Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 34
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann alsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Amma. HINSTA KVEÐJA 34 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ SkarphéðinnKristinn Sverris- son fæddist í Reykja- vík 25. nóvember 1981. Hann lést af slysförum 27. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Guðrún Lofthildur Skarphéð- insdóttir, f. 25.1. 1949, d. 13.8. 1982, og Sverrir Jónsson, f. 4.1. 1950. Foreldrar Guðrúnar eru Erla Kristín Egilson, f. 13.3. 1924, og Skarp- héðinn Kristinn Loftsson, f. 27.7. 1922, d. 28.6. 2001. Foreldrar Sverris eru Hólm- fríður Kristjánsdóttir, f. 1.9. 1907, d. 22.1. 2001, og Jón Guðmunds- son, f. 10.3. 1919. Systir Skarp- héðins er Erla Jóna, f. 26.8. 1974. Sambýlismaður hennar er Andri Ottó Ragnarsson, f. 16.10. 1974. Sonur þeirra er Aron Logi, f. 28.12. 2003. Sambýliskona Sverris er Rannveig Sigurgeirsdóttir, f. 12.11. 1964. Skarphéðinn ólst upp í Reykjavík. Eft- ir grunnskólanám stundaði hann nám um tíma í Borgar- holtsskóla í bíliðna- deild. Hann vann síð- an ýmis störf, var bílstjóri undanfarin fjögur ár hjá Ís- landspósti, en hafði nýlega hafið störf hjá Atlantsolíu. Hann var mikill áhugamaður um bíla og var félagi í Fornbílaklúbbi Íslands. Skarphéðinn var ókvæntur og barnlaus. Skarphéðinn Kristinn verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hóglega, hæglega hnígur þá sól að viði – tíminn líður líður með ljúfum niði og fegurðin andar á vöggu lífsins friði. (Jóh. úr Kötlum.) Skarphéðinn Kristinn Sverris- son fórst í bílslysi 27. maí sl. Líkt og við hin fór hann um braut lífs- ins þennan vordag. Ekur snemma morguns út úr bænum. Fer um kyrran Hvalfjörð. Vélardynur tveggja ökutækja rýfur kyrrðina. Bílarnir rekast á. Aftur ríkir kyrrð. Þögn. Lífsljós annars öku- mannsins hefur slokknað. Sorgartíðindin berast. Hulunni er svipt af léttleika tilverunnar. Botnlaust gap sársauka og sakn- aðar opnast. Huggunin fjarri. Foreldrar Skarphéðins, þau Sverrir Geir Jónsson föðurbróðir minn og Guðrún Skarphéðinsdótt- ir, bjuggu með litla dóttur sína Erlu Jónu á Akureyri þegar ég var þar í menntaskóla. Seinna, í Barðavoginum í Reykjavík, fæddist þeim sonurinn Skarphéðinn Kristinn. Tilvera litlu fjölskyldunnar brast skyndilega er Guðrún varð bráðkvödd og féll frá eiginmanni sínum og börnum. Við móðurmissinn var Skarphéðinn að- eins níu mánaða. Skarphéðinn naut ætíð ástúðar heimilisins, um- hyggju afa sinna Skarphéðins og Jóns, elsku ammanna Erlu og Fríðu, tryggðar móður- og föður- systkinanna Stefáns, Ásdísar og Garðars, fjölskyldna þeirra og vin- áttu félaga. Skarphéðinn var gleðigjafi, létt- ur, kvikur, gáskafullur og ljúfur. Síðast hittumst við þ. 2. maí í sjö- tugsafmæli pabba. Framtíðin blasti við Skarphéðni. Bílar og bif- vélafræði voru hans ástríða. Hann var fullur tilhlökkunar. Ný, metn- aðarfull atvinna beið hans sem bíl- stjóra hjá Atlantsolíu. Lífið tók nýja stefnu. Stjarna hans skein skær. Ungur drengur var orðinn að fullorðnum, ábyrgum einstak- lingi, tilbúnum að axla lífið. Í dag kl. 15 kveðjum við Skarp- héðin hinstu kveðju við athöfn í Laugarneskirkju. Við Max og Ingibjörg Iris Mai Svala biðjum að fjölskylda hans, vinir og vinnu- félagar fái huggun og styrk. Megi vængir frelsarans umvefja ungan frænda um alla eilífð. Drottinn blessi minningu Skarphéðins Kristins Sverrissonar. Guðrún Dager Garðarsdóttir og fjölskylda. Nú hefur Skarphéðinn Kristinn, frændi minn og vinur, kvatt þenn- an heim. Það hefur hann