Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Við Íslendingar eigum mikiðaf hæfileikaríku fólki áýmsum sviðum. Þar á með- al eru hönnuðir sem á síðustu ára- tugum hafa hannað allt frá fal- legum smáhlutum til glæsilegra bygginga. Á síðustu árum hefur fatahönnun verið mjög áberandi og augljóst að mikill kraftur er í ungum hönnuðum á Íslandi. Það var því löngu tímabært að setja á fót einhvers konar vett- vang fyrir þessa gróskumiklu stétt. Fyrir ári tók ríkið þá ákvörðun að stofna samstarfsvettvang um hönnun og í maí síðastliðnum var loks farið af stað af fullum krafti. Að verkefninu standa iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Útflutningsráð Íslands, Iðntæknistofnun, Reykjavíkurborg og Form Ísland, félag faghönnuða. Verkefnið er til þriggja ára og verður sjö milljónum króna varið í það ár hvert. Guðbjörg Gissurardóttir, graf- ískur hönnuður og framkvæmda- stjóri verkefnisins, segir hug- myndina hafa verið lengi í pípunum og að margir hafi komið að henni. Markmið samstarfsvettvangsins er að þróa og efla ímynd íslenskr- ar hönnunar ásamt því að koma á fót sameiginlegum gagnagrunni upplýsinga og veita hönnuðum innblástur og stuðning.    Við viljum ekki kalla þetta mið-stöð fyrr en nægilegt fjár- magn fæst til að halda úti alvöru miðstöð. Eins og stendur dekkar fjármagnið einungis mín laun og eitthvað örlítið meira,“ segir Guð- björg. Það er því ekki ólíklegt að leitað verði til einkaaðila um að styrkja einstök verkefni til að hjálpa mið- stöðinni af stað. Ísland hefur enga ákveðna hönnunarímynd segir Guðbjörg og þegar skilgreina á íslenska hönn- un er fátt um svör. Guðbjörg telur það ákveðinn kost því Ísland er ungt og ómótað land á ýmsum sviðum. Í stað þess að negla niður einhverja ákveðna skilgreiningu vill Guðbjörg frekar koma á fram- færi hinum mikla sköpunarkrafti Íslendinga. Það er tvennt sem hún vill setja í forgrunn við kynningu á íslenskri hönnun; kraftinn og náttúruna. „Við höfum ekki langa bygg- ingar- eða listasögu eins og aðrar þjóðir en á hinn bóginn höfum við náttúruna og hönnuðir leita í hana bæði meðvitað og ómeðvitað,“ seg- ir Guðbjörg.    Svo virðist sem hönnunarstefnastjórnvalda sé engin en þó var þingsályktunartillaga samþykkt á Alþingi nýverið sem gerir sendi- ráðum Íslands skylt að velja ís- lenska hönnun fram yfir aðra þeg- ar verið er að byggja eða gera upp sendiráð erlendis. Guðbjörg segir að nú þegar séu þónokkur sendi- ráð að kaupa íslenska hönnun en einnig séu þau mörg sem ekki hafa sett hana í forgang. Hönnun getur gert heilmikið fyrir framþróun og efnahag lands- ins og því er mikilvægt að stjórn- völd geri sér grein fyrir ávinn- ingnum og marki skýra stefnu landsins í þessum málum. „Fólk er að verða meðvitaðra um hönnun. Það vill ekki lengur bara einhvern farsíma heldur flottan og vel hannaðan farsíma,“ segir Guðbjörg. Verkefnaskrá Hönnunarvett- vangsins er löng og í mörg horn að líta þegar á að setja á stofn virka og gagnlega miðstöð. Sér- stakur áhugi er fyrir því að styðja við bakið á hönnuðum sem vilja koma vöru sinni í framleiðslu og á framfæri. Gagnagrunnurinn er einnig mikilvægur til að miðla reynslu og þekkingu.    17. til 19. nóvember næstkom-andi verður haldið hátíð- lega upp á Hönnunardaga en í ár er norrænt hönnunarár. Hátíðin mun standa saman af þátttöku hönnuða og framleiðenda í sýning- arhaldi og ýmsum uppákomum en jafnframt mun Hönnunarvettvang- urinn standa fyrir ráðstefnu þar sem bæði erlendir og íslenskir fyr- irlesarar koma fram. Leitað verð- ur eftir styrkveitingu frá stjórn- völdum og einkaaðilum svo hægt verði að gera Hönnunardagana sem veglegasta. Það er augljóslega mikil eft- irvænting hjá hönnuðum að sjá miðstöðina fæðast og Guðbjörg vill vinna verkefnið í góðri samvinnu við þá til að bestu leiðirnar séu ávallt farnar. Hönnun er list og okkur sem þjóð ber skylda til að styrkja hana, efla og kynna. Með Hönnunarvett- vanginum er kominn grundvöllur fyrir kröftuga stétt að efla ímynd sína og kynna enn frekar verk sín fyrir almenningi hérlendis sem og erlendis. Það eru því spennandi tímar fram undan. Loks vettvangur fyrir gróskumikla stétt ’Við höfum ekki langabyggingar- eða lista- sögu eins og aðrar þjóð- ir en á hinn bóginn höf- um við náttúruna og hönnuðir leita í hana bæði meðvitað og ómeðvitað.