Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Upplýsinga- tæknin er allstaðar á morgun Fágu n A4 Q uatt ro ® HÁTT í 1.700 umsóknir hafa borist um nám í Háskólanum í Reykjavík (HR), en skólinn getur tekið við ríf- lega 900 nýjum nemendum, að sögn Guðfinnu S. Bjarnadóttur rektors í samtali við Morgunblaðið. „Mér þótti mikil bjartsýni að spá 1.500 umsóknum og var með það sem „skýjamarkmið“, eins og ég kalla það,“ sagði Guðfinna. „Mér þótti afar spennandi að fá svo margar umsókn- ir í nýjan sameinaðan skóla svo nú er ég skýjum ofar!“ Guðfinna sagði að hafna þyrfti fjölda efnilegra umsækjenda og það þætti sér ákaflega leiðinlegt. „Þegar umsækjendur eru svo margir sem raun ber vitni eru innan um þá sem fá neitunarbréf umsækjendur sem eiga fullt erindi í háskóla og verða örugglega mjög góðir stúdentar.“ Aldrei fleiri umsóknir Fjöldi umsókna um skólavist hef- ur aldrei verið meiri en nú í HR. Seg- ir í tilkynningu frá skólanum, að þeg- ar miðað sé við heildarfjölda umsókna í HR og Tækniháskóla Ís- lands í fyrra séu umsóknir um 70% fleiri í ár. Í tilkynningunni segir að nú sé unnið að því að fara yfir allar um- sóknir sem borist hafa og stefnt er að því að svara öllum umsóknum þegar í þessari viku. „Okkar stefna er að taka vel á móti hverjum og ein- um einstaklingi og við skoðum allar umsóknir og fylgigögn mjög ítar- lega.“ Tekið er tillit til ýmissa þátta ann- arra en einkunna við mat á umsókn- um, svo sem áhugasviða og framtíð- aráforma nemenda. Guðfinna segir að það verði úr vöndu að ráða við val á nemendum. Í mörgum fögum verði því miður að synja helmingi stúd- enta, eða jafnvel meira en helmingi stúdenta, um skólavist. Hún hvetur þá, sem ekki komast að í skólanum í haust, að láta það ekki á sig fá heldur halda ótrauð áfram í aðra skóla eða senda HR umsókn aftur að ári. Hátt í 1.700 um- sóknir en ríflega 900 fá inngöngu Morgunblaðið/Sverrir „Nú er ég skýjum ofar,“ segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR. GERT er ráð fyrir að allir umsækj- endur sem uppfylla formleg skilyrði um undirbúning og lagt hafa inn umsókn innan tilskilinna tíma- marka, fái skólavist í Háskóla Ís- lands næsta haust. Umsóknarfrest- ur um nám við skólann rann út á mánudag. Að sögn Emilíu Dagnýjar Svein- björnsdóttur, á stjórnsýsluskrif- stofu HÍ, höfðu um 2.500 umsóknir nýnema verið afgreiddar í gær. Er það svipaður fjöldi og í fyrra. Vinnu við mat á umsóknum ekki lokið Enn var þó ólokið við að hand- færa umsóknir sem ekki bárust raf- rænt á síðasta degi skráningar og meta vafaumsóknir, auk þess sem ekki liggur fyrir endanlegur fjöldi erlendra stúdenta við skólann næsta vetur. Emilía segir afar lítið um að um- sækjendum sé vísað frá skólanum. Fjöldatakmarkanir séu hins vegar í ýmsu starfsmenntanámi við fé- lagsvísindadeild og íslensku fyrir erlenda stúdenta. Þá eru sem fyrr samkeppnispróf í hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun og inntökupróf í læknisfræði. Um þúsund vísað frá KHÍ Árið 2003 var reglum um und- anþágur frá stúdentsprófi vegna inngöngu í skólann breytt og hefur frá áramótum 2003 verið skilyrði að allir hafi lokið stúdentsprófi sem innritast í skólann. Á móti hefur skilgreining á stúdentsprófi verið rýmkuð í núverandi reglugerð um inntökuskilyrði. Fram kom í kvöldfréttum Sjón- varps í fyrrakvöld að vísa verður frá um 1.000 umsóknum um nám við Kennaraháskóla Íslands næsta haust og 800 umsóknum í Háskól- anum í Reykjavík. Þá eru fjöldatak- markanir við fleiri háskóla hérlend- is. Um 2.500 umsóknir afgreiddar Nýnemar í Háskóla Íslands 2005–2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.