gert svo miklu fyrr en nokkurn óraði fyrir og eftir standa þeir sem hann þekktu og elskuðu og spyrja sig spurninga sem engin svör fást við. Hann hefur nú hlotið þann dóm sem enginn flýr í fyllingu tímans en þó þykir manni ósanngjarnt hversu snemma hans tími kom. Þegar hugurinn hvarflar aftur til liðinna stunda er margs góðs að minnast af Skarphéðni frænda. Ávallt léttur í lund og tilbúinn að sjá spaugilegar hliðar á viðfangs- efnum sínum og samferðafólki, þá var hann oft og tíðum hrókur alls fagnaðar í hópi fjölskyldu og vina. Frændi minn var ekki allra en hann reyndist vinur því fólki sem hann kynntist og átti samleið með. Þeim sem Skarphéðni kynntust á þann hátt varð snemma ljóst hversu vinhollur og traustur hann var. Ávallt var það hann sem var fyrstur á staðinn ef eitthvað þurfti að gera, hvort sem flytja þurfti húsgögn eða draga bilaðan bíl, alltaf var hægt að stóla á greiða- semi hans. Það er eðliskostur sem gerir menn að traustum og góðum vinum, vinum sem sárt er saknað í erli hversdagsins og þegar á reyn- ir. Frá blautu barnsbeini var Skarphéðinn mikill áhugamaður um bíla og allt sem þeim viðkom. Hann átti mikið safn leikfangabíla í æsku sem litla frænda hans þótti ekki leiðinlegt að komast í. Þegar komið var á bílprófsaldurinn var sem hann spryngi út og ófáir voru þeir bíltúrarnir sem við frændurn- ir fórum um allar götur og öll hverfi Reykjavíkur og nágrennis. Sérstaklega er mér minnisstæður bíltúrinn sem við frændurnir átt- um vestur á Snæfellsnes í apríl síðastliðnum, þá var glatt á hjalla. Það reyndist okkar síðasti bíltúr að sinni en hver veit nema þeir verði fleiri þegar leiðir okkar liggja saman að nýju. Við frændurnir urðum nánari þegar ég kom til náms í Reykja- vík, heim til afa og ömmu í Barða- voginn. Skarphéðinn bjó þar í sama húsi ásamt Sverri föður sín- um og Erlu Jónu systur sinni. Í Barðavoginum áttum við Skarp- héðinn okkar skjól en heimili afa og ömmu var heimili okkar beggja, hans eftir að hann missti móður sína svo skyndilega aðeins átta mánaða gamall og mitt er í bæinn var komið. Það var gott að búa í Barðavogi og alltaf gat ég stokkið niður til Sverris og þeirra ef eitt- hvað vantaði og eins voru þær ófá- ar heimsóknirnar sem við fengum á efri hæðina frá Sverri, Erlu og Skarphéðni. Við ævilok þess góða drengs sem Skarphéðinn var er margt að þakka og margs að minnast. Ég á stóra frænda margt að þakka, hann reyndist mér á öllum stund- um góður og sannur vinur. Nú heldur maður lífsins göngu áfram fátækari en áður en á sama tíma þakklátur fyrir það sem gefið var og nú er tekið aftur. Megi algóður Guð rita nafn Skarphéðins frænda á lífsins bók, þar á nafn hans heima og minning hans meðal okkar sem eftir lifum. Stefán Einar. Þær sorgarfréttir sem við feng- um föstudaginn 27. maí sl. voru ólýsanlega sárar. Hvað getur mað- ur sagt eða gert? Það er engan veginn hægt að sætta sig við að horfa á eftir litla frænda sínum falla frá svona í blóma lífsins en það er víst eitthvað sem við verð- um að reyna að lifa með. Erla Jóna og Skarphéðinn voru tvö systkinin og misstu þau ung móður sína og ólust því upp hjá Sverri föður sínum. Þau bjuggu í sama húsi og Erla amma og Skarphéðinn afi og því var alltaf mjög spennandi hjá okkur systk- inunum að koma til Reykjavíkur og hitta frændsystkinin. Við töl- uðum alltaf um það að við værum eiginlega eins og einn systkinahóp- ur því við vorum öll svo náin. Þeg- ar við systkinin fórum síðan að tín- ast koll af kolli til Reykjavíkur í framhaldsskólanám þá urðu sam- verustundirnar mun fleiri