Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SVEITARSTJÓRN Grýtu-
bakkahrepps telur sér ekki
fært að standa að útgáfu
kynningarefnis, sem sam-
starfsnefnd um sameiningu
sveitarfélaga við Eyjafjörð er
að gefa út, nema komið verði
til móts við sjónarmið fulltrúa
sveitarstjórnar í nefndinni.
Þessi afstaða sveitarstjórnar
Grýtubakkahrepps er á svip-
uðum nótum og hjá sveitar-
stjórn Eyjafjarðarsveitar og
sagt var frá í Morgunblaðinu í
gær.
Drög að kynningarefninu
voru til umfjöllunar á fundi
sveitarstjórnar Grýtubakka-
hrepps í vikunni. Þar kom m.a.
fram að fulltrúum sveitar-
stjórnar Grýtubakkahrepps í
sameiningarnefndinni hafi ver-
ið synjað um að koma á fram-
færi sínum viðhorfum í fram-
angreindu kynningarefni.
Ennfremur kemur fram í bók-
un frá fundi sveitarstjórnar,
að í upphafi var lagt upp með
að í kynningarefninu yrðu
kostir og gallar sameiningar
kynntir, en ljóst er að fram-
lögð drög uppfylli ekki þá skil-
greiningu.
Sveitarstjórn
Grýtubakkahrepps
Ekki
sátt við
kynning-
arefni
AKUREYRI
LANDSVIRKJUN hefur eignast
tæplega 32% hlut í Þeistareykjum
ehf. með kaupum á nýju hlutafé í fé-
laginu en skrifað var undir kaupin á
hluthafafundi sem haldinn var á
Breiðumýri í Reykjadal í gær. Um er
að ræða hlutafjáraukningu upp á
rúmar 110 milljónir króna, sem
Landsvirkjun greiðir um 260 millj-
ónir króna fyrir. Eftir kaupin eiga
Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur og
Landsvirkjun jafna hluti í félaginu,
tæpan þriðjung hvert en Þingeyj-
arsveit og Aðaldælahreppur eiga
minna.
Hreinn Hjartarson veitustjóri á
Húsavík og formaður stjórnar Þeista-
reykja sagði að aðkoma Landsvirkj-
unar að félaginu hefði þá þýðingu að
hægt yrði að hefjast handa við að
bora tvær rannsóknarholur á Þeista-
reykjum og við forhönnun á virkjun.
Hann sagði að kostnaður við hvora
holu væri á bilinu 200–250 milljónir
króna og að stefnt væri að því að bora
eina holu á næsta ári og aðra árið
2007.
Landsvirkjun á og rekur Kröflu-
virkjun og Bjarnaflagsvirkjun og
áformar að stækka Kröfluvirkjun og
byggja nýja Bjarnarflagsvirkjun á
næstu árum ef samningar nást um
orkusölu. Hreinn sagði reiknað með
að á næstu þremur árum verði varið á
þriðja milljarð króna til rannsókna á
þessum svæðum, þ.e. Kröflu, Bjarna-
flagi, Gjástykki og Þeistareykjum.
„Gangi þetta eftir er hér um að ræða
umfangsmestu orkurannsóknir sem
ráðist hefur verið í á Norðurlandi.“
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, for-
maður stjórnar Landsvirkjunar,
sagði eftir að skrifað var undir kaupin
að þetta væri stór stund fyrir Lands-
virkjun og fyrir Norðausturland.
„Með aðkomu Landsvirkjunar að
Þeistareykjum lít ég svo á að komið
sé það afl í þetta félag sem þarf til að
hægt sé að byggja það upp og það sé í
stakk búið til að takast á við stærri
verkefni, þá og þegar við finnum
kaupanda að orku,“ sagði Jóhannes
Geir. Í tilefni kaupa Landsvirkjunar á
hlut í Þeistareykjum hafa hluthafar
staðfest þann vilja sinn að starfa sam-
an að rannsóknum, undirbúningi og
nýtingu á háhitasvæðum á Norðaust-
urlandi og sölu á rafmagni frá þeim.
Fulltrúar frá Alcoa
í heimsókn
Félagið Þeistareykir ehf. var stofn-
að árið 1999 en megintilgangur þess
er að vinna að rannsóknum, und-
irbúningi, vinnslu og sölu á rafmagni
frá háhitasvæðinu að Þeistareykjum í
S-Þingeyjarsýslu. Hreinn sagði að
þegar væri búið að bora tvær holur á
svæðinu og gera miklar yfirborðs-
rannsóknir, viðnámsmælingar og
fleira. „Við erum komin mjög langt
með Þeistareyki og teljum okkur
geta svarað spurningum um virkjun
eftir næstu tvær holur og þá hversu
við getum byrjað stórt. Það er hins
vegar ljóst að við erum að fram-
kvæma þarna til þess að geta selt raf-
magn til stórnotenda á Norðaust-
urlandi. Það er stöðugt unnið að þeim
málum og það voru m.a. þrír menn
frá Alcoa á svæðinu í gær (fimmtu-
dag). Þannig að það er ríkjandi bjart-
sýni í félaginu,“ sagði Hreinn.