‘ AF LISTUM Vala Ósk Bergsveinsdóttir Guðbjörg Gissurardóttir, fram- kvæmdastjóri Hönnunarvettvangs. valaosk@mbl.is Mikil gróska er í ýmiss konar hönn- un á Íslandi. Hér er verkið Hangon eftir Sigríði Sigurjóns. Falleg íslensk hönnun. Hringur eft- ir Kjartan Örn Kjartansson hjá OR gullsmiðum. JEREMY Deller, handhafi Turner- verðlaunanna í fyrra, hefur á und- anförnum vikum boðið til tedrykkju á dvalar- og elliheimilinu Grund en hann naut aðstoðar Allan Kane við gerð verksins sem samanstendur af samóvar og tekatli sem eru skreyttir með litfagurri ljósmynd í póst- kortastíl af pálmatrjám á strönd í tunglsljósi. Megintilgangur verksins er að hvetja fólk til að setjast niður með gamla fólkinu, þiggja tebolla og spjalla. Hugmyndin er einföld en að sama skapi mjög áhrifarík til að brjóta ísinn og gefa utanaðkomandi fólki „ástæðu“ og færi á samskiptum við dvalargesti heimilisins. Þrátt fyrir að gestir séu ávallt velkomnir, eins og sagt er, þá er miklu notalegra að eiga eitthvert erindi, og auðveldara að hefja samræður við heimamenn á hinu hlutlausa svæði listarinnar, þar sem allir eiga heimarétt og ekki þarf að óttast ímynduð ströng augnaráð frá hjúkrunarforstjórum eða kaffi- stofustýrum. Enda reyndist starfs- fólkið gleðjast yfir gestakomum og konan á kaffistofunni sagði frá ýms- um uppákomum tengdum listaverk- inu. Ein þeirra var af fólki sem kom færandi hendi til dvalargests með konfektkassa með nauðalíkri mynd og prýðir listaverkið sem þótti afar skondin tilviljun og varð innlegg í um- ræðu um samtímalistina. Verkið sjálft vísar stöðugt til lista- mannsins og þjóðernis hans þrátt fyr- ir hina samfélagslegu skírskotun í ís- lenskan veruleika, enda mikill minnihluti gesta og heimilismanna sem drekka te því Íslendingar hafa löngum verið kaffiþambarar öfugt við Bretana sem velja tesopann. Fyrir vikið verður þetta listaverk svolítið sérviturt og enn persónulegra en ella og til þess fallið að brjóta upp hefð- bundin menningarleg viðmið og skapa tengsl. Eftir að hafa forvitnast um hvaða handverk var verið að vinna (ýmislegt til sölu á staðnum) þá tók ég tal við konu eina sem hefur bú- ið á Grund í þrjú ár og saumar blóm í hvíta dúka. Hún sagði mér meðal annars (yfir tesopa) að bróðir hennar hefði ráðið hana sem vinnumann hjá sér í sveitinni þegar hún var aðeins sjö ára gömul og gefið henni af því til- efni vinnumannsnafnið Gvendur. Systrum hennar fannst nafnið skemmtilegt og bættu um betur og breyttu því í Fléttu-Gvendur. Hins vegar hafði pabbi þeirra áhyggjur af því að nafnið myndi festast við hana og lagði bann við notkun þess, enda ber þessi kona mjög fallegt nafn. Jeremy Deller er þekktur fyrir verk sem eru gjarnan af sögulegum, póli- tískum eða samfélagslegum toga. Um þessi verkefni, sem geta verið stór að umfangi og skara iðulega mörk mynd- listar, má lesa í fjölmörgum greinum á veraldarvefnum. Deller hefur nú gefið dvalar- og elliheimilinu Grund lista- verkið og hefur teboðið á Grund af því tilefni verið framlengt út júnímánuð. Þeim sem áhuga hafa á að koma í heimsókn og skoða verkið er bent á inngang Hringbrautarmegin að aust- anverðu, nánar tiltekið á kaffistofu fjórðu hæðar hússins þar sem iðju- þjálfun og handverk íbúa fer fram. Það er full ástæða til að hvetja fólk til að missa ekki af þessari sýningu sem er alveg sér á báti hvað varðar samspil lífs og listar. Morgunblaðið/Jim Smart Jeremy Deller: Samspil lífs og listar. Teboð á Grund MYNDLIST Listahátíð í Reykjavík Dvalar- og elliheimilið Grund Stendur til 30. júní. Opið kl. 14–16. Jeremy Deller Þóra Þórisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.