og við höfum alltaf verið miklir vinir. Heimili ömmu og afa í Barðavog- inum var okkar griðastaður, þar hittumst við yfirleitt hvort sem það var fyrirfram skipulagt eða bara tilfallandi. Þar var alltaf glatt á hjalla og mikið hlegið. Skarphéðinn var mjög skemmti- legur krakki, alltaf mjög þægur og hvers manns hugljúfi. Hann var með óseðjandi bíladellu og var varla farinn að tala þegar hann var farinn að þekkja allar bílategund- irnar í sundur. Bílaáhuginn dró Skarphéðin í Borgarholtsskóla þar sem hann lærði bifvélavirkjun og átti hann skammt eftir til að ljúka því námi. Hann tók meirapróf og var nýlega farinn að vinna við akstur olíubíls og var virkilega ánægður með það. Það gladdi okk- ur mikið hversu vel honum gekk og nefndi hann það nýlega við okk- ur að hann hefði hug á að fjárfesta í íbúð með haustinu. Skarphéðinn var þeim eiginleika gæddur að ef maður hitti hann þá mátti alveg gera ráð fyrir ein- hverjum gullkornum því hann var með orðheppnari mönnum sem við höfum kynnst. Hann var líka með sérlega smitandi hlátur og mátti oft heyra hláturrokurnar á milli hæða upp til ömmu og afa ef Skarphéðinn var niðri hjá sér að horfa á grínmynd. Í byrjun apríl fórum við fjöl- skyldan saman upp á Snæfellsnes þar sem við höfðum leigt stórt hús og eyddum þar heilli helgi öll sam- an. Þar áttum við frábærar stundir saman og er okkur mjög dýrmætt í dag að Skarphéðinn skyldi koma og dvelja með okkur þar. Þar var hann eins og venjulega hrókur alls fagnaðar og hélt uppi fjörinu. Hann var einstaklega góður við litlu frændsystkin sín og þurftu þau ekki að hafa mikið fyrir því þessa helgi til að fá hann til að snúa snúsnúbandinu fyrir sig. Það fær mann til að hugsa um það hversu mikilvægt er að fjölskyldur gefi sér tíma fyrir sína nánustu og njóti þess að vera saman. Það er með miklum trega sem við kveðjum Skarphéðin frænda okkar. Hann var ein sú ljúfasta manneskja sem við höfum þekkt og vildi alltaf öllum vel. Það er mjög skrítið til þess að hugsa að hans muni ekki njóta lengur við þegar við hittumst og höldum „ömmukvöldin“ okkar. Minningin um góðan dreng mun lifa í hjört- um okkar. Kristín María Stefánsdóttir, Þórunn Erla Stefánsdóttir. Í dag kveðjum við Skarphéðin frænda sem okkur þótti svo vænt um. Við munum aldrei gleyma öll- um góðu minningunum sem við eigum um þig. Allar stundirnar sem við áttum hér heima með þér, jólin heima hjá ömmu og afa og gamlárskvöldin sem við áttum saman. Allar sumarbústaðarferð- irnar okkar í Selvíkina var nokkuð sem við krakkarnir og þú biðum eftir að fara í á hverju sumri. Allt- af varst þú tilbúinn að keyra okkur og hjálpa okkur þegar við þurftum á að halda, sama hvað þú hafðir mikið að gera. Við þökkum fyrir allan þann tíma sem við fengum að eiga með þér. Guð geymi þig, elsku frændi. Elsku Sverrir og fjölskylda, Erla, Jón afi, mamma og pabbi. Megi guð vernda ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Systkinin Jón Þór og Eyrún. Í dag kveð ég elskulegan frænda minn. Það er erfitt að koma orðum að öllu því sem fer í gegnum huga minn á þessari stundu. Lífið virð- ist svo óréttlátt, nú þegar komið er að kveðjustund. Þetta er alltof snemmt. Skarphéðinn var ljúfur og góður strákur sem auðvelt var að líka við. Hann var einlægur, hjálpsam- ur og hafði þægilega nærveru. Skarphéðinn var alltaf til í að bralla eitthvað, hvort sem það tengdist bílum eða ekki. Bílar voru hans aðaláhugamál frá unga aldri, og þar var hann á sínum heima- velli. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við fjölskyldan eyddum saman helgina á Stóra Kambi á Snæfells- nesi í apríl síðastliðnum. Það var notalegt að vera saman, og það var mikið hlegið. Oftar en ekki að sög- unum hans Skarphéðins, enda hafði hann góða kímnigáfu. Hann hafði skemmtilegan hlátur sem smitaði jafnan út frá sér, og heyrð- ist hlátur hans langar leiðir. Erla systir hans hugsaði vel um bróður sinn eftir að þau misstu móður sína. Þau voru alltaf mjög náin. Skarphéðinn var lánsamur að eiga hana að. Það hefur stórt skarð myndast í okkar litlu fjölskyldu, Skarphéðins verður sárt saknað. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæll á ljóssins friðarströnd leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsd.) Elsku Skarphéðinn, ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér á nýja staðnum og að þú ert í örugg- um örmum móður þinnar og afa okkar. Það er svo sárt að sjá eftir þér, en ég vil þakka þér fyrir þann tíma sem við eyddum saman. Ég mun geyma minningarnar um þig á öruggum stað í hjarta mínu. Með Guðs styrk munum við halda áfram. Mér þykir vænt um þig. Þín frænka, Ásgerður. Skarphéðinn, kæri vinur, þín verður sárt saknað. Ég á mjög erf- itt með að trúa því að þú hafi farið svona skjótt frá okkur, svona ung- ur, allt lífið framundan. Ég man að síðast þegar ég tal- aði við þig, þá varstu svo ánægður í nýju vinnunni þinni, það var rétt fyrir hvítasunnu. Ég minnist mest þegar við steggjuðum Sæma bróð- ur. Þá ákváðum við að gera eitt- hvað við bílinn hans. Þú ætlaðir að setja raksápu á hann en við end- uðum á því að setja ónýta felgu undir hann. Ég, þú og Óli hlógum alveg rosalega mikið. Því kvöldi mun ég aldrei gleyma. Elsku Skarpi, ég vona að þér líði vel þar sem þú ert. Ég er mjög þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman. Hér kveðjum við með fallegu ljóði eftir Bubba Morthens: Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, Faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær. Aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Svo vöknum við með sól að morgni. Við vottum öllum aðstandendum Skarphéðins okkar dýpstu samúð. Hvíldu í friði, elsku vinur. Markús Sævar Gíslason og fjölskylda. 27. maí 2005 er dagur sem seint mun líða okkur úr minni, það er dagurinn sem kær vinur okkar Skarphéðinn lést í hræðilegu slysi. Á svona stundu fer maður ósjálf- rátt að rifja upp minningar sem maður á um viðkomandi. Við kynntumst Skarpa í Borgarholts- skóla, við eiginlega vitum ekki hvernig, hann var bara allt í einu kominn inn í okkar litla en góða vinahóp og fór ekkert þaðan aftur. Það voru ófáar bíóferðirnar eða út að borða á Stælinn sem við fórum saman og eftir að við keyptum okkar fyrstu íbúð varð hann eins og einn af fjölskyldunni. Við áttum það til að verja löngum stundum við videogláp og spjall, mjög oft langt fram undir morgun. Þetta voru mjög svo notalegar stundir sem við áttum saman sem urðu að dýrmætum minningum án þess að við áttuðum okkur á því fyrr en nú. Skarpi var alveg ótrúlega barngóður og það sem hann varð spenntur þegar systir hans og við áttum von á börnum á sama tíma, en montnari varð hann þegar strákarnir okkar fæddust með þriggja daga millibili. Þá var hann orðinn Skarpi Frændi með stóru f. Við höfum sjaldan hitt nokkurn sem hugsaði eins vel um systur sína og hann, honum þótti alveg óendalega vænt um hana og hans hugsun var ávallt að systir hans, faðir og Aron Logi væru alltaf númer 1, 2 og 3 í hans lífi. Skarpi var alveg einstaklega góður og skemmtilegur strákur, SKARPHÉÐINN KRISTINN SVERRISSON Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.