Morgunblaðið - 08.06.2005, Side 22

Morgunblaðið - 08.06.2005, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINN STAÐUR Árbær | Sumarstarf Árbæjarsafns er hafið en meðal nýjunga í sumar er að safnið verður opið alla daga frá 10-17. Aðgangseyrir er kr. 600 f. fullorðna og gildir hann í tvær heimsóknir. Ókeypis er fyrir börn og eldri borgara. Í sumar verður boðið upp á örnámskeið líkt og und- anfarin ár; í flugdrekagerð, tálgun, glímu, þæfingu, o.fl. Hvert nám- skeið er 3 klst og er ætlast til að börn komi í fylgd fullorðinna. Þá verða sérstakir viðburðir í boði alla sunnudaga, s.s. kynning á heiðnum sið 12. júní, fornbíladagur 3. júlí, harmónikuhátíð 12. júlí, Ólafsvaka 24. júlí, Víkingaleikjadagur 1. ágúst og Dagur íslenska fjárhundsins 14. ágúst. Nánari upplýsingar um dagskrá sumarsins er að finna á slóðinni: www.minjasafnreykjavikur.is Sumarstarf Árbæjarsafns hafið HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI ELSTI starfandi grunnskólinn í Reykjavík fagnaði 75 ára afmæli sínu á laugardag, en þá var boðið upp á dagskrá fyrir vini og velunnara Klébergsskóla á Kjalarnesi. Skólinn hóf starf- semi árið 1929 með 15–20 börn, en þjónar nú 185 nemendum í 1.–10. bekk. Fjölmargir sem komið hafa að starfsemi skólans í gegnum tíðina litu í heimsókn, hlustuðu á ávörp og nutu skemmtiatriða sem krakkarnir í skólanum höfðu undirbúið, segir Snorri Hauksson, skólastjóri Klébergsskóla. Við þetta tilefni afhenti Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, skólanum formlega nýja 1.500 fermetra ný- byggingu. Hún hefur reyndar verið notuð und- anfarin tvö ár, en þar eru m.a. verkgreina- stofur, náttúrufræðistofa, heimastofur eldri nemenda, hátíðarsalur, matsalur og mötuneyti o.fl. Þrátt fyrir að ný bygging hafi verið tekin í notkun stendur enn til að nota gömlu bygg- inguna sem skólinn hóf starfsemi sína í fyrir 75 árum. Gamla húsið var að segja má byggt inn í það nýja, og þegar búið verður að gera það upp er reiknað með að þar verði bókasafn og tölvu- ver. Nemendum hefur fjölgað mikið undanfarin ár, og hefur verið u.þ.b. 10% fjölgun í skólanum á hverju ári síðustu ár, og útlit fyrir að það haldi áfram. Í dag eru 185 nemendur í skól- anum, og má gera ráð fyrir því að þeir verði orðnir fleiri en 200 á næsta ári. Snorri segir að með sameiningu Kjalarness við Reykjavík hafi ákveðinni stöðnun verið afstýrt, og segir hann fátt annað en gott um sameininguna við Reykjavík fyrir Klébergsskóla, enda ólíkt virðulegra að vera elsti starfandi grunnskólinn í höfuðborginni en á Kjalarnesinu einu. Vinir og velunnarar Klébergsskóla í heimsókn Morgunblaðið/Golli Um 250 gestir litu inn í Klébergsskóla á Kjalarnesi á laugardag. Elsti starfandi grunnskólinn í Reykjavík fagnar 75 árum KRAKKARNIR á leikskólanum Sól- hlíð héldu sumarhátíð í vikunni og fóru í skrúðgöngu um Eskihlíð og Reykjahlíð. Á eftir var haldið lítið karnival á leikskólalóðinni þar sem foreldrum, systkinum og öðrum ættingjum var boðið að koma og fylgjast með og gæða sér á pylsum. Eins og sjá má var hópurinn glæsi- legur að sjá er hann þrammaði um Hlíðarnar í góða veðrinu í gær með trommur og hatta og naut lífsins. Morgunblaðið/Jim Smart Sumarhátíð á Sólhlíð Dalvíkurbyggð | Rekstrarniðurstaða ársreiknings Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2004 er neikvæð um 68,5 millj- ónir króna en í áætlun hafði verið gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarnið- urstöðu upp á 130,9 millj. kr. Árs- reikningurinn liggur nú frammi en hann var samþykktur samhljóða við síðari umræðu í bæjarstjórn í lok síð- astliðins mánaðar. Veltufé frá rekstri var tæpar 60 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri upphæð, rúmum 7 milljónum. Ýmislegt hefur áhrif á þessa nið- urstöðu segir á vef sveitarfélagsins og er þar helst að nefna áhrif kenn- araverkfalls til lækkunar á kostnaði og hækkun á tekjum frá Jöfn- unarsjóði. Aðhalds hefur verið gætt, þó er þess ávallt gætt að skerða sem minnst þjónustu stofnana og fyr- irtækja sveitarfélagsins. Í framsögu bæjarstjóra vegna fyrri umræðu um ársreikning í bæjarstjórn kemur fram að forstöðumenn stofnana hafi gert vel á undanförnum árum en enn betur á árinu 2004. Einnig telur hann að áætlanaferlið sem Dalvíkurbyggð hefur nú tekið upp, það er ramma- fjárhagsáætlun, komi til með að vinna með sveitarfélaginu í framtíð- inni.    Niðurstaðan betri en ráð var fyrir gert Teknir með fíkniefni | Héraðs- dómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa undir höndum 157 grömm af hassi og 4,21 gramm af amfetamíni. Mað- urinn var einnig dæmdur til að greiða 70 þúsund krónur í sekt. Þá var hann sviptur ökuleyfi í hálft ár fyrir ölvunarakstur. Maðurinn var ásamt tveimur öðr- um mönnum í bíl, sem lögreglan á Akranesi stöðvaði á Vesturlandsvegi við Kúludalsá í janúar á þessu ári. Fíkniefnin fundust í bílnum en sam- kvæmt ákæru hugðust mennirnir flytja þau til Akureyrar og selja hluta þeirra. ÞRÍR sjómenn á Akureyri voru heiðraðir á sjómannadaginn af Sjómannadagsráði Akureyrar, Pétur Kristjánsson, Hrafn Ingvason og Viðar Pétursson. Pétur var á mörgum skipum gegnum tíðina og starfaði líka mikið á sjómannadaginn í bænum; hefur t.d. séð um það um ára- tuga skeið að ræsa róðrarbátana. Hrafn, sem var í 30 ár á sjó en hætti formlega fyrir ári, var alla tíð Baader-maður; sá um fiskvinnsluvélar, bæði stillingar þeirra og viðhald. Viðar hætti sjó- mennsku fyrir skömmu eftir rúma fjóra áratugi, síðustu 15 árin var hann stýri- maður og afleysingaskipstjóri á Frosta frá Grenivík.Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heiðraðir á sjómanna- daginn SKRIFAÐ hefur verið undir Efling- arsamning milli Akureyrarbæjar og Greiningarþjónustunnar Promat ehf., en fyrirtækið tók formlega til starfa í bænum fyrir rúmu ári, í maí 2004. Markmið með Eflingarsamn- ingum Akureyrarbæjar er að styðja við frumkvöðla og fyrirtæki sem hefja starfsemi í nýjum atvinnu- rekstri í bænum, en þeim er veitt tímabundin aðstoð með samningum við bæjarsjóð m.a. vegna greiðslu lóðar-, orku- og fasteignagjalda. Samningurinn er um 1,5 milljóna króna virði. Promat hefur frá því á síðastliðnu hausti verið með starfsemi í Sjafn- arhúsinu við Austursíðu, en rekstur fyrirtækisins er reistur á grunni starfsemi þjónustusviðs Rannsókna- stofu fiskiðnaðarins á Akureyri. Sú starfsemi var lögð niður af sam- keppnisástæðum í byrjun síðastlið- ins árs. Jón Jóhannesson forstöðu- maður Promat sagði að framan af hefði starfsemin nær eingöngu byggst upp á þeirri þjónustu sem RF hafi veitt norðan heiða, örverumæl- ingum fyrir matvæla- og fiskvinnslu- fyrirtæki og aðra sem á slíkri þjón- ustu þurftu að halda. Jón sagði að fyrirtækið hefði að markmiði að byggja upp starfsemi á sviði há- tæknilausna á sviði matvælafram- leiðslu og muni leita eftir samstarfi við innlenda jafnt sem erlenda aðila til að geta sem best þjónað mark- miðum sínum í þeim efnum. Stofnendur Promat eru þrír, líf- tæknifyrirtækið Prokaria, Samherji og Brim. Með samstarfi við Prokaria hefur Promat aðgang að erfðagrein- ingartækni til nákvæmari greiningar og þróunar á sviði rannsókna fyrir matvælaiðnaðinn. Samstarf fyrir- tækjanna tveggja, Promat og Prok- aria, hefur þegar skilað einu verkefni sem styrkt er af Líftæknineti í auð- lindanýtingu og er vinna við það nú um það bil að hefjast. Bærinn gerir Eflingarsamning við Promat Morgunblaðið/Kristján Eflingarsamningur Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Jón Jóhann- esson, framkvæmdastjóri ProMats, undirrituðu samninginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.