Morgunblaðið - 08.06.2005, Síða 45
Félagsstarf
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15 –14.
Handavinna kl. 9–16.30. Heilsugæsla
kl. 9.30 –11.30. Smíðar/útskurður kl.
13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, fótaðgerð, spilað brids/
vist.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–10.45
leikfimi, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13
gönguferð um hverfið með Rósu, kl.
14.40 ferð í Bónus, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í dag kl 13.00 í
Gjábakka.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Ferð á vegum FEBK á Rang-
árvelli og Njáluslóðir föstudaginn 10.
júní. Farið frá Gjábakka kl. 9.00 og
Gullsmára kl. 9.15. Ekinn Landvegur að
Galtarlæk, Hraunteig, Þingskálum,
Gunnarsteini, Keldum. Matur að Hlíð-
arenda/ Hvolsvelli – ekinn Fljótshlíð-
arhringur, Oddi. Skráningarlistar í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Hlemmi kl.
10. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17.
ATH: Farþegar í Strandarferð þurfa að
greiða fargjaldið fyrir 10. júní.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Garðaberg er opið frá 12.30 til 16.30.
Spilað brids kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Frá hádegi spilasal-
ur opinn. Veitingar í hádegi og kaffi-
tíma í Kaffi Berg. Miðvikud. 22. júní er
árlegur Jónsmessufagnaður með Ólafi
B. Ólafssyni, harmonikkuleikara, í
Básnum, Ölfusi. Veglegt kaffihlaðborð,
einsöngur Stefán Helgi Stefánsson,
tenór. Skráning hafin á staðnum og í
síma 575 7720.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 13 leikfimi og kl. 14 sagan.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður, kl. 9
fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 10 pútt,
kl. 11 banki, kl. 12 hádegismatur, kl. 13
bridge, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Línudans kl. 11. Glerskurður kl. 13. Pílu-
kast kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga. Sam-
verustund kl. 10.30. Böðun virka daga
fyrir hádegi. Hádegisverður. Fótaað-
gerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Skráning í hópa og námskeið
fyrir haustönn stendur yfir. Betri stofa
og Listasmiðja 9–16. Handverk og
postulín. Fótaaðgerðarstofa
897 9801. Hárgreiðslustofa
568 3139. Dagblöðin liggja frammi.
Hádegisverður og síðdegiskaffi. Sími:
568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 opin vinnustofa,
kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 10–12 sund. Kl. 11.45–
12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–
14 videó/ Spurt og spjallað. Kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vesturgata 7 | Dagsferð að Kirkju-
bæjarklaustri 14. júní kl. 8. Ekið um
Eyrarbakka og Stokkseyri, komið við á
Selfossi og Hvolsvelli. Ekið að Vík í
Mýrdal í Víkurprjón. Á Kirkjubæj-
arklaustri verður snæddur hádeg-
isverður. Kirkjubæjarstofa kapellan og
kirkjugólfið skoðað. Leiðsögum. Helga
Jörgensen. Skráning síma 535 2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt kl. 9.30, hárgreiðsla,
fótaaðgerðir og böðun, verslunarferð
kl. 12.30.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Hádegisbænir kl. 12.10
alla miðvikudaga. Léttur hádeg-
isverður á kirkjuloftinu að lokinni
bænastund. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík | Íhugunar- og
friðarstund í hádeginu á mið-
vikudögum, kl. 12.15. Tónlistin er vel
fallin til að leiða mann í íhugun og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag í sumar, milli 10–12.30. Í
dag grillum við, allir koma með það
sem þeir vilja, pylsur eða annað. Kom-
ið með gesti. Heitt kaffi á könnuni, djús
o.fl. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–
60 miðvikudagskvöld kl. 20. „Gagns-
laust tré“. Ræðumaður er Skúli Svav-
arsson. Kaffi eftir samkomuna. Allir
eru velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10. Mömmu-
morgunn. Allar mömmur og ömmur
velkomnar með börnin sín. Kl. 10.30
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af
stað frá kirkjudyrum alla miðvikudags-
morgna. Allt fólk velkomið að slást í
hópinn. Gengið er á þægilegum hraða í
rúma klukkustund.
Laugarneskirkja | Kl. 10.00 mömmu-
morgunn í umsjá Aðalbjargar Helga-
dóttur. Allar mömmur og ömmur vel-
komnar með börnin sín. Kl. 10.30
gönguhópurinn Sólarmegin leggur af
stað frá kirkjudyrum alla miðvikudags-
morgna. Allt fólk velkomið að slást í
hópinn. Gengið er á þægilegum hraða í
rúma klukkustund.
