Morgunblaðið - 10.09.2005, Side 2

Morgunblaðið - 10.09.2005, Side 2
2 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GÖNGIN OPNUÐ Fáskrúðsfjarðargöng voru form- lega opnuð við hátíðlega athöfn í gær. Með þessu styttist vegalengdin milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar- fjarða um 31 km og milli Suðurfjarða og Mið-Austurlands um 34 km. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra sagði við opnunina að gott verk hefði verið unnið, sem hefði mikla þýðingu fyrir íslenskt sam- félag. Brown sviptur umsjón Yfirmaður almannavarna í Banda- ríkjunum, Michael Brown, var í gær sviptur umsjón með hjálparstarfinu við Mexíkóflóa. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir svifasein viðbrögð eftir fellibylinn Katrínu. Nú er talið líklegt að manntjón af völdum óveð- ursins og flóðanna hafi verið mun minna en margir höfðu óttast. Stað- fest hafa verið um 400 dauðsföll. Brostnar forsendur Miðstjórn Samiðnar telur að for- sendur kjarasamninga séu brostnar miðað við núverandi verðbólgu og ástand efnahagsmála svo og launaþróun annarra hópa. Þetta kemur fram í ályktun sem hún sendi frá sér í gær. Hagnast á hnattvæðingunni Ný dönsk rannsókn bendir til þess að Ísland sé vel í stakk búið til að hagnast á hnattvæðingunni, og trón- ir Ísland ásamt Bandaríkjunum á toppnum yfir þau lönd sem eru helst tilbúin til að græða á hnattvæðing- unni. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir líklega ekki tekið tillit til óstöðugleika krónunnar þeg- ar komist er að þessari niðurstöðu. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 31/33 Úr verinu 14 Kirkjustarf 34/35 Viðskipti 15 Skák 39 Erlent 16/17 Myndasögur 40 Minn staður 18 Víkverji 40 Akureyri 20 Dagbók 40/43 Landið 21 Velvakandi 41 Daglegt líf 22/23 Staður og stund 42 Ferðalög 24 Af listum 46/47 Menning 25, 44/49 Bíó 46/49 Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 50 Umræðan 28/30 Staksteinar 51 Bréf 29 Veður 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %            &         '() * +,,,                    Bjóðum frábært tilboð til Costa del Sol í 3 vikur. Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Costa del Sol 28. september frá kr. 59.990 m.v. 2 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.59.990 Netverð á mann, m.v. a.m.k. 2 í herbergi/- stúdíó/íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 28. sept. í 3 vikur. Síðustu sætin - 3 vikur ÁKVEÐIÐ var á fundi bankaráðs fyrir tveimur vikum að hækka laun bankastjóra Seðlabankans um samtals 27% í þremur áföngum. Formaður bankaráðs Seðlabankans þvertekur fyrir að þessi ákvörðun tengist á nokkurn hátt því að Davíð Oddsson mun setjast í stól bankastjóra 20. októ- ber nk. Fyrsta hækkunin, 15%, gildir afturvirkt frá 1. janúar sl., laun hækka svo aftur um 5% 1. janúar 2006, og aftur um 5% ári síðar, segir Ólafur G. Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabankans. Raunhækkunin er því um 27%. Heildarlaun Birg- is Ísleifs Gunnarssonar á síðasta ári voru rúmlega 1.233 þúsund krónur á mánuði, að því er fram kemur í ársskýrslu Seðlabankans fyrir árið 2004. Laun almennra starfsmanna hækka nokkuð minna en bankastjóranna, en samkvæmt kjara- samningum við Samband íslenskra bankamanna verður raunhækkun á launum starfsmanna 15% á tímabilinu frá 1. október 2004 til loka september 2008, auk hækkunar helmings starfsmanna um launaflokk, eins og fram kemur í ársskýrslu bankans. Í undirbúningi frá áramótum Ólafur segir hækkanir á launum þriggja banka- stjóra Seðlabankans hafi verið í undirbúningi frá því um áramót, eins og staðfest sé í fundargerð- um bankaráðs, og því fráleitt að hækkunin standi í nokkru samhengi við komu Davíðs Oddssonar í bankann. „Það hafði ekki verið farið í gegnum launamál bankastjóranna frá því í janúar 2001, og síðan hafði orðið æði mikil breyting á launamál- um,“ segir Ólafur. „Á þessum árum sem liðin eru hafa orðið mikl- ar hækkanir á launum ýmissa sem við reynum eðlilega að bera okkur saman við,“ segir Ólafur. Hann segir Seðlabankann ekki reyna að bera laun bankastjóra sinna saman við laun banka- stjóra í stóru viðskiptabönkunum þremur, en launin séu jafnvel eftir hækkunina lægri en hjá stærstu Sparisjóðunum. „Okkur finnst það ekki sæmandi að bankastjórarnir í banka bankanna, eins og við getum kallað Seðlabankann, séu svona settir.