Morgunblaðið - 08.06.2005, Side 6
FARÞEGAR á leið til eða frá
Keflavíkurflugvelli geta ekið 15–20
mínútna leið í gegnum göng frá ál-
verinu í Straumsvík að Álftanesi og
þaðan yfir Skerjafjörðinn og niður í
miðbæ ef hugmyndir Stefáns Jóns
Hafsteins, borgarfulltrúa R-listans,
verða að veruleika.
Stefán Jón kynnti hugmyndir um
framtíðarskipulagsmál í Reykjavík
á borgarstjórnarfundi í gær en að
hans mati skiptir samgöngunet við
útlönd miklu máli, bæði fyrir Ís-
lendinga og erlenda ferðamenn. Um
leið yrði mögulegt að færa innan-
landsflug til Keflavíkur. Hann sagði
þó að einnig kæmi til greina að ríki
og borg ynnu saman að því að færa
Reykjavíkurflugvöll á annan stað í
nágrenni borgarinnar.
Taka ekki Vatnsmýrina með
Stefán Jón gagnrýndi sjálfstæð-
ismenn í borgarstjórn fyrir að taka
Vatnsmýrina ekki með inn í fram-
tíðarskipulag sitt sem kynnt var um
daginn en fagnaði engu að síður til-
lögum þeirra og sagði þær blöndu
af gömlum og nýjum hugmyndum.
Hann vill skapa stóran miðborg-
arkjarna með Vatnsmýrina á aðra
hönd og gjörbreytt hafnarsvæði á
hina. „Hér þarf engar landfyllingar,
enga byltingu í samgöngum heldur
aðeins dug og þor til að láta hlutina
gerast á svæðum sem nú þegar
kalla á uppbyggingu,“ sagði Stefán
Jón og ítrekaði jafnframt vilja
Reykjavíkurlistans til að efna til al-
þjóðlegrar hugmyndasamkeppni um
þennan stóra draum.
Hringbraut um
borgarkjarnann
Stefán Jón lagði áherslu á að
Vatnsmýrin og Álftanes yrðu ein
Stefán Jón Hafstein kynnti hugmyndir um skipulagsmál í Reykjavík á fundi borgarstjórnar
! "
#
$"
$ %
%
$ &'
(%) * & "
%
$" & ) &
#
$
% +
, %-%%
.
/
kvæma fyrst það sem byggir á kost-
um sem þegar eru fyrir hendi og að
framkvæma fyrst það sem styrkir
þá byggð sem fyrir er,“ sagði Stef-
án Jón og bætti við að tillögur sjálf-
stæðismanna brytu gegn þessari
hugsun og væru óhugsandi á næstu
árum. „Borg sem á það tækifæri
sem Vatnsmýrin er þarf ekki að búa
sér til annað og verra með uppfyll-
ingum og þvinguðum samgöngu-
mannvirkjum á haf út,“ sagði Stef-
án Jón.
Segir hugmyndir Sjálfstæð-
isflokks vekja upp umræðu
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði
greinilegt að framtíðarsýn og hug-
myndir Sjálfstæðisflokksins hefðu
vakið upp mikla umræðu um skipu-
lagsmál. „Þessar hugmyndir eiga
eftir að framkalla fleiri og nýjar
hugmyndir,“ sagði Vilhjálmur en
ítrekaði að þær eigi eftir að ræða
við borgarbúa.
Vilhjálmur sagðist blása á þá
gagnrýni að tillögur sjálfstæð-
ismanna um landfyllingar og byggð
í eyjaunum í Kollafirði væru allt of
dýrar í framkvæmd. Lóðaverð á
þessu svæði verði mun ódýrara en
t.d. í Norðlingaholti þar sem lóða-
gjöld eru komin upp í 25–30% af
heildarverði meðalstórrar íbúðar í
fjölbýli. Þá væri gerð góð grein fyr-
ir umferðarmálum í tillögunum með
stofnæð sem lægi frá Örfirisey í
Engey og yfir á Kringlumýr-
arbraut.
15–20 mínútna leið frá Keflavík í bæinn?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Miklar umræður fóru fram um skipulagsmál á borgarstjórnarfundi í gær.
skipulagsheild og tengd með braut
yfir Skerjafjörðinn. Í tillögum sjálf-
stæðismanna eru sambærilegar
hugmyndir en þar er gert ráð fyrir
göngum undir fjörðinn.
Að mati Stefáns Jóns má með til-
tölulega einföldum samgöngu-
bótum, sem þegar eru á dagskrá,
skapa hringbraut um borgarkjarn-
ann sem létta myndi á umferð og
stytta samgönguleiðir. „Í raun
skapast tveir hringir um miðborg-
ina í heild og þar með gjörbreytast
samgönguforsendur sem nú eru á
þverveginn eða langsum í borg-
arlandinu með tilheyrandi flösku-
hálsum,“ sagði Stefán Jón og ítrek-
aði að Sundabraut ætti að vera
forgangsverkefni í samgöngumálum
þjóðarinnar. Án hennar væri
ómögulegt að reisa glæsilega íbúða-
byggð í Gufunesi og Geldinganesi í
5–7 mínútna fjarlægð frá mið-
bænum.