Neskirkja | Hefur þú uppgötvað ríki-
dæmi þess að staldra við í erli dags-
ins? Fyrirbænamessur eru í Neskirkju
alla miðvikudaga ársins kl. 12.15. Hægt
er að koma fyrirbænarefnum til presta
eða starfsfólks kirkjunnar, s. 511 1560.
Prestur í fyrirbænarmessu í dag er sr.
Örn Bárður Jónsson. Allir velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Dómkirkjan í Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 45
DAGBÓK
Áfréttavef Golfklúbbs Reykjavíkur, GR, erbirt könnun þar sem kemur fram að um40% þeirra sem tóku þátt telja að Garða-völlur á Akranesi sé í besta ástandi golf-
valla á suðvesturhorninu en púttflatir vallarins
komu afar vel undan vetri og hefur aðsókn á völlinn
aukist um tæplega 20% í maímánuði og algjör
sprenging hefur verið í aukningu gestaspilara frá
höfuðborgarsvæðinu.
Brynjar Sæmundsson, framkvæmdastjóri
Leynis, segir að enginn sérstakur galdur sé á bak
við ástand vallarins en vissulega sé ánægjulegt að
geta boðið kylfingum upp á góða aðstöðu í upphafi
keppnistímabilsins.
„Hratt flýgur fiskisaga. En við erum stoltir af
flötunum okkar og stöndum vel í samanburði við
aðra velli á þessum árstíma, en líklega er munurinn
svona mikill þar sem margir eiga í vandamálum
með púttflatirnar,“ segir Brynjar á skrifstofu sinni
á Akranesi en hann hefur tekið saman tölfræði yfir
heimsóknir kylfinga í maí á Garðavöll. „Við erum í
samstarfi við Golfklúbb Reykjavíkur, Golfklúbb
Kópavogs og Garðabæjar, Odd og Kjöl í Mos-
fellsbæ en kylfingar úr GR, GKG og GO geta leikið
á vellinum án endurgjalds en Kjalarmenn greiða
lægra vallargjald en aðrir. Það hafa 2.566 kylfingar
leikið á vellinum í maí, þar af voru 1.023 gestaspil-
arar en þeir voru alls 426 í maí á síðasta ári sem
gerir um 260% aukningu aðkomu kylfinga á völlinn.
Í heildina komu 18% fleiri kylfingar á völlinn í maí
en fyrir ári og hafa því félagsmenn í Leyni ekki ver-
ið eins mikið á vellinum í maí,“ segir Brynjar en
hann hefur orðið var við að kylfingar séu afar
ánægðir með völlinn miðað við árstíma. „Við erum
heppnir að hafa ekki lent í þeim vandamálum sem
eru til staðar á mörgum völlum og þá sérstaklega á
púttflötunum. Það geta verið margar ástæður fyrir
því að grasplantan í púttflötunum nær sér ekki á
strik. Veðurfarið skiptir þar miklu máli, álag og
umferð kylfinga einnig. En það var mjög hlýtt í
marsmánuði og síðan kólnaði mjög snögglega. Það
getur haft mikil áhrif á vöxtinn og það eru í raun
fjölmörg atriði sem geta haft neikvæð áhrif á pútt-
flatirnar. Við tókum þá ákvörðun að setja áburð á
flatirnar í mars og kannski hittum við á rétta tím-
ann þar sem flatirnar tóku vel við sér og voru
kannski betur undirbúnar fyrir kuldakastið í apríl.
Að auki erum við með fjórar tegundir af púttflötum
á vellinum, og það er ekki stór munur á þeim þrátt
fyrir að þær séu með ólíkar grastegundir og mis-
munandi undirlag. Golftímabilið er stutt á Íslandi
og við höfum fundið fyrir því að afrekskylfingar
taka þátt í mótum hjá okkur þar sem þeir vita að
þeir fá góðar aðstæður.“
Golf | Golfvellir og púttflatir koma misjafnlega undan vetri
Veðurfar og umferð vegur þungt
Brynjar Sæmunds-
son er fæddur árið 1967
í Ólafsfirði þar sem
hann var formaður
Golfklúbbs Ólafsfjarðar
í sex ár áður en hann
hélt til náms við
Elmwood-háskólann í
Skotlandi árið 1994.
Brynjar lauk námi í
golfvallarfræðum og
stjórnun golfklúbba ár-
ið 1996. Hann var ráðinn sem framkvæmda-
stjóri Leynis árið 1997. Eiginkona Brynjars er
Þyrí Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og
börn þeirra eru Brynja María 19 ára, Hulda
Margrét 12 ára og Ólafur Ian sem er 1 árs.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Aðalatriðið í fuglaverndun
er að halda niðri meindýrum
ÞAÐ var furðuleg athugasemd sem
umsjónarmaður Útrásar á Rás 1 lét
fara frá sér, er hann sagði að það
væri maðurinn sem væri mesti skað-
valdurinn í náttúrunni en ekki máv-
arnir, þeir væru sennilega ekki eins
miklir skaðvaldar og af væri látið. Ef
svo væri af hverju væru þeir þá ekki
löngu búnir að eyða öllu fuglalífi?
