Morgunblaðið - 08.06.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 41
MINNINGAR
Keyptum þá í sjoppunni fimm Camel-
sígarettur í brúnum bréfpoka, ásamt
kóki og lakkrísrörum, til að hafa með
skýrslugerðinni. Til upplyftingar var
svo kíkt í dönsku blöðin inni á milli
lærdómsins. Við reiknuðum fullt að
dæmum hjá Birni Bjarnasyni og
skrifuðum endalausa þýska stíla. Svo
kíktum við í stjörnukíki með Sigur-
karli á stjörnubjörtum vetrarmorgn-
um og sungum franskar vísur með
Siggu frönsku. Oft var kíkt á Hressó
og Mokka og stundum voru klúbb-
fundir í „ekki saumaklúbbnum“ þar
sem stundum var keypt ein púrtvín,
sem dugði til að gera sex meðlimi
hans verulega káta.
Við fórum svo hver í sína áttina, en
héldum oftast sambandi og fórum svo
að hittast meira aftur, þegar börnin
okkar voru orðin stór og fórum þá
stundum saman í leikhús og út að
borða og upp í sumarbústað, Nína,
Beta, Hrefna og Oddný og stundum
Gústa. Berjamór í sólinni í Húsafelli
er minnisstæður og langar legur í
heitum potti með heimspekilegum
samræðum og fljótandi koníaksglös-
um eins og Nína kenndi okkur. Ekki
eru Hrefnu síður minnisstæðar
ánægjustundirnar í Flatey, þar sem
Regína og Benni dekruðu við okkur
„hattadömurnar“ og endalaust var
sungið, spilað, hlegið og fíflast. Þegar
við tókum eftir því að bekkjarráðs-
formaðurinn okkar, Sigga Hjartar,
var búin að bjóða bekknum nokkuð
oft heim til sín á stúdentsafmælum
tókum við okkur til og bjuggum sam-
an til kræsingar og buðum öllum
heim til Hrefnu á Látraströndinni. Þá
var oft fjör við matargerðina. Fimm-
tugsafmælin okkar kostuðu líka mörg
undirbúningsboð til að smakka mögu-
lega rétti og ræða málin. Hrefna
minnist líka skemmtilegrar sambúð-
ar á Látraströndinni í nokkrar vikur
meðan Nína beið eftir að fá Klapp-
arstíginn afhentan. Lengi var hist
reglulega til að njóta góðs af hæfi-
leikum Nínu til að mála hár og augu. Í
síðasta skiptið sem Hrefna hitti Nínu
á Landspítalanum fyrir tveimur vik-
um hafði hún einmitt orð á að liturinn
væri hárréttur þótt hún hefði ekki séð
um hann í þetta sinn!
Við minnumst þess ekki að Nína
talaði illa um nokkurn mann. Hún var
alltaf ljúf og góð og yndisleg með
glettnisbros á vör og hafði svo hlýja
nærveru. Það var gott að ræða við
hana um alla hluti. Við munum sárt
sakna þín, elsku vinkona. Svandísi,
Benna og Gesti og barnabörnunum,
sem við þekkjum svo vel af afspurn
sendum við innilegar samúðarkveðj-
ur.
Jafnframt vottum við Braga, for-
eldrum Nínu og öðrum ættingjum
samúð okkar.
Þínar menntaskólavinkonur,
Hrefna Kristmannsdóttir og
Oddný Björgólfsdóttir.
Það er undarlegt að hugsa til þess
að hún Nína eigi aldrei aftur eftir að
kíkja inn óvænt og kalla frá útidyrum:
„Sonja mín, er ég að trufla, elska?“
Núna um páskana þegar hún var
lögð inn á Landspítalann varð brátt
ljóst að kallið var komið.
Hún var að deyja.
Með sorg í hjarta fylgdumst við
með hvernig hún af æðruleysi og
reisn nálgaðist dauðann.
Hún, sterkust allra.
Kynslóðabil þekkti Nína mín ekki.
Hún gat rætt við unga sem gamla og
hún kunni að hlusta.