„Ég vil undirstrika að þessar
hugmyndir byggja á einni grund-
vallarhugsun. Að framkvæma fyrst
það sem er nærtækast, að fram-
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Stefán Jón leggur til að Álftanes og Vatnsmýrin verði eitt skipulagssvæði.
6 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝ brú var sett á varðskipið Ægi síðastliðinn föstudag
í skipasmíðastöð í Póllandi. Endurbætur og breytingar
á skipinu ganga vel og er gert ráð fyrir að það verði
tilbúið og komi til landsins í fyrri hluta ágústmánaðar.
Skipið gengst undir töluverðar breytingar og segir
Hjalti Sæmundsson, aðalvarðstjóri í stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar í Skógarhlíð, að skipið verði sem nýtt
eftir endurbæturnar.
Ekkert eftir nema vélarrúmið
Nýja brúin er umtalsvert stærri en sú gamla, bæði
breiðari og lengri aftur. Turn verður settur á eins og
var á gömlu varðskipunum og skipið fær nýjan aftur-
enda með tveimur stýrum. Skipt verður um allar inn-
réttingar í skipinu og því verða íbúðir manna, lagnir,
rafmagn o.s.frv. endurnýjað. Hjalti segir að nær
ekkert verði eftir nema vélarrúmið, sem ekki verður
tekið í gegn, en þar segir hann allt í topplagi að
vanda. „Við vonumst til að þetta verði mjög flott og
stefnt er að því að öll vinnuaðstaða verði margfalt
betri en áður. Þetta er talsvert verk og það reyndist
hagkvæmt að gera samning við Pólverja. Svo þegar
þessu verður öllu lokið fer Týr í sams konar breyt-
ingu.“
Brú sett á varðskipið Ægi
Styrkir til áfeng-
is- og vímuvarna
TILKYNNT var um úthlutun úr For-
varnasjóði á nýlegum ársfundi Lýð-
heilsustöðvar. Veitt er úr sjóðnum til
verkefna á sviði áfengis- og vímu-
varna. Var 45 milljónum úthlutað að
þessu sinni. Helstu styrkþegar í ár
voru Fjölsmiðjan, sem hyggst starf-
ækja verkþjálfunar- og fram-
leiðslusetur fyrir ungt fólk, ADHD,
stuðningssamtök fjölskyldna og
barna með athyglisbrest, og Hós-
anna-hópurinn, sem sinnir götu-,
forvarna- og hjálparstarfi.
Samið um rekst-
ur risakrana
BECHTEL, sem byggir álver Alcoa
Fjarðaáls við Reyðarfjörð og Sam-
skip hafa gert með sér samning um
uppsetningu og rekstur á risakrana
við hina nýju álvershöfn. Kraninn
mun verða settur upp og starf-
ræktur af Samskip og verða not-
aður við uppskipun á stórförmum
og gámum með hráefni til álverk-
smiðjunnar. Samskip munu setja
kranann upp í júlí og á hann að
verða tilbúinn 30. júlí.
Skilorðsbundið
fangelsi fyrir
fíkniefnabrot
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt karlmann í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa undir höndum
157 grömm af hassi og 4,21 gramm
af amfetamíni. Maðurinn var ásamt
tveimur öðrum mönnum í bíl, sem
lögreglan á Akranesi stöðvaði á
Vesturlandsvegi í janúar sl. Fíkni-
efnin fundust í bílnum en samkvæmt
ákæru hugðust mennirnir flytja þau
til Akureyrar og selja hluta þeirra.
47% reið-
hjóla stand-
ast ekki ör-
yggiskröfur
SAMKVÆMT könnun Brautarinn-
ar, bindindisfélags ökumanna, eru
fæst þeirra reiðhjóla sem eru til
sölu á höfuðborgarsvæðinu með
tilskilinn öryggisbúnað. Um 47%
reiðhjólanna stóðust ekki reglu-
gerð og voru þó bjalla og lás und-
anskilin í könnuninni.. Alvarlegast
þótti að um 11% hjólanna voru án
framhemla. Einar Guðmundsson
hjá Brautinni telur alvarlegt að
hvorki Umferðarstofa, Löggilding-
arstofa né lögregla telji sig þurfa
að sinna eftirliti með að reglugerð-
in sé virt.
Í reglugerð um gerð og búnað
reiðhjóla frá 1994 segir ma. að
reiðhjól skuli hafa hemla við fram-
og afturhjól. Þá skuli hjól hafa
rautt endurskinsmerki að framan
og hvítt að aftan, á fótstigum og í
teinum skuli sömuleiðis vera end-
urskinsmerki. Samkvæmt reglu-
gerðinni eiga öll hjól einnig að
vera með keðjuhlíf, bjöllu og lás.
Könnunin var gerð í níu versl-
unum sem selja reiðhjól og kom í
ljós að ekkert hjólanna var með
allan skyldubúnað. Á flest hjólin
vantaði bjöllu og lás og þar sem
þessi búnaður er yfirleitt keyptur
sérstaklega var hann undanskilinn
í könnuninni.
Einar Guðmundsson sagði að
það sem ylli mestum áhyggjum
væri að 11% reiðhjóla væru seld
án framhemla. Talið væri að um
60-75% hemlunar væru jafnan á
framhjóli og því beinlínis varasamt
að hjóla um á hjóli án framhemla.
Meira á mbl.is/ítarefni