Morgunblaðið - 08.06.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 25
DAGLEGT LÍF
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
ÁRMÚLI
ATVINNUHÚSNÆÐI
Gott 275 fm atvinnuhúsnæði miðsvæð-
is í Reykjavík bakatil við Ármúla. Eignin
skiptist í vaskahús, snyrtingar og tvo
sali, en auðvelt væri að taka niður létta
veggi og nýta sem eina heild undir ým-
isskonar þjónustu, iðnað eða sem lag-
errými. Mjög góð lofthæð og inn-
keyrsludyr eru á plássinu. Malbikað
plan. V. 22,9 m
MIÐHRAUN - HEIL HÚSEIGN
Glæsilegt nýlegt 1250 fm atvinnuhús-
næði við Miðhraun á 4.700 fm lóð.
Eignin skiptist að mestu leyti í tvo sali,
skrifstofur, matsal og geymslur. Fimm
innkeyrsludyr. Malbikað plan. Einkasala.
SUÐURHRAUN - 5000 FM BYGGING
Vandað atvinnuhúsnæði með stórum
iðnaðar- og lagersal auk skrifstofu-
pláss, starfsmannaaðstöðu o.fl. Eignin
er að mestu leyti á einni hæð með
mörgum innkeyrsluhurðum og góðu
athafnasvæði á lóð. Húsið lítur mjög
vel út að utan með malbikaðari lóð.
Mikill fjöldi bílastæða. Fyrir liggur sam-
þykktur byggingarréttur fyrir um 1.000
fm stækkun hússins. Nánari upplýs-
ingar veitir Óskar eða Hákon.
Gott skrifstofuhúsnæði í Skeifunni til
leigu. Um er að ræða 235 fm á 2. og
350 fm á 3. hæð í þessu fallega húsi á
þessum eftirsótta stað. Grunnflötur 3.
hæðarinnar er u.þ.b. 500 fm sem eykur
nýtingu hæðarinnar. Snyrtileg sameign.
Eignin er laus til afhendingar strax.
SUÐURLANDSBRAUT - SKRIFSTOFUR
Höfum fengið í einkasölu þrjár efstu
skrifstofuhæðirnar í þessu húsi við
Suðurlandsbraut. Um er að ræða 5.,
6. og 7. hæð í húsinu, samtals 900,4
fm. Glæsilegt útsýni. Lyfta er í húsinu.
Hentar vel fyrir fjárfesta. Eignin er í út-
leigu að hluta.
FAXAFEN - TIL LEIGU
Nánari upplýsingar veita
Sverrir og Hákon
Elstu eplatré, sem vitað erum að beri ávöxt hér álandi, komu frá Danmörku
og voru gróðursett um 1950 og
síðan hafa fleiri tré og tegundir
bæst í hópinn. „Gróðrarstöðvar
hafa á undanförnum árum flutt
inn yrki frá Norðurlöndum og hef-
ur gengið ágætlega að rækta sjö
þeirra í görðum hér á landi og að
minnsta kosti jafn mörg yrki hafa
gefist vel í köldum gróðurhúsum,“
segir Kristinn H. Þorsteinsson
formaður Garðyrkjufélags Íslands.
Að auki hafa tvær tegundir af
dönskum Manus-fjölskyldutrjám
gefið góða raun við góð skilyrði
utandyra. „Þetta eru tré, þar sem
þrjú yrki hafa verið grædd á sama
stofninn og er haft í flimtingum að
eitt yrkið sé matarepli fyrir börn-
in, annað bökunarepli fyrir konuna
og það þriðja er bruggepli fyrir
manninn og þá eru allir ánægðir,“
segir Kristinn.
Þurfa skjól fyrir verstu áttunum
„Eplatré verða að standa í skjóli
fyrir verstu áttunum og það þarf
að verja þau fyrir frostum á vorin.
Þar af leiðir að þau geta ekki þrif-
ist þar sem frostpollar myndast í
lautum eða lægðum eins og til
dæmis neðst í Fossvogi eða neðst
í Laugardal. Frost hegðar sér eins
og á eða lækur og flæðir niður í
dali og það þola þau ekki. Trén
eru því betur komin ofar í daln-
um.“
Eplatré geta náð allt að fimm
metra hæð og segir Kristinn að
þau séu auðveld í ræktun en að
það þurfi kunnáttu við að klippa
þau. „Yrkin sem eru hér þroska
aldin snemma á heimaslóðum en
síðsumars hér,“ segir hann. „Yf-
irleitt vilja þessar tegundir ekki
mikinn áburð og er því best að
nota lífrænan áburð í allri rækt-
un.“
Dæmi eru um að uppskeran hafi
verið 40-60 epli á ári.
Hindber og vínber
Kristinn segir að fyrir utan
eplatré hafi náðst góður árangur í
ræktun hindberjarunna af yrkinu
Veden. „Þetta er eina skilgreinda
yrkið sem hefur gefið af sér í úti-
ræktun hér á landi,“ segir hann.
„Við vitum að það eru önnur yrki
hér, sem hafa gefið af sér ber, en
það er ekki vitað um hvaða yrki er
að ræða. Svo eru það þrjú yrki af
vínberjum, þ.e. Frankenthaler,
Buckland Sweetwater og Madres-
field Court, sem öll hafa gefið
uppskeru í köldum gróðurhúsum.“
Hindberjarunnar og epla-
tré í íslenskum görðum
GRÓÐUR
Dæmi eru um að uppskeran eftir sumarið nái 40 til 60 eplum.
Hindber hafa gefist vel í útiræktun hér á landi.
Yrkin sem gefið hafa góða raun
hér á landi eru:
Utandyra
Transparente Blanche
Transparent Jaune
Sävstaholm
Haugmann
Krone Prins
Í köldum gróðurhúsum
Rödluvan
Astran
Gyllenkroks
Silva
Summerred
James Grieve
Epicure
Malus fjölskyldutré, dönsk:
Elstar+Ingrid
Marie+Katinka
Filippa+Aroma+Ingrid
Marie
Eplatré þrífast vel í góðu skjóli.