Morgunblaðið - 08.06.2005, Qupperneq 20
Nýr og girnilegur
uppskriftavefur á mbl.is
Finndu uppáhalds uppskriftina þína á mbl.is
Aðferð:
Steikið nautalundina í smjörinu og hvítlauknum á heitri pönnu
á öllum hliðum þannig að hún lokist alveg, þá er hún sett inní
200° heitan ofn í ca 15 mín. eða þar til að kjarnhitinn verði ca
65° (medium). Þá er lykilatriði að hún fái að standa á borði í
lágmark 15 mín. áður en hún er skorin í sneiðar.
Heilsteiktar nautalundir
með kremuðum blönduðum
sveppum og grískum kartöflum
(fyrir fjóra)
Hráefni
700-800 g
nautalundir
(sinahreinsaðar)
salt og pipar
2 msk. smjör
Einn hvítlauks-
geiri (kraminn)
Akureyri | Gunnar Níelsson á
Akureyri – betur þekktur sem
Gunni Nella – er gallharður
stuðningsmaður enska knatt-
spyrnufélagsins Liverpool, og
fagnaði Evrópumeistaratitli fé-
lagsins með því að starfa sem
kerrustrákur í Bónus á Ak-
ureyri sl. laugardag. Það var
nefnilega í vetur, þegar Liver-
pool tapaði fyrir Burnley í bik-
arkeppninni, að aðstoðarversl-
unarstjórinn í Bónus spáði því
að Liverpool yrði Evrópumeist-
ari. Gunnar lýsti því þá sam-
stundis yfir að ef svo færi skyldi
hann sinna starfi kerrustráks í
versluninni einn laugardag, og
það gerði hann nú og reyndar
gott betur; Gunnar, sem starfar
sem sölumaður SS á Norður-
landi, stóð nefnilega líka lengi
við grillið og bauð gestum versl-
unarinnar upp á pylsur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gunnar fagnaði Evrópumeistaratitli
Kerrustrákur
Landið | Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hjartans þökk frá Borgnesingum | Sig-
rún Símonardóttir stýrði nýlega sínum síð-
asta fundi sem formaður félagsmálanefndar
Borgarbyggðar en hún og eiginmaður henn-
ar, Ólafur Steinþórsson, fluttu til Reykjavík-
ur í vor eftir að Sigrún lét af störfum á sýslu-
skrifstofunni og fór á eftirlaun.
Páll Brynjarsson bæjarstjóri afhenti Sig-
rúnu blómvönd af þessu tilefni en hún hefur í
áratugi tekið virkan þátt í sveitarstjórn-
armálum í Borgarnesi og Borgarbyggð, var
bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar og
hefur setið í ótal nefndum á vegum bæjarins.
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Sigrún
verið formaður félagsmálanefndar, barna-
verndarnefndar og stjórnar Dvalarheimilis-
ins.
Blómvendinum fylgdu þakkir í bundnu
máli, að því er fram kemur á vef Borg-
arbyggðar: Nú hlýturðu frelsi og frí alla
daga/ fegurðar nýtur í Breiðholtsþingum./
Farsælum störfum skal haldið til haga/ með
hjartans þökk frá Borgnesingum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Býflugnarækt | Á vordögum voru sjö bý-
flugnabú flutt í Kelduhverfi. Þar með er til-
raun til býflugnaræktar hafin aftur en það
var fyrst gert árið 2001. Það sumar voru tvö
bú flutt í Kelduhverfið en veturinn eftir
drápust allar flugurnar að því er talið er
vegna vindnæðings. Búin eiga að þola frost
og snjó en loftrásin út má þó aldrei lokast. Í
sumarlok ætla býflugnabændur því að
koma búunum fyrir á öruggum stað þar
sem ekki næðir um þau. Það er Erlendur Á.
Garðarsson í Gömlu Lindarbrekku sem
stendur fyrir tilrauninni en Ólöf Sveins-
dóttir Árdal sér um fimm búanna og Að-
alsteinn Snæþórsson, Víkingavatni, og
Ólafur Jónsson, Fjöllum, hvor um sitt hinna
tveggja. Vonast þau til að geta bráðlega
farið að safna gæðahunangi úr búunum,
segir í frétt á vefnum kelduhverfi.is.
Pétur hættir | Tilkynnt var við skólaslit
Öxarfjarðarskóla að Pétur Þorsteinsson,
aðstoðarskólastjóri, fyrrverandi skólastjóri
og kennari við skólann í um þrjátíu ár, léti
af störfum í sumar. Hann hefur ráðið sig
sem skólastjóra Hallormsstaðarskóla í
Fljótsdal. Á vefnum, dettifoss.is, kemur
fram að Pétur nefndi að ein af ástæðum
þess að hann hætti væri árekstur hans við
sveitarstjóra í vetur og ósamkomulag
þeirra á milli varðandi verkefni hans.
EinkaflugmaðurinnSnorri Þorvaldssonsem fyrstur manna
lenti flugvél á heimskauts-
baug hinn 14. september 1953
kom í dagsheimsókn svona til
að skoða Grímsey og rifja upp
þetta merka atvik. Það var
Bjarni Magnússon hreppstjóri
sem tók á móti Snorra og sam-
an keyrðu þeir um eyjuna sem óðfluga er
að klæðast sínum græna sumarkjól.
