Morgunblaðið - 08.06.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
Hellur
steinar
borðinu
skuluð þið þekkja þær
Á yfir-
HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR
Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800
Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540-6855
Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881
www.steypustodin.is
Hellur og steinar fást einnig í
verslunum BYKO
F
A
B
R
I
K
A
N
SUMARIÐ & GARÐURINN
Keflavík | Fjórtán svæðisleið-
sögumenn sem útskrifuðust á
Suðurnesjum um helgina og einn
kennari þeirra hafa stofnað
sjálfseignarstofnun í þeim til-
gangi að koma þekkingu þeirra á
framfæri. Þeir vinna að því að
koma upp vef til að kynna Suð-
urnesin og skapa vettvang til sölu
á skipulögðum ferðum um svæð-
ið. Ánægja er með námið og er
stefnt að nýju námskeiði.
„Það er mikill hugur í mönn-
um,“ segir Bergur Sigurðsson
heilbrigðisfulltrúi sem kosinn var
í stjórn sjálfseignarstofnunar-
innar á stofnfundi hennar. Stofn-
unin var stofnuð strax að lokinni
formlegri útskrift svæðisleiðsögu-
mannanna síðastliðinn laugardag.
„Við ætlum að búa okkur til vett-
vang, í fyrstu heimasíðu, þar sem
við getum unnið að markmiðum
okkar,“ segir Bergur. Félagið er
byggt þannig upp að eingöngu
leiðsögumenn geta gerst aðilar
að sjálfseignarstofnuninni en allir
félagsmenn mynda fulltrúaráð
sem stjórnar félagsskapnum.
Kristján Pálsson var kosinn for-
maður fulltrúaráðsins en í stjórn
með Bergi voru kosin þau Reynir
Sveinsson, Iða Brá Vilhjálms-
dóttir, Rannveig L. Garðarsdóttir
og Hildur Harðardóttir.
Það kostar að minnsta kosti
milljón að stofna fyrirtæki og
koma upp vandaðri heimasíðu.
Hópurinn fékk vilyrði fyrir 500
þúsund króna styrk hjá at-
vinnuþróunarsviði Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
félagsmenn leggja sjálfir í púkkið
á sjötta hundrað þúsund krónur.
Hugmyndin er að félagið fái hlut-
deild í tekjum af þeim ferðum
sem seldar eru á vefnum og geti
þannig staðið undir rekstrinum.
Engin fordæmi
Rannveig L. Garðarsdóttir seg-
ist ekki vita til þess að slíkur fé-
lagsskapur hafi verið myndaður
annars staðar. Hún segir að þeir
sem stunduðu svæðisleiðsögu-
mannanámið hafi aflað sér gíf-
urlegrar þekkingar á mismunandi
sviðum. Mikilvægt sé að halda ut-
an um þessi gögn og þekkingu og
nýta þau. „Við höfum áhuga á að
koma sögu og náttúru Suðurnesja
á framfæri og teljum grundvöll
til þess að gera það með þessum
hætti. Svæðið er í næsta nágrenni
höfuðborgarinnar og síðan höfum
við Keflavíkurflugvöll. Við förum
í þetta full af bjartsýni enda er
þetta óskaplega spennandi verk-
efni,“ segir Rannveig.
Hún segir að vefurinn verði
væntanlega tilbúinn í haust. Hug-
myndin sé að hver félagsmaður
hafi sína eigin heimasíðu þar á
bak við þar sem skipulagðar
verði ferðir á sérsviði viðkom-
andi. Síðan verði allar ferðirnar
kynntar og seldar á vef sjálfs-
eignarstofnunarinnar. Rannveig
nefnir fuglaskoðunarferðir,
gönguferðir um Keflavík og ferð-
ir tengdar þjóðsögum auk þess
hægt verði að sérsniða ferðir eft-
ir óskum fyrirtækja og hópa.
„Þetta er kraftmikill hópur
sem hefur mikla þekkingu á sögu
og náttúru Suðurnesja og hefur
nú aflað sér þekkingar til að
miðla henni. Það er nauðsynlegt
að nýta þetta fólk,“ segir hún.
Áhugi að halda áfram
Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum (MSS) stóð fyrir svæð-
isleiðsögumannanáminu í sam-
vinnu við Leiðsöguskólann. Er
þetta sextán eininga nám sem
hófst í byrjun árs 2004 og hafa
nemendur stundað það með
vinnu. Að sögn Guðjónínu Sæ-
mundsdóttur, forstöðumanns
MSS, var farið vítt yfir sviðið,
jarðfræði svæðisins, gróður og
dýralíf, tungumálanotkun, leið-
sögutækni, svæðalýsingar og
markaðsfræði svo nokkuð sé
nefnt. „Svæðisleiðsögumaður á að
kunna allt um viðkomandi svæði,
í þessu tilviki Reykjanesskagann,
og námið veitir honum atvinnu-
réttindi sem leiðsögumaður á
svæðinu,“ segir Guðjónína. „Það
var líka markmið út af fyrir sig
að fjölga þeim sem hafa þekkingu
á svæðinu og vita hvað það hefur
upp á mikið að bjóða og stuðla
þannig að kynningu þess,“ segir
hún.
Guðjónína er ánægð með
hvernig til tókst. „Þetta var
skemmtilegt og fræðandi. Svo var
hópurinn sérstaklega góður því
að í honum var fólk með mikla
reynslu og þekkingu, áhrifafólk í
ferðaþjónustunni á svæðinu og
jafnvel fólk sem hafði tekið að
sér leiðsögn,“ segir Guðjónína.
„Eftir því sem maður lærir
meira þeim mun betur áttar mað-
ur sig á því hvað maður veit lítið.
Ég hélt að ég hefði nokkuð góða
þekkingu á svæðinu en annað
kom í ljós,“ segir Rannveig L.
Garðarsdóttir þegar hún er spurð
að því hvort hún hefði lært eitt-
hvað nýtt í svæðisleiðsögunám-
inu. Hún er útskrifuð frá Ferða-
málaskólanum í Kópavogi og
hefur unnið við Upplýsinga-
miðstöð Reykjaness í tvö ár. Hún
segir að námið í Leiðsöguskól-
anum hafi verið ólíkt þessu. Í
svæðisleiðsögunáminu sé farið
miklu dýpra í málin á þessu til-
tekna svæði. „Þetta hefur verið
áhugavert og skemmtilegt,“ segir
hún.
Guðjónína segir að áhugi sé á
því hjá MSS að efna til annars
námskeiðs fyrir svæðisleið-
sögumenn á Suðurnesjum. Mun
það hefjast í byrjun næsta árs, ef
næg þátttaka fæst.
Sextán leiðsögumenn með sérþekkingu á Suðurnesjum útskrifast hjá Miðstöð símenntunar
Morgunblaðið/ÞÖK
Reykjanes Náttúra og saga Suðurnesja er viðfangsefni nýútskrifaðra
svæðisleiðsögumanna. Hér er hverasvæði og Reykjanesviti í baksýn.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Setja upp heimasíðu til að selja þjónustuna
SUÐURNES