Það er vissulega maðurinn sem á
sökina á stöðugt hnignandi náttúru
og dýraríki. En hér á Íslandi nær
eingöngu í formi þess að hann er bú-
inn að raska jafnvæginu og eggja- og
ungaætum eins og ýmsum mávateg-
undum og hröfnum fjölgar um of á
kostnað annarra fugla. Skýringin á
að þessir fuglar, með hjálp minksins,
eru ekki löngu búnir að útrýma hér
öllu mófugla-, kríu- og æðarvarpi er
sú að hópur manna úti á landsbyggð-
inni, sem búa í nánu sambandi við
náttúruna, leggja nótt við dag allt
vorið við að halda þessum ófögnuði
niðri.
Það væri góð hjálp ef þessir svo-
kölluðu fuglavinir legðu sitt af mörk-
um í raun við að vernda náttúruna og
gætu í það minnsta reynt að stinga
göt á eggin og steypa undan þessum
vargfugli ef þeir treysta sér ekki til
að fara með skotvopn. Já, það þýðir
bara ekkert að kalla allt ömmu sína í
þessum málum. Að pípa eitthvað um
endurheimt votlendis er hjómið eitt
hjá hinu vandamálinu auk þess sem
votlendi er í stöðugri endurheimt
vegna breyttra búskaparhátta og
margir skurðir sem fyllast upp af
sjálfu sér á votlendissvæðum.
Að lokum. Er ekki orðið tímabært
að líta á starrann, sem situr orðið í
hundraðatali ef ekki þúsunda í mörg-
um hverfum sem meindýr hér á höf-
uðborgarsvæðinu, og halda þeim
fugli skipulega niðri rétt eins og rott-
um og kanínum í Vestmannaeyjum
sem eru á góðri leið með að útrýma
lundanum þar.
Maður getur ekki orðið gefið smá-
fuglunum í garðinum hjá sér þá situr
fólk uppi með starrager sem rænir
mann fullum nætursvefni á vorin.
Svo tala fuglafræðingar um gáfaðan
og skemmtilegan fugl sem hermir
eftir öðrum fuglum. Þeir hafa ekki
gott tóneyra sem finnst honum tak-
ast vel upp í því og gera ekki mun á
þrastasöng og starragargi, auk þess
sem hann gerir það sjaldan heldur
jagast á sama tóninum klukkutíma
eftir klukkutíma og oftast fyrir allar
aldir á morgnana og er á góðri leið
með að ræna mig geðheilsunni og
þarf ég orðið að sofa með lokaðan
glugga og jafnvel eyrnatappa eins og
við stórumferðargötu þegar verst
lætur. Það eina sem þessum fugli
tekst vel upp er að líkja eftir þjófa-
vörn í bílum. Svo er það umhugsunin
hvernig komið sé fyrir fuglalífinu
sem gerir mér þennan fugl enn
óbærilegri.
Ásdís Arthursdóttir, starfsmaður
í þýskum þjóðgarði.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, 8. júní, eráttræður Smári Guðlaugsson,
verzlunarmaður, Öldugerði 10 Hvols-
velli. Hann verður að heiman.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. Bb5
Dc7 5. 0–0 Rd4 6. Rxd4 cxd4 7. Rd5
Rxd5 8. exd5 Dc5 9. c4 a6 10. b4 Dxb4
11. Ba4 g6 12. Bb3 Bg7 13. a4 d6 14.
Ba3 Da5 15. He1 Dd8 16. c5 0–0 17.
Hc1 Bf6 18. Df3 Bg5 19. Dd3 dxc5 20.
Bxc5 Da5 21. Bxe7 Dxd2 22. Hcd1
Dxd3 23. Hxd3 Bf5 24. Hxd4 Hfe8 25.
d6 Kg7 26. g4 Bd7 27. Kf1 f6 28. Bd5
Hab8 29. Hc4 Bd2
Staðan kom upp á ofurskákmóti sem
lauk fyrir skömmu í Sarajevo. Borki
Predojevic (2.549) hafði hvítt gegn Ar-
tyom Timofeev (2.622). 30. Hc7! Bxe1
31. Hxd7 Bb4 32. g5! Svarti kóngurinn
verður nú verulega aðþrengdur. 32.
… Hxe7 og svartur gafst upp um leið
þar sem eftir 33. dxe7 He8 34. Hd8
myndi hvítur máta eftir 34...Hxe7 35.
Hg8#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.