Snorri Þorvaldsson vann 30 ár sem fiðlu-
leikari við sænsku útvarpshljómsveitina
en hætti árið 1991 og flutti þá til Suður-
Frakklands ásamt eiginkonu sinni. Þar
hefur Snorri framleitt myrru fyrir
strengjahljóðfæri sem hann flytur um
heim allan. Ástæðan fyrir því að Snorri
lenti í Grímsey 1953 á vél sinni, var mikill
áhugi hans á flugi um landið. Alls lenti
hann á 78 stöðum, hvort sem nokkur flug-
völlur var eða ekki! Eftir að Snorri flutti
til Svíþjóðar keypti hann sér aðra flugvél
en sagði að ekki hefði verið eins gaman að
fljúga hjá Svíum. Ekki sama frelsið og að
fljúga á Íslandi og vegna þessa seldi
Snorri flugvélina. Snorri Þorvaldsson
segist koma eins oft til Íslands eins og
geti. Hann dáist að framförum hér á öll-
um sviðum. Heimsókn Snorra nú var hans
þriðja til Grímseyjar. „Þetta er sérstakur
blettur á jörðinni og ráðlegg ég öllum að
heimsækja hann,“ sagði Snorri.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Snorri og Bjarni á Eyjarbókasafninu í Grímsey.
Sérstakur
blettur á
jörðinni
Lenti fyrstur flugvél í Grímsey 1953
Davíð Hjálmar Har-aldsson yrkirlimru:
Karla, er soninn á Svein, býr
við seli og tófur og hreindýr.
Fyllist þau leiða
oft fara til veiða
og frægasta bráðin er sein kýr.
Kristján Eiríksson bæt-
ir við í sama dúr um son-
ardótturina Guðfinnu,
„sem heldur enn hinu
gamla búskaparlagi
ömmunnar“:
Hún Guðfinna Sveins sem á
Bæ býr
við bjarndýr og strúta og
hrædýr
hún mjólkar í fjósi
í magísku ljósi
hundrað og sextíu sækýr.
Þannig má leika sér
með orðasamsetningar.
Eins og frægt er í limru
Þorsteins Erlingssonar
um „mömmuleik“:
Tvær leikbrúður nefndust Lon
og Don,
og Lon unni Don og Don unni
Lon.
„Elsku Don“, „elsku Lon“,
lon og don -
og „elsku London“, þegar þau
eignuðust son.
Ó London
pebl@mbl.is
Norðurland | Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi, SUNN, hafa sent frá sér
ályktun þar sem fram kemur að þau harmi
nýlegar yfirlýsingar um álver á Húsavík og í
Helguvík, „og telja að með því séu farnar
rangar leiðir í atvinnuuppbyggingu og að af-
leiðingar virkjana, nauðsynlegra fyrir álver-
ið, á náttúru verði skaðlegar en einnig ófyr-
irsjáanlegar“, eins og segir í ályktuninni.
Einnig kemur þar fram að áhrif álvers á
nánasta umhverfi, félagslegt og náttúrulegt,
séu slæm auk alvarlegra afleiðinga útblást-
urs gróðurhúsalofttegunda. Þá séu áhrif ál-
vers á náttúru norðanlands með virkjunum í
jökulám með óafturkræfum áhrifum á uppi-
stöðulón. Einnig er í ályktuninni bent á að
líklegt sé að karlar muni fyrst og fremst
vinna á stórum vinnustað sem álver er og
það sé brot á alþjóðlegum sáttmála um út-
rýmingu hvers kyns mismununar gagnvart
konum. Fleiri konur en karlar flytjist brott
úr dreifbýli, þannig að umtalsverður kynja-
munur hefur skapast og hann sé hvergi
meiri en á Austurlandi. „Uppsetning álvers
á Húsavík í Þingeyjarsýslu eða í Helguvík í
Reykjanesbæ er líkleg til að auka mishátt
hlutfall kvenna og karla á þessum lands-
svæðum,“ segir í ályktun samtakanna.
Loks er nefnt að samtökin telja áróður
ríkisstjórnar um að koma upp álveri á Norð-
urlandi hafa skaðleg áhrif á aðra atvinnu-
starfsemi í fjórðungnum og geta dregið úr
framtaki heimafólks í þeim efnum.
Samtökin fagna hins vegar vinnu við
Vaxtarsamning Eyjafjarðarsvæðisins og
hugmyndum um fjölbreytta atvinnuupp-
byggingu á Norðurlandi, s.s. í þekkingariðn-
aði, ferðamennsku, matvælaiðnaði og við
menningarstörf.
Álver röng
leið í atvinnu-
uppbyggingu
Ísafjörður | Kómedíuleikhúsið á Ísafirði
hefur fest kaup á samkomuhúsinu í Hauka-
dal í Dýrafirði. Elfar Logi Hannesson for-
svarsmaður þess segir í samtali við Bæj-
arins besta að ekki sé nákvæmlega ljóst
hvað gert verður við húsið. Sér hafi þótt
húsið fallegt og þess virði að kaupa það
þegar það var auglýst.Til stendur að sýna
einþáttunginn Gísla Súrsson í Haukadal í
sumar. Elvar Logi hefur sýnt hann á Vest-
fjörðum og víðar í vetur og vor. Samkomu-
húsið var byggt á fjórða áratug síðustu ald-
ar og er um 100 fermetrar að stærð.
Kaupir
samkomuhús
♦♦♦