð við álf-
una með lánum sem iðnríkin myndu
ábyrgjast. Breska stjórnin hefur áð-
ur viðrað slíkar tillögur og Bush
þótti koma nokkuð til móts við hug-
myndir breska forsætisráðherrans í
gær.
Bush og Blair ræddu efnahagsvanda fátækra Afríkuþjóða
Skuldabyrði
verði aflétt
Reuters
Vopnabræður í Hvíta húsinu
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, á leið til blaðamannafundar í Hvíta húsinu í gær eftir stuttan
fund. Breski leiðtoginn hélt heim á leið í gærkvöldi.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Minna
verslað í
Bretlandi
TALSMENN samtaka smásöluverslana í
Bretlandi, BRC, skýrðu frá því í gær að
heildarsala miðborgarverslana hefði enn
dregist saman í maí, að sögn fréttavefjar
SKY-sjónvarpsstöðvarinnar. Hefði veltan
verið 2,3% minni en mánuðinn á undan.
Samtökin hvöttu seðlabankann til að
lækka vexti til að ýta undir hagvöxt en
stjórn bankans mun taka ákvörðun um for-
vexti á fundi sínum á morgun, fimmtudag.
Yfirmaður BRC, Kevin Hawkins, sagði
suma sérfræðinga enn halda því fram að
viðvarandi samdráttur í verslun væri að-
eins tímabundinn. „En þessar tölur ættu
að útrýma öllum efasemdum, við erum nú
á samdráttarskeiði vegna þess að neytend-
ur halda að sér höndum,“ sagði Hawkins.
Húsnæðisverð lækkaði um 0,6% í Bret-
landi í maí, að sögn öflugasta fyrirtækisins
á sviði húsnæðislána, Halifax. Að sögn fyr-
irtækisins hækkaði húsnæðisverð að með-
altali um 0,1% fyrstu fimm mánuði ársins
og sölusamningar eru um 30% færri en á
sama tímabili í fyrra.
BANDARÍSKA kvikmyndafyr-
irtækið Warner Brothers og fyr-
irtæki Stevens Spielberg, Dream-
works, hafa valið íslenska
framleiðslufyrirtækið True North,
sem þjónustuaðila sinn hér á landi
við tökur á kvikmyndinni Flags of
our Fathers, í leikstjórn Clints
Eastwood.
Að sögn Helgu Margrétar Reyk-
dal, framleiðslustjóra hjá True
North, munu tökur á myndinni
hefjast á Íslandi 12. ágúst og mun
ljúka í september en tökustaðir
hafa ekki ennþá
verið valdir. Að-
alástæðan fyrir
því að Eastwood
og Spielberg
völdu Ísland er
að sögn svartar
sandstrendurnar
sem hér finnast
og má því leiða
líkum að því að
allar svartar strendur séu til skoð-
unar.
Kvikmyndin er byggð á sam-
nefndri metsölubók James Bradley
og fjallar um einn frægasta bar-
daga seinni heimsstyrjaldarinnar á
eyjunni Iwo Jima í Kyrrahafi.
Helga segir að þau hjá True
North séu að vonum ánægð með
að hafa hreppt verkefnið enda
verði það eitt af þeim viðameiri
sem hér hafi verið unnin. Ekki
liggur ennþá fyrir hvaða stjörnur
munu fara með helstu hlutverk í
myndinni eða að hve miklu leyti
þær munu taka þátt í tökunum hér
á landi.
Clint Eastwood kemur í ágúst
Clint Eastwood
FUNDIST hefur áður óþekkt verk eftir
þýska tónskáldið Johann Sebastian Bach.
Leyndist það meðal skjala á bókasafni í
borginni Weimar. Verkið er versaría með
strengjaundirleik og eina verk þeirrar teg-
undar sem vitað er til að Bach hafi samið.
Að sögn blaðsins Süddeutsche Zeitung
var verkið samið árið 1713 en Bach var þá
konsertmeistari í Weimar. Síðast fannst
áður óþekkt verk eftir Bach árið 1935. | 48
Fundu verk
eftir Bach
♦♦♦