Hún var guðmóðir sonar míns, góð
vinkona dætra minna. Þegar hún og
mamma hittust settust þær jafnan af-
síðis nöfnurnar, með kaffibollana sína
og skröfuðu margt.
Hann pabbi lýsti því einu sinni yfir í
veislu að hún Jónína vinkona dóttur
hans væri glæsilegasta og gáfaðasta
kona sem hann hefði hitt. Svo væri
hún líka bráðskemmtileg.
Hann hitti naglann á höfuðið.
Nína var hávaxin og glæsileg, hafði
hlýtt viðmót og töfrandi framkomu
sem vakti athygli hvar sem hún fór.
Við hjónin og fjölskylda okkar
munum alltaf minnast Nínu með gleði
og þakklæti fyrir trausta vináttu í
rúm þrjátíu ár.
Öllum ástvinum hennar sendum
við hjartanlegar samúðarkveðjur.
Nína mín, Guð blessi þig.
Sonja.
FRÉTTIR
RANGLEGA var farið með eftirnafn
Þóreyjar Kolbeins í grein um Anton
Sigurðsson og Ísaksskóla í blaðinu á
sunnudag. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
FYRSTA kvöldganga sum-
arsins í þjóðgarðinum á Þing-
völlum verður gengin á morg-
un, fimmtudagskvöldið 9.
júní. Þetta er fimmta árið í
röð sem þjóðgarðurinn á
Þingvöllum stendur fyrir
kvöldgöngum á fimmtudags-
kvöldum í júní og júlí þar sem
fræðimenn og þjóðþekktir
áhugamenn um staðinn fjalla
um hugðarefni sín tengd
Þingvöllum.
Börn verða í hlutverki
fornleifafræðinga
Það er Árni Hjartarson
jarðfræðingur sem ríður á
vaðið að þessu sinni og fjalla
um hraun, gjár, jarðskorpu-
hreyfingar og jarðfræði Þing-
vallasvæðisins annað kvöld.
Árni varði í fyrra doktors-
ritgerð sína við Kaupmanna-
hafnarháskóla sem fjallar um
jarðsögu Skagafjarðar en
hann mun í göngunni m.a.
beina sjónum gesta að land-
reki og myndun nýs lands
sem óvíða er eins sjáanleg og
einmitt á Þingvöllum. Gangan
hefst við fræðslumiðstöðina
við Hakið, fyrir ofan Al-
mannagjá, og gengið verður
að Langastíg.
Einnig verður boðið upp á
fornleifaskóla barnanna á
Þingvöllum annað árið í röð
en skólinn mæltist vel fyrir
hjá yngri gestum garðsins í
fyrra. Þar verður börnum
boðið að reyna fyrir sér í
hlutverki fornleifafræðinga,
finna muni, skrá þá og teikna.
Skólinn verður starfræktur
alla sunnudaga yfir sumar-
tímann frá kl. 13–16 í Presta-
krók á Neðrivöllum.
Kvöld-
göngur
að hefjast
á Þing-
völlum
BRAUTSKRÁNING 116 stúdenta
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð fór fram í hátíðarsal skólans
nýverið. Konur voru 70 en karlar
46 og skiptust þannig á náms-
brautir: 46 af náttúrufræðibraut,
44 af félagsfræðibraut, 14 af
málabraut og 17 af IB-braut (þ.e.
námsbraut til alþjóðlegs stúdents-
prófs). Í þessari upptalningu eru
tvítaldir þeir fimm nemendur sem
luku námi á tveimur náms-
brautum. Fimm stúdentar fengu
ágætiseinkunn og var María
Helga Guðmundsdóttir dúx með
meðaleinkunnina 9,62. Semídúx
var Jakob Tómas Bullerjahn með
meðaleinkunnina 9,52 og lauk
hann jafnframt flestum einingum,
177 alls. Næst í röðinni var Ásdís
Hjálmsdóttir sem notaði morg-
uninn til þess að setja Íslandsmet
í spjótkasti. Þessi þrjú voru öll
nemendur á náttúrufræðibraut.
