Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
„VIÐ erum að kynna Faxa-
flóahafnir,“ segir Ágúst
Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna, sem eru með
bás á Íslensku sjávarútvegs-
sýningunni í Smáranum í
Kópavogi.
Faxaflóahafnir urðu til við
sameiningu hafnanna í
Reykjavík, á Grundartanga,
Akranesi og í Borgarnesi, sem
tók gildi 1. janúar á þessu ári.
Í nýjasta Hafnarblaðinu segir
að stefnt sé að því að byggja
upp öflugt fyrirtæki sem
standi á gömlum merg og geti
þjónað sjávarútveginum um
ókomna framtíð. Fyrirtækið
vilji styðja við eflingu útgerð-
ar og fiskvinnslu á svæðinu
með markvissri uppbyggingu
hafnarmannvirkja og nægu
framboði lands og aðstöðu fyr-
ir sjávarútvegsfyrirtæki.
Ágúst segir að sameiningin
hafi tekist mjög vel. Búið sé að
sameina stefnumótun, bók-
hald, fjármál og yfirstjórn en
hver höfn sé rekin sjálfstætt
eins og áður.
Grundartangahöfn er sér-
staklega kynnt á sýningunni.
Ágúst segir að markmiðið
með sameiningunni hafi meðal
annars verið að eignast meira
land svo hægt væri að halda
áfram að þróa hafnirnar.
Reykjavíkurhöfn væri til
dæmis nær orðin landlaus.
„Ástæðan fyrir því að við er-
um hérna er sú að við erum að
kynna nýtt nafn, við erum að
kynna nýtt fyrirtæki og þá
möguleika sem í því felast,“
segir Ágúst.
Faxaflóahafnir
kynntar
á sýningunni
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ágúst Ágústsson, markaðs-
stjóri Faxaflóahafna, í básn-
um á Íslensku sjávarútvegs-
sýningunni í Smáranum í
Kópavogi.
VEIÐAR á norsk-íslensku
síldinni hafa gengið ágætlega á
árinu. Heildarafli íslensku
skipanna er nú orðinn 119 þús.
tonn á þessu ári. Það er aukn-
ing um 30%, eða
um tæp 30 þús.
tonn, frá sama
tíma í fyrra.
Kvóti ís-
lensku skip-
anna á þessu ári
var settur 158
þús. tonn og
hækkaði úr 128
þús. tonnum frá
síðasta ári. Nú
hefur því um
75% af kvótan-
um í ár veiðst.
Frá þessu er
greint í Morg-
unkorni Íslandsbanka og segir
þar ennfremur: „Undanfarin
ár hefur mesta veiðin verið yfir
sumartímann en þó hefur síld-
in veiðst sum árin í einhverju
magni í september og október.
Þó má gera ráð fyrir að kvótinn
í ár náist ekki. Til viðbótar við
afla íslensku skipanna hafa er-
lend skip landað um 9 þús.
tonnum af norsk-íslensku síld-
inni hér á landi.
Vinnsluskipum hefur fjölg-
að mjög á síðustu árum og
samfara því er nú meira af
síldaraflanum unnið til mann-
eldis. Ekki liggur nákvæm-
lega fyrir
hversu hátt
hlutfall af afl-
anum hefur
skilað sér í af-
urðum til
manneldis en
gróflega má
gera ráð fyrir
að það sé um
30–40% en þá
hefur verið
tekið tillit til
bræðslufisks
og hrats frá
vinnsluskip-
um. Manneld-
isvinnslan kemur sér vel fyrir
síldarútgerðir og verkendur
því afurðaverð á frystri síld í
erlendri mynt hefur haldist
mjög hátt undanfarið og var í
júlí um 50% hærra m.v. sama
tíma í fyrra.
Útgerðarmenn undirbúa
sig nú fyrir veiðar á íslensku
sumargotssíldinni en kvótinn
á fiskveiðiárinu er 110 þús.
tonn.“
Mun meiri veiði
á síld en í fyrra
„Þetta hefur verið góð sýn-
ing. Við höfum selt um 15
AIS kerfi og fengið margar
fyrirspurnir,“ segir Ög-
mundur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Friðriks A.
Jónssonar.
Hann segir að einnig hafi
verið seld neðansjáv-
armyndavél í rann-
sóknaskipið Árna Frið-
riksson og tæki sem notað sé
til staðsetningar á henni. Ög-
mundur segir að svo virðist
sem markaðir fyrir siglinga-
og fiskileitartæki sé góður
um þessar mundir. Margir
séu að huga að nýsmíði og
það gefi ákveðna möguleika
á sölu þessara tækja.
AIS-kerfið er sjálfvirkt
auðkenni fiskiskipa. Kerfið
nýtist vel þar sem mörg skip
eru að veiðum eða skipa-
umferð mikil. Þar má nefna
veiðar á úthafskarfa, loðnu
og fleiru. Þá er kerfið hent-
ugt fyrir minni báta sem
ekki sjást vel í ratsjá, því ef
hætta er á ferðum gefur
tölva um borð viðvör-
unarmerki.