Landsvirkjun hefur eignast þriðjungs hlut í Þeistareykjum ehf.
Umfangsmestu orkurannsóknir
á Norðurlandi fyrirhugaðar
Morgunblaðið/Kristján
Undirskrift Á myndinni eru fulltrúar sveitarfélaga sem eiga Þeistareyki ehf. ásamt fulltrúum Landsvirkjunar.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni til-
lögu umhverfisráðs um breytingu á
deiliskipulagi orlofshúsabyggðar í
Búðargili. Þar ætlar félagið Sælu-
hús að reisa 22 orlofshús, sem
smíðuð verða í Svíþjóð. Njáll
Trausti Friðbertsson, fram-
kvæmdastjóri Sæluhúsa, sagði að
hugmyndin væri að hefja jarðvegs-
framkvæmdir nú í haust og koma
þar fyrir 10 húsum næsta vor, til
útleigu í sumarbyrjun. Njáll sagði
stefnt að því að leigja húsin til fyr-
irtækja og stéttarfélaga til lengri
tíma og einnig hinum almenna
ferðamanni.
„Við ætlum að bjóða þarna upp á
nýja vídd varðandi gistimöguleika í
bænum. Húsin eru vel afmörkuð í
umhverfi sínu og vel staðsett gagn-
vart þjónustu og afþreyingu. Þann-
ig að þetta ætti að geta skapað
góða möguleika í ferðaþjónustu.“
Njáll sagði að menn horfðu til
heilsársreksturs og í því sambandi
væru m.a. bundnar vonir við þær
framkvæmdir sem eiga sér stað
varðandi snjóframleiðslu í Hlíðar-
fjalli. Orlofshúsasvæðið í Búðargili
er um 2,3 hektarar að stærð. Njáll
sagði að þarna væri verið að nýta
nokkuð erfitt byggingaland í mikl-
um halla. Það nær ofan á gamla
veginn í gilinu, upp á brekku-
brúnina að Þórunnarstræti og yfir
hluta af túni. Húsin verða tæplega
80 fermetrar að stærð og vel búin.
Ekki eru allir jafn sáttir við fyr-
irhugaðar framkvæmdir og m.a.
hafa íbúar í nágrenninu sett sig
upp á móti fyrirhuguðum fram-
kvæmdum. Þrjár athugasemdir
bárust við breytingatillögu deili-
skipulagsins. Í bókun bæjarstjórn-
ar kemur fram að athugasemdirnar
eigi það sammerkt að beinast ekki
að fyrirhuguðum breytingum, held-
ur hafi þær beinst alfarið að bygg-
ingu orlofshúsahverfisins sem slíks.
Þá lét Valgerður H. Bjarnadóttir,
bæjarfulltrúi Vinstri grænna, bóka
á fundi bæjarstjórnar að hún væri
andvíg því að reisa sumarhúsa-
byggð í Búðargili og sat hjá við af-
greiðslu málsins.
Orlofshúsabyggð rís í Búðargili
Framkvæmdir
hefjast með
haustinu
Vefsíða| Ný vefsíða hefur verið
opnuð fyrir Smámunasafn Sverris
Hermannssonar húsasmíðameistara
sem staðsett er í Sólgarði, Eyja-
fjarðarsveit. Slóðin er www.smam-
unasafnid.is
Smámunasafnið hefur þá sérstöðu
að vera ekki safn einhverra ákveð-
inna hluta heldur allra mögulegra
hluta. Hversdagslegir hlutir eru þar
mitt á meðal afar óhefðbundinna.
Safnið er lokað frá 15. sept-
ember–15. maí en á því tímabili geta
hópar heimsótt safnið í samráði við
safnvörð.
Áfram| Fundur vegna undirbún-
ings hagsmunasamtaka fyrir íbúa í
Dalvíkurbyggð verður haldinn á
Rimum í Svarfaðardal á morgun,
sunnudaginn 11. september kl. 14.
Hvatinn að stofnun félagsins er sú
ákvörðun bæjarstjórnar að leggja
Húsabakkaskóla niður, en ekki síður
samstillt barátta almennings í
byggðarlaginu gegn því, segir í frétt
frá undirbúningsnefnd. Félagið mun
heita Áfram og verður mál-
efnagrundvöllur þess kynntur á
fundinum og kosið í undirbúnings-
stjórn.