“ Ólafur segir að framkvæmdastjórar hinna ýmsu sviða bankans hafi fengið meiri launahækk- anir en bankastjórarnir á undanförnum árum, einfaldlega vegna þess að starfskraftar þeirra séu mjög eftirsóttir á bankamarkaðnum í dag, og sí- fellt verið að bjóða þeim betra kaup og kjör hjá viðskiptabönkunum. Með þeirri hækkun sem hafi verið ákveðin á launum bankastjóra sé verið að fylgja launaþróuninni hjá æðstu stjórnendunum, og halda „eðlilegu“ bili milli bankastjóranna og millistjórnenda í bankanum. Verða að hafa öflugt starfslið „Menn mega ekki gleyma því hversu mikilvæg stofnun Seðlabankinn er í öllu fjármála- og efna- hagskrefinu. Þar verðum við að hafa öflugt starfs- lið, og sem betur fer hefur bankinn notið þess að hafa mjög gott starfslið,“ segir Ólafur. Laun bankastjóra Seðla- bankans hækka um 27% Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Eftir hækkunina eru launin samt lægri en hjá stærstu Sparisjóðunum GUÐFRÍÐUR Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, var kjörin forseti Skáksambands Norðurlanda til næstu tveggja ára á nýafstöðnu þingi sambandsins sem fram fór í Vammala í Finnlandi og er hún fyrsta konan í 106 ára sögu sambandsins til að gegna embættinu. Guðfríður ávarpaði fund sambandsins og sagði mikilvægt fyrir Norðurlöndin að hugsa stórt til þess að skapa sér enn sterkari sess í skákstarfi á heimsvísu. Einnig hvatti hún til þess að Norðurlöndin mundu á næstunni bjóða í stóra al- þjóðlega viðburði á borð við ólympíuskákmót, Evrópu- meistaramót eða jafnvel heimsmeistaraeinvígi. Norðurlöndin ættu í sameiningu að beita sér fyrir rót- tækum umbreytingum á Alþjóðaskáksambandinu, FIDE, en á undanförnum árum hefur FIDE verið gagnrýnt fyrir að vera stjórnað af spilltum einræðis- herrum fyrrverandi sovétlýðvelda sem kaupa sér atkvæði í þriðja heiminum, sagði Guðfríður ennfremur. Ætlar Guðfríður að leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu barna- og ung- lingastarfs, bæði með sérstökum vinabæjamótum og vinaskólamóti Norður- landaþjóðanna á milli. Einnig vill hún leggja áherslu á aukin samskipti á milli sterkustu skákmanna og -kvenna Norðurlandanna. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Forseti Skáksambands Norðurlanda Fyrsta konan til að gegna embættinu TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, fann lík franska ferða- mannsins sem saknað hefur verið síðan 5. september síðastliðinn í Markarfljóti um klukkan þrjú í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli virðist sem maðurinn hafi villst af leið þegar hann kom inn í Þórsmörk af Lauga- veginum svokallaða. Að sögn lög- reglunnar leituðu 80 til 100 björg- unarsveitarmenn, auk leitarhunda, á svæðinu í gær. Síðast var vitað af ferðum mannsins, sem hét Christi- an Aballéa, við Álftavatn 25. ágúst síðastliðinn. Var hann þá á leið frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Þaðan ætlaði hann í Skóga. Hann átti bókað flug frá Íslandi til Frakk- lands 2. september og þar sem hann skilaði sér ekki til vinnu sl. mánu- dag bárust fyrirspurnir um hann til lögreglunnar á Íslandi. Að sögn Þorsteins Þorkelssonar hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg fundust skór og vatnsbrúsi ferðamannsins við Kaldaklofskvísl. Talið er líklegt að maðurinn hafi farið vestari leið frá Álftavatni og á bílavaði yfir Kaldaklofskvísl. Vísbendingar eru um að hann hafi lent í vandræðum við að komast yfir ána og þar hafi hann beðið bana. Ferðamaðurinn fannst látinn í Markarfljóti ÞAÐ var mikið fjör í Nauthólsvíkinni þegar þær Snuðra og Tuðra heimsóttu víkina og létu öllum ill- um látum. Krakkarnir í heita pottinum fylgdust bros- andi með þeim. Stúlkurnar tvær hafa stundum heim- sótt Stundina okkar og þær munu eitthvað koma við sögu í henni á næstunni því að sjónvarpsmenn voru einmitt að mynda í Nauthólsvíkinni þegar þær voru þar á ferð. Morgunblaðið/Kristinn Snuðra og Tuðra í Nauthólsvík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.