Morgunblaðið/Golli
Sýningar Ögmundur Friðriksson og Valdimar Einisson á
sýningarbás Friðriks A. Jónssonar.
Góð sýning
„FUNDIR hér hafa gengið mjög vel,“
sagði Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, við Morgunblaðið, staddur á 2. al-
þjóðaráðstefnu þingforseta sem Al-
þjóðaþingmannasambandið og
Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir í
New York.
„Hér er rætt um hver eigi að vera
tengsl SÞ og Alþjóðaþingmannasam-
bandsins og almennt komið inn á þau
vandamál sem við stöndum nú
frammi fyrir í dag, þ.e. hryðjuverk,
fátækt og annað sem hrjáir okkur.
Lögð er áhersla á að áhrif þjóðþing-
anna þurfi að verða meiri með þeirri
röksemd að þau séu hornsteinn lýð-
ræðisins og að allar skoðanir fái að
koma þar fram.“
Í tengslum við ráðstefnuna sótti
Halldór einnig fund þingforseta
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja,
enda samstarf milli þessara þjóða sí-
fellt að verða meira, eins og Halldór
bendir á.
„Við þingforsetar landanna áttum
fund þar sem sérstaklega var rætt um
væntanlega heimsókn okkar til Úkra-
ínu um næstu mánaðamót og um þá
áherslu sem þessar þjóðir leggja á að
eiga gott samstarf við Bandaríkja-
menn. Það má segja að á síðustu ár-
um hafi mótast sterkur vilji þessara
átta þjóðþinga til þess að ná saman
um þau mál sem uppi eru til þess að fá
meiri þunga í okkar áherslum,“ sagði
Halldór, sem í gær átti fund með
þingforsetum smáríkja í Evrópu
vegna fyrirhugaðs fundar á Mónakó.
Áhrif þjóðþinga
þurfi að vera meiri
Íslenska sendinefndin á fundinum í New York. Í fremri röð eru Hjálmar W.
Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá SÞ, Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis, og Halldór Blöndal, forseti Alþingis. Í aftari röð
eru Kristrún Eymundsdóttir, eiginkona Halldórs, og Belinda Theriault,
forstöðumaður alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis.
HAUSTHÁTÍÐ KFUM og KFUK
verður haldin í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal á morgun,
sunnudag. Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna í Reykja-
vík, segir hátíðina haldna til að fagna
góðu starfi í sumar og jafnframt til að
blása til sóknar fyrir veturinn.
„Það verður boðið upp á skemmti-
lega dagskrá, allir eru velkomnir og
það kostar ekkert að taka þátt,“ segir
Kjartan en hátíðin hefst kl. 10 og
stendur til kl. 17. Sjálf dagskráin
hefst klukkan 14 og m.a. kemur Ómar
Ragnarsson fram, Brúðubíllinn verð-
ur með leiksýningu og þá fara bílar
með stórt hlutverk á hátíðinni. Jepp-
ar frá Xstream.is og bílar frá Forn-
bílaklúbbnum verða á staðnum. Mik-
ið verður um söng og tónlist.
Gospelkór KFUM og KFUK tekur
lagið og börn úr leikskólanum Vina-
garði syngja, auk fleiri atriða.
Að lokinni dagskránni í húsdýra-
garðinum fylkja menn liði og fara í
skrúðgöngu að félagsheimili KFUM
og KFUK á Holtavegi 28.
„Þar munum við grilla og krakk-
arnir geta farið á hestbak á lóðinni á
meðan,“ segir Kjartan.
Tónlistin efld í vetur
Hann segir starfið hafa gengið
mjög vel í sumar og hátt í 3.000 börn
sótt sumarbúðirnar í Vatnaskógi í
Hvalfirði.
„Nú er vetrarstarfið að fara af stað
og það er ætlunin að efla tónlistar-
sviðið enn frekar í vetur. Fyrirhugað
er að stofna barnakór og halda áfram
með Ten-sing unglingastarfið sem við
fórum af stað með í fyrra á vegum
Miðborgarstarfsins.
Þá verður hið hefðbundna deilda-
starf starfrækt í vetur, en fjörutíu
deildir eru á landinu og að jafnaði
vinna 200 sjálfboðaliðar við að halda
starfinu gangandi. En þótt starfsem-
in miði fyrst og fremst að börnum og
ungu fólki þá er margs konar starf í
gangi fyrir fullorðna, m.a. gospelkór-
inn, íþróttir og Alfa-námskeiðin vin-
sælu. Allir eru velkomnir,“ segir
Kjartan Jónsson.
KFUM og KFUK fagna
liðnu sumri í Laugardal
Fjórir
læknar
með ólæknandi
bakteríu
á morgun