Tveir yngstu stúdentarnir eru
fæddir 1988, þ.m.t. dúxinn, og sá
elsti 1929. Ávörp og ræður fluttu
rektor, konrektor, Sigurborg
Matthíasdóttir, Jakob Tómas Bull-
erjahn nýstúdent og Þórólfur
Árnason, 30 ára MH-stúdent, en
geta má þess að sonur hans var
meðal nýstúdenta.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
116 brautskráðust frá MH
VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands,
VÍS, hefur veitt Jóni Sverri Jóns-
syni, vaktmanni á Reykjalundi, við-
urkenningu fyrir að hafa komið í veg
fyrir mikið tjón með því að slökkva
eld í röraverksmiðju Reykjalundar-
plastiðnaðar seint að kvöldi 20. mars
2005. Pétur Már Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Tjónaþjónustu VÍS,
afhenti Jóni Sverri flugmiða hjá Ice-
landair og sagði við það tækifæri að
vaktmaðurinn hefði brugðist rétt við
og komið í veg fyrir bruna og til-
heyrandi eignatjón með snarræði
sínu og dirfsku.
Verðlauna
vaktmann á
Reykjalundi
NEMENDUR í Hólabrekkuskóla
stóðu nýlega fyrir söfnun vegna af-
leiðinga náttúruhamfaranna í Asíu í
vetur. Alls söfnuðust 222.000 kr. sem
nemendurnir afhentu Rauða krossi
Íslands.
Krakkarnir í Hólabrekkuskóla
beittu ýmsum ráðum við söfnunina.
Nemendur í unglingadeild skólans
héldu kvöldvöku þar sem boðið var
uppá margvísleg skemmtiatriði og
rann ágóðinn af kvöldinu í söfn-
unarsjóðinn. Krakkarnir á mið-
skólastigi stóðu fyrir viðamikilli
dósasöfnun.
Hér afhendir Björn Berg Pálsson,
fulltrúi nemenda, Sigrúnu Árnadótt-
ir, framkvæmdastjóra Rauða kross-
ins, ágóðann af söfnuninni. Við hlið
þeirra stendur Hólmfríður G. Guð-
jónsdóttir, skólastjóri Hólabrekku-
skóla.
Söfnuðu vegna hamfaranna í Asíu
Morgunblaðið/Jim Smart
RÁÐSTEFNA á vegum Grundtvig fullorðinsfræðslu
Sókratesar, sem er evrópskt samstarfsverkefni, var
haldin hér á landi nýlega. Markmið verkefnisins er að
efla sjálfstraust kvenna og virkja þær til frekari þátt-
töku í samfélaginu. Hér á landi hefur verkefnið verið í
höndum Enskuskóla Erlu Ara og hafa 14 íslenskar kon-
ur sótt námskeiðið hjá henni. Námið fólgst m.a. í þjálf-
un í að koma opinberlega fram og almennri tölvunotk-
un. Að sögn Erlu er full þörf á að hvetja konur til þess
að taka þátt í verkefni sem þessu. Þjálfun í að koma
fram og takast á við ný verkefni opni ótal nýjar dyr og
auki möguleika þeirra til þátttöku í margs konar verk-
efnum til muna.
Í lok námskeiðsins sóttu svo erlendar stallsystur hin-
ar íslensku heim og ráðstefna var haldin. Gestirnir
voru 36 og voru þeir frá Þýskalandi, Portúgal, Spáni,
Finnlandi og Danmörku. Að sögn Erlu var
lögð rík áhersla á að kynna gestunum raunverulegt
líf íslenskra kvenna. Farið var í ferðalag að Gullfossi
og Geysi og fengu gestirnir að bragða á alvöru íslensk-
um mat.
Á ráðstefnunni héldu allar konurnar kynningu á
ensku. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra, hélt ávarp um mikilvægi símenntunar. Í
kjölfar fyrirlestranna voru umræður um mismuninn á
daglegu lífi þessara sjö Evrópuþjóða.
Ráðstefnugestir ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.
Alþjóðleg ráðstefna um